Morgunblaðið - 20.04.2019, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 20.04.2019, Qupperneq 20
20 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019 Seljavegur 2 | Sími: 511-3340 | Fax: 511-3341 | www.reyap.is | reyap@reyap.is Apótekið þitt í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg 2 Afgreiðslutími: 9-18:30 virka daga 10-16:00 laugardaga Reykjavíkur Apótek býður upp á allar tegundir lyfja. Mikið og fjölbreytt úrval af heilsuvörum, bað- og ilmvörum, gjafavörum auk ýmissa annarra góðra kosta. Reykjavíkur Apótek er sjálfstætt starfandi apótek sem leggur áherslu á persónulega þjónustu og hagstætt verð. • Öryrkjar og eldri borgarar njóta sérkjara hjá okkur • Frí heimsendingarþjónusta „Hann fæddist inn í breska aðals- kerfið, og fjölskylda hertoga þurfti að sýna ákveðinn klassa. Þau voru vön mjög fínum fötum, fínum sam- göngumátum og að borða vel og urðu fyrir sýndar sakir að halda uppi þeim lífsstíl, jafnvel þó að fjölskyldan hefði ekki eignir til þess að halda honum uppi,“ segir Lough. Churchill vandist því að lifa hátt og fannst eins og hann ætti skilið að lifa þannig. „Þegar peningarnir klár- uðust fann hann alltaf einhvern sem gat bjargað málunum fyrir sig,“ segir Lough og bætir við að Churc- hill hafi í raun orðið gjaldþrota eða því sem næst sjö sinnum á lífsleið- inni. „En hann fann alltaf einhvern, og hann valdi björgunarmenn sína af mikilli kostgæfni, sem er viss hæfi- leiki,“ segir Lough, og bætir við að þeir sem lánuðu Churchill til að bjarga honum úr kröggum hafi verið mjög skilningsríkir og þolinmóðir lánardrottnar. Skin og skúrir Churchill varð fyrst auðugur sem ungur maður, en þá var hann í breska hernum á sama tíma og hann var fréttaritari fyrir bresku press- una. Lýsingar Churchills á Búa- stríðunum voru eftirsóttar, og þegar hann kom heim og fór í stjórnmál var hann orðinn að milljónamæringi. „En stjórnmál voru á þeim tíma ólaunuð og kölluðu um leið á dýran lífsstíl. Þannig að innan áratugar hafði hann eytt öllum peningunum sem skrif hans höfðu fært honum.“ Árið 1921 snerist lukkuhjólið hon- um aftur í vil, þegar hann erfði óvænt eftir fjarskyldan ættingja sinn á Írlandi. „Síðasti karlkyns erfinginn í þeim legg fjölskyldunnar dó í lestarslysi það ár, og allt í einu var Churchill kominn með það sem væri um 600 milljónir íslenskra króna á núvirði.“ Lough segir að Clementine, kona Churchills, hafi ekki síst verið fegin. „Þetta er eins og að liggja í rjómabaði,“ sagði hún. Það entist þó ekki frekar en endranær. „Látið undan“ – En höfðu fjármálin áhrif á stríðs- rekstur Churchills? „Eitt af því sem kom mér á óvart var hvað hann eyddi miklum tíma á þeim árum í að greiða úr fjármálum sínum,“ segir Lough. Hann nefnir sem dæmi að á seinni árum styrjaldarinnar hafi skatturinn viljað leggja tekjuskatt á Churchill fyrir háar þóknanir sem hann fékk fyrir gömul skrif sín, en tekjuskatturinn var þá 98% vegna stríðsins. Hann hafi hins vegar fært þau rök að þar sem hann væri ekki lengur starfandi rithöfundur bæri að líta á þetta sem eftirlaun, sem voru skattfrjáls. „Og það eru heilu bréfin sem send eru á milli deilda á skattstofunni um hvað þetta sé nánast svívirðileg hegðun hjá Churchill, og skattstjór- inn fær málið á borð til sín,“ segir Lough. „Og hann fer og hugsar mál- ið og skrifar svo minnisblað þar sem á stendur eitt orð: „Acquiesce.“ [Látið undan.] Hann vissi að Churc- hill væri í raun ósnertanlegur sem forsætisráðherra á stríðstímum, og Churchill hafði raunar gert ráð fyrir því líka.“ Í kröggum mestalla sína merkisævi  Churchill varð sjö sinnum gjaldþrota á lífsleiðinni Morgunblaðið/Eggert Churchill David Lough flutti erindi hér á landi um síðustu helgi um fjármál Churchills, en forsætisráðherrann breski var í kröggum mestalla ævi sína. VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Með því að skoða fjármál Churchills fræðumst við meira um hann sem einstakling,“ segir David Lough, höf- undur bókarinnar No More Champ- agne, þar sem rakin eru fjárhags- vandræði Winstons Churchills, forsætisráðherra Breta í seinna stríði. Lough flutti erindi hér á landi um síðustu helgi þar sem hann fór yf- ir vandræði Churchills á fjármála- sviðinu, en hann glímdi við erfiðleika nær alla ævi, þrátt fyrir að vera af- komandi hertogans af Marlborough. Var erindið vel sótt og gerður góður rómur að. Lough rekur áhuga sinn á Chur- chill aftur til barnæsku. „Þegar Churchill lést árið 1965 var ég með sögukennara sem varaði okkur við að trúa öllu lofinu sem var hlaðið á hann, Churchill hefði