Fréttablaðið - 08.06.2019, Side 39
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Sveitarfélagið Árborg er fjölmennasta sveitarfélagið á Suðurlandi. Það varð til við sameiningu Eyrarbakkahrepps, Sandvíkurhrepps,
Selfossbæjar og Stokkseyrarhrepps árið 1998 og er því 21 árs á þessu ári. Sveitarfélagið hefur vaxið ört síðastliðin ár og telur nú rúmlega
9.500 íbúa. Í Árborg er gott mannlíf. Þar er miðstöð þjónustu á Suðurlandi, góðir skólar ásamt öflugu íþrótta-, félags- og menningarlífi.
Í Árborg eru þrír grunnskólar með samtals um 1.470 nemendur og fimm leikskólar með rúmlega 500 nemendur. Einn af helstu kostum
sveitarfélagsins eru fjölbreyttir búsetukostir í dreifbýli, búgarðabyggð, sjávarþorp við ströndina og stórt þéttbýli.
Helstu verkefni
• Verkefnastjórnun í viðhaldi og nýframkvæmdum í samráði við stjórnendur sviðsins
• Val, þróun og innleiðing á rafrænum tæknilausnum
• Aðkoma að áætlanagerð, hönnun og útboðum
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verk-, tækni-, byggingarfræðimenntun eða sambærilegt nám
• Reynsla af ráðgjöf og verkefnastjórnun er æskileg
• Reynsla af áætlanagerð er æskileg
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er kostur
• Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði er kostur
• Reynsla og/eða þekking á þróun landupplýsingakerfa er kostur
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga er kostur
• Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum skilyrði
• Færni að tjá sig í ræðu og riti
Helstu verkefni
• Umsjón með áætlanagerð, hönnun, útboðum og verkefnastjórnun fyrir framkvæmdir
á vegum sveitarfélagsins
• Umsjón og eftirfylgni fjárhagsáætlana sviðsins og fjárfestingaáætlunar
• Daglegur rekstur og stjórnun deildarinnar og mótun starfsemi hennar
• Umsjón með skrifstofu, stjórnsýslu og nefndarstörfum á mannvirkja-
og umhverfissviði
• Störf með nefndum sviðsins eftir því sem þörf krefur
• Umsjón með þjónustu við íbúa og samskipti vegna verkefna sviðsins
Menntunar- og hæfniskröfur
• Verk-, tækni-, byggingarfræðimenntun eða sambærilegt nám er skilyrði
• Reynsla af ráðgjöf og verkefnastjórnun er æskileg
• Reynsla af verklegum framkvæmdum er æskileg
• Reynsla af áætlanagerð er æskileg
• Menntun og reynsla af verkefnastjórnun er kostur
• Reynsla af stjórnun starfsmanna á sambærilegu verksviði er kostur
• Frumkvæði, framsýni og geta til að starfa undir álagi
• Skipulagsfærni til að þróa áætlanir og aðferðir til lengri tíma
• Öryggi í allri talnameðferð og góð kostnaðarvitund
• Geta til að hafa góða yfirsýn yfir mörg og mismunandi verk og verkþætti
• Samskiptahæfni sem miðar að því að stýra hópi starfsmanna og verkefnateymum
• Reynsla og þekking á stjórnsýslu sveitarfélaga kostur
• Færni til að tjá sig í ræðu og riti
Sveitarfélagið Árborg leitar að deildarstjóra framkvæmda- og tæknideildar. Framkvæmda- og tæknideild er ný deild á mannvirkja- og umhverfissviði sem mun stýra
hönnunarverkefnum og gerð áætlana um framkvæmdir og fjárfestingar. Deildin mun halda utan um og tryggja vandaða verkefnastjórnun á sviðinu og hafa umsjón með vali, þróun og
innleiðingu á rafrænum tæknilausnum fyrir mannvirkja- og umhverfissvið og opinbera þjónustu. Meðal slíkra lausna er nýtt landupplýsingakerfi sveitarfélagsins, OneLand, og DMM,
Dynamic Maintenance Management system, sem er hugbúnaðarkerfi fyrir viðhaldsstjórnun og rekstur.
Framkvæmda- og tæknideild er stofnuð til að takast á við mikinn vöxt í sveitarfélaginu, sem nær yfir Selfoss, Eyrarbakka, Stokkseyri og gamla Sandvíkurhrepp. Vegna íbúafjölgunar
hafa framkvæmdir og nýfjárfestingar aldrei verið eins miklar á þessu svæði. Nýr deildarstjóri mun leiða uppbyggingu og þróun deildarinnar og gegna lykilhlutverki í fjölbreyttum og
krefjandi verkefnum mannvirkja- og umhverfissviðs.
Verkefni deildarinnar snerta alla þætti mannvirkja- og umhverfissviðs, s.s. umhverfismál, hreinlætismál, dýramál, veitumál og gatnagerð, bæði viðhald og nýframkvæmdir, í samráði
við stjórnendur í viðkomandi málaflokkum. Deildinni er einnig ætlað að stýra skrifstofu sviðsins og stjórnsýslu þess, s.s. umsýslu nefnda sviðsins.
DEILDARSTJÓRI FRAMKVÆMDA- OG TÆKNIDEILDAR
Sveitarfélagið Árborg leitar að verkefnastjóra hjá framkvæmda- og tæknideild, á mannvirkja- og umhverfissviði. Um er að ræða nýtt starf verkefnastjóra sem felur í sér stjórnun
verkefna á sviðinu en einnig aðkomu að vali, þróun og innleiðingu á rafrænum tæknilausnum.
Framkvæmda- og tæknideild er ný deild á mannvirkja- og umhverfissviði sem mun stýra hönnunarverkefnum og gerð áætlana um framkvæmdir og fjárfestingar. Nýr verkefnastjóri
mun taka þátt í að leiða uppbyggingu og þróun deildarinnar og gegna lykilhlutverki í fjölbreyttum og krefjandi verkefnum sviðsins.
VERKEFNASTJÓRI Á FRAMKVÆMDA- OG TÆKNIDEILD
Nánari upplýsingar veitir:
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsóknum þarf að fylgja ítarleg starfsferilskrá og kynningarbréf.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.
Um kaup og kjör fer samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og
viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til og með 25. júní nk.
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is
ATVINNUAUGLÝSINGAR 5 L AU G A R DAG U R 8 . J Ú N Í 2 0 1 9
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
3
0
-2
5
4
C
2
3
3
0
-2
4
1
0
2
3
3
0
-2
2
D
4
2
3
3
0
-2
1
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K