Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 22
lag með „Foo Fighters“ í brúðkaupi. Fram- setningin var einföld og tónlistaratriðið varð einstakt. Blíðlegur kassagítar og kvenrödd getur klætt lagið úr fötunum og komið því í brúðkaupsbúning.“ Hún er á því að persónuleg tónlist komi fólki á óvart og sé upplifun sem býr til sér- staka tengingu milli brúðhjóna og gesta þeirra á brúðkaupsdaginn. „Við buðum upp á „Thank You for the Music“ sem Stefanía Svavarsdóttir söng og tengdapabbi ásamt fleiri góðum vinum okkar úr tónlistaiðn- aðinum spilaði undir. Eins vorum við með lagið „You’ve Got a Friend“ eftir Carole King, lagið tóku vinkonur mínar Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir saman. Þór Breiðfjörð tók lagið „Unchained Melody“ fyrir okkur. Eins sungu Eyrún Eðvaldsdóttir og Gospelkórinn lokalagið í kirkjunni sem var „Waiting for a Star to Fall“. Ég átta mig á því að það geta ekki allir verið með svona tónlistaratriði á brúðkaups- daginn, en ég held að allir geti sett sinn per- sónuleika í daginn með tónlistinni svo eitt- hvað sé nefnt.“ Var afslöppuð í undirbúningnum Hvernig gekk að undirbúa brúðkaupið? „Ég var roslalega afslöppuð og var ekkert að stressa mig á undirbúningnum. Ég vissi að hlutirnir myndu verða í lagi um leið og við vorum búin að bóka kirkjuna, prestana og tónlistarfólkið, ásamt því að panta mat, kjól, hár og förðun. Davíð pantaði daginn fyrir brúðkaupið sem dæmi myndakassa, sem var frábært. Honum datt þetta bara allt í einu í hug og við slógum til. Það jafnast ekkert á við myndirnar af öllu fólkinu sem skemmti sér frábærlega vel með okkur þennan dag og við eigum myndir sem geyma þessar minn- ingar sem er okkur svo dýrmætt.“ Hljómsveitin Albatross spilaði fyrir gesti í brúðkaupsveislunni. Eyþór Ingi, Ívar Daní- els, Böddi Reynis, Friðrik Ómar og brúðurin og brúðguminn stigu öll á sviðið og skemmtu gestum þetta kvöld. Hvað matinn varðar segist Jóhanna Guð- rún ekki geta hætt að mæla með Kjötkomp- aníi og Sætum syndum. „Við fengum forrétt- aplatta frá Kjötkompaníi og síðan buðum við upp á kalkún og lambakjöt með öllu tilheyr- andi. Þórunn, sem starfar í kirkjunni, gerði matinn fyrir okkur. Hún Eva í Sætum synd- um aðstoðaði mig við að gera æðislega brúðarköku sem endaði á því að vera frekar einföld og klassísk. Eva er einstök; hún gefur manni tíma og hefur ótrúlega þolinmæði þótt maður skipti nokkrum sinnum um skoðun. Við vorum með makrónuturna í fallegum pastellitum sem ég mæli einnig með.“ Nú eruð þið hjónin mikið saman á degi hverjum þar sem þið starfið saman. Hvernig er það? „Við erum ótrúlega góðir vinir og náum vel saman. Okkur hefur aldrei þótt erfitt að vera mikið saman og það hentar okkur vel. Við er- um samrýnd fjölskylda og hlökkum til þess að eignast annað barnið okkar saman og halda áfram að njóta alls sem lífið færir okkur.“ Fyrsti kossinn sem hjón! Jóhanna Guðrún og Davíð á fallegu augnabliki á brúðkaupsdaginn. Fjölskyldan á brúðkaupsdaginn. Þau eiga von á öðru barni sínu bráðlega. 22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.