Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 30
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764
| Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen,
solrunfreyja@frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ingibjörg Elsa hélt fyrirlestur hjá ÖBÍ um hvernig hún eignaðist fjölskyldu.
Ingibjörg segir
að það geti
verið gaman að
vera einhverf.
FRÉTTABLAÐIÐ/
STEFÁN
Ingibjörg Elsa hefur aldrei látið einhverfuna takmarka sig.
Ingibjörg Elsa Björnsdóttir fékk einhverfugreiningu 44 ára gömul. Þá fékk hún það staðfest
að hún hefði alla tíð verið með
ódæmigerða einhverfu. Ingibjörg
bjóst við því að eftir greininguna
myndi margt breytast og að ýmis
stuðningsúrræði stæðu henni til
boða. En svo fannst henni lítið
gerast. Hún áttaði sig á því að hún
yrði að gera eitthvað í málunum
sjálf. Henni fannst vanta vettvang
þar sem einhverfir gætu hist og
talað saman. Það varð úr að hún
hafði samband við Rauða kross
inn og setti á fót einhverfukaffi.
„Það eru mjög góðir fundir í
Reykjavík. Bæði kvennahópur og
líka hópur sem heitir Út úr skel
inni þar sem einhverfir hittast á
Háaleitisbrautinni hjá Einhverfu
samtökunum. En það var ekkert
að gerast hér á Selfossi þar sem ég
bý. Þá datt mér í hug að búa til ein
hverfukaffi,“ segir Ingibjörg.
Þar sem Ingibjörg hefur unnið
lengi sem sjálf boðaliði hjá Rauða
krossinum, bæði sem símavinur
og heimsóknarvinur, lá beinast
við að leita til Rauða krossins
og athuga hvort hann vildi taka
þetta upp sem eitt af sínum verk
efnum.
„Ég lagði það fyrir stjórn Árnes
sýsludeildar Rauða kross Íslands
hvort þau væru til í að styðja
þetta og þau samþykktu það. Nú
er einhverfukaffið orðið eitt af
verkefnum deildarinnar,“ segir
Ingibjörg.
Einhverfukaffi var fyrst haldið
í fyrra og er haldið einu sinni í
mánuði að jafnaði að vetri til.
Ingibjörg segir að þau fái afnot af
sal Rauða krossins á Selfossi sér
að kostnaðarlausu, auk þess sem
Rauði krossinn býður upp á kaffi
og með því og jafnvel pitsur eða
eitthvað slíkt. Hún vinnur við
verkefnið sem sjálf boðaliði hjá
Rauða krossinum.
Allir sem elska einhverfa
velkomnir
„Rauði krossinn er með það á
sinni dagskrá að rjúfa félagslega
einangrun, það er eitt af stóru
markmiðum Rauða krossins í
heiminum. Þess vegna eru til
heimsóknarvinir og símavinir og
allt þetta sem á að rjúfa félagslega
einangrun hjá til dæmis öldruðum
og fólki sem á erfitt. Einhverfu
kaffið samræmist markmiðum
Rauða krossins um að rjúfa félags
lega einangrun,“ segir Ingibjörg.
Mætingin í einhverfukaffi hefur
verið góð. Að jafnaði hafa 1215
manns mætt, sem Ingibjörg segir
gott miðað við stærð sveitar
félagsins. Ungt fólk hefur verið að
mæta sem fer jafnvel ekki mikið
út úr húsi og sem hefur jafnvel
einangrað sig við tölvuna.
„Þau koma í einhverfukaffi og
þeim finnst gott að hitta annað
ungt fólk með einhverfu, okkur
finnst svo gott að hitta einhvern
sem er eins og við. Það finnst það
öllum, öllum finnst gott að hitta
einhverja sem eru á sömu bylgju
lengd. Það er misskilningur að
einhverfir vilji alltaf vera einir.
Einhverfir vilja í raun og veru
félagsskap. Þeir eiga bara oft erfitt
með að finna rétta félagsskapinn,“
segir Ingibjörg. Hún tekur fram
að fólk á öllum aldri mæti, yngra
fólkið þurfi því ekki að óttast að
hitta engan á sínum aldri.
Ingibjörg leggur áherslu á að
allir sem telja sig eiga erindi séu
velkomnir á einhverfukaffi. Bæði
þeir sem eru komnir með grein
ingu, þeir sem eru í greiningarferli,
þeir sem grunar að þeir séu ein
hverfir, aðstandendur og jafnvel
fagfólk. „Allir sem elska einhverfa
eru velkomnir,“ segir hún.
Ingibjörg hyggst tala við
Rauða krossinn víða um land til
að athuga hvort deildirnar geti
haft einhverfukaffi hjá sér. Hún
vonast til þess að Rauðakross
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Það er líka mikil
vægt að fólk fari
ekki í afneitun og vilji
ekki vera einhverft. Við
erum að reyna að miðla
til fólks að það er allt í
lagi að vera einhverfur.
deildirnar úti um allt land taki
upp þessa hugmynd. Eins langar
hana að skipuleggja einhverfukaffi
í Háskóla Íslands fyrir einhverfa
nemendur og kennara. En hún
lætur ekki Ísland duga, hún er að
setja upp vefsíðu sem heitir Autism
Café til að reyna að koma hug
myndinni á framfæri erlendis.
