Morgunblaðið - 26.04.2019, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.04.2019, Blaðsíða 20
20 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019 Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Bókhald Bókhald Bókari með reynslu úr banka- geiranum og vinnu á bókhalds- stofu, getur tekið að sér bók- halds-, launa- og VSK vinnslur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Uppl. í síma 852-3536. Ýmislegt Aðalfundur Lóðarfélagsins Móhella 4ae, Hafnarfirði, verður haldinn fimmtudaginn 9. maí 2019, að Kænunni við Óseyrarbraut 2 í Hafnarfirði kl 17.00. 1. Venjuleg aðalfundarstörf, kosning fundarstjóra og ritara. 2. Skýrslur stjórnar fyrir árið 2018 3. Ársreikningar lagðir fram 4. Kosning formanns, stjórnar- og varamanna 5. Kosning skoðunarmanna reik ninga 6. Rekstrar og framkvæmdaáætlun fyrir næsta ár 7. Ákvörðun hússjóðsgjalda 8. Önnur mál Reikningar ársins 2018 liggja frammi í Kænunni í Hafnarfirði frá kl. 16.00 - 17.00, 8. maí 2019 Nánar um þetta á heimasíðu félagsins, http://mohella.is/ Húsviðhald FLÍSALAGNIR - MÚRVERK FLOTUN - SANDSPARSL MÁLUN - TRÉVERK Ásamt öllu almennu viðhaldi fasteigna Áratuga reynsla og þekking skilar fagmennsku og gæðum Tímavinna eða tilboð Strúctor byggingaþjónusta ehf. S. 893 6994 Hreinsa þakrennur og tek að mér ýmis smærri verkefni Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Fundir/Mannfagnaðir Þriðji orkupakkinn ráðherrar skýra sjónarmið og stöðu mála Guðlaugur Þór Þórðarson. Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir. Sjálfstæðisfélögin í Garðabæ og Kópavogi boða til sameiginlegs fundar á laugardaginn 27. apríl kl.11:00 -13:00 í Salnum Tónlistarhúsi Hamraborg 6, Kópavogi. Húsið opnar kl. 10:30 Allir velkomnir. Frummælendur eru: Guðlaugur Þór Þórðar- son, utanríkisráðherra, og Þórdís Kolbrún R. Gyl- fadóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins og dómsmála-, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunar- ráðherra. Fundarstjóri verður Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri í Kópavogi. Lindakirkja Aðalsafnaðarfundur Lindasóknar verður haldinn í Lindakirkju, Kópavogi, þriðjudaginn 7. maí nk. kl. 17:00. Venjuleg aðalfundarstörf. Sóknarnefnd Lindakirkju Félagsstarf eldri borgara Boðinn Hugvekja kl. 13.30. Vöfflukaffi kl. 14.30. Línudans kl. 16. Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15. Fella- og Hólakirkja Velkomin í kaffi og vínarbrauð frá kl. 10–11.30. Gestur okkar að þessu sinni er Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði. Láttu sjá þig, við tökum hlýlega á móti þér. Fella- og Hólakirkja, Hólabergi 88, 111 Reykjavík. Félagsmiðstöðin Vitatorgi Í dag föstudaginn 26. apríl er haldið upp á 25 ára afmæli Vitatorgs, í matsalnum kl. 14-15. Boðið verður upp á kaffiveitingar, kórsöng og harmonikkuleik og eru allir velkomnir. Dag- urinn hefst á Velferðarkaffi, morgunfundi velferðarsviðs kl. 8.15-10 þar sem rætt verður um málefni heimilslausra og er fundurinn öllum opinn. Verið öll velkomin til okkar í dag á Lindargötu 59, s. 411-9450. Furugerði 1 Íslenskumorgnar kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur kl. 11.30-12.30, ganga kl. 13, kaffisala kl. 14.30–15.30. Föstudagsfjör: Alltaf mismunandi. Garðabær Dansleikfimi Sjálandi kl. 9.30. Gönguhópur frá Jónshúsi kl. 10. Félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13. Bíll fer frá Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðja í Kirkjuhvoli opin kl. 13-16, allir velkomnir. Gerðuberg 3-5 Opin handavinnustofa kl. 8.30-16. Glervinnustofa með leiðbeinanda kl. 9-12. Prjónakaffi kl. 10-12. Leikfimi gönguhóps kl. 10-10.20. Gönguhópur um hverfið kl. 10.30. Bókband með leiðbein- anda kl. 13-16. Kóræfing kl. 13-15. Allir velkomnir. