Umbrot - 21.11.1978, Page 7
Karl Benediktsson:
ER EKKI MÁL AÐ LINNI?
Eða á bráðabirgðasjónarmið með
síauknum fjáraustri að ráða ferðinni?
Undanfarin ár hefur mikið verið
rætt um hvernig megi leysa
aðstöðu smábátaeigenda, sem
hefur verið, og er enn, engin,
hvorki á sjó né landi, og kem ég að
því síðar. Ég minnist þeSs ekki að
hafa heyrt ráðamenn taLA UM
AÐSTÖÐU FYRIR ÞESSA MENN
í Lambhúsasundi, sem var þó eina
höfn Akurnesinga um áratuga
skeið, eins og merki sjást til enn í
dag, vélbáta eftir að þeir komu og
árabáta frá ómunatíð. Þá er
spurningin, er hægt að útbúa
öruggt lægi þar, fyrir þessa báta
sem eru flestir i gangi yfir sumar-
mánuðina?
Ég held og reyndar fleiri að svo
sé, t.d. með varnargarði úr
klettunum fyrir utan steinbryggju,
sem enn stendur uppi að nokkru,
með stefnu t.d. á skipasmíða-
stöðina. Hefði ekki Ferja II einmitt
verið tilvalin í þann varnargarð
með grjótfyllingu? Þarna er grunnt
og þessi garður, ef byggður yrði,
myndi um leið veita eignum fyrir-
tækis þess, sem þarna er staðsett og
veitir tugum manna atvinnu, skjól,
en það hefur hvað eftir annað orðið
fyrir tjóni vegna sjógangs. Þegar
aldan kemur þarna inn er hún búin
að brjóta á vesturflös og sund-
skerjum svo hún er ekki eins sterk
og ef hún skylli þarna óbrotin. Ætti
það að auðvelda áðurnefnda fram-
kvæmd ef af yrði. Hefði ekki þeim
fjármunum, sem farið hafa og eiga
eftir að fara eins og nú horfir verið
betur varið í áðurnefnda
framkvæmd, ef athugað hefði verið
í tíma og þótt líkleg til að leysa
þetta vandræða mál, sem búið er að
vera eins og martröð á ráða-
mönnum fram til þessa, og er
reyndar enn, og um leið leyst
hafnaraðstöðu smábátaeigenda til
frambúðar ?
En athugum gang þessa máls
fram til þessa. Það hafa verið
gerðar teikningar af smábátalægi
innan hafnarinnar, sem ekkert
pláss er þó fyrir vegna þrengsla í
höfninni. Sú fyrsta vesta
ferjubryggju með varnarvegg og
flotbryggju sem lítur nógu vel út á
blaðinu, sem ekki er alltaf einhlítt
þegar betur er að gætt. Þarna eru
klettar og svo nefnt Valgerðarsker,
sem hefði þurft að sprengja. Við
þetta var hætt vegna fjárskorts að
sagt var.
Þá minnast þess einhverjir fram-
sýnir menn að í eigu bæjarins er
nokkuð sem heitir Ferja II, og þar
með hefst hin furðulegasta braða-
birgða- og tilraunastarfsemi með sí
auknum fjáraustri eins og nú skal
aðeins vikið að.
Ferjan var sótt inn í Blautós með
trúlega helmingi meiri kostnaði
eða ríflega það heldur en þurft
hefði, ef maður sá sem um undir-
búning og flutning sá, hefði vitað
hvernig framkvæma ætti verkið.
Hér á ég við þá algildu reglu sem
viðhöfð er við slíkar aðstæður, að
létta skiptið, en í því var mikið vatn
og sjór. Tvær tilraunir voru gerðar,
sú fyrri með aðstoð jarðýtu sem
ekki bar árangur, en sú seinni
sólarrhring síðar og var þá kominn
veghefill til viðbótar, en þá flaut
hún hálfum tíma fyrir flóð, þegar
búið var að dæla vatni og sjó út.
Þarna hafa fokið nokkrir tugir
þúsunda.
Þá var gerð teikning (því allt
þarf að teikna hvað vitlaust sem
það er) sem sýndi hvernig leggja
skyldi Ferju II, vitanlega af
mönnum sem aldrei hafa nálægt
slíku komið, enda ýmsar tillögur og
bollaleggingar hvernig framkvæma
skyldi svo fáránlegar hugmyndir,
að maður hefði frekar haldið sig
hlusta á börn að leik en fullorðna
menn sem væru að ráðskast með
fjarmuni bæjarbúa með slíkum
hætti. Hefði ekki verið meira vit að
fá til menn sem vita hvernig á að
leggja skipi og spara með því fé
meðan á tilraunum stæði?
