Morgunblaðið - 05.04.2019, Blaðsíða 2
Á
stin er eitt sterkasta afl veraldar því með henni er hægt að
flytja fjöll og dali eins og þeir vita sem hafa orðið ástfangnir.
Hér í blaðinu eru fjölmörg viðtöl við ástfangið fólk sem
ákvað að ganga lífsins veg saman. Það er hægt að ganga í
hjónaband á ótal vegu og er engin ein leið rétt. Sumir kjósa
að tjalda öllu til en aðrir vilja hafa brúðkaupið sitt lágstemmt.
En hvers vegna er hjónabandið svona mikilvægt? Hjónabandið er ekki
bara merki um að ástin sé sterk og fólk vilji ganga lífsins veg saman í
blíðu og stríðu. Réttindi fólks í hjónabandi eru allt önnur en fólks í sam-
búð. Það er mjög órómantískt að ræða praktíska hluti hjónabandsins en
það er hins vegar mikilvægt að fólk sé upplýst um réttarstöðu sína. Þótt
hér séu skilnaðir ekki til umræðu má samt nefna að það er mun auðveld-
ara að skilja ef fólk er í hjónabandi en eingöngu í sambúð. Það er að
segja ef um praktíska hluti er að ræða eins og eignaskiptingu. Það gilda
reyndar engar reglur eða lög um tilfinningar enda eru þær órökréttar á
köflum.
Á dögunum ákvað ég að stíga það skref að hefja sambúð með mann-
inum mínum. Það er alls ekki í frásögur færandi nema fyrir þær sakir að
auðvelt er að gera mistök í tölvunni. Í dag er hægt að gera nánast allt í
gegnum netið nema skilja við maka sinn. Fólk getur víst ekki skilið nema
panta tíma hjá sýslumanni og fólk þarf helst að mæta þangað saman. Þú
getur hins vegar skráð þig í sambúð í gegnum netið. Á dögunum tók
maðurinn það að sér að skrá okkur í sambúð. Í öllum asanum fletti hann
upp Mörtu Maríu Jónasdóttur og var næstum því búinn að ýta á takkann
til að samþykkja þegar hann áttaði sig á því að kennitalan passaði ekki
við hans framtíðareiginkonu. Þá kom í ljós að hann var einu skrefi frá því
að skrá sig í sambúð með ömmu minni og alnöfnu sem er að verða 90
ára. Eins og gefur að skilja hefur þetta verið uppspretta mikils gríns.
Amma er náttúrlega mun betri kvenkostur en sú sem hér skrifar, en það
er önnur saga.
Reyndar getur fólk ekki skráð sig í sambúð með hverjum sem er á net-
inu því hinn aðilinn þarf að samþykkja gjörninginn. Það er hins vegar
hægt að gera alls konar á vef Þjóðskrár án teljandi
vandræða eins og skipta um nafn eða skrá lögheimili
sitt heima hjá greifum bæjarins. Það partítrix hefur
verið notað áður og ratað í fréttir.
Ef þú ert að skipuleggja brúðkaup eða hyggst
finna draumamakann þá eru fjölmargar góðar hug-
myndir í Brúðkaupsblaðinu enda sýna sögurnar að
allt getur gerst þegar ástin er annars vegar. Og
ástin bankar upp á þegar við erum upptekin við
að leita ekki að henni. Svo er ágætt að hafa
það í huga að grasið vex ekki hraðar þótt togað
sé í það og líka að grasið er yfirleitt ekki
grænna hinum megin við lækinn. Því gleymum
við stundum í amstri dagsins.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Skráði sig
næstum því
í sambúð með
„ömmunni“
Marta María
Jónasdóttir
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 5. APRÍL 2019
Útgefandi Árvakur Umsjón Marta María Jónasdóttir Blaðamenn Elínrós Líndal elinros@mbl.is, Lilja Ósk Sigurðardóttir snyrtipenn-
inn@gmail.com, Marta María Jónasdóttir martamaria@mbl.is Auglýsingar Katrín Theódórsdóttirkata@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Forsíðumyndina tók
Helgi Ómarsson
Hvað ertu að gera um þessar mundir?
„Ég starfa hjá Marel þar sem ég sérhæfi mig í endur-
menntun og þjálfun starfsfólksins. Um þessar mundir er
ég hins vegar með nýfæddri dóttur minni, Matthildi
Maríu. Fyrir á ég tvær dætur – Siggu Ósk og Tinnu Mar-
gréti.“
Hvað táknar brúðkaup í þínum huga?
„Gleðistund, upphaf og sameiningu
fyrir þá sem ganga í hjónaband sem
og fjölskyldur þeirra.“
Hvað trúir þú mest á tengt hjóna-
böndum?
„Ég trúi á ástina. Að hjónaband-
ið sé musteri lífsins, þar sem þú
sækir þér orku og styrk. Ég trúi að
báðir aðilar þurfi að leggja inn í hjóna-
bandið og maður skyldi líta á brúðkaupið
sem upphaf á ákveðnu lífsferli.
