Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 32

Morgunblaðið - 26.04.2019, Side 32
Ráðstefna um fyrirlestra Sigurðar Nordals, Einlyndi og marglyndi, í Bárubúð 1918-1919 verður haldin í Hannesarholti á morgun, laugar- dag, milli kl. 10 og 15.15. Sjálfur lít- ur hann á fyrirlestra sína sem fram- lag til heimspekilegrar sálfræði og þess sem hann kallar „lífernislist“. Bæði heimspekingar og bók- menntafræðingar flytja erindi, þeirra á meðal eru Salvör Nordal, Logi Gunnarsson, Róbert H. Har- aldsson, Jón Karl Helgason og Benedikt Hjartarson. Ráðstefna um fyrir- lestra Sigurðar Nordals FÖSTUDAGUR 26. APRÍL 116. DAGUR ÁRSINS 2019 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 670 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Valskonur eru komnar í mjög góða stöðu í einvíginu við Fram um Ís- landsmeistaratitil kvenna í hand- knattleik. Valur vann annan leik lið- anna eftir framlengingu í Safamýri í gær, 29:26, og getur tryggt sér Ís- landsmeistaratitilinn á heimavelli á sunnudaginn en þá fer þriðji leik- urinn fram á Hlíðarenda. »27 Titillinn er í augsýn hjá Valskonum ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM Leikritið Þrett- ánda krossferðin eftir Odd Björns- son verður leik- lesið undir stjórn Sveins Einars- sonar í Hann- esarholti í kvöld kl. 20 og á sunnudag kl. 16. „Oddur var um sína daga eitt virtasta leikskáld þjóðarinnar, kannski hreinrækt- aðasti fulltúi absúrdismans í okk- ar leikritagerð,“ segir í tilkynn- ingu. Þar kemur fram að Þrettánda krossferðin var síðasta leikrit Odds og að sumu leyti hans metnaðarfyllsta. Það var frumflutt í Þjóðleikhúsinu 1993 og sama ár gefið út á bók. Leiklesa Þrettándu krossferðina eftir Odd Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Fimm nemendur í menntaskólanum á Tröllaskaga heimsóttu mennta- skóla í Istanbúl, stærstu borg Tyrk- lands, nýverið ásamt tveimur kenn- urum. „Ég held að það sé akkúrat svona verkefni sem við þurfum á að halda til þess að rífa niður veggi á milli fólks í heiminum,“ segir Sigurður Mar Halldórsson, kennari í Mennta- skólanum á Tröllaskaga, en hann fór með nemendunum í ferðina. „Ég held að mesti lærdómurinn fyrir okkur öll hafi verið að komast að því hvað þetta land er miklu nær okkur en við héldum. Og miklu vest- rænna en við héldum þrátt fyrir að þetta sé múslimaland. Þessir krakk- ar voru mjög hissa á því hvað allt var venjulegt, vinalegt og kunnuglegt en samt mjög framandi menning nátt- úrulega, eins og til dæmis hvað varð- ar trúarbrögðin,“ segir Sigurður. Hópurinn dvaldi í viku í Istanbúl og fékk að kynnast daglegu lífi drengjanna í Ömer Cam-drengja- skólanum. Drengirnir úr hópnum dvöldu á heimavist Ömer Cam- skólans en stúlkurnar gistu á heima- vist stúlknaskóla í grenndinni. „Við gerðum bara allt eins og þau gera, borðuðum sama matinn, fórum í tíma og sváfum í sams konar her- bergjum en svo fórum við nátt- úrulega í skoðunarferðir og kíktum á hina sögulegu Istanbúl og sigldum meðal annars eftir Bosporus,“ segir Sigurður. „Við erum öll manneskjur“ Hann segir ferðir sem þessar lið í því að útrýma fordómum. „Ég held að þetta sé mjög mikilvægt vegna þess að við gerum okkur hugmyndir út frá fréttum um að fólk sé á þenn- an hátt eða hinn vegna þess að það býr í þannig landi eða trúir á þannig Guð. Ég held að þetta sé gríðarlega mikilvægt til þess að rífa niður veggi og eyða fordómum á milli fólks í heiminum. Við erum öll manneskjur, hlustum á hipphopp og drekkum kaffi, gerum allt eins nema við biðj- um kannski á annan hátt eða biðjum ekki neitt,“ segir Sigurður. Drengirnir í Ömer Cam eru spenntir fyrir því að sækja Trölla- skagann heim. „Þau hafa mikinn áhuga á því og við erum náttúrulega búin að bjóða þau velkomin. Það er ekkert sem við erum farin að plana en okkur langar til þess og við vær- um mjög til í að taka á móti þeim og sýna þeim hvernig við gerum. Þeir voru mjög áhugasamir og impóner- aðir yfir því hvernig okkar skóla- kerfi er. Þeim fannst þetta hálfpart- inn útópískt, engin lokapróf og allt öðruvísi stemmning.“ Ljósmynd/Sigurður Mar Halldórsson Spjall Nemendur í Menntaskólanum á Tröllaskaga ræða hér við tvær kennslukonur í Ömer Cam-drengjaskólanum. Liður í að „rífa niður veggi á milli fólks“  Nemendur frá Tröllaskaga heimsóttu menntaskóla í Istanbúl  Gistu á heimavistum og sigldu á ánni Bosporus

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.