Nei, það þarf að láta teikna því
ekki skortir peninga til þeirra
hluta, og gera kostnaðaráætlun sem
hljóðaði upp á kr. tvær milljónir,
sem trúlega er orðin helmingi
hærri nú eða vel það, þar innifalið
ófyrirséð hönnun, sem kallað er,
upp á kr. sexhundruðþúsund, eða
sem svarar tveggja ára húsaleigu
Verkfræði- og teiknistofunnar
IBókhlöðunni, eftir því sem fjár-
hagsáætlun bæjarins greinir frá.
Smíðuð var landgöngubrú með
tilheyrandi, sennilega upp á
hundruð þúsunda og ekki til
sparað, engu líkara en hún ætti að
standa þlarna alla tíð, enda viða-
mikil og ekki hreyfð nema með
aðstoð krana.
Þá var á áætluninni anker,
keðjur og vírar upp á hundruð
þúsunda, en það þurfti ekki að
reikna, því bærinn átti þetta til
enda fært út með núlli, og þar af
leiðandi lítils virði í augum þeirra
manna sem áætlunina gerðu. Síðan
eftir mælingar og vinnu nokkurra
manna við allskonar útreikninga, á
keðjum, var hætt við allt saman, en
ankerum og keðjum valinn
geymslustaður sem hæfa þótti slíku
góssi á vegkantinum upp á Akurs-
braut, þar sem tíminn mun sjá fyrir
varðveislu muna ef kyrrir Iiggja.
Síðan var fleytan bundin við ferju-
bryggju og þar með teppt dýrmætt
pláss sem vantað hefur fyrir skip
sem koma hér til viðgerða.
Næst komu menn til að brenna
lestarkarma og yfirbyggingu af
með nokkurra daga vinnu, og allt
hefur þetta tilgangslausa brölt
kostað mikla peninga, en það sem
verra er, að litlu eða engu gagni
komið.
Og enn er lagt af stað með skipið,
að þessu sinni í sandinn fyrir
neðan Esso stöðina með svipaðri
fyrirhyggju og þegar sótt var inn í
Blautós, nema nú kom til sögunnar
froskmaður mesð kringum kr.
fimmtíuþúsund og bíll í stað jarð-
ýtu innfrá, sennilega með svipaða
upphæð, til að taka i og halda við og
notaður sem nokkurskonar anker í
nokkra tíma, en það skal tekið fram
að það var ekki bæjarbíllinn, hann
stóð inn á kampi ásamt öðrum
tækjum sem hefðu getað leyst þetta
verk af hendi, enda ekki i fyrsta
skipti sem slíkt skeður hvað sem
veldur.
Ef margar áætlanir eru útfærðar
með þessum hætti eins og að
framan greinir, þá er hægt að sína
hagstæða útkomu, þó hún sé röng.
Mér kemur í hug rekstrarkostn-
aður bíls hafnarverkstjóra, sem var
látinn falla inn í hafnarfram-
kvæmdir og enginn fékk að vita
hver var, en eru vafalitið verulegar
upphæðir sem væru betur komnar í
eitthvað þarfara, heldur en þennan
endalausa kappakstur við vörubíla
sem aka á milli grjótnámu og
hafnargarðs, á nokkurra mínútna
fresti. Gæti verkstjóri ekki látið sér
nægja að fá far með þeim bílum
sem þarna vinna og taka sér til
fyrirmyndar verkstjóra Sements-
verksmiðjunnar í þeím efnum og
spara nokkur hundruð þúsund,
jafnvvel þó ráöamenn sæju honum
sjaldnar bregða fyrir og gjaldkeri
fengi færri bensin- og viðgerðar-
reikninga til að greiða.
Ef ráðamenn bæjarins hefðu
borið gæfu til að athuga þann
möguleika sem hér að framan
greinir við Lambhúsasund sem ég
fyrir mitt leyti er sannfærður um
að er lausn á þessu máli, væru
viðleguskilyrði fyrir smábáta leyst
ekki aðeins til bráðabirgða.
En ástandið er slæmt á fleiri
sviðum. Það er engin aðstaða fyrir
smábátaeigendur til að beita línu
sína nema þeirra sem komið hafa
sér upp skúrum, sem ráðamenn
bæjarins eru reyndar búnir að
tilkynna að fara með í burtu. Hinir
hafa lifað á bónbjörgum en eru nú
á götunni. Ishús eru líka lokuð
fyrir þessum mönnum.
Eins og þessi má líta út má segja
að það sé að færast í það horf sem
hér var um og eftir síðustu alda-
mót, þegar róið var árabátum þar á
meðal úr Lambhúsasundi, og menn
beittu línu sína heima í kjöllurum
eða úthjöllum, nema nú eru menn
verr settir, því þá var beitt skel-
fiski sem sóttur var inn i Hvalfjörð
og geymdur niður á hleinum þar
sem sjór féll á og tekin uplp um
fjöru þegar beita átti og leit út
fyrir sjóveður.
