Umbrot - 15.03.1978, Qupperneq 12
LJMBROT
Miðvikuidagur 15. mars 1978
Úrslit í prófkjöri
Alþýðuflokksins
Verð kr. 120
Um síðustu helgi fór fram
prófkjör hjá Alþýðuflokknum
fyrir bæjarstjómarkosningarn-
ar í vor. Úrslit urðu þessi:
1. sæti Ríkharður Jónsson 171
og 22 atkv. í annað sæti
2. — Guðm. Vésteinsson 198
3. — Rannveig Edda
Hálfdánardóttir 237
Sigurjón Hannesson samtals 139
atkv. í 1.-3. sæti.
Skúli Þórðarson samtals 117
atkv. í 1.-3. sæti.
Þorvaldur Þorvaldsson samtals
106 atkv. í 1. og 2. sæti.
367 tóku þátt í prófkjörinu,
en við síðustu bæjarstjórnar-
kostiingar hlaut Alþýðuflokkur-
inn 388 atkv.
BÆJARBROT
Föstudaginn 3. mars frumsýndi Leikflokkurinn sunnan Skarðs-
heiðar gamanleikinn „Grátsöngvarinn" eftir Vernan Sylvanine í
þýðingu Ragnars Jóhannessonar. Sýningar fara fram í Heiðarborg
í Leirársveit.
h
Leikendur í þessum gamanleik eru alls 12 og með 4 helstu
hlutverkin fara: Dóra Líndal, Jón S. Sigurðsson, Sigríður Lárus-
dóttir og Hjalti Njálsson. Uppsetning leiksins, svo og leiktjöld og
búningar var unnið í hópvinnu og gafst þetta fyrirkomulag mjög
vel. Félagar í leikflokknum eru 54 og rúmlega helmingur þeirra
vann við uppsetningu leiksins.
Leikflokkurinn mun ekki ferðast með Grátsöngvarann, en
sýningar verða áfram að Heiðarborg til páska. — Formaður
flokksins er Brynja Kjerúlf.
Afli Akranesbáta
Nýr gjaldbókari
Eftirfarandi umsóknir um
starf gjaldbókara á bæjarskrif-
stofu bárust:
Áslaug Sigvaldadóttir, Skarðs
braut 17; Gíslína Magnúsdótt-
ir, Sóleyjargötu 1; Guðrún Guð
mundsdóttir, Vesturgötu 151;
Jórunn Friðriksdóttir, Heiðar-
braut 45; Rósa K. Þórisdóttir,
Vesturgötu 143.
Guðrún Guðmundsdóttir var
ráðin í starfið.
Ekki er öll vitleysam eins!
Starfsmenn bæjarins héldu
árshátíð sl. föstud. Starfsmenn
Rafveitunnar sendu fyrirspurn
til rafveitunefndar þess efnis
hvort Rafveita Akraness vildi
ekki greiða miða þeirra á árs-
hátíðina. — Rafveitan synjaði
þessu erindi að sjálfsögðu.
íbúaf jöldi á Akranesi
Samkv. bráðabirgðatölu Hag-
stofu íslands miðað við 1. des.
sl. eru íbúar Akraness þrem
fleiri en bráðabirgðatölur sýndu
árið 1976, eða 4.629.
Listi Alþýðubandalagsins
Birtur hefur verið listi Al-
þýðubandalagsins við bæjarstj.
kosningamar í vor Fimm efstu
sætin skipa:
1. Jóhann Ársælsson
2. Engilbert Guðmundssoln
3. Guðlaugur Ketilsson
4. Sigrún Gunnlaugsdóttir
5. Sigrún Clausen
Afli Akranesbáta og togara Reynir 107.680 21 Þjóðhátíðamefnd
í febrúar, var sem hér í segir: Sif 67.980 15 Eftirtaldir hafa verið kosnir
kg. sjóf. Sigurborg 84.340 18 í Þjóðhátíðarnefnd 1978: Rúnar
Fagurey 93.950 19 Sigurvon 39.900 7 Pétursson, Rún Elva Oddsdótt-
Grótta 111.440 21 Togarar: ir, Kristrún Valtýsdóttir, Ing-
Haraldur 98.550 16 Haraldur B. 198.849 2 unn Jónasdóttir og Valgeir Guð-
Rán 75.160 17 Krossvík 187.819 2 mundsson.
Söluverðlaun
UMBROTS
Söluverðlaun UMBROTS í
febrúar hlutu Hörður Jóns-
son, Vogabraut 36 og Gísli
Þráinsson, Suðurgötu 78.
Eru þeir vinsamlegast beðn
ir að hafa samband við aug-
lýsingastjóra blaðsins.
Það er greinilegt að bæjarfnlltrúar kunna vel að meta nýju stólana ef marka má svip þeirra.
(Ljósm. Ól. Árnason.)
Bæjarstjórn Akraness hélt sinn 476. fund þriðjudaginn 28.
febr. sl. í nýjum fundarsal á efstu hæð í Bókhlöðunni við Heiðar-
braut. Salurinn er nokkuð stór og rými er fyrir um 30 áheyr-
endur. Húsnæðið er i alla staði mjög vistlegt.
Bókhlaðan var teiknuð af Sigurjóni Sveinssyni, arkitekt, í
Reykjavík. Innréttingar í fundarsalinn nýja eru teiknaðar hjá
Verkfræði- og teiknistofunni. sf. Húsgögn eru keypt frá Trésmíða-
verkstæði Kristjáns Siggeirssonar, samkvæmt tillögu Reynis
Kristinssonar, tæknifræðings.
I tilefni þessa merka áfanga voru hengd upp í salinn málverk,
sem gefin voru Akranesbæ úr dánarbúi Fríðu Proppé, apótekara,
sem starfaði hér um langan aldur. Einnig var stillt upp á fulnd-
inum líkani af tillögu af nýju miðbæjarskipulagi af Akranesi.
Þessi fyrsti fundur í salnum hófst kl. 4 og stóð til kl. 23,55
og þar fór fram síðari umræða um f járhagsáætlun kaupstaðarins.