Umbrot - 21.11.1978, Síða 6
Félagsmálaráð
Rœtt við Rannveigu Eddu Hálfdánardóttur
Á vegum bæjarins eru starfandi
margar nefndir og ráð sem vinna
að ólíkum málaflokkum. Til að gefa
bæjarbúum kost á að fá örlitla
innsýn í þau málefni, sem hinar
ýmsu nefndir starfa að, mun í
næstu blöðum birtast viðtal við for-
mann einhverrar ákveðinnar
nefndar eða ráðs.
Þann 31. maí s.l. var samþykkt í
félagsmálaráðuneytinu, ný bæjar-
málasamþykkt fyrir Akranes. 38.
gr. samþykktarinnar er svo-
hljóðandi: „Félagsmálaráð er
skipað fimm mönnum og fimm til
vara. Ráðið kýs formann og ritara
úr sínum hópi. Ráðið skal fjalla um
framfærslumál, barnavernd, dag-
vistunarmál barna, leikvelli, vinnu-
skóla fyrir unglinga, heimilishjálp,
þjónustu við aldraða, vetrarhjálp
og almenna félagslega þjónustu.
Ráðið kýs úr sínum hópi tvo menn í
nefnd, er fer með dagvistunar-
stofnanir fyrir börn. Kvenfélag
Akraness tilnefni þriðja manninn í
nefnd þessa.“
Félagsmálaráð skipa eftirtaldir:
Rannveig Edda Hálfdánardóttir,
formaður, Bjarnfríður Leósdóttir,
Guðmundur Árnason, Benedikt
Jónmundsson og Karl Helgason.
Undirritaður átti nýlega tal af
formanni ráðsins. í upphafi sagði
Rannveig Edda, að Félagsmálaráð
væri myndað í þeim tilgangi að
bæta félagslega þjónustu, og sníða
hana meira eftir kröfum nútímans.
Enn sem komið er, er starfsemi
ráðsins á byrjunarstigi, og um
þessar mundir er unnið að
samningi reglugerðar fyrir ráðið til
að vinna eftir, og verði i þessu
sambandi stuðst við reglugerðir
annarra bæjarfélaga. Eins og fyrr-
greindur kafli í bæjarmála-
samþykkt ber með sér, eru margir
málaflokkar sem falla undir verk-
svið félagsmálaráðs, og er það í
sumum tilfellum arftaki annarra
nefnda sem hafa fjallað um þessi
mál.
Rannveig Edda sagði, að þeim i
ráðinu fyndist vanta inn í þessa
grein þátt um húsnæðismál, og
taldi æskilegt að raðið fengi að
hafa ítök eða samráð við bæjar-
stjórn um úthlutun á leiguhúsnæði
á vegum bæjarins. Aðspurð sagði
Rannveig Edda, að það væri tölu-
vert af fólki sem byggi við þannig
kjör, að það vantaði húsnæði sem
þetta.
sí sambandi við félagslega
þjónustu, er það skoðun ráðsins, að
ekki sé vitað hve mikil þörf sé fyrir
slíka þjónustu, þótt svo hún sé
mikil.
Heimilishjálp:
Félagsmálaráð telur að það þurfi
að kanna hve mikil þörf sé fyrir
heimilishjálp. Rannveig Edda
sagðist telja, að fólk gerði sér alls
ekki grein fyrir, að það hefði rétt á
slíkri aðstoð. Hingað til hefði það í
flestum tilfellum verið aldrað fólk
sem óskað hefði eftir heimilis-
aðstoð, en þær aðstæður geta
skapast, að fleiri þurfi hennar með
um skamman tíma. Þeir sem telja
sig þurfa á þessari aðstoð að halda,
eiga að hafa samband við bæjar-
ritara eða félagsmálaráð.
Dagvistunarmál:
Dagvistunarihal hafa verið mikið
til umræðu undanfarin ár. í reglu-
gerðinni segir, „að Félagsmálaráð
kjósi úr sínum hópi tvo menn í
nefnd er fer með dagvistunar-
stofnanir fyrir börn. Kvenfélag
Akraness tilnefni þriðja manninn i
nefnd þessa. Fulltrúar Félagsmála-
ráðs eru Rannveig Edda og Júlía
Baldursdóttir, og fulltrúi kven-
félagsins er Erna Hákonardóttir.
Um þennan lið hafði Rannveig
Edda eftirfarandi að segja: „Við
fórum í heimsókn á allar dag-
vistunarstofnanir í bænum nú í
haust, til að kynnast þessum
málum af eigin raun. Þá var komið
á umræðustig, hjá bæjarráði, að
breyta starfsemi gæsluvallarins við
Víðigerði þannig, að hann yrði
gerður að leikskóla.
