Fréttablaðið - 08.06.2019, Síða 28
og misst þá af 71 leik fyrir félags- og
landslið.
Nauðgun eða fjárkúgun?
Enn á ný er Neymar kominn á síður
blaðanna fyrir eitthvað allt annað
en gæði sín í fótbolta. Brasilísk
kona, Najila Trindade Mendes de
Souza, hefur stigið fram og sagt að
hann hafi nauðgað sér. Neymar
brást við með því að segja að konan
væri að reyna að kúga af honum fé.
Hann hefur birt skilaboð þeirra á
milli sem eiga að sýna að allt sem
gerðist var með samþykki.
Konan hefur hins vegar
sagt að ef Neymar verði
með einhverja stæla eigi
hún árásina á mynd-
bandi og muni setja það
í dreifingu. Viðtal við
konuna mun birtast í
heild sinni á mánudag
og brot af myndband-
inu er þegar komið í
dreifingu.
Ney ma r set t i sjö
mínútna langt mynd-
band á Instagram þar
sem hann fór yfir sína
hlið á málinu og sýndi
konuna berbrjósta en
huldi andlit hennar
og nafn. Það gæti þó
ver ið sak næmt þv í
samkvæmt brasilískum
lögum er bannað að sýna
einhvern nakinn án sam-
þykkis. Eru viðurlögin
eitt til fimm ára fangelsi.
Lögfræðistofa konunnar
hefur sagt að kynlífið hafi
verið með samþykki beggja
en ekki of beldið. Fjöl-
miðlar í Brasilíu sögðu
svo frá því að að
lögfræðistof-
an, Fernandes e Abreu, sem hefði
séð um hennar mál, hefði svo sagt
upp viðskiptum við hana eftir að í
ljós kom að það voru gallar í fram-
burði hennar og að hegðun hennar
hefði verið á skjön við siðferðileg
gildi stofunnar.
Faðir Neymar sagði að mynd-
bandið hefði verið nauðsynlegt
til að sonurinn gæti varið sig. „Við
áttum engra kosta völ. Insta gram
tók myndbandið af veggnum vegna
ritskoðunar. Hann huldi nafn henn-
ar en það er betra að vera dæmdur
fyrir internetglæp en nauðgun. Við
þurftum að segja sannleikann og
sýna hvað gerðist því þetta er fjár-
kúgun og við áttum hreinlega ekki
von á því að konan myndi fara til
lögreglunnar.“
Í Instagram-myndbandinu sagði
Neymar að hann tæki fréttunum
ekki af léttúð. „Hver sá sem þekkir
mig veit að ég myndi aldrei gera
slíkt. Það sem gerðist þennan dag
var á milli manns og konu og innan
fjögurra veggja. En ég var plataður
í gildru sem ég féll í. Við skiptumst
á skilaboðum áfram og hún bað mig
um að koma með gjafir handa syni
sínum þegar við ætluðum að hittast
í annað skipti.“
Skilaboðin sem hann sýndi í
myndbandinu af samskiptum
þeirra sýna að Neymar biður hana
að koma til Parísar. Hún samþykkir
það og keypti hann flugmiða handa
henni. Bæði skrifa þau nokkuð aug-
ljóst að kynlíf muni eiga sér stað.
„Ég er á við fjórar konur og allar
fjórar vilja veita þér unað... engar
áhyggjur,“ skrifar konan. Daginn
eftir að nauðgunin á að hafa átt sér
stað spyr konan hvort það sé ein-
hver tími til að hittast einu sinni
enn. Samskiptin virtust eðlileg –
eins eðlileg og hægt er að kalla þau.
Brasilíska lögreglan hefur lofað
að taka ásökunum ekki af léttúð og
rannsaka þær í þaula en Neymar er
stærsta íþróttastjarna lands-
ins og dýrkaður og dáður
af landsmönnum – þó að
margir séu komnir með
nóg af lífsstíl hans,
meiðslum og vand-
ræðum utan vallar.
Benedikt Bóas
Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is
Neymar
Neymar da Silva
Santos Júnior
Fæddur: 5. febrúar 1992
Lið: Paris Saint-Germain
Leikir: 37
Mörk: 34
Kaupverð:
220 milljónir evra
LEIKVANGURINN
Ney mar da Silva S a n t o s J ú n i o r hefur átt erfitt ár. Nýjustu vandræð-in eru ákæra fyrir nauðgun á hóteli í
París sem hann þvertekur fyrir að
hafa framið. Frá því að hann kom
til baka eftir meiðsli og skoraði
gegn Króötum í vináttuleik fyrir
Heimsmeistaramótið þann 3. júní í
fyrra hefur lífið ekki beint leikið við
þennan dýrasta knattspyrnumann
heims, hvorki innan vallar né utan.
Heimsmeistaramótið í Rússlandi
fór ekki alveg eins og hann vildi.