bara verið „gamall rómantískur kjaftaskur (e. wind- bag)“. Og ég fór heim til ömmu minn- ar og notaði nákvæmlega þessi orð. Hún varð ævareið og las mér pistilinn um afrek Churchills,“ segir Lough og bætir við að hann hafi allar götur síð- an haft mikinn áhuga á manninum. Lough er sagnfræðingur að mennt, en varði megninu af starfsævi sinni við eignastýringu einstaklinga, og segir hann að sá bakgrunnur hafi gef- ið sér einstakt færi á að kanna þenn- an þátt ævi Churchills, sem aðrir sagnfræðingar hefðu ekki tök eða áhuga á að skoða nánar. „Þeir nefna vandræðin stöku sinnum, en tengja þau aldrei nánar við sögu hans,“ segir Lough. Um það leyti sem Lough fór að huga að eftirlaunaaldrinum fékk hann þá hugmynd að kanna hvort upplýsingar um fjármál Churchills væru til í skjalasafni hans. „Ég áttaði mig á því að ef ég gæti séð banka- upplýsingar hans, þá gæti ég ekki bara séð hver öll sagan væri á bak við fjármálin, heldur einnig fengið nánari sýn á manneskjuna að baki, hvaða ákvarðanir hann tók í lífinu og þess háttar.“ Hann heimsótti því skjala- safn Churchills, sem staðsett er í Cambridge, og komst að því að flest gögnin sem hann vantaði væru opin og aðgengileg, en hins vegar dreifð vítt og breitt um safnið. Það tók því talsverða vinnu að ná yfirsýn yfir efnið. Laginn við að skulda Segja má að rót fjármálavandræða Churchills hafi hafist þegar í æsku. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Elliði Vignisson, bæjarstjóri Ölfuss, undirritaði á dögunum samning um fasteignaþróun í sveitarfélaginu Ölf- usi við byggingarverktakann Hamrakór. Gísli Steinar Gíslason, einn af eigendum fasteignaþróunar- félagsins Stólpa, skrifaði undir samninginn fyrir hönd Hamrakórs. Samkvæmt fréttatilkynningu er um að ræða stærsta fasteignaþróunar- verkefni á Suðurlandi í dag og eitt hið stærsta á öllu landinu. Samkomulagið gildir til 10 ára og nær yfir skipulag á allt að 12 hekt- ara svæði. Með samkomulaginu von- ast sveitarfélagið til þess að gera Ölfus að eftirsóknarverðari bú- setukosti. Svæðið sem ætlað er til uppbygg- ingar er nærri miðju Þorlákshafnar og er m.a. í návígi við íþróttamann- virki, leik- og útivistarsvæði, grunn- skóla, leikskóla og bókasafn. „Svo er náttúrlega höfnin þarna sem er í raun og veru aðdráttaraflið í bænum,“ bætti Gísli Steinar við í samtali við Morgunblaðið. „Það eru miklir möguleikar í kringum hana. Þaðan eru vikulegar siglingar til Evrópu og lífið í kringum þær sigl- ingar er alltaf að aukast.“ „Markmið okkar með þessari uppbyggingu er að bjóða upp á ódýrari íbúðir,“ sagði Gísli. „Eins og skipulagsmál eru á höfuðborgar- svæðinu hefur verið svolítið einsleitt framboð af íbúðum. Þetta eru allt frekar dýrar íbúðir og óhentugar fyrir fyrstu kaupendur. Þannig að við erum í raun að svara kalli mark- aðarins.“ Ómæld tækifæri Í fréttatilkynningu um sam- komulagið segir Elliði tækifærin „ómæld“ og að stjórn sveitar- félagsins sé óhrædd við að nýta þau. „Í viðbót við þau vaxtartækifæri sem við eigum í þróun atvinnutæki- færa tengt höfninni, orkunni, vatn- inu og landgæðum þá verður ekki hjá því horft að búsetulega erum við í raun úthverfi Reykjavíkur. Það tekur ekki nema rétt liðlega 30 mín- útur að aka á milli Reykjavíkur og Þorlákshafnar og því auðvelt fyrir fólk að njóta samhliða þeirra kosta sem fylgja höfuðborginni og þeirra miklu búsetugæða sem hjá okkur eru. Samkomulagið við Hamrakór er mikilvægt skref fyrir okkur hvað áframhaldandi vöxt varðar. Þessir aðilar hafa sýnt að þeir eru meðal þeirra fremstu á landinu þegar kemur að fasteignaþróun. Trú þeirra á tækifærin hjá okkur er ekki síst viðurkenning á því sem við vilj- um standa fyrir, sem sagt tækifæri til vaxtar. Hamingjan er hér, og við viljum gera sem flestum mögulegt að njóta hennar.“ Stjórnvöld í Ölfusi vonast til þess að byggðin sem rísi á svæðinu verði bæði hagkvæm og umhverfisvæn og muni bjóða upp á kosti þess að búa í nánu samfélagi með mikla þjónustu. Gert er ráð fyrir að allt að 400 til 500 íbúðir rísi með uppbyggingar- átakinu. Ölfus Grétar Ingi Erlendsson, Þorlákur Ómar Einarsson, Elliði Vignisson, Gísli Steinar Gíslason og Jón Helgi Sen Erlendsson við undirritunina. Stærsta fast- eignaþróunin Uppbygging í áföngum » Áætlað er að uppbygging samkvæmt samkomulaginu taki tíu ár. » Verkefninu er skipt niður í smærri áfanga og er gert ráð fyrir að fimmtíu til sjötíu íbúðir rísi í hverjum þeirra. » Alls er áætlað að 400-500 íbúðir verði reistar á tíu árum.  Ölfus og Hamrakór gera samning

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.