Fréttablaðið - 08.06.2019, Blaðsíða 22
einnig hafa verið svo heppinn að
hafa veðurfræðina til þess að grúska
í síðasta aldarfjórðunginn eftir að
hann hætti að vinna.
Ást og vinátta
Eiginkona Páls, Hulda Baldursdótt
ir, lést fyrir fimm árum á Hrafnistu
þá níutíu ára gömul. Þau voru afar
náin og Páll barðist fyrir því að fá að
dvelja með henni á Hrafnistu. Hann
fékk það í gegn síðustu daga Huldu.
„Það er nú eiginlega kraftaverk að
hún hafi náð svona háum aldri því
þegar hún var rétt orðin fermd fékk
hún berkla. Hún var veik af þeim
í tvö ár en veiktist ekki í lungum.
Veikindin höfðu áhrif á liðina og
f leira og hún átti erfitt út af þessu.
Við vorum góðir vinir og hún var
dásamleg manneskja.“
Páll og Hulda eignuðust þrjú börn,
elstur er Baldur fæddur 1951, Kristín
fæddist ári síðar og Bergþór er fædd
ur 1957. Páll á níu barnabörn. „Þetta
er mikil gæfa og ég hef svo gaman af
barnabörnunum og barnabarna
börnunum. Ég hef það líka ofsalega
gott því dótturdóttir mín og dóttir
hennar búa hér hjá mér.“
Veðurspá um vor í framtíð
Nýlega ávarpaði Páll nýstúdenta í
MR fyrir hönd þeirra stúdenta sem
útskrifuðust úr skólanum árið 1944,
fyrir 75 árum. Hann notaði tækifær
ið og minnti unga áheyrendur sína á
að það væri dásamleg heppni að fá
að lifa. Þó ekki væri nema einu sinni
í allri eilífðinni. Hann ræddi einnig
um loftslagsvandann og mikilvægi
þess að bera virðingu fyrir manns
lífum og setti að lokum fram 75 ára
veðurspá um vorið í framtíð þeirra.
Þetta er spá fyrir fjöll, fugl og fólk.
Hún ætti ekki að bregðast.
Hljóðir fuglar eggjum á
eiga von á góðu.
Akrafjall og Esjan blá
una í sumarmóðu.
„Það er nefnilega svo mikilvægt
að meta lífið, bera virðingu fyrir
því og skilja það,“ segir Páll sem er á
móti því sem stuðlar að vanvirðingu
fyrir lífinu og stuðlar að of beldi. Til
dæmis of beldisíþróttum.
„Það skiptir máli fyrir ungt fólk að
vita yfir hverju það býr og reyna að
ná eins langt og það getur í einhverju
ÞAÐ ER ALVEG HRÆÐILEGT
HLUTSKIPTI AÐ LIGGJA
AÐGERÐARLAUS OG MÉR
HEYRIST AÐ ÞAÐ SÉ ALLT
OF MIKIÐ AF GÖMLU FÓLKI
SEM GERIR ÞAÐ. ÞAÐ ER
EKKI EINGÖNGU ÞVÍ AÐ
KENNA.
Reykjavík N 4 stinningsgola, 4°n/9°d.“ Þetta er veðurspá Páls Bergþórssonar, fyrrverandi veðurstofustjóra, á björtum degi í borg
inni í byrjun vikunnar. Snemma á
hverjum degi sest hann niður við
borðstofuborðið á heimili sínu í
austurborginni og gerir veðurspá
sem hann birtir svo á Facebook. En
ekki fyrr en hann hefur gert leik
fimisæfingarnar sem hann gerir um
leið og hann vaknar. Hann verður
96 ára í sumar og er merkilega kátur
og orkumikill.
„Ég vakna alltaf á mínútunni
klukkan sjö og þá geri ég æfingar á
höndum og fótum í um það bil tíu
mínútur, ég hlífi mér ekki og þarf
oftast að hvíla mig svolítið á eftir.
