Morgunblaðið - 20.04.2019, Side 22
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. APRÍL 2019
Lyfjalausmeðferð án þekktra aukaverkana.
Bionette er hentugt tæki semnotar ljóstækni til að draga úr einkennum ofnæmis-
kvefs s.s. hnerra, kláða, höfuðverk, nefrennsli, nefstíflu og tárvotum augum.
Bionette hentar vel gegn frjókornum úr trjám, grasi, illgresi og blómum.Myglu,
gróum frá plöntum, ryki, rykmaurum, dýrum og öðrum loftbornum ofnæmisvökum.
HEILSAÐUVORINU
lgueyðandi ljósameðferð gegn einkennum ofnæmiskvefs
Fæst í apótekum
Sölustaði má finna á facebook.com/bionetteisland
Reykjavíkurvegur62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
óB
Ljósinu er stungið upp í nasirnar, kveikt á því
og haft þangað til það slokknar (um 4mín.).
Má nota tvisvar til þrisvar á dag við upphaf einkenna.
Síðan eftir þörfum þegar einkenni hafa lagast.
20. apríl 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 119.6 120.18 119.89
Sterlingspund 156.08 156.84 156.46
Kanadadalur 89.75 90.27 90.01
Dönsk króna 18.111 18.217 18.164
Norsk króna 14.107 14.191 14.149
Sænsk króna 12.949 13.025 12.987
Svissn. franki 118.54 119.2 118.87
Japanskt jen 1.0677 1.0739 1.0708
SDR 166.2 167.2 166.7
Evra 135.22 135.98 135.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.8461
Hrávöruverð
Gull 1276.1 ($/únsa)
Ál 1840.0 ($/tonn) LME
Hráolía 71.63 ($/fatið) Brent
Frá og með 4. júní munu konur skipa meirihluta
stjórnarsæta hjá bandaríska bílarisanum General
Motors. Á aðalfundi félgsins í júní verður stjórnar-
meðlimum fækkað úr 13 í 11 og tveir karlar sem setið
hafa í stjórn munu þá setjast í helgan stein. Verða fimm
karlar og sex konur eftir í stjórninni, þeirra á meðal
Mary Barra, forstjóri félagsins. Automotive News
greinir frá þessu og bendir á að af þeim fyrirtækjum
sem mynda S&P 500-vísitöluna séu aðeins GM og Best
Buy bæði með konur í meirihluta í stjórn og kvenmann
í forstjórastólnum. Viacom og CBS eru, að sögn Bloom-
berg, einnig með fleiri konur en karla í stjórn en þar
eru forstjórar karlkyns. ai@mbl.is
Konur munu verða í
meirihluta í stjórn GM
Mary Barra
Seðlabanki Tyrklands hefur þurft að taka
skammtímalán til að styrkja gjaldeyrisforða
landsins. Samkvæmt tölum stjórnvalda átti
bankinn jafnvirði 28,1 milljarðs dala forða í byrj-
un apríl en Financial Times áætlar að án skamm-
tímalána væri forðinn undir 16 milljörðum.
Jukust lántökurnar mikið í lok mars og fóru
hæst upp í 13 milljarða dala 8. apríl síðastliðinn.
Frá ársbyrjun til 25. mars fóru skammtímalán
seðlabankans aftur á móti aldrei yfir 500 millj-
ónir dala.
Segir FT að það sé mat margra fjárfesta að forðinn sé þegar of lágur til að
standa undir bæði gjaldeyrisþörf vegna viðskipta við útlönd og afborgunum
af skuldum, og geta stjórnvalda til að verja líruna gegn frekari skakkaföllum
sé minni en þau hafa látið í veðri vaka. ai@mbl.is
Taka lán fyrir gjaldeyri
Sveiflur Síðasta ár var erfitt
fyrir tyrknesku líruna.
Ljósmynd / AFP
tilkynnt flugfélaginu að vanefndir
hefðu orðið á leigusamningi um vél-
ina. Þannig hafi WOW air á þeim
tímapunkti verið komið í vanskil
vegna vélarinnar sem nam 2,2 millj-
ónum dollara, jafnvirði 263 milljóna
króna. Í kjölfarið hafi ALC svo rift
samningnum við WOW air hinn 28.
mars, sama dag og flugfélagið fór í
þrot. Samkvæmt leigusamningnum
var ALC heimilt að taka full umráð
yfir þotunni strax í kjölfarið, m.a.
með því að fara hvert þangað sem
vélin væri staðsett og veita flug-
stjórum fyrirmæli um að fljúga
henni á hvaða flugvöll sem ALC ósk-
aði. Að morgni 28. mars lagði WOW
air inn flugrekstrarleyfi sitt til Sam-
göngustofu. Síðar sama dag eða um
klukkan 13.30 var félagið úrskurðað
gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Það hafi hins vegar ekki verið
fyrr en 17.10 þann sama dag sem
ALC hafi borist tilkynning frá
Isavia þess efnis að för TF-GPA
hefði verið stöðvuð frá Keflavíkur-
flugvelli uns skuld WOW air upp á
1.953.625.714 kr. hefði verið gerð
upp.