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 12.45 tréskurður, kl. 20 félagsvist FEBK. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9-12. Útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og nýliðar velkomnir. Botsía kl. 10-11. Hádegismatur kl. 11.30. Bíó kl. 13. Laugardaginn 27. apríl verða þátttakendur í félagsstarfinu með sína árlegu handverkssýningu frá kl. 13-17. Ýmsar handunnar vörur verða til sýnis og sölu. Kaffi og góðar veitingar verða seldar á vægu verði. Verið hjartanlega velkomin. Hraunsel Kl. 8-12 ganga í Kaplakrika alla virka daga, kl. 11.30 línudans, kl. 13 brids, kl. 13 botsía, kl. 10.45 leikfimi Hjallabraut, kl. 11.30 leikfimi Bjarkarhúsi. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin frá kl. 8-16, blöðin og púsl liggja frammi. Morgunkaffi kl. 8.30-10.30, útvarpsleikfimi kl. 9.45, hádegismatur kl. 11.30, brids í handavinnustofu kl. 13, bíó kl. 13.15 og eftirmiðdagskaffi kl. 14.30. Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum, sundleikfimi kl. 9 í Grafarvogssundlaug, Brids-hópur Korpúlfa hefur spil kl. 12.30 í dag í Borgum og hannyrðahópur korpúlfa kl. 12.30 í Borgum. Vöfflukaffi frá kl. 14.30 til 15.30 í Borgum. Tréútskurður á Korpúlfsstöðum kl. 13 í dag. Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar. Norðurbrún 1 Morgunleikfimi kl. 9.45, lesið upp úr blöðum kl. 10.15, upplestur kl. 11-11.30, trésmiðja kl. 9-12, opin listasmiðja kl. 9-12, bingó kl. 14, bókasafnshópur kl. 15.30. Seltjarnarnes Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Leikfimi með Evu í saln- um kl. 11. Syngjum saman í salnum á Skólabraut kl. 13. Spila í krókn- um l. 13.30. Brids í Eiðismýri kl. 13.30. Ath. skráningarblöð og allar upplýsingar vegna vorgleðinnar sem verður fimmtudaginn 16. maí og vegna sameiginlegrar ferðar félagsstarfsins og kirkjunnar sem verður þriðjudaginn 21. maí, liggja frammi bæði á Skólabraut og Eiðismýri. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10-14. Heitt á könnunni frá kl. 10-11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30–12.15, panta þarf matinn daginn áður. Framhaldssaga eða bíó kl. 13. Allir velkomnir. Síminn í Selinu er 568-2586. Vesturgata 7 Sungið við flygilinn með Gylfa Gunnarssyni frá kl. 13- 14. Kaffi frá kl. 14-14.30. Allir velkomnir. Smá- og raðauglýsingar mbl.is alltaf - allstaðar ✝ Helga Bjarna-dóttir fæddist 29. júní 1940 á Fá- skrúðsfirði. Hún lést á heimili sínu, Sunnuhlíð í Kópa- vogi, 13. apríl 2019. Foreldrar henn- ar voru Bjarni Guðjón Björn Sig- urðsson, f. 4. jan- úar 1913, d. 31. janúar 1999, og Jóhanna Þor- steinsdóttir, f. 11. júlí 1914, d. 2. janúar 1997. Helga var elst fjögurra systkina en þau eru auk henn- ar Sigurbjörg, f. 2. apríl 1944, Þorsteinn, f. 4. júní 1948, og Guðný, f. 12. maí 1950. Hinn 6. desember 1958 gift- ist Helga Bergi Hallgrímssyni útgerðarmanni, f. 4. október 1929, d. 20. júní 1998. Þau eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Hallgrímur, f. 28. ágúst 1958, maki Ásta Mikka- elsdóttir. 2) Bjarni Sigurður, f. 8. október 1963, maki Fjóla Þorgerður Hreinsdóttir. 3) Salome, f. 26. ágúst 1965. 