Félagsmálaráð var sammála um,
að þetta væri mjög æskileg ráð-
stöfun. Nú er búið að samþykkja að
gera þetta og um leið að opna
gæsluvöll við Heiðarbraut. Ég vil
taka það skýrt fram, að þetta var
Máltækið segir: „Glöggt er gests
augað“.
Ef til vill væri hollt fyrir okkur,
hvert og eitt, að hrista af okkur
viðjar hversdagsleikans stöku
sinnum og fara um bæinn okkar og
umhverfi hans og líta „gests-
augum“ það sem fyrir okkur ber,
eða með öðrum orðum, að reyna að
setja okkur í spor gests, sem hér
væri á ferð.
Það sem ég hef í huga, er fyrst og
fremst það, sem við í daglegu tali
nefnum umgengni.
Umgengni er eins og allir vita,
mjög þýðingarmikið atriði og
skiptir iðulega sköpum um svipmót
einstakra heimila í sveit og bæ.
Þetta á ekki síður við um heildar-
svip þéttbýlissvæða eins og t.d.
Akraness.
Það er víðsfjarri mér, að reyna
að gera einhverskonar úttekt á
bænum okkar, hvað þetta snertir,
en mig langar til að minnast lítil-
lega á eitt atriði og e.t.v. fleiri
svona í leiðinni. Við, þú og ég,
skulum krunka okkur saman — við
skulum segja þar sem Kalmans-
brautin og gamli þjóðvegurinn til
Akraness skerast.
Við skulum hafa bifreið til um-
ráða, það er virðulegra heldur en
að ganga og við veljum breiðari
veginn, sem auk þess er lagður í
fagurlegum boga og þakinn
olíumöl. Okkur langar til að sjá
hvernig umhorfs er á Skaganum.
Þetta er að mörgu leyti fyrir-
myndarbær og við höfum heyrt, að
hér hafi t.d. verið gert stórátak í að
steypa götur og yfirhöfuð mikil
uppbygging og framfarir. Við
rifjum líka upp, að við höfum í
leiðinni heyrt talað um fallegt
kvenfólk, dugmikla sjómenn og
gert án nokkurs sérstaks þrýstings
frá ráðinu.
Segja má, að dagvistunarmál á
Akranesi verði nokkuð vel á vegi
stödd, þegar leikskólinn við Skarðs-
braut tekur til starfa, að þessu við-
bættu, ef leikskólinn við Háholt
verður áfram starfræktur. Hvað
varðar dagvistun barna í heima-
húsum, þá hefur hun verið mikil
hér á Akranesi vegna skorts á rými
i leikskólum. Við i Félagsmálaráði
höfum mikinn hug á að hafa
samband við svokallaðar dag-
mömmur, og að þeirra störf verði
háð eftirliti. Einnig þurfum við að
athuga með samræmda gjaldsskrá,
og að bæjarsjóður greaði niður
gjöld fyrir einstæða foreldra.
Fordæmi er fyrir sliku í öðrum
bæjarfélögum."
Þjónusta við aldraða:
„í sambandi við þennan lið,
höfum við ekkert gert ennþá. Við
höfum fullan hug á, að koma upp
tómstundastarfi fyrir aldraða og
teljum æskilegast að það verði gert
i beinum tengslum við Höfða.
Annars verður það að segjast eins
góðar kartöflur, að ógleymdum
knattspyrnumönnunum.
Áður en varir erum við með
steinsteypu undir hjólum. Byggðin
er enn nokkuð gisin, en þéttist
óðum. Við höldum niður i bæ beint
af augum. Það er laugardagur að
sumarlagi. Klukkan er 9.00 f.h. Við
skimum eftir götuheitum. Þetta
mun vera Kirkjubraut. Við höldum
okkar striki, en það er að jöfnu
báðu, að við sjáum fyrir endann á
götunni við torg með myndastyttu
af sjómanni — og að við sjáum
mann að starfi á götunni.
Verkefni mannsins blasir einnig
við okkur. Á götunni og gang-
stéttunum eru hrannir af flösku-
brotum. Okkur verður ósjálfrátt
hugsað til hjólbarðanna undir
bílnum, en við finnum glöggt, að sú
hlið málsins er aðeins lítill flötur á
stóru vandamáli. Við vitum að öll
þessi glerbrot eru til komin síðast
liðna nótt, ella hefði þeim einfald-
lega verið sópað saman í gær. Að
okkur læðist grunur — sem stappar
nærri vissu — um það, að hér muni
verða eitthvað svipað umhorfs
næsta morgun. Við veifum í
kveðjuskyni til mannsins sem er að
hreinsa götuna og hann tekur
kveðju okkar glaðlega. Hann er
eflaust búinn að standa í þessu oft
áður og trúlega hefur verið djúpt á
brosinu í fyrstu skiptin. Við ökum
framhjá torginu og erum nú á
Skólabrautinni. Okkur verður litið
yfir torgið. Styttan sómir sér vel og
umhverfis hana eru gangstígar,
grasflatir og blómabeð.
