Morgunblaðið - 20.04.2019, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900
PÁSKAE
GGJALEI
T
TÖLVUTE
KS 20.A
PRÍL
FRÁ 11-
16
PÁSKA
FJÖR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Morgunblaðið kemur næst út
þriðjudaginn 23. apríl. Frétta-
þjónusta verður á fréttavef
Morgunblaðsins, mbl.is, yfir
páskana. Hægt er að senda
ábendingar um fréttir á net-
fangið netfrett@mbl.is. Áskrif-
endaþjónustan er opin í dag frá
kl. 8-12 en lokað er á páskadag
og annan dag páska. Síma-
númer áskrifendaþjónustunnar
er 569-1122 og netfangið er
áskrift@mbl.is. Blaðberaþjón-
ustan er opin í dag frá kl. 6-12
en lokað er á páskadag og ann-
an dag páska. Símanúmer blað-
beraþjónustunnar er 569-1440
og netfangið bladberi@mbl.is.
Hægt er að bóka dánartilkynn-
ingar á mbl.is. Minningar-
greinar vegna útfara þriðju-
daginn 23. apríl og miðviku-
daginn 24. apríl þurfa að hafa
borist blaðinu eigi síðar en á
hádegi páskadag, 21. apríl.
Fréttaþjónusta
mbl.is um páskana
Gera refsikröfu vegna Víkurgarðs
Brot á lögunum sem sóknarnefnd Dómkirkjunnar vísar til varða allt að sex mánaða fangelsisvist
Gunnlaugur Snær Ólafsson
gso@mbl.is
Sóknarnefnd Dómkirkjunnar hefur
lagt fram kæru til Ríkissaksóknara
„vegna ólöglegs ágangs og rösk-
unar á Víkurkirkjugarði“ á horni
Aðalstrætis og Kirkjustrætis, að
því er fram kemur í kæru sem
Morgunblaðið hefur undir höndum.
Sóknarnefndin krefst þess að rann-
sakað verði hvaða einstaklingar
bera ábyrgð á veitingu leyfa til að
byggja í kirkjugarðinum og hverjir
bera ábyrgð á framkvæmdum. Þá
er farið fram á að forsvarsmenn
Reykjavíkurborgar sem bera
ábyrgð á deiliskipulagi og forsvars-
menn Lindarvatns ehf. sem stendur
að byggingu hótels á staðnum
„verði látnir sæta ábyrgð lögum
samkvæmt“. Er vísað til þess að
brot gegn kirkjugarðalögum geti
varðað sektum og brot á grafar-
helgi allt að sex mánaða fangelsis-
dómi.
Lindarvatn ehf., dótturfélag Ice-
landair Group hf., stendur að bygg-
ingu hótels á Landssímareitnum
svonefnda og hafa orðið talsverðar
tafir sökum deilna er tengjast
verndun garðsins.
Kærandi telur að Víkurkirkju-
garður hafi ekki verið niðurlagður
samkvæmt lögum þar sem ekki hafi
verið fengin fyrir því samþykkt
safnaðarfundar ásamt samþykki
prófasts og biskups. Jafnframt séu
ákvæði laga skýr um að þrátt fyrir
að svo væri eru skilyrði sem upp-
fylla þarf fyrir nýtingu niðurlagðs
kirkjugarðar.
Raska grafarhelgi
Í kærunni er vísað til ákvæðis
laga um kirkjugarða um að ekki
megi nota niðurlagðan kirkjugarð
með nokkrum hætti sem er óviðeig-
andi að mati prófasts og er sér-
staklega tekið fram að í slíkum
kirkjugarði „megi ekki jarðrask
gera eða reisa nein mannvirki“.
Þá segir að enginn vafi sé um að
kirkjugarðurinn hafi náð langleiðina
að Thorvaldsenstræti og að við
framkvæmdir á reitnum fundust
líkamsleifar og við gröft fornleifa-
fræðinga fundust 32 grafir.
„Líkamsleifar þessar voru fluttar á
brott til þess að rýma fyrir hinni
væntanlegu hótelbyggingu,“ að því
er segir í kærunni og er bent á að
friðhelgi garðsins hafi enn verið í
gildi. Þá er sagt að ekki leiki vafi á
að þeim sem bera ábyrgð á fram-
kvæmdunum hafi verið kunnugt um
að þeir væru að raska grafarhelgi á
refsiverðan hátt.
Morgunblaðið/Eggert
Dómkirkjan Sóknarnefndin telur að
brotið hafi verið gegn grafarhelgi.