Ég nota stundum lýsingu pabba á hjónabandinu
sem hefur yfir 50 ára reynslu af því. Hann segir ein-
staklinga í hjónaböndum eins og tvö tré sem standa hlið
við hlið, aðskilin. Bæði þurfa þau sól, næringu, birtu og
tækifæri til að vaxa. Ef þau fá þetta svigrúm munu rótar-
kerfi þeirra vaxa nær hvort öðru með árunum. Þannig
standast hjónabönd með sterkar rætur verkefni lífsins.
Andstæðan við þetta er þá kannski þegar annað tréð tek-
ur allt plássið og hitt tréð vex ekki og þroskast í skugg-
anum.“
Hvað er það mikilvægasta í ástarsamböndum?
„Ég er á því að pör eigi að setja sig sjálf í fyrsta sætið,
síðan sambandið, svo börnin og síðan vinnuna. Með þess-
ari forgangsröðun stendur maður sem sterkur ein-
staklingur sem getur verið til staðar fyrir sjálfan sig og
aðra.“
Hver er uppáhaldssjálfshjálparbókin þín?
„Reinventing your life eftir Jeffrey Young. Bókin er
notuð til grundvallar skemaþerapíu sem ég hef notast við
lengi og kennt áfram til þeirra sem vilja umbylta lífinu,
fara úr neikvæðu mynstri yfir í jákvæðara líf.“
Hverju mælirðu með að vera í sem gestur í brúðkaupi?
„Mér finnst fallegast að vera í kjól í brúðkaupum. Í
vetrarbrúðkaupum er í lagi að vera í svörtum kjól en þá
finnst mér nauðsynlegt að konur séu með rauðan varalit
og í ljósum sokkabuxum og/eða skóm. Ég mæli með að
konur forðist að vera í hvítum kjólum sem gestir í brúð-
kaupum. Ljósir kjólar eru fallegir, sér í lagi ef þeir eru
með fallegum blómum eða mynstri.“
Hvað með fylgihluti?
„Ég kann að sjálfsögðu
að meta hatta og hanska
upp á breska vísu. Mér
finnst blóm í hárið viðeig-
andi, annars er ég sjálf
meira fyrir látlausa
skartgripi og er með sí-
gildan smekk, hvort held-
ur sem ég er að klæða
mig upp á fyrir brúðkaup
eða eitthvað annað.“
Hver er uppáhaldshönnuðurinn þinn?
„Ég held mikið upp á Andreu og kjólana hennar í dag.
Mér hefur alltaf fundist mikil sjálfsvirðing fólgin í því að
klæða sig fallega og finna sinn eigin stíl. Minn stíll breyt-
ist ekki mikið með árunum enda á ég mér klassískar
fyrirmyndir sem héldu sínum stíl þrátt fyrir tískusveiflur.
Konur eins og Audrey Hepburn, Jackie O og Grace Kelly
hafa alltaf heillað mig. Enda voru þær allar sígildar og
jafn mikið í tísku nú og hér áður.“
Hvaða ljósmyndara heldur þú upp á?
„Mér finnst fallegast þegar ljósmyndir fanga augna-
blikin. Ég fékk Bergljótu Þorsteinsdóttur heim þegar
Matthildur dóttir mín var einungis tíu daga gömul. Ég
vildi að ég hefði gert hið sama fyrir eldri dætur mínar.
Hún er góð að fanga einlæg augnablik.
Eins finnst mér fallegustu myndirnar teknar af brúð-
hjónum heima að undirbúa sig, en ekki einungis mynd-
irnar sem eru teknar í brúðkaupinu sjálfu. Þegar augun
mætast í kirkjunni, hendur snertast í fyrsta skiptið eftir
athöfnina eru fallegustu myndirnar að mínu mati. Enda
er lífið samansafn af augnablikum sem þessum.“
Fagurkeri sem trúir
á ástina og lífið
Elín María Björnsdóttir hefur djúpa þekkingu á flestu því sem viðkemur
brúðkaupum. Hún eignaðist nýverið dóttur með unnusta sínum Claes Nils-
son. Fyrir á hún tvær dætur. Hún mælir með einföldum klassískum fatnaði í
brúðkaupsveislur og segir hjónabandið upphafið að innihaldsríku ferðalagi.
Elínrós Líndal | elinros@mbl.is
Ljósmynd/Bergljót Þorsteinsdóttir
Elín María ásamt
dóttur sinni
Matthildi Maríu.
Elín María
heldur upp
á kjólana
frá Andreu.
Elín María heldur upp á bókina „Rein-
venting your life“ eftir Jeffrey Young.
Hún leiðbeinir fólki í að ná lengra í lífinu.
Audrey Hepburn
er fyrirmynd Elín
Maríu þegar kem-
ur að tískunni.