Fréttablaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 18
FÓTBOLTI Megininntak þess sem
fram hefur komið í samtölum fjöl-
miðla við leikmenn og þjálfara
íslenska liðsins í vikunni er að þessi
leikur sé lykilleikur fyrir framhald-
ið og þrjú stig séu lífsnauðsynleg í
baráttu liðsins um beint sæti í loka-
keppni mótsins.
Staðan hvað meiðsli burðarása
liðsins hefur aldrei verði betri í
stjóratíð Eriks Hamrén en Alfreð
Finnbogason er eini leikmaðurinn
sem liggur fyrir að verði ekki með
í leiknum.
Þá var Hamrén vongóður um að
Jóhann Berg Guðmundsson sem
hefur verið í endurhæfingu vegna
meiðsla á kálfa í vikunni og Kári
Árnason, Kolbeinn Sigþórsson og
Jón Daði Böðvarsson sem komu
til móts við hópinn nýstignir upp
úr meiðslum eða með eymsli í far-
teskinu verði leikfærir í dag.
Albanía er lið sem ljóst er að leik-
menn og þjálfarar taka alvarlega
og eru meðvitaðir um styrkleika
liðsins. Liðið tók þátt í síðustu loka-
keppni EM og stóð sig vel í leikjum
sínum gegn Frakklandi og Sviss
og hafði betur gegn Rúmeníu. Það
dugði þeim hins vegar ekki til þess
að komast upp úr riðlinum.
Síðan þá hefur liðið verið á svip-
aðri vegferð og íslenska liðið. Mætt
sterkum þjóðum þar sem þeir veita
harða mótspyrnu en úrslitin eru
ekki þeim í vil. Þetta er fimmta
sinn sem liðin mætast í mótsleik
en liðin mættust í undankeppni
EM 1992 þar sem Albanir fóru með
sigur af hólmi á heimavelli en Atli
Eðvaldsson og Arnór Guðjohnsen
tryggðu íslenskan sigur á Laugar-
dalsvellinum.
Þá mættust liðin í undankeppni
HM 2014 þar sem Ísland hafði betur
í báðum leikjunum 2-1, en Birkir
Bjarnason skoraði bæði í heimasigr-
inum og útisigrinum en Kolbeinn
Sigþórsson var á skotskónum á
heimavelli og sigurmark Gylfa Þórs
Sigurðssonar í Tirana var stórglæsi-
legt mark beint úr aukaspyrnu.
„Eins og staðan er núna eru allir
leikmenn sem valdir voru í leik-
mannahópinn leikfærir en það
getur ýmislegt breyst eftir að við
æfum. Við vonumst til þess að
Jóhann Berg geti spilað og það lítur
vel út með það. Aðrir leikmenn sem
hafa verið að glíma við meiðsli eða
eymsli hafa verið að stíga skref í
rétta átt í vikunni og ég er von-
góður um að þeir geti spilað,“ sagði
Hamrén á blaðamannafundi í gær.
„Við viljum gera Laugardalsvöll-
inn að því sterka vígi sem hann var á
nýjan leik og stefnum að því að sigra
í þessum leik. Mér finnst umræðan
frá Albönunum um að við séum lið
sem er á niðurleið ekki eiga rétt á sér
þar sem kjarninn í liðinu eru leik-
menn á besta aldri sem eru á þeim
stað á ferlinum að þeir eru að toppa.
Mér hefur fundist ákefðin á æfing-
unum hafa verið góð og mér sýnist
leikmenn almennt vera ferskir og
hungraðir fyrir næstu leikjum liðs-
ins,“ sagði Aron Einar Gunnarson,
fyrirliði íslenska liðsins, á blaða-
mannafundinum. Hann kvaðst
sjálfur vera í mjög góðu standi og
mjög spenntur fyrir komandi verk-
efnum. hjorvaro@frettabladid.is
Þrjú stig eru nauðsynleg í þessum leik
Ísland mætir Albaníu í þriðju umferð í undankeppni EM 2020 í knattspyrnu karla á Laugardalsvelli í hádeginu í dag. Líklegt er að
liðin muni berjast við Tyrkland um annað sætið í riðlinum. Ísland og Albanía eru jöfn að stigum með þrjú stig eftir tvær umferðir.
Það er mikil pressa á leikmönnum og þjálfurum íslenska liðsins sem mætir Albaníu í hádeginu. Liðið þarf á sigri að halda í baráttunni um að komast í lokakeppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Viðar Örn Kjartansson
Hammarby
n Er í láni hjá sænska
liðinu Hammarby en
hann er enn samnings-
bundinn rússneska
liðinu Rostov og á
þrjú ár eftir af þeim
samningi. Spurninga-
merki með kappann.
Rúnar Már Sigurjónsson
Grasshoppers
n Er að leita sér að nýju
liði og er opinn fyrir
öllum ævintýrum nær
og fjær. Staðfesti það
í samtali við Frétta-
blaðið að hann væri
með tilboð frá liðum
frá nokkrum löndum.
Birkir Bjarnason
Aston Villa
n Hlýtur að skipta um
félag. Hefur lítið sem
ekkert spilað síðan
í janúar. Aston Villa
komst upp í ensku úr-
valsdeildina og líklegt
að Birkir muni ekki
fylgja félaginu þangað.
Aron Einar Gunnarsson
Al Arabi
n Spilaði 28 leiki með
Cardiff sem mistókst
að halda sæti sínu í
ensku úrvalsdeildinni.
Fer til Heimis Hall-
grímssonar og félaga
í Al Arabi í Katar eftir
landsleikina.
Jón Daði Böðvarsson
Reading
n Var níu sinnum í
byrjunarliði Reading
síðasta vetur og lék
ekkert frá því í febrúar
vegna meiðsla. Á eitt
ár eftir af samningi
sínum við félagið og
gæti verið áfram.
Ragnar Sigurðsson
AS Roma
n Rómverski fjölmið-
illinn Tele Radio
Stereo orðaði Ragnar
við félagið. Miðillinn
staðfesti að Ragnar og
umboðsmaður hans,
Martin Dahlin, hefðu
verið í Róm.
Við viljum gera
Laugardalsvöllinn
að því sterka vígi sem hann
var á nýjan leik.
Aron Einar Gunnarsson
✿ Landsliðsmenn á krossgötum
Þó nokkrir
landsliðsmenn
Íslands eru
annaðhvort
búnir að skipta
um lið eða eru
á leiðinni burt
frá sínum fé-
lagsliðum.
Óvissustigi
ætti að vera
létt af framtíð
þeirra leik-
manna sem eru
að hugsa sér
til hreyfings
skömmu eftir
landsleikina
sem fram
undan eru.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-E
0
2
C
2
3
2
F
-D
E
F
0
2
3
2
F
-D
D
B
4
2
3
2
F
-D
C
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K