Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 1

Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 1
Hitamet sumardagsins fyrsta í Reykjavík var slegið í gær þegar hitamælir veðurstofunnar fór í 14,1 stig. Líklega féllu einhver hitamet víðar á landinu en þar sem skemmra er síðan mælar voru sett- ir upp annars staðar, vegur það ekki eins þungt, sagði veðurfræð- ingur í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld. Þrátt fyrir að hlýir vindar hafi blásið um Reykvíkinga var íbúum á Blönduósi líklega enn hlýrra, en þar fór nærri að hitamet sum- ardagsins fyrsta á landsvísu hefði verið slegið. 18,7 stig mældust þar en hitametið á landsvísu á sum- ardaginn fyrsta er 19,8 stig. »4 Hitamet sumar- dagsins fyrsta féll 2019 2019 40 SÍÐNA SÉRBLAÐ 04 |26 | ÍSLANDSMÓTIÐ Í FÓTBOLTA HEFST Í KVÖLD F Ö S T U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 9 Stofnað 1913  97. tölublað  107. árgangur  Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Unnið er í Stjórnarráðinu að und- irbúningi þess að hrinda í fram- kvæmd þeim 45 atriðum sem fram komu í yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf í tengslum við samninga á al- mennum vinnumarkaði. Forsætis- ráðherra hefur boðað til fundar hagsmunaaðila um miðjan maí til að fara yfir stöðu mála og ræða fram- kvæmdina. „Ég fagna því að búið er að sam- þykkja samningana. Í þeim felst ný nálgun til farsældar fyrir launafólk. Þetta er áfangi og nú tekur við vinna af hálfu ríkisvaldsins við fram- kvæmd á þeirri yfirlýsingu sem við gáfum. Við erum byrjuð að vinna að því,“ segir Katrín Jakobsdóttir for- sætisráðherra þegar leitað er álits hennar á niðurstöðu atkvæða- greiðslna meðal félagsmanna stétt- arfélaga og atvinnurekendasam- banda um nýjan kjarasamning, svokallaðan lífs- kjarasamning. „Vinnan er enn á byrjunarstigi. Við áttum okkur á því að heilmikil vinna er eftir. Ég sé fyrir mér núna að ráðuneytin fylgist með verk- efnunum og geri áætlanir um það hvernig unnið verði að þeim og á hvaða tíma. Verður gerð grein fyrir því á fundi með öllum aðilum samn- inganna og sveitarfélögum og sam- tökum opinberra starfsmanna. Að- gerðirnar eru almennar og gagnast öllum, sama hvar þeir eru starf- andi,“ segir Katrín. „Það var metnaðarmál hjá mér að breyta samskiptum við aðila vinnu- markaðarins. Hugsunin er að halda þessu samtali áfram og koma sam- skiptunum í fastara form enda tel ég að það hafi skilað árangri,“ segir Katrín Jakobsdóttir. Kröfur um að flýta lækkun Kröfur hafa komið fram um að skattabreytingar þurfi að koma hraðar til framkvæmda en ríkis- stjórnin hefur áformað. Það hefur meðal annars komið fram í yfirlýs- ingu Drífu Snædal formanns ASÍ og Sólveigar Önnu Jónsdóttur, for- manns Eflingar og formanns efna- hags- og skattanefndar ASÍ. Forsætisráðherra segir að krafan komi sér ekki á óvart. „Við höfum ekki lofað neinu öðru en fram kemur í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar en eig- um von á nýrri hagspá í byrjun maí og munum þá fara yfir hana í tengslum við yfirlýsinguna,“ segir hún. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er sagt að komið verði á þriggja þrepa skattkerfi með nýju lágtekju- þrepi. Fundað um fram- kvæmd aðgerða  Skattaloforðið óbreytt en stjórnvöld bíða nýrrar hagspár Katrín Jakobsdóttir Heimsóknum til Frú Ragnheiðar, skaðaminnkandi úrræðis Rauða krossins fyrir fólk sem notar vímuefni í æð, fjölgaði um 38% á milli áranna 2017 og 2018. Heimsókn- irnar voru 3.854 en einstaklingarnir að baki þeim 455. Verkefnisstýra Frú Ragnheiðar segir aukninguna ekki til komna af því að fleiri noti vímuefni í æð. Fremur skýri aukin þjónusta Frú Ragnheiðar þessa fjölgun ásamt því að hópurinn sem leiti til Frú Ragnheiðar hafi þyngst. „Margir þeirra sem leita til okk- ar hafa verið heimilislausir lengi. Það veldur því að þau eru veikari bæði líkamlega og andlega. Síðan eru biðlistar í vímuefnameðferðir langir, það eru helstu ástæður þess að hópurinn er orðinn þyngri.“ »2 Aukin að- sókn í Frú Ragnheiði  Hópurinn þyngist Svala Jóhannesdóttir Fyrsta degi sumars var fagnað víða um land í gær með skrúð- göngum og öðrum skemmtunum, eins og hefð og venja er fyrir. Ein hefð sem haldin er í heiðri á þessum degi á sér þó dýpri ræt- ur en margar aðrar; Víðavangshlaup ÍR, sem hefur verið haldið árlega frá árinu 1916. Á því var að sjálfsögðu engin breyting í ár og skráðu 663 hlauparar sig til leiks. Það var þó fleira sem ekki breyttist frá fyrri árum en í karlaflokki sigraði Arnar Pét- ursson úr ÍR, líkt og síðustu tvö ár. ÍR-ingar báru höfuð og herðar yfir aðra í karlaflokki en næstu fimm hlauparar á eftir Arnari komu einnig úr röðum ÍR. Í flokki kvenna sigraði María Birkisdóttir úr FH, á eftir henni kom Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni og þriðja varð Fríða Rún Þórðardóttir úr ÍR. Sprett úr spori í sólinni á sumardaginn fyrsta Morgunblaðið/Árni Sæberg Íslenski framleiðand- inn Good Good náði á topp vinsældalista yf- ir mest seldu sult- urnar hjá bandarísku vefversluninni Ama- zon nýverið. Framkvæmdastjóri Good Good segir vinsældirnar skýr- ast af heilsuvakningu á heimsvísu en sultan er framleidd án viðbætts sykurs. »12 Íslensk sulta í toppbaráttunni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.