Morgunblaðið - 20.04.2019, Síða 40
40 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
Dominos-deild karla
Undanúrslit, oddaleikur:
Stjarnan – ÍR ........................................ 79:83
ÍR sigraði 3:2.
Austurríki
Flyers Wels – Klosterneuburg........... 81:80
Dagur Kár Jónsson skoraði 8 stig fyrir
Wels, átti 2 stoðsendingar og tók 1 frákast.
Svíþjóð
Undanúrslit, fjórði leikur:
Norrköping – Borås ......................... 65:108
Jakob Örn Sigurðarson skoraði 3 stig og
tók 1 frákast fyrir Norrköping en hann
spilaði í 18 mínútur.
Staðan er 3:1 fyrir Borås.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, 8-liða úrslit, 2. leikur:
Milwaukee – Detroit .......................... 120:99
Staðan er 2:0 fyrir Milwaukee.
Boston – Indiana .................................. 99:91
Staðan er 2:0 fyrir Boston.
Austurdeild, 8-liða úrslit, 3. leikur:
Brooklyn – Philadelphia .................. 115:131
Staðan er 2:1 fyrir Philadelphia.
Vesturdeild, 8-liða úrslit, 2. leikur
Houston – Utah .................................. 118:98
Staðan er 2:0 fyrir Houston.
Vesturdeild, 8-liða úrslit, 3. leikur
San Antonio – Denver ...................... 118:108
Staðan er 2:1 fyrir San Antonio.
LA Clippers – Golden State ............ 105:132
Staðan er 2:1 fyrir Golden State.
KÖRFUBOLTI
HANDKNATTLEIKUR
8-liða úrslit karla, fyrsti leikur:
Schenker-höll: Haukar – Stjarnan........ L14
Kaplakriki: FH – ÍBV ............................ L16
Hleðsluhöllin: Selfoss – ÍR .................... L17
Origo-höll: Valur – Afturelding........ L19.30
8-liða úrslit karla, annar leikur:
Varmá: Afturelding – Valur.................. M14
TM-höllin: Stjarnan – Haukar.............. M15
Vestmannaeyjar: ÍBV – FH ................. M17
Austurberg: ÍR – Selfoss ................. M19.30
Umspil karla, undanúrslit, 2. leikur:
Digranes: HK – Þróttur (0:1) ................ L16
Umspil kvenna, úrslit, 1. leikur:
Digranes: HK – Fylkir .......................... M16
KÖRFUKNATTLEIKUR
Fyrsti úrslitaleikur kvenna:
Origo-höll: Valur – Keflavík.................. M16
KNATTSPYRNA
Mjólkurbikar karla, 2. umferð:
Fellavöllur: Höttur/Huginn – Fjarðab. L14
Boginn: Þór – Dalvík/Reynir................. L14
Olísvöllurinn: Vestri – Kári ................... L14
KA-völlur: KF – Magni .......................... L14
BLAK
Fimmti úrslitaleikur kvenna:
KA-heimilið: KA – HK (2:2).................. M16
UM HELGINA!
Hannes Þór Halldórsson landsliðs-
markvörður í knattspyrnu missir af
fyrsta leik Íslandsmótsins með Val
næsta föstudagskvöld þegar Ís-
landsmeistararnir taka á móti Vík-
ingi í Reykjavíkurslag.
Hannes, sem kom til Vals frá
Qarabag í Aserbaídsjan á dögunum
og samdi til fjögurra ára, fékk
rauða spjaldið á lokamínútu fyrri
hálfleiks gegn Stjörnunni í Meist-
arakeppni KSÍ á Hlíðarenda í
fyrrakvöld. Hann braut þá á Þor-
steini Má Ragnarssyni utan víta-
teigs og Vilhjálmur Alvar Þór-
arinsson dómari rak Hannes
umsvifalaust af velli. Þar sem
spjöld í Meistarakeppninni og Ís-
landsmóti eru talin saman kostar
þessi brottrekstur Hannes fyrsta
leikinn þar sem hann tekur út eins
leiks bann. vs@mbl.is
Hannes missir af fyrsta leik
ekki verið að vinna jafnstórt í ár og undanfarin
ár en í þessum úrslitaleik langaði okkur virki-
lega að vinna sannfærandi og vera starfinu
hérna á Akureyri til sóma.“
Silvía er uggandi yfir gangi mála í íshokkíi
kvenna en fyrir tveimur árum voru fjögur lið að
berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Samkeppnin lítil í ár
„Þetta tímabil hefur verið mjög skrítið. Í
fyrra fórum við úr fjórum liðum í þrjú lið þegar
Reykjavík sameinaðist. Fyrir þetta tímabil var
svo tekin ákvörðun um að sameina liðin á Akur-
eyri líka og það var mjög skrítið að vera alltaf
að spila á móti sama liðinu í ár. Samkeppnin var
mun minni en í fyrra en staðreyndin er sú að
það vantar iðkendur til þess að halda uppi
tveimur liðum og eins og staðan er í dag verða
þetta tvö lið í úrvalsdeildinni næstu árin.“
Alls mættust lið SA og Reykjavíkur tólf sinn-
um í vetur og hafði SA betur í öll skiptin.