Svo fer ég að gá að veðrinu,“ segir
Páll.
Hann segir nú varla tilefni til þess
að halda upp á 96 ára afmæli sitt
13. ágúst. „Þetta er nú ekki merki
legt, ég bíð þangað til ég verð hund
rað ára. Þetta er í genunum, amma
varð 102 ára gömul. Þegar hún var
hundrað ára voru systur mínar að
segja henni að hún ætti nú að hlífa
sér og leggja sig um miðjan daginn,
þá sagði hún: Nei, ég ætla ekki að
venja mig á það!“
Fallhlífarstökk og fjallgöngur
Páll fagnaði afmæli sínu síðasta
sumar með sérstökum hætti og
prófaði fallhlífarstökk. „Ég fór
reyndar ekki á afmælisdaginn því
veðrið var ekki gott. Ég stökk úr
10.000 feta hæð og var á 200 kíló
metra hraða. Sonur minn Bergþór
og maðurinn hans Albert voru
búnir að fara og ég fékk áhuga á
því að prófa þetta. Það er svolítið
skrýtið að ég var aldrei hræddur og
fannst mér gjörsamlega óhætt en
vanalega er ég svolítið lofthrædd
ur,“ segir Páll og segist hafa upp
lifað mikla frelsistilfinningu þegar
hann sveif niður áður en fallhlífin
opnaðist.
Páll sést reglulega í gönguferðum
í Bústaðahverfi og þá sinnir hann
garðinum við heimili sitt. Það er
ekki langt síðan hann gekk á Esj
una. Ekki alla leið upp á topp en
naut þess að ganga í hlíðum fjalls
ins. Hann eldar sjálfur á hverjum
degi og borðar fisk og grænmeti á
hverjum degi. „Það er kannski ekki
merkilegt, ég geng alltaf upp hita
veitustokkinn á hverjum degi og
ég finn að það gerir mér gott. Mér
fannst gaman að ganga á Esjuna
þótt ég komist ekki jafn langt og
margir fara. Það sem skiptir máli
er að fara og vera virkur, þannig
verður lífið svo miklu betra. Ég fæ
mér 100 grömm af fiski á dag og
grænmeti. Ég vigta matinn og elda
sjálfur á hverjum degi. Svo fæ ég
mér kannski kakóbolla og brauð
sneið með ávaxtaáleggi,“ segir Páll
um lífsstíl sinn.
Að taka þátt í lífinu
Hver er þín lífsspeki?
„Það er að vera virkur, taka þátt
í þessu lífi. Það er alveg hræðilegt
hlutskipti að liggja aðgerðarlaus og
mér heyrist að það sé alltof mikið
af gömlu fólki sem gerir það. Það
er ekki eingöngu því að kenna,
það hafa orðið miklar breytingar á
lífsháttum,“ segir Páll og minnir á
gamla tíma þegar kynslóðir bjuggu
saman undir einu þaki. „Það var allt
annað líf, ekki eins einmanalegt og
betur fylgst með fólki. Eldra fólk,
frá sjötugsaldri og upp í níutíu ára
er alveg hæft til þess að taka þátt
í þessu samfélagi og umgangast
fólk. Þetta er þýðingarmikið og
hefur góð áhrif,“ segir Páll og segist
Lífið er
spennandi
ráðgáta
Segir Páll Bergþórsson. Hann verður 96 ára
í sumar, nýtur þess að eldast og hefur tekið
upp á ýmsu sem aðrir yngri og hraustari
myndu veigra sér við til dæmis að fara í
fallhlífarstökk. Páll ræðir um lífið, hvernig
það er að eldast og undur alheimsins.
„Eldra fólk frá sjötugsaldri og upp í níutíu ára er alveg hæft til að taka þátt í þessu samfélagi.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-0
7
A
C
2
3
3
0
-0
6
7
0
2
3
3
0
-0
5
3
4
2
3
3
0
-0
3
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K