Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 18

Morgunblaðið - 05.04.2019, Side 18
„Liðsfélagar í gegnum súrt og sætt“ F imm mánuðum eftir að við hittumst byrjuðum við að búa saman og höfum verið nokkuð óaðskiljanleg síðan.“ Parið gifti sig 22. desember árið 2018. Jóna segir hjóna- band skipta máli – sér í lagi ef fólk hefur hug á að eyða ævinni saman sem liðsfélagar í gegnum súrt og sætt. „Mér finnst það að vera gift mjög rómantískt en að sjálfsögðu mjög stór ákvörðun sem maður tekur vonandi einungis einu sinni um ævina.“ Hún segir órómantíska lögfræðinginn innra með sér einnig huga að því sem er praktískt. „Réttarstaða sambúðarfólks á Íslandi er alls ekki sambærileg og því er mikilvægt að huga vel að þessum atriðum.“ Fengu dásamlegt veður „Brúðkaupið var yndislegt í alla staði. Við giftum okkur í Dóm- kirkjunni í Reykjavík, en séra Hjálmar Jónsson gaf okkur saman. Við fengum dásamlegt veður en það var alveg bjart yfir daginn og algjört logn. Við gátum ekki verið heppnari með veður. Veislan var svo haldin í Nýlistasafni Reykjavíkur í Marshall-húsinu úti á Granda þar sem við skemmtum okkur fram eftir með nánustu fjölskyldu og vinum. Við hjónin vorum seinust út, okkur fannst það gaman! Við læstum húsinu! Vinir okkar voru veislustjórar og voru með allt undir sinni góðu stjórn. Við þurftum ekkert að spá eða gera og græja þennan dag. Þetta var æðislegur dagur sem leið alltof hratt en við munum aldrei gleyma!“ Hvar keyptirðu kjólinn? „Ég fékk brúðarkjólinn frá spænska merkinu „Pro- novias“. Ég keypti kjólinn í Sofíu, Búlgaríu, þar sem við búum í augnablikinu. Hann var mjög mikið í mínum anda, ef svo má segja en hann var bara nákvæmlega eins og ég vildi hafa hann.“ Leifur á Marshall sá um allan mat og eftirrétt í veislunni. „Við fengum svo Brikk til þess að gera litla brúðkaupstertu aukalega, en hún var virkilega góð!“ Ítalskt þema í veislunni Það er greinilegt að hún ber mikið traust til Leifs sem hefur gert bæði La Primavera og veitingastaðinn Marshall vinsæla hér á landi. „Leifur er að okkar mati, einn besti kokkur og veit- ingamaður landsins! Það var ítalskt þema hjá okkur tengt matn- um í brúðkaupinu. Tómatsalat, parmaskinka, ólívur og pesto, steiktir ætiþistilklattar, hægelduð bleikja, kjúklingabringur, salt- fisksalat og nautalund með rucola og salsa verde var meðal annars á boðstólum. Vínið var sömuleiðis ítalskt og eftirréttardrykkurinn líka eða Limoncello. Barþjónarnir Daníel Jón og Finnur sáu svo um að hrista kokkteila ofan í gestina fram eftir kvöldi.“ Brúðhjónin fengu Írisi Dögg ljósmyndara til að mynda daginn fyrir sig sem hún gerði stórkostlega. „Hún var frábær í alla staði. Hún myndaði daginn alveg frá byrjun en okkur þótti það ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega eftir á að geta skoðað myndirnar. Við fengum ekki bara yndislegar myndir af okkur og dóttur okkar, held- ur líka dásamlegar myndir af brúðkaupsgestunum sem er svo ótrúlega dýrmætt að eiga. Hún náði stemningunni alveg á mynd og hún hefur afskaplega gott auga fyrir smá- atriðum. Ég verð að fá að hrósa henni mjög fyrir þennan dag og hennar vinnu!“ Gestir í brúðkaupinu voru 125 talsins sem þeim þótti hæfileg tala. Rétti aðilinn skiptir öllu máli Jóna segir að maður geti stressað sig og haft áhyggjur af algjörum smáatriðum sem skipta til lengri tíma engu máli. „Það eina sem skiptir máli er að maður sé með réttan aðila fyrir fram- an sig í kirkjunni og góða fjölskyldu og vini til að halda upp á ástina með! Annað er bara bónus!“ Hún segir klárlega áskorun að skipuleggja brúðkaup hér heima og búa erlendis. „Það gekk þó alveg upp enda með gott fólk að aðstoða mig. Kristín blómaskreytir hjá Grænum markaði sá um all- ar skreytingarnar hjá okkur þannig að það auðveldaði töluvert!“ Lögfræðingurinn Jóna Vestfjörð og knattspyrnumað- urinn Hólmar Örn Eyjólfsson hittust í byrjun árs 2010 og hafa verið óaðskiljanleg síðan. Þau giftu sig í fyrra og upplifðu einstaka stund með vinum og vandamönnum. Elínrós Líndal | elinros@mbl.is Brúðguminn var með blóm í stíl við brúðar- vönd brúðarinnar. Fallegur klassískur brúðarvöndur í anda brúðarinnar. 18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019 Það sem Jóna mælir með · Hafðu allt skriflegt þegar kemur að verð- tilboðum. Við vorum himinlifandi með alla þá þjónustu sem við fengum frá öllum, en við vorum líka mjög skýr um hvað við vildum og hvað hlutirnir máttu kosta. Að vera skýr með svona hluti og passa upp á að allt sé skriflegt kemur í veg fyrir óþarfa leiðindi seinna. · Að ná góðum svefn vikuna fyrir brúð- kaupið! · Að fá einhvern til að aðstoða við skreyt- ingar! Það léttir þvílíkt á – þú getur enn þá komið þínum hugmyndum að þrátt fyrir að einhver aðstoði þig. · Að fara í smá brúðkaupsferð eftir veisluna. Það er að sjálfsögðu dýrt að halda brúðkaup og sumir vilja geyma brúðkaupsferðina þar til seinna. Ég mæli þó mjög með því að fara eitt- hvert tvö saman, þó að ekki sé nema bara út á land í bústað. Að eyða smátíma saman bara tvö og njóta þess að vera nýgift eftir skipulagningartörn er dásamlegt. Það sem Jóna myndi forðast · Ekki stressa þig á smáatriðum. Þau skipta engu máli til lengri tíma og gestirnir taka ekki eftir því hvort glösin eru svona eða hinsegin. · Að gleyma að taka myndir á brúðkaupsdag- inn með þeim aðilum sem þú vilt – t.d. gleymdi ég að taka mynd með mínum bestu vinkonum og það var agalegt að fatta það seint eftir á. Ljósmyndir/Íris Dögg Einarsdóttir Brúðhjónin áttu yndislega stund saman á brúð- kaupsdaginn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.