En torgið hefur auðsjáanlega
fengið sinn hlut ómældan af um-
gengisháttum þeirra sem fóru um
bæinn síðastliðna nótt. Sýnilegt er,
að bíll eða annað vélknúið farar-
og er, að það er afar takmarkað sem
við komum i framkvæmd fyrr en
ráðinn hefur verið starfsmaður.
Við erum búin að auglýsa eftir
félagsráðgjafa. Umsóknarfrestur
rann út 1. nóv. s.l„ en enginn sótti
um. Það er geysilega mikil þörf
fyrir slíkan starfsmann, og jafnvel
hugsanlegt að hann starfi jafn-
framt fyrir æskulýðsnefnd og
sjúkrahúsið.
Mér er ljúft og skylt að geta þess,
að bæjarritari, Haukur Sigurðsson
hefur verið félagsmálaráði mikil
hjálparhella og ötull ráðgjafi, en
hann er, að mínu mati, ofhlaðinn
störfum og timi hans þvi tak-
markaður. Það hlýtur að vera mjög
áhugavert verkefni fyrir félagsráð-
gjafa að byggja upp og móta slíka
starfsemi og vonum við svo sannar-
lega, að einhver bjóði sig fram.“
Til viðbótar þessu sagði
Rannveig Edda: „Þá má geta þess,
að ráðið hefur mikinn hug á að
hafa góða samvinnu við Æskulýðs-
nefnd varðandi málefni unglinga,
og einnig má benda á, að víða
annars staðar fellur áfengisvarna-
nefnd undir Félagsmálaráð. Svo er
þó ekki hér, en samt sem áður
óskar raðið eftir góðri samvinnu
við áfengisvarnarnefnd."
Rannveig Edda kvaðst vilja
leggja áherslu á það, að störf
félagsmálaráðs ættu að mótast af
því hugarfari, að reyna að hjálpa
fóli til sjálfsbjargar.
í þessu viðtali hefur verið stiklað
á stóru um starfsemi hins nýja
Félagsmálaráðs, og má sjá, að
starfssvið þess er geysilega yfir-
gripsmikið, og vart hægt' að búast
við, að starfsemin sé fullmótuð
ennþá, því ráðið var ekki skipað
fyrr en seinni part sumars. Hvað
sem því líður, óskum við „ráðs-
fólkinu“ góðs gengis og vonum að
því takist að vinna farsællega að
þeim málaflokkum sem fyrir þá
eru lagðir. I.
tæki hefur farið yfir blómabeðið
sem næst okkur er. Til frekari
áréttingar hafa verið rifin blóm úr
beðinu og þeim fleygt sitt í hvora
áttina. Flöskubrot eru í hrúgum
upp við steininn sem styttan
stendur á og raunar eru glerbrot
um allt torgið. Ljósar slettur eru á
steinum og samhengisins vegna
giskum við á, að þær séu spýja úr
einhverjum innbyggjum staðarins.
Bréfarusl og slitur úr fatnaði eru á
víð og dreif, svo sem eins og til
uppbótar.
Meðan við ökum niður
Skólabrautina, verður okkur
hugsað til fólksins sem á heima hér
í götunni.
Tæplega hafa aðfarirnar sem við
sáum verksummerkin eftir farið
hljóðlaust fram.
Vaflaust reynir fólk hér á niður-
skaganum að sofa fram undir
hádegið, eftir svefnlitla nótt,
eigandi í vændum aðra svipaða.
Flöskubrotin strjálast og kannski
er þessari martröð að verða lokið.
Gatnamót. Nú já — Vesturgata. Við
förum niður eftir henni og
beygjum til vinstri þar sem stendur
Bárugata, en — þá fer aftur að síga
á ógæfuhliðina. Hótel er þarna í
götunni og umhverfis það eru
flöskubrot, bréfarusl og fleiri
sýnishorn frá viðburðum nætur-
innar. Hvar er hægt að komast
stystu leið út úr bænum?
Hafnarbraut — Suðurgata, jú hún
liggur í rétta átt — Skagabraut —
hringtorg og við okkur blasir gamli
þjóðvegurinn, sem okkur sýndist
svo oyndislegur áðan á leiðinni
niðureftir — og f^gins hugar er
hjólum snúið út á molina.
Hannes A. Hjartarson.
GESTALEIKUR Á LAUGARDAGSMORGNI
6