„Það er ógeðslega erfitt að fara inn í leik, vit-
andi það að þú eigir og sért að fara vinna sann-
færandi. Það hefur reynst okkur ákveðinn
hausverkur í ár og við höfum oft lent í vand-
ræðum í upphafi leikja en alltaf hrokkið í gang
á endanum,“ sagði Silvía í samtali við Morgun-
blaðið.
Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason
Íslandsmeistarar Leikmenn Skautafélags Akureyrar fagna eftir að hafa tekið við Íslandsbikarnum á heimavelli sínum í fyrrakvöld.
Gekk illa að gíra sig upp
ÍSHOKKÍ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Silvía Rán Björgvinsdóttir, leikmaður Skauta-
félags Akureyrar, viðurkennir að úrvalsdeild
kvenna í ár hafi verið mjög skrítin en aðeins tvö
lið léku í deildinni. SA tryggði sér Íslands-
meistaratitilinn í íshokkíi kvenna á fimmtudag-
inn síðasta eftir 7:0-sigur gegn liði Reykjavíkur
á Akureyri í öðrum leik liðanna í úrslitaeinvígi.
„Það var frábært að klára þetta sannfærandi
og það er alltaf gaman að vinna titil. Við höfum
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörn-
unnar, er spenntur fyrir komandi
tímabili í Pepsi Max-deildinni í
knattspyrnu, en liðið lauk keppni á
undirbúningstímabilinu í gær þegar
Stjarnan hafði betur gegn Íslands-
meisturum Vals í Meistarakeppni
KSÍ eftir vítakeppni.
„Það var fínt að klára þetta undir-
búningstímabil á titli. Þetta var flott-
ur leikur hjá okkur og mér fannst við
líta nokkuð vel út þótt ég segi sjálfur
frá. Úrslitin á þessu undirbúnings-
tímabili hafa ekki verið neitt frábær
hjá Stjörnunni en ég tel að við séum
komnir á þann stað sem við viljum
vera á fyrir Íslandsmótið og séum
meira en tilbúnir í fyrsta leik.“
Stjarnan hefur á undanförnum ár-
um verið að berjast á toppi úrvals-
deildarinnar, en liðið endaði í þriðja
sæti deildarinnar síðasta sumar.
„Við erum komnir á þann stað sem
lið að við setjum þá kröfu á okkur að
berjast á toppnum í deildinni. Við
viljum líka fara langt í bikarkeppn-
inni en við gerum okkur líka grein
fyrir því að það eru fjögur til fimm
lið í dag sem gefa sig öll út fyrir það
að ætla að berjast á toppnum. Við er-
um eitt af þessum liðum en þetta
sýnir manni líka bara hvað deildin
hérna heima er orðin sterk í raun og
veru. Það eru margir góðir leikmenn
komnir inn í deildina, bæði atvinnu-
menn og landsliðsmenn, þannig að
það er mikil pressa á mörgum liðum
í ár.“
Baldur segir mikilvægt að Stjarn-
an klári tímabilið af krafti.
„Við vorum aðeins bensínlausir í
lokaleikjum tímabilsins eftir bikar-
úrslitin, þrátt fyrir að það hafi ekki
verið ætlunin. Við erum hins vegar
búnir að eyða heilum vetri í það
hvernig við ætlum okkur að klára
mótið í ár almennilega.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fyrirliði Baldur Sigurðsson lyftir bikarnum eftir sigur Stjörnunnar á Val.
„Mikil pressa á
mörgum liðum“
Deildin sterkari nú en oft áður