Morgunblaðið - 26.04.2019, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 2019
Rafstilling ehf
Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is
Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14
Hröð og góð þjónusta um allt land
Áratug
a
reynsla
Startar bíllinn ekki?
Við hjá Rafstillingu leysum málið
Lyfjalausmeðferð án þekktra aukaverkana.
Bionette er hentugt tæki sem notar ljóstækni til að draga úr einkennumofnæmis-
kvefs s.s. hnerra, kláða, höfuðverk, nefrennsli, nefstíflu og tárvotum augum.
Bionette hentar vel gegn frjókornumúr trjám, grasi, illgresi og blómum.Myglu,
gróum frá plöntum, ryki, rykmaurum, dýrumog öðrum loftbornumofnæmisvökum.
HEILSAÐUVORINU
lgueyðandi ljósameðferð gegn einkennum ofnæmiskvefs
Fæst í apótekum
Sölustaði má finna á facebook.com/bionetteisland
Reykjavíkurvegur 62 | Sími 527 0640 | 220Hafnarfjörður | www.wh.is
óB
Ljósinu er stungið upp í nasirnar, kveikt á því
og haft þangað til það slokknar (um 4mín.).
Má nota tvisvar til þrisvar á dag við upphaf einkenna.
Síðan eftir þörfum þegar einkenni hafa lagast.
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Umhverfissinnar límdu sig saman
við inngang kauphallarinnar í Lund-
únum í gærmorgun. Aðrir gerðu
slíkt hið sama við inngang fjármála-
ráðuneytisins og enn aðrir við inn-
ganginn að höfuðstöðvum Goldman-
Sachs-bankans.
Aðgerðirnar voru skipulagðar af
baráttuhópnum Uppreisn gegn út-
rýmingu (e. Extinction rebellion) og
eru hluti af mótmælum sem hafa
staðið yfir síðastliðna daga.
Að auki við umræddar aðgerðir
stóð hópurinn fyrir tónleikum á göt-
um úti og truflaði þannig umferð bíla
um höfuðborgina.
„Umferðartruflanirnar hafa valdið
því að umhverfis- og loftslagsvernd
eru ekki lengur jaðarmálefni,“ sagði
gítarleikarinn Nick Onley á meðan
hann leiddi um 20 manna hóp í gegn-
um Bítlalag á fjölförnum gatnamót-
um í miðborg Lundúna. „Við höfum
þó ekki náð fullum árangri. Við höf-
um ekki komist á þann stað þar sem
stjórnvöld segja: „Já. Ræðið við okk-
ur“,“ bætti Onley við.
Markmiðið með mótmælunum er
að fá breskt stjórnmálafólk til að líta
fram hjá „hitamálum“ eins og Brex-
it, og leita frekar leiða til að bjarga
jörðinni frá óbætanlegum skaða.
Rúm vika er síðan samtökin stóðu
fyrir umfangsmiklum gatnalokunum
í Lundúnum og tæplega 300 mót-
mælendur voru handteknir.
Límdu sig við kauphöllina og
héldu tónleika á götum úti
Mótmælendur lokuðu einnig fjármálaráðuneyti og banka
AFP
Tónlist Umhverfissinnar leika á
fiðlur og fagott í Lundúnum í gær.
Emmanuel Mac-
ron, forseti
Frakklands,
svaraði gulvest-
ungahreyfing-
unni í ræðu í gær
og lofaði nýjum
aðgerðum, þ.á m.
lækkun skatta,
umbótum innan
opinbera kerf-
isins og að kynnt-
ar yrðu tillögur að hlutfallskosn-
ingakerfi. Þá sagði hann einnig að í
grunninn væru kröfur hreyfing-
arinnar sanngjarnar. Lengi hefur
verið beðið eftir því að Macron
svaraði gulvestungahreyfingunni,
sem hóf regluleg mótmæli í nóv-
ember í fyrra, og var áætlað að
Macron flytti ræðu 15. apríl sl. Því
var frestað til gærdagsins vegna
brunans í Notre Dame-kirkjunni.