Það sem hér hefur verið drepið á
segir i raun og veru með sama
hugsunarhætti úrræða og fram-
taksleysi ráðamanna: þið skuluð
hætta þessu basli og setja upp.
Uppsatur fyrir smábáta hefur
ekki verið til fyrirmyndar frá
bæjarins hendi. Menn hafa orðið að
fara með báta heim að húsum
sínum og jafnvel í önnur byggðalög
til geymslu, með ærnum
tilkostnaði. Það væri nóg pláss á
uppfyllingunni fyrir neðan Akurs-
braut á meðan ekki koma þar bygg-
ingar, og tekið væri til fyrir þessa
báta sem eru flestir ekki í gangi
nema yfir sumarið. Reyndar fóru
menn fram á að setja báta sína
þarna í fyrra, en þeim var sagt að
það ætti að geyma þarna grjót, sem
reyndar kom ekki fyrr en allir
bátar voru komnir á flot. Hvað
þarna hefur legið að baki annað en
að sína vald sitt og stirðbusahátt
skal ég ekki dæma um.
Þessi mynd er tekin um borð 1
m.s. Vesturlandi sem lá hér í
höfninni frá 8.—11. júlí sl. Hún
sýnir steypustykki úr kanti hafnar-
garðs, sem eins og sjá má, lendir á
milli skips og bryggju, og gat valdið
skemmdum á skipinu.
Af ótta við það bað hafnarvörður
En hvernig lítur þetta svæði út
oig næsta nágrenni? Það sýnir hvað
þeir menn sem um þetta ganga, og
ráðamenn bæjarins, eru
gjörsneyddir allri hirðusemi og
fegurðarsmekk, eða þetta á
kannski að vera til augnayndis
fyrir það fólk sem þarna á leið hjá?
Bílskrjóður hefur legið uppi á
bakkanum sumarlangt, að sjálf-
sögðu til að punta upp á umhverfið,
enda fyrrverandi formaður ferða-
málkaráðs sem þessu stjórnar, og
veit hvað hentar, því glöggt er gests
augað, eins og sagt er.
Þegar Akursbraut var steypt, var
bakkinn jafnaður með mold og sáð
í með ærnum kostnaði, með það
-fyrir augum að fegra umhverfið.
En svo koma til sögunnar að því er
ætla má, útreikningar sem hafa
sýnt að það var hægtkvæmt að
sturta þarna grjóti og mulningi
blandað mold, með aðstoð stór-
virkra vinnuvéla, með þeim
afleiðingum að grjótið muldist í
sundur. Afleiðingarnar geta menn
séð með því að líta niður fyrir
bakkann. Þessi vinnubrögð eru á
máli faðamanna kölluð hagræðing,
til sparnaðar. Ég held nu samt að
það sé öfugmæli, enda þar með
eyðilagt alltþað sem búið var að
vinna.
Þessi vinnubrögð hafa sjálfsagt
verið útfærð með dæmum um
sparnað, sem réttlæti þessa eyði-
leggingarstarfsemi og faðamenn
trúlega kyngt bitanum sem ekki er
sá fyrsti. En ef þetta verður ein-
hverntima hreinsað, sem ég hefi
litla trú á, ef haldið verður sömu
stefnu í þeim málum sem hingað
til, þá mætti spyrja: Verða skatt-
greiðendur bæjarins látnir borga
lagfæringuna, eða verður Vita- og
hafnarmál þátttakandi í kostnaði
sem af þessu hlíst?
En ef við lítum niður á hafnar-
garð og skoðum í leiðinni njóla-
gryfjuna undir hlið mjölskemmu
S.F.A. þá kemur manni í hug hvort
það væri ekki laglegra að fylla
gryfjuna og búa til bílastæði sem
þarna vantar, jafnvel þó blómin
hyrfu.
Þá hefur með tilkomu Ferju II
þar sem hún er nú, skapast betri
aðstaða fyrir fólk að skoða dýrðina
sem blasir við. Hér á ég við ker-
botninn fræga fullan af fúlu grænu
vatni nokkurra ára gömlu, sem er
sennilega ekki á hverju strái, og
því forvitnilegt á að líta.
Til þess að þeir sem um hafnar-
garðinn fara, bæði innlendir og er-
lendir, eog eiga erindi upp í bæinn
eða í hreysi hafnarstarfsmanna
sem sumir kalla (gasklefanna) og
©
hafnarverkstjóra um að þetta yrði
fjarlægt svo tjón hlytist ekki af, sem
hefði getað orðið höfninni dýrt. Því
var ekki ansað, enda þá brugðið út
af vananum. Þetta sýnir hvað
draslaraháttur er mikill gagnvart
viðhaldi hafnarinnar. — K.B.
7