Víða á landinu viðraði ágætlega til
skíðaiðkunar í gær á föstudaginn
langa. Fyrir norðan, austan og vest-
an voru brekkur opnar og var talað
um hið besta vorfæri á vefjum skíða-
svæðanna. Höfuðborgarbúar sátu þó
eftir, því Bláfjöllum og Skálafelli
hefur þegar verið lokað þennan
veturinn.
Í dag verður veðrið víðast hvar á
landinu áþekkt því sem var í gær,
hiti 3-12°, léttskýjað og heitast á
Norðausturlandi.
Í Hlíðarfjalli var talað um að
„besti tími ársins“ væri genginn í
garð og allt stefndi í fína páskahelgi.
Þar verður að vonum opið aftur í
dag.
Snjórinn er farinn að bráðna í
neðstu brekkum skíðasvæðanna en
enn má nýta vorfærið víðast hvar.
Nýjustu upplýsingar um stöðuna á
skíðasvæðunum má finna á mbl.is,
sem heldur úti fréttaþjónustu alla
páskana.
Ágætt færi í brekk-
um víða um land
Fínt færi í gær Svæði opin áfram
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Hlíðarfjall Skíðagarpar eru enn að
og nýta færið um páskana.
Bjór á Íslandi er sá fjórði dýrasti í
heimi. Hér kostar stór bjór að með-
altali 1.258 krónur, andvirði 8,03
sterlingspunda. Þetta segir í nýrri
skýrslu ensks ferðavefjar, MyBagg-
age, sem gerir árlegan verðsaman-
burð á bjór meðal þjóða heimsins.
Í könnuninni er talað um pint, sem
er tæpur hálfur lítri. Aðeins þrjú
lönd slá Íslendinga út. Katar hefur
forystu í heiminum um hátt bjór-
verð, 1.484 krónur pintið. Þar verður
heimsmeistaramótið í knattspyrnu
haldið eftir þrjú ár. Svo eru Norð-
menn í öðru sæti en þar kostar bjór-
inn 1.348 krónur. Þá eru nágrannar
Katarmanna í austri hjá Sameinuðu
arabísku furstadæmunum í þriðja
sæti og þar kostar bjórinn 1.288
krónur. Ódýrasta bjór í heimi er að
finna í Víetnam, pintið á 116 krónur.
Fjórði dýr-
asti bjórinn
á Íslandi
Bjór Meðalverð á stórum bjór
á Íslandi er 1.258 krónur.
Dýrasti bjór
í heimi í Katar
Sálmar Hallgríms Péturssonar frá sautjándu
öld, þekktir sem Passíusálmarnir, voru að venju
lesnir í Hallgrímskirkju í gær, en þeir hafa verið
lesnir í heild sinni föstudaginn langa í kirkjunni
frá því hún var vígð. Þá hafa sálmarnir verið
gefnir út yfir áttatíu sinnum og verið þýddir á
mörg tungumál.
Þær Edda Þórarinsdóttir, Halla Guðmunds-
dóttir, Helga E. Jónsdóttir, Kristbjörg Kjeld,
Margrét Guðmundsdóttir, Ragnheiður Stein-
dórsdóttir og Steinunn Jóhannesdóttir lásu. Um-
sjón með lestrinum hafði Steinunn Jóhannes-
dóttir, rithöfundur og leikkona.
Þá voru gestir hvattir til að taka sínar eigin
passíusálmabækur með sér í kirkjuna til að fylgj-
ast með lestrinum.
Fjöldi fólks hlýddi á upplesturinn, sem notið
hefur mikilla vinsælda frá upphafi.
Haldnar verða messur um allt land á morgun,
páskadag. Páskadagur er í huga kristinna
manna dagur fagnaðar, en það var á þeim degi
að María Magdalena, María móðir Jakobs og Sal-
óme komu að gröf Krists og uppgötvuðu að hún
væri tóm. Hafði Kristur sigrað dauðann eftir að
hafa sætt pyntingum og krossfestingu.
Landsmenn sækja þó ekki allir kirkju á þess-
um árstíma; margir nýta frídagana til þess að
fara í sumarbústað eða stunda skíði og aðra úti-
vist. Aðrir nýta dagana til samvistar við vini eða
fjölskyldu heima við.
Lásu Passíusálmana í heild sinni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Passíusálmar Heildarlestur sálma Hallgríms Péturssonar fór fram í Hallgrímskirkju í gær. Upplesturinn hefur verið haldinn frá vígslu kirkjunnar.
Morgunblaðið/Ómar