FRAKKLAND
Macron svaraði
gulvestungum
Emmanuel
Macron
Tala látinna eftir hryðjuverkin sem
áttu sér stað á páskadag í Sri Lanka
lækkaði umtalsvert í gær þegar
heilbrigðisráðuneyti landsins til-
kynnti að tala látinna væri „um
253“. Fyrir hafði verið gefið út að
tala látinna væri um 360. Sagði
ráðuneytið að „villum í útreikn-
ingi“ væri um að kenna.
Fyrr í gær hafði æðsti embætt-
ismaður varnarmála þarlendis, He-
masiri Fernando, sagt af sér vegna
vegna gagnrýni sem ríkisstjórnin
hefur sætt eftir að í ljós kom að
ekki var gripið til aðgerða þegar
viðvaranir vegna fyrirhugaðra
hryðjuverka bárust.
SRI LANKA
Tala látinna lækkuð
um rúmlega hundrað
Teitur Gissurarson
teitur@mbl.is
Joe Biden, fyrrverandi varaforseti
Bandaríkjanna, hefur formlega til-
kynnt að hann gefi kost á sér í forvali
demókrata í aðdraganda forsetakjörs
þar vestra. Frá þessu greindi Biden á
Twitter-síðu sinni í gærmorgun.
Að auki við Biden hafa nú 19 demó-
kratar tilkynnt að þeir muni sækjast
eftir tilnefningu flokksins í forvalinu
fyrir forsetakosningarnar 2020 og er
Biden þeirra reynslumestur, og tal-
inn líklegastur til að hljóta umrædda
tilnefningu.
Stendur fyrir
grunngildi þjóðar
Í kynningarmyndskeiði sem Biden
birti í gær talaði hann til bandarísku
þjóðarinnar og gagnrýndi m.a. sitj-
andi forseta, Donald Trump. „Ég
held að sagan muni líta til baka á
þessi fjögur ár forsetans og allt sem
hann styður sem afbrigðilegt augna-
blik í tímans hafi. Ef við hins vegar
gefum Donald Trump átta ár í Hvíta
húsinu mun hann varanlega gjör-
breyta eðli þessarar þjóðar og hver
við erum. Ég get ekki staðið hjá og
fylgst með því gerast,“ sagði Biden í
ræðu sinni í myndskeiðinu.
Þá sagði hann í tísti um ástæðuna
fyrir því að hann byði sig nú fram:
„Grunngildi þjóðarinnar, staða þjóð-
arinnar í heiminum, lýðræði okkar,
allt sem hefur skapað Bandaríkin,
Bandaríkin sjálf eru í húfi. Því til-
kynni ég nú framboð mitt til forseta
Bandaríkjanna.“
„Ég sé Joe Biden ekki sem ógn,“
sagði Donald Trump fyrr í mánuðin-
um en lengi hefur legið fyrir rök-
studdur grunur um að Biden myndi
bjóða sig fram. Talið er að kosninga-
baráttan, og slagurinn milli gömlu
brýnanna tveggja, gæti orðið sér-
staklega vægðarlaus þar sem þeir
hafa eldað saman grátt silfur um
tíma.
Þá segja stjórnmálaspekingar þar
vestra að Biden og Trump eigi meira
sameiginlegt en margur telur í
fyrstu, sem dæmi höfði þeir báðir sér-
staklega til verkalýðsins, kjósenda í
miðríkjum Bandaríkjanna og eru
báðir þekktir fyrir að tala tæpitungu-
laust.
Þrátt fyrir að Biden sé af flestum
nú talinn sigurstranglegasti demó-
kratinn er hans helsti keppinautur
innan raða flokksins enginn nýgræð-
ingur heldur, öldungadeildarþing-
maðurinn Bernie Sanders. Sá bauð
sig fram í forvalinu 2016 og naut mik-
illa vinsælda, en laut í lægra haldi fyr-
ir Hillary Clinton.
Biden vill verma forsetastólinn
Joe Biden gefur kost á sér í forvali demókrata Segir kjörtímabil Trumps vera
afbrigðilegt augnablik í tímans hafi Trump og Biden eiga ýmislegt sameiginlegt
AFP
Skörungurinn Biden, sem er þekktur fyrir að tala tæpitungulaust, bauð sig einnig fram 1988 og 2008.