Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
sp
ör
eh
f.
Sumar 24
Í þessari töfrandi ferð til Portorož í Slóveníu og Riva del
Garda á Ítalíu upplifum við óviðjafnanlega náttúrufegurð
og menningu ásamt því að hafa góðan tíma fyrir slökun
og rólegheit. Istríaskaginn bíður okkar með suðrænum blæ
og töfrandi ferðum og við siglum m.a. til eyjanna Isola og
Piran og heimsækjum listamannabæinn Rovinj og lista- og
menningarborgina Veróna.
19. - 31. ágúst
Fararstjórn: Hólmfríður Bjarnadóttir
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 Reykjavík
Verð: 299.900 kr. á mann í tvíbýli.
Mjög mikið innifalið!
Portorož&RivadelGarda
Þá er búið aðbirta
skýrsluna. Eftir
tveggja ára
þrotlausa rann-
sókn er hún
komin fyrir
augu almennings og niðurstaðan er
skýr: Trump forseti sat ekki á svik-
ráðum með Rússum. En þá segja
þeir sem vilja hanga á málinu eins
og hundur á roði: „En það eru
nokkrar yfirstrikaðar línur í skýrsl-
unni. Þar hlýtur glæpinn að vera að
finna.“
Engu breytir þó að háttsettirdemókratar séu búnir að skoða
stærstan hluta þessara yfirstrikuðu
lína og engu hefði heldur breytt þó
að hvert orð hefði verið birt.
Ákveðinn hópur ætlaði að notamálið pólitískt og ætlar ekki að
láta skýrslu sem kemur vel út fyrir
forsetann eyðileggja það. Breytir
engu heldur þótt höfundur skýrsl-
unnar og hans lið hafi beitt öllum
ráðum til að klófesta forsetann en
ekki tekist.
Eitt það helsta sem notað verðureru þau orð skýrslunnar um
það hvort forsetinn hafi hindrað
framgang réttvísinnar, að „þó að
niðurstaða skýrslunnar sé ekki að
forsetinn hafi framið glæp hreinsar
hún hann ekki heldur“.
Leiðarahöfundar The Wall StreetJournal, sem hafa það fram yfir
flesta slíka að reyna að fjalla af
sanngirni um Trump, segja þetta
„ódýrasta skot“ Mullers skýrslu-
höfundar.
Verkefni af þessu tagi gangi ekkiút á að hreinsa, heldur að
kanna hvort nægar sannanir séu til
að sækja til saka. Svo var ekki.
Ekkert fannst þrátt
fyrir mikla leit
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Áformað er að svonefnt Hraun-
hlaup, utanvegahlaup í Mývatns-
sveit, verði árlegur viðburður en það
var fyrst haldið í fyrra.
Hlaupið í ár fer fram 24. maí. Það
er 9,4 km langt og mun hefjast við
inngang í Dimmuborgir. Síðan
hlaupa keppendur eftir Kirkju-
hringnum og fara út í gegnum Gat-
klett í átt að Hverfjalli en markið er
við Jarðböðin.
Fjörutíu tóku þátt í hlaupinu á síð-
asta ári en gert er ráð fyrir að þeim
fari fjölgandi ár frá ári og verði allt
að 150 árið 2021.
Mývatnsstofa hefur fengið sér-
stakt leyfi hjá Umhverfisstofnun
fyrir hlaupinu næstu þrjú ár en
Dimmuborgir eru friðlýstar sem
náttúruvætti. Þar er óheimilt að
hrófla við eða skemma á annan hátt
jarðmyndanir, spilla gróðri eða
trufla dýralíf í náttúruvættinu.
Stofnunin telur að hlaupið hafi
ekki neikvæð áhrif á verndargildi
svæðisins en hlaupið verði eftir eftir
stígum alla leið. Þá fari hlaupið fram
á tíma þegar gestafjöldi sé lítill og
háannatími ferðaþjónustunar ekki
hafinn.
Morgunblaðið/GSH
Dimmuborgir Hraunhlaupið verður við Mývatn síðasta föstudag í maí.
Hraunhlaupið við
Mývatn verður árlegt
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hjá
Circle Air á Akureyri, sem býður upp
á útsýnisflug og leiguflug um land allt
á flugvélum og þyrlum, segir að bók-
anir í ár líti vel út, þrátt fyrir áberandi
tal um samdrátt í ferðaþjónustu. „Það
er nóg af bölmóði og leiðindum og því
ánægjulegt að segja frá því að það lít-
ur ágætlega út með bókanir í sumar
hjá Circle Air. Það er ekki síst því að
þakka að það er áberandi mikil fjölgun
skemmtiferðaskipafarþega á landinu
öllu, sem sumir hverjir hafa pantað
fram til 2021. Það munu til dæmis 175
þúsund manns koma til Akureyrar
með skemmtiferðaskipum nú í ár og
það munar um minna,“ segir Þorvald-
ur Lúðvík í samtali við Morgunblaðið.
Circle Air er einnig með starfsemi í
Reykjavík. „Við verðum bæði á Akur-
eyri og í Reykjavík í sumar,“ segir
hann en Circle Air er samstarfsaðili
austurríska þyrlufyrirtækisins Heli
Austria á Íslandi. Sagt var frá fyrir-
ætlunum Heli Austria um björgunar-
flug á Suðurlandi í ViðskiptaMogg-
anum í gær. Þorvaldur Lúðvík segir
að Circle Air muni fá tveggja hreyfla
þyrlu frá Heli Austria til afnota á
næstunni sem einnig getur nýst ef á
þarf að halda í björgunarflug. „Þyrlan
verður klár í þau verkefni sem og önn-
ur.“ Sex þyrlur frá Heli Austria verða
á landinu í sumar eins og fram kom í
frétt ViðskiptaMoggans í gær.
tobj@mbl.is
Bókanir í útsýnisflugi sumarsins líta vel út
Munar mjög um farþega sem koma til landsins með skemmtiferðaskipum
Flug Meðalaldur þyrlna Heli
Austria hér á landi er níu mánuðir.