4) Bergur, f. 2. des- ember 1976. Barnabörnin eru átta og barna- barnabörnin fimm. Helga ólst upp á Fáskrúðsfirði en flutti ásamt Bergi til Stöðvarfjarðar árið 1958 og bjuggu þau þar til ársins 1962. Á árunum 1963 til 1968 héldu þau heimili bæði í Kópavogi og á Fáskrúðsfirði en þá fluttu þau alfarið til Fáskrúðsfjarðar. Árið 1994 fluttu þau síðan aftur í Kópa- vog. Helga og Bergur ráku út- gerðar- og fiskvinnslufyrir- tækið Pólarsíld hf. frá árinu 1964 í hartnær þrjátíu ár. Eft- ir að Bergur lést hóf Helga störf hjá Kópavogsskóla og starfaði þar þangað til hún fór á eftirlaun. Útför Helgu fer fram frá Kópavogskirkju í dag, 26. apr- íl 2019, og hefst athöfnin klukkan 11. Það er líklega engin ást í þessum heimi eins skilyrðislaus og móðurást. Þegar ég lít til baka fyllist ég þakklæti fyrir að hafa notið ótakmarkaðrar móð- urástar. Það er dásamlegt að vera mömmudrengur þó svo það hafi stundum verið feimn- ismál og ekki alltaf haft hátt um það. Þegar ég minnist æskuár- anna og horfi á þessa ást sem sumir hafa kallað dekur, sé ég hversu mikil áhrif hún hefur haft á mig og mótað mig sem manneskju. Ég minnist stund- anna í eldhúsinu í Garðsá þar sem ég stóð uppi á stól á meðan þú hjálpaðir mér í fötin eða þegar ég kom drullugur upp fyrir haus og rennvotur inn í þvottahús og þú dróst mig úr spjörunum. Við áttum líka ófáar stundir þar sem þú sast í þínu sæti í eldhúsinu og last á með- an ég sat og teiknaði hinumegin við borðið. Á kvöldin þegar ég fór svo að sofa voru herberg- isdyrnar alltaf opnar svo ég sá þig þar sem þú lást og last á meðan ég sofnaði. Það voru ekki margir unglingar sem fengu fötin sín heit úr þurrk- aranum áður en þeir fóru í vinnuna eða skólann eða þegar ég fór á útihátíðir á Eiðum og Atlavík og nestið frá þér hélt lífi í vinahópnum. Fáskrúðs- fjörður var þér alla tíð kær og fannst þér mikilvægt að börnin mín fengju að koma í sveit til ömmu eða færu með þér austur eftir að þú fluttir í aftur í Kópa- voginn til þess að þau fengju að upplifa það frelsi sem felst í því að leika sér í fjörunni, við læk- inn og fá að skottast óheft um bæinn. Ég veit þau munu búa að þessum tíma alla tíð. Nú þegar við kveðjum þig í dag frá kirkjunni þinni, Kópa- vogskirkju, sem var þér svo kær er þakklæti sorginni yf- irsterkara. Bjarni. Elsku amma, það er svo óraunveruleg tilfinning að þú sért farin, horfin á vit nýrra ævintýra með elsku afa. Það er ljúfsárt að rifja upp minning- arnar, vitandi að þær verða ekki fleiri – en við erum fullar þakklætis fyrir allan þann tíma sem við fengum saman. Hvern- ig þú varst alltaf til staðar í skólanum og tilbúin með opinn faðm fyrir hvert það barn sem vildi ömmuknús á skólatíma. Það kom snemma fram að þú værir súkkulaði-amma með sögur en ekki prjóna-amma sem spilaði. Það var alltaf jafn gaman að koma til þín og fá að gleyma sér í ævintýralegum frásögnum af heimshornaflakk- inu og lífinu fyrir austan. Takk fyrir allt sem þú gafst okkur, allt sem þú kenndir okk- ur. Elskum þig endalaust og allt- af. Þínar Heiður og Ingibjörg Andrea. Litla skáld á grænni grein, gott er þig að finna: söm eru lögin, sæt og hrein, sumarkvæða þinna. Við þinn létta unaðsóð er svo ljúft að dreyma. Það eru sömu sumarljóð, sem ég vandist heima. Ég ætla að líða langt í dag laus úr öllum böndum, meðan þú syngur sumarlag Sjálands fögru ströndum. Láttu hljóma hátt og skært hreina og mjúka strengi — svo mig dreymi, dreymi vært, dreymi rótt og lengi. Ég ætla að heilsa heim frá þér Hlíðinni minni vænu; hún er nú að sauma sér sumarklæðin grænu. ( Þorsteinn Erlingsson) Kynni okkar Helgu hófust fyrir um 55 árum, þegar ég flutti til Fáskrúðsfjarðar með lífsförunaut mínum Sævari Sig- urðssyni en hann og Helga voru tengd fjölskylduböndum. Þessi tengsl við hana og fjölskylduna í Birkihlíð hafa verið mér til gleði og gæfu alla tíð síðan. Það er af mörgu af taka þeg- ar hugurinn leitar til baka, þá iðaði innbærinn af lífi, barna- köll og hlátur ómaði frá morgni til kvölds og mikil umsvif hjá Trésmiðju Austurlands sem var að mestu staðsett í fjörunni góðu þar sem börn og fullorðnir áttu oft góðar stundir dagana langa. Mig minnir líka svei mér þá að það hafi oftast verið sól á þessum árum. Þegar ég hugsa til Helgu og bestu áranna okkar