Brasilíumenn duttu út í átta liða
úrslitum eftir tap gegn Belgum og
Neymar var skammaður af f lestum
fyrir leikaraskap og almenna stæla
á mótinu. Mikið grín var gert að
sársaukaþröskuldi kappans og á
internetinu var gert grín að kapp-
anum með því að búa til alls konar
„meme“ af honum rúllandi eftir
grasinu. Eftir tapið gegn Belgum
bauluðu áhorfendur á Neymar. Í
samtali við AFP-fréttaveituna í júlí
sagðist hann varla hafa viljað horfa
á fótbolta, hvað þá sparka í einn –
slík voru vonbrigðin í Rússlandi.
Þegar kom að því að velja besta
k nattspy r numann heims var
Neymar aðeins í 12. sæti. Verð-
launahátíðin var haldin í París þar
sem Luka Modric var kosinn sá
besti. Þetta er í fyrsta sinn í fimm
ár sem Neymar kemst ekki á topp
10 listann. Svo meiddist hann og gat
ekki spilað gegn Manchester United
í 16 liða úrslitum Meistaradeildar-
innar. Hann skellti sér þó til Ríó og
tók þátt í hátíðarhöldum þar í bæ.
Myndir af honum og myndbönd
sýndu hann vel við skál og hann var
lítið að hlífa fætinum sem hann var
meiddur á. Alls missti hann af 27 af
58 leikjum PSG.
PSG tapaði eins og frægt er orðið
fyrir Manchester-liðinu með sigur-
marki úr umdeildri vítaspyrnu.
Neymar fór á Instagram og sagði
við dómarana: Go fuck yourselves
– sem verður ekki endilega þýtt hér.
Fyrir það fékk hann þriggja leikja
bann í Meistaradeildinni.
Spænska blaðið El Mundo sagði
svo frá því skömmu síðar að
spænsk skattayfirvöld
hefðu haf ið rann-
sók n á skatta-
málum kappans
eftir að hann
fékk bónus
frá Barce-
lona þegar hann framlengdi samn-
ing sinn. Voru eignir hans upp á átta
milljarða frystar af dómstólum í Sao
Paulo. Á hann að hafa sleppt því að
greiða um þrjá milljarða í skatt á
árunum 2011 til 2013.
Í apríl sló hann áhorfanda eftir
óvænt tap í bikarúrslitaleiknum í
Frakklandi. Hann skoraði í leiknum
en PSG tapaði í vítaspyrnukeppni.
Brasilískir fjölmiðlar fóru ham-
förum yfir frammistöðu Neymar
í leiknum og þjálfari hans, Þjóð-
verjinn Thomas Tuchel, sagðist ekki
líða svona hegðun. Hann fékk fimm
leikja bann fyrir höggið.
Til að undirbúa sig fyrir Copa
America fór Neymar snemma til
Brasilíu og sagðist hafa fengið leyfi
frá PSG til að sleppa síðasta leiknum
í deildinni sem liðið var löngu búið
að vinna. Það kom forráðamönnum
PSG á óvart og sagðist Tuchel ekki
hafa veitt slíkt leyfi.
Fjórum dögum síðar var til-
kynnt að Tite, landsliðsþjálfari
Brasilíu, hefði tekið af honum
fyrirliðabandið. Liðsfélagi
hans Dani Alves tók við
bandinu. „Ég mun ræða
við hann sem lands-
liðsþjálfari en líka sem
manneskja. Þetta snýst
u m ma n na siði og
viss gildi,“ sagði Tite
á blaðamannafundi
þegar þetta var til-
kynnt í lok maí. Í byrj-
un þess mánaðar sagði
Tuchel að Neymar hefði
ekki það sem þarf til
þess að verða fyrir-
liði PSG.
Í vikunni meidd-
ist hann svo enn á
ný og missir af Copa
America. Alls hefur
Neymar meiðst 18
sinnum eftir HM 2014
Nauðgun,
skattsvik
og meiðsli
Síðastliðið ár hefur ekki verið dans á rós-
um hjá brasilíska leikmanninum Neymar.
Heimurinn fékk nóg af leikaraskap hans á
HM, hann hefur tvisvar farið í leikbann –
fyrir að móðga dómara og slá áhorfanda,
misst fyrirliðabandið í landsliðinu og
hefur verið kærður fyrir nauðgun.
Neymar hefur verið orð-
aður við Real Madrid og
endurkomu til Barcelona
en PSG hefur gefið út
að það vilji ekki og
muni ekki selja
Brassann.
Daniel Alves, Neymar og Thiago
Silva mæta á landsliðsæfingu í vik-
unni, eðlilega á einkaþyrlu Neymar.
Neymar ásamt fjölskyldu. Faðir hans, Neymar eldri, stendur við hlið
kappans en sá hefur blandað sér í málið og segir það vera fjárkúgun.
Sársaukaþröskuldur Neymar þykir ekki hár og hefur mikið grín
verið gert að kappanum fyrir látalæti þegar sparkað er í hann.
Neymar fékk langt bann fyrir að
hafa móðgað dómara eftir leik
sinna manna í PSG og Man. Utd.
8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-0
2
B
C
2
3
3
0
-0
1
8
0
2
3
3
0
-0
0
4
4
2
3
2
F
-F
F
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K