„Ég er svona að vonast til þess
að einhver taki hugmyndina upp
og þrói hana áfram því þetta þarf
ekkert endilega að snúast um mig.
Hugmyndin sjálf þarf að fá að
vaxa og dafna. Mig langar að koma
þessu áfram,“ segir Ingibjörg.
„Það eru ýmsar rannsóknir sem
benda til þess að einangrun ein
hverfra sé mjög mikil. Stundum
vilja einhverfir vera einir – þeir fá
stundum hreinlega nóg af mann
legum samskiptum. En það eru
samt rannsóknir sem benda til
þess að einhverfir geti verið mjög
einangraðir og mjög einmana.“
Einhverfukaffið er hugsað fyrir
fólk sem hefur náð 18 ára aldri.
En Ingibjörg er með áform um að
halda líka einhverfukaffi þar sem
allir aldurshópar eru velkomnir.
„Ég fékk þá snilldarhugmynd að
vera með þemaeinhverfukaffi.
Til dæmis risaeðlueinhverfukaffi
fyrir fólk á öllum aldri frá börnum
upp í fullorðna. Þá geta allir mætt
með uppáhaldsrisaeðluna sína
eða mætt í risaeðlubúningi, bara
alveg eins og fólk vill. Allir sem
hafa áhuga á risaeðlum geta komið
og notið þess að tala um risaeðlur.
Ég ætla að reyna að halda það í
september á þessu ári. Svo datt mér
í hug að vera með legóeinhverfu
kaffi og allir mæta með uppáhalds
legókubbana sína. Svo getum við
þess vegna verið með glæpasagna
einhverfukaffi. Þá geta þeir sem
hafa áhuga á glæpasögum og bók
menntum mætt og jafnvel hlustað
á glæpasagnarithöfund sem mætir
í heimsókn. Möguleikarnir eru
óteljandi.“
Mikilvægt að hafa
fyrirmyndir
Ingibjörgu finnst mikilvægt að
unga fólkið hafi fyrirmyndir í
fullorðnu einhverfu fólki sem það
fær að umgangast og kynnast. Sjálf
er hún hamingjusamlega gift, á
barn, hús og bíl. Hún vill að börn
og unglingar með einhverfu viti
að það sé von. Að þau geti lifað
hamingjusömu fjölskyldulífi þrátt
fyrir einhverfuna.
„Það er líka mikilvægt að fólk
fari ekki í afneitun og vilji ekki
vera einhverft. Við erum að reyna
að miðla til fólks að það er allt í
lagi að vera einhverfur. Það getur
jafnvel verið gaman að vera ein
hverfur. Ég myndi ekki vilja skipta
um heila ef mér væri boðið að fara
í heilaígræðslu. Ég myndi segja nei,
takk, jafnvel þótt heilinn í mér sé
svona skondinn og skrýtinn,“ segir
Ingibjörg.
„Ég hélt einu sinni fyrirlestur
hjá Öryrkjabandalaginu um það
hvernig ég fór að því að eignast
fjölskyldu því það er mjög oft erfitt
fyrir einhverfa að mynda félags
leg tengsl og eignast fjölskyldu.
Eftir fyrirlesturinn kom til mín
ung kona sem var að berjast við
einhvers konar fötlun. Hún sagði
við mig að ég væri búin að gefa
henni von um að hún gæti eignast
fjölskyldu einhvern tímann í fram
tíðinni. Það að gefa von er mikils
virði.“
Ingibjörg segist aldrei hafa
látið einhverfuna takmarka sig.
Hún er með fjórar háskólagráður.
Hún hefur kennt í háskólanum og
vinnur nú sem þýðandi í hluta
starfi og vonast til að geta byrjað
að vinna fulla vinnu í janúar á
næsta ári. Hún segir að til þess
að vera fyrirmynd þurfi að sýna
í verki að lífið sé möguleiki, ekki
ómöguleiki.
„Þetta er alveg eins og með
krakkana. Þegar maður elur þau
upp skiptir ekki máli hvað maður
segir heldur hvað maður gerir. Ég
verð að vera fyrirmynd með því að
vera ég sjálf og lifa mínu lífi eins og
ég lifi mínu lífi. Ég get ekki sagt við
fólk: Nú ætla ég að vera fyrirmynd
fyrir ykkur. Það þýðir ekki, en ég
get aftur á móti orðið fyrirmynd ef
ég sýni í verki að þetta er hægt.“
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
2
F
-E
E
F
C
2
3
2
F
-E
D
C
0
2
3
2
F
-E
C
8
4
2
3
2
F
-E
B
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K