saman, bankar hennar góði eiginmaður Bergur Hallgrímsson allhressi- lega upp á, hann var mikill kar- akter, skemmtilegur og orð- heppinn. Bergur var einn af þeim sem settu svip á bæinn og fór oft ótroðnar slóðir. Þau hjónin ráku stórt fyrirtæki hér á staðnum, Pólarsíld, um margra ára skeið, það voru oft mikil umsvif í kringum Pólar- síld á þessum árum og sá Helga um bókhald að hluta og seinna mötuneytið í mörg ár. Það var alltaf gott að heim- sækja Helgu og Berg í Garðsá, þá var oft mikið fjör, mikil skoðanaskipti, haft hátt og mik- ið hlegið. Í mörg ár hafði ég þann sið að koma í Garðsá fyrir hádegi á aðfangadag og eiga þar nota- lega samverustund með þessum góðu vinum. Við Helga áttum mörg áhugamál saman um ýmis mál og málefni enda var hún fróð og vel lesin, og áttum við það sam- eiginlegt að vera báðar miklir bókaormar. Helga var alltaf mikill vinur vina sinna og mikill höfðingi þegar þeir áttu í hlut. Nú er komið að leiðarlokum og Helga mín komin í sum- arlandið þar sem margir góðir taka á móti henni. Elsku Helga, kærar þakkir fyrir allt og allt, vináttu þína og gæði til mín og minna alla tíð. Minning þín lifir. Kæru, Hallgrímur, Bjarni, Salóme, Bergur og fjölskyldur. Innilegar samúðarkveðjur. Sóley Sigursveinsdóttir. Dáðum prýdd dugnaðarkona er horfin af heimi og henni fylgja í huga mínum svo marg- ar bjartar minningar. Hún var í fyrsta nemendahópnum mínum á Fáskrúðsfirði, ágæta vel gefin og vel gerð í hvívetna. Hún var hlédræg en svaraði vel fyrir sig, nokkuð sem einkenndi hennar ævitíð. Seinna átti hún eftir að sanna sig sem hin dugandi og kærleiksríka móðir og húsmóð- ir ásamt því að starfa með eig- inmanninum í hans miklu um- svifum. Bergsplanið var ekkert smáfyrirtæki og þá kom sér vel fyrir hann Berg, þann einstaka atorkumann, að hafa sér við hlið slíkan afburðakvenkost sem hún Helga var. Þau voru samhent hið bezta og vinnu- framlag beggja á stundum næstum ævintýralegt og hlutur Helgu þar alveg sérstakur með- fram krefjandi heimilisstörfum. Heimilið og umhverfið voru að- alsmerki Helgu og barnalán þeirra hjóna ljómandi gott og fylgdi því farsæld góð. Hvenær sem okkar fundum bar saman var alltaf jafnyndislegt að hitta á Helgu, jafnvel þótt óvæginn sjúkdómur herjaði á hana síð- ustu árin þá hélt hún sínum létta húmor og hressleika og fagnaði manni svo vel og inni- lega. Minnti mig stundum á það þegar Bjarni faðir hennar og góður félagi minn vildi á kosn- ingadegi að við kæmum til dótt- ur hans í kaffi og tekið með kostum og kynjum og Helga hvíslaði að mér á leiðinni út: „Pabbi hefur verið hræddur um atkvæðið mitt,“ og svo skellihló hún þessum smitandi glaða hlátri. Mikið þykir mér gott að eiga þessa minningamynd míns góða nemanda fyrir svo margt löngu, enda einstakt lán mitt að byrja með svo indælan og góð- an hóp unglinga þar sem aldrei var annað um að ræða en gjöf- ula þátttöku allra nemendanna sem urðu sannarlega að kærum félögum mínum, mynd sem á alltaf birturíkan heiðurssess í öldnum huga. Þegar við Hanna mín hittum hana hér syðra var eins og hún ætti í okkur hvert bein og faðmlagið fagnandi og dýr- mætt. Alls þessa er gott og ljúft að minnast í dag þegar hún Helga er kvödd. Hanna vill sérstaklega þakka samveruna í Félagi austfirzkra kvenna þar sem Helga var hinn sanni gleði- gjafi. Sjálfur þakka ég sam- fundi áranna mörgu, yfir til allra samverustunda gjöfulla og gleðiríkra samfunda. Megi hin fallega minningamynd um hana Helgu vísa okkur leið til þeirrar bjartsýni og kærleika sem hún var alltaf svo rík af. Blessuð sé sú bjarta minning hennar Helgu. Veri hún kært kvödd yf- ir í heiðríkju hins ókunna. Helgi Seljan. Helga Bjarnadóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.