Um leið og ljóst var að vélin hefði
verið kyrrsett komu fulltrúar ALC
til Íslands og áttu fund með for-
svarsmönnum Isavia mánudaginn 1.
apríl. Þar var óskað eftir því að fé-
lagið fengi að leggja fram aðrar
tryggingar en vélina sjálfa vegna
skuldarinnar, þar sem félagið hefði
mikla hagsmuni af því að koma vél-
inni til annarra verkefna erlendis.
Þeirri beiðni hafi ekki verið svarað.
Þá hafi ALC einnig óskað eftir sund-
urliðun á kröfunni sem nú var beint
gegn fyrirtækinu vegna skuldasöfn-
unar WOW air frá júnímánuði 2018.
Við þeirri kröfu hafi ekki verið orðið
og í aðfararbeiðninni kemur fram að
enn sé allt á huldu um hvað standi að
baki skuldinni sem nemur tæpum
tveimur milljörðum króna.
Ólögmæt lánveiting
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu síðastliðinn fimmtudag
gerðu Isavia og WOW air með sér
samkomulag undir lok september-
mánaðar í fyrra um að félagið fengi
að greiða upp skuldir sínar við flug-
völlinn á rúmu ári en að meðan það
ferli stæði bæri félaginu að hafa
jafnan til taks vél sem Isavia gæti
kyrrsett. Allar vélar WOW voru á
leigu frá þriðja aðila. Í aðfararbeiðn-
inni fullyrða lögmenn ALC að fyrir-
tækinu hafi aldrei verið gerð grein
fyrir þessu samkomulagi og að auki
hefði félagið aldrei veitt heimild fyr-
ir slíkri „veðsetningu“ á vél sinni.
Vill ALC, skv. beiðninni, meina að
umfangsmiklar lánveitingar Isavia
til handa WOW air hafi bæði verið
ólöglegar og ámælisverðar og að
þær kunni að vera refsiverðar. Það
helgist af því að stjórnendur og
stjórnarmenn í opinberum hluta-
félögum verði að fylgja skýrum
reglum um starfsemi viðkomandi
fyrirtækis, ekki síst þegar komi að
lánastarfsemi. Þannig sé ekkert í
notendareglum Keflavíkurflugvallar
sem heimili Isavia að veita fyrir-
greiðslu á grundvelli samkomulags
eins og þess sem gert var við WOW
síðastliðið haust.
Ófyrirséðar afleiðingar
ALC, sem er í hópi stærstu flug-
vélaleigufyrirtækja heims, heldur
því fram að Isavia hafi farið langt út
fyrir þann ramma sem loftferðalög
heimili þegar TF-GPA var kyrrsett
gegn greiðslu milljarða skuldar
WOW air. Segir félagið framgöngu
Isavia mögulega setja flugþjónustu
á Keflavíkurflugvelli í uppnám því
leigusalar séu líklegir til að forðast,
banna eða takmarka leigutökum alla
umferð um flugvöllinn vegna
hennar. Ítreka lögmenn fyrirtækis-
ins að það sé „alvarleg staða“.
Segja Isavia brjóta lög
Isavia hafði ekki heimild til að láta skuldir WOW air safnast upp með þeim hætti sem raun varð á
Isavia neitar að birta sundurliðaða kröfu vegna milljarða skuldar WOW Hafna öðrum tryggingum
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Fer hvergi Vél ALC stóð óhögguð á Keflavíkurflugvelli í gær og stórvirkri vinnuvél lagt fyrir framan hana. Fallist hér-
aðsdómur á beiðni ALC kann Isavia að standa uppi með veðlausa tveggja milljarða kröfu á hendur þrotabúi WOW air.
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Eigandi Airbus A321-211-farþega-
þotu, með einkennisstafina TF-
GPA, sem staðið hefur kyrrsett á
Keflavíkurflugvelli frá 28. mars síð-
astliðnum, telur Isavia ekki hafa
heimild til þess að halda vélinni og
krefja eigandann um greiðslu skuld-
ar WOW air við Keflavíkurflugvöll. Í
kjölfar þess að WOW air var lýst
gjaldþrota 28. mars tilkynnti Isavia
eiganda vélarinnar, Air Lease Cor-
poration, að för vélarinnar af vell-
inum yrði aftrað uns fyrirtækið
greiddi tæplega tveggja milljarða
skuld WOW air við flugvöllinn sem
safnast hafði upp frá júnímánuði
2018. Kröfuna byggir Isavia á
ákvæði í loftferðalögum sem kveður
á um að Samgöngustofu eða flug-
vallaryfirvöldum sé heimilt að aftra
för flugfars „uns gjöld eru greidd
eða trygging sett fyrir greiðslu
vegna þess loftfars sem í hlut á eða
annarrar starfsemi hlutaðeigandi
eða umráðanda loftfarsins“.
Lögmenn ALC hafa lagt aðfarar-
beiðni fyrir Héraðsdóm Reykjaness
þar sem þess er farið á leit að Sýslu-
maðurinn á Keflavíkurflugvelli
tryggi að flugmenn á vegum ALC
geti nálgast vélina og komið henni
úr landi. Byggja lögmennirnir þá
kröfu á því að WOW air sé ekki um-
ráðandi viðkomandi loftfars og hafi
ekki verið það á þeim tíma sem ALC
var tilkynnt að vélin væri kyrrsett.
Hröð atburðarás í lok mars
Bendir ALC á að daginn fyrir
gjaldþrot WOW air hafi fyrirtækið