Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 18
„Liðsfélagar í gegnum súrt og sætt“
F
imm mánuðum eftir að við hittumst byrjuðum við að búa
saman og höfum verið nokkuð óaðskiljanleg síðan.“
Parið gifti sig 22. desember árið 2018. Jóna segir hjóna-
band skipta máli – sér í lagi ef fólk hefur hug á að eyða
ævinni saman sem liðsfélagar í gegnum súrt og sætt.
„Mér finnst það að vera gift mjög rómantískt en að sjálfsögðu
mjög stór ákvörðun sem maður tekur vonandi einungis einu sinni
um ævina.“
Hún segir órómantíska lögfræðinginn innra með sér einnig huga
að því sem er praktískt. „Réttarstaða sambúðarfólks á Íslandi er alls
ekki sambærileg og því er mikilvægt að huga vel að þessum atriðum.“
Fengu dásamlegt veður
„Brúðkaupið var yndislegt í alla staði. Við giftum okkur í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík, en séra Hjálmar Jónsson gaf okkur saman.
Við fengum dásamlegt veður en það var alveg bjart yfir daginn og
algjört logn. Við gátum ekki verið heppnari með veður. Veislan var
svo haldin í Nýlistasafni Reykjavíkur í Marshall-húsinu úti á
Granda þar sem við skemmtum okkur fram eftir með nánustu
fjölskyldu og vinum. Við hjónin vorum seinust út, okkur
fannst það gaman! Við læstum húsinu! Vinir okkar voru
veislustjórar og voru með allt undir sinni góðu stjórn. Við
þurftum ekkert að spá eða gera og græja þennan dag.
Þetta var æðislegur dagur sem leið alltof hratt en við
munum aldrei gleyma!“
Hvar keyptirðu kjólinn?
„Ég fékk brúðarkjólinn frá spænska merkinu „Pro-
novias“. Ég keypti kjólinn í Sofíu, Búlgaríu, þar sem við
búum í augnablikinu. Hann var mjög mikið í mínum
anda, ef svo má segja en hann var bara nákvæmlega eins
og ég vildi hafa hann.“
Leifur á Marshall sá um allan mat og eftirrétt í veislunni.
„Við fengum svo Brikk til þess að gera litla brúðkaupstertu
aukalega, en hún var virkilega góð!“
Ítalskt þema í veislunni
Það er greinilegt að hún ber mikið traust til Leifs sem hefur
gert bæði La Primavera og veitingastaðinn Marshall vinsæla
hér á landi. „Leifur er að okkar mati, einn besti kokkur og veit-
ingamaður landsins! Það var ítalskt þema hjá okkur tengt matn-
um í brúðkaupinu. Tómatsalat, parmaskinka, ólívur og pesto,
steiktir ætiþistilklattar, hægelduð bleikja, kjúklingabringur, salt-
fisksalat og nautalund með rucola og salsa verde var meðal annars á
boðstólum. Vínið var sömuleiðis ítalskt og eftirréttardrykkurinn líka eða
Limoncello. Barþjónarnir Daníel Jón og Finnur sáu svo um að hrista kokkteila
ofan í gestina fram eftir kvöldi.“
Brúðhjónin fengu Írisi Dögg ljósmyndara til að mynda daginn fyrir sig sem hún
gerði stórkostlega. „Hún var frábær í alla staði. Hún myndaði daginn alveg frá
byrjun en okkur þótti það ótrúlega skemmtilegt, sérstaklega eftir á að geta skoðað
myndirnar. Við fengum ekki bara yndislegar myndir af okkur og dóttur okkar, held-
ur líka dásamlegar myndir af brúðkaupsgestunum sem er svo ótrúlega dýrmætt að
eiga. Hún náði stemningunni alveg á mynd og hún hefur afskaplega gott auga fyrir smá-
atriðum. Ég verð að fá að hrósa henni mjög fyrir þennan dag og hennar vinnu!“
Gestir í brúðkaupinu voru 125 talsins sem þeim þótti hæfileg tala.
Rétti aðilinn skiptir öllu máli
Jóna segir að maður geti stressað sig og haft áhyggjur af algjörum smáatriðum sem skipta
til lengri tíma engu máli. „Það eina sem skiptir máli er að maður sé með réttan aðila fyrir fram-
an sig í kirkjunni og góða fjölskyldu og vini til að halda upp á ástina með! Annað er bara bónus!“
Hún segir klárlega áskorun að skipuleggja brúðkaup hér heima og búa erlendis. „Það gekk þó
alveg upp enda með gott fólk að aðstoða mig. Kristín blómaskreytir hjá Grænum markaði sá um all-
ar skreytingarnar hjá okkur þannig að það auðveldaði töluvert!“
Lögfræðingurinn Jóna Vestfjörð og knattspyrnumað-
urinn Hólmar Örn Eyjólfsson hittust í byrjun árs 2010
og hafa verið óaðskiljanleg síðan. Þau giftu sig í fyrra og
upplifðu einstaka stund með vinum og vandamönnum.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Brúðguminn var með
blóm í stíl við brúðar-
vönd brúðarinnar.
Fallegur klassískur
brúðarvöndur í
anda brúðarinnar.
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Það sem Jóna mælir með
· Hafðu allt skriflegt þegar kemur að verð-
tilboðum. Við vorum himinlifandi með alla þá
þjónustu sem við fengum frá öllum, en við
vorum líka mjög skýr um hvað við vildum og
hvað hlutirnir máttu kosta. Að vera skýr með
svona hluti og passa upp á að allt sé skriflegt
kemur í veg fyrir óþarfa leiðindi seinna.
· Að ná góðum svefn vikuna fyrir brúð-
kaupið!
· Að fá einhvern til að aðstoða við skreyt-
ingar! Það léttir þvílíkt á – þú getur enn þá
komið þínum hugmyndum að þrátt fyrir að
einhver aðstoði þig.
· Að fara í smá brúðkaupsferð eftir veisluna.
Það er að sjálfsögðu dýrt að halda brúðkaup
og sumir vilja geyma brúðkaupsferðina þar til
seinna. Ég mæli þó mjög með því að fara eitt-
hvert tvö saman, þó að ekki sé nema bara út
á land í bústað. Að eyða smátíma saman
bara tvö og njóta þess að vera nýgift eftir
skipulagningartörn er dásamlegt.
Það sem Jóna myndi forðast
· Ekki stressa þig á smáatriðum. Þau skipta
engu máli til lengri tíma og gestirnir taka ekki
eftir því hvort glösin eru svona eða hinsegin.
· Að gleyma að taka myndir á brúðkaupsdag-
inn með þeim aðilum sem þú vilt – t.d.
gleymdi ég að taka mynd með mínum bestu
vinkonum og það var agalegt að fatta það
seint eftir á.
Ljósmyndir/Íris Dögg Einarsdóttir
Brúðhjónin áttu
yndislega stund
saman á brúð-
kaupsdaginn.