Fréttablaðið - 08.06.2019, Síða 48
LAGERMAÐUR
Við hjá Flísabúðinni óskum eftir að ráða kraftmikinn
lagermann í verslun okkar í Stórhöfða 21, 110 Reykjavík.
Vinnutími er frá kl. 9-18 alla virka daga. Laugardaga 10-14
frá 15. september til 1. júní.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst
Starfslýsing:
• Lyftarapróf æskilegt.
• Móttaka á vörum og öll önnur almenn lagerstörf.
• Framúrskarandi þjónustulund.
• Sjálfstæði, dugnaður og frumkvæði í starfi.
• Sveigjanleiki og geta til að vinna undir álagi.
• Góð samskiptahæfni, kurteisi og jákvæðni.
Umsóknarfrestur er til 20. júní.
Nánari upplýsingar um starfið veitir. Þórður Magnússon
thordur@flis.is
Staða leikskólastjóra við leikskólann Garðaborg
Skóla- og frístundasvið
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir
borgarinnar endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar auglýsir stöðu leikskólastjóra í Garðaborg lausa til umsóknar.
Garðaborg er tveggja deilda leikskóli við Bústaðaveg í Reykjavík. Unnið er eftir hugmyndafræði John Dewey og Caro-
line Pratt þar sem lögð er áhersla á frjálsan leik, opinn efnivið, einingakubba og holukubba sem ýta undir ímyndunarafl,
sköpun, útsjónarsemi og rökhugsun. Markvisst er unnið með Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og að auknu lýðræði í
öllu starfi leikskólans, m.a. með því að börnin tjái skoðanir sínar, geti haft áhrif á eigin þekkingaröflun og daglegt líf. Leik-
skólinn er í samstarfi við íþróttafélagið Víking, tekur þátt í Vináttuverkefni Barnaheilla og samstarfsverkefninu „Kynslóðir
leika“ með eldri borgurum í hverfinu. Á næstu misserum er fyrirhuguð endurgerð leikskólalóðarinnar auk þess sem unnið
verður að innleiðingu nýrrar menntastefnu Reykjavíkurborgar með áherslu á félagsfærni.
Leitað er að einstaklingi sem býr yfir leiðtogahæfileikum og er tilbúinn til að leiða áfram gott og metnaðarfullt
leikskólastarf í Garðaborg.
Meginhlutverk leikskólastjóra er að:
• Vera faglegur leiðtogi leikskólans og móta framtíðar-
stefnu hans innan ramma laga, reglugerða, aðalnámskrár
og stefnu Reykjavíkurborgar.
• Bera ábyrgð á daglegu starfi í leikskólanum.
• Skipuleggja foreldrasamstarf í samvinnu við foreldra
og starfsmenn.
• Hafa yfirumsjón með innra mati á starfi leikskólans
og umbótaáætlunum.
• Hvetja til þróunar og nýbreytni í leikskólastarfi.
• Stýra rekstri leikskólans á grundvelli fjárhagsáætlunar.
• Bera ábyrgð á starfsmannamálum, svo sem ráðningum,
vinnutilhögun og starfsþróun.
• Skipuleggja tengsl skólans við ýmsa samstarfsaðila.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf leikskóla-
kennara.
• Viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynsla
á leikskólastigi.
• Reynsla af stjórnun æskileg.
• Stjórnunarhæfileikar og vilji til að leita nýrra leiða.
• Þekking á rekstri, áætlanagerð og fjármálastjórnun.
• Lipurð og hæfni í samskiptum.
• Sjálfstæði og frumkvæði.
Umsókn fylgi yfirlit yfir nám og fyrri störf, leyfisbréf til að nota starfsheitið leikskólakennari og greinargerð um
framtíðarsýn umsækjanda á starf í leikskólanum.
Ráðið verður í stöðuna frá 1. september 2019. Umsóknarfrestur er til og með 24. júní 2019.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna
Félags stjórnenda leikskóla. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkurborgar,
www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar veita Ingibjörg M. Gunnlaugsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu leikskólamála eða
Elísabet Helga Pálmadóttir, þróunarfulltrúi, sími 411 1111.
Netföng: ingibjorg.m.gunnlaugsdottir@reykjavik.is/elisabet.helga.palmadottir@reykjavik.is
Grunnskóli Seltjarnarness
• Námsráðgjöf, fullt starf frá hausti 2019.
Leikskóli Seltjarnarness
-starfsfólk óskast frá 1. ágúst nk.
• Deildarstjóri, fullt starf.
• Leikskólakennarar, fullt starf.
• Leikskólaleiðbeinendur, fullt starf.
Frístundamiðstöð Seltjarnarness
• Frístundaleiðbeinendur og stuðningsfulltrúar,
fullt starf og hlutastörf með börnum á
aldrinum 6-10 ára.
• Þroskaþjálfi eða starfsmaður með aðra
uppeldisfræðimenntun, fullt starf.
Tónlistarskóli Seltjarnarness
• Sellókennari, hlutastarf frá hausti 2019.
Nánari upplýsingar um störfin og skil umsókna
má finna á Ráðningarvef Seltjarnarnesbæjar
www.seltjarnarnes.is – Störf í boði
Umsóknarfrestur er til 23. júní næstkomandi.
Í samræmi við jafnréttisáætlun Seltjarnarnesbæjar
eru karlar jafnt sem konur hvött til að sækja um störf.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands
íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélaga.
Seltjarnarnesbær
Laus störf
seltjarnarnes.is
kopavogur.is
Leikskólastjóri
óskast í Sólhvörf Kópavogi
Laus staða leikskólastjóra í Sólhvörfum Kópavogi
Leikskólinn Sólhvörf er staðsettur í Álfkonuhvarfi 17. Í leikskólanum dvelja 112 börn á sex deildum. Í
Sólhvörfum er starfað eftir hugsmíðahyggju þar sem lögð er áhersla á virkni barnsins í eigin þekk-
ingarleit og mikilvægi þess að kennarar nýti áhugahvöt barnsins hverju sinni.
Menntunar- og hæfniskröfur
· Leikskólakennaramenntun
· Framhaldsmenntun (MA, MEd, MBA eða Diplóma að lágmarki) í stjórnun eða leikskólafræðum
· Góð reynsla af leikskólastarfi
· Reynsla af stjórnun í leikskóla
· Hæfni til að leiða faglega forystu
· Sýn og vilji til nýbreytni og þróunar í leikskólastarfi
· Gott vald á íslenskri tungu
Ráðningartími og starfshlutfall
· Ráðningartími er frá 8. ágúst 2019 eða samkvæmt samkomulagi
· Um fullt starf er að ræða
Fekari upplýsingar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigurlaug Bjarnadóttir, deildarstjóri leikskóladeildar, (sigurlaugb@
kopavogur.is), s. 861 5440 og Maríanna Einarsdóttir, leikskólaráðgjafi, (marianna@kopavogur.is).
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og FSL.
Umsóknarfrestur er til 22. Júní 2019.
Nánari upplýsingar um leikskólann er að finna á https://solhvorf.kopavogur.is/
Við hvetjum karla jafnt sem konur til að sækja um starfið.
Job.is
ERTU Í LEIT AÐ
DRAUMASTARFINU?
Finndu þitt starf á
14 ATVINNUAUGLÝSINGAR 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
0
8
-0
6
-2
0
1
9
0
7
:2
6
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
3
0
-2
A
3
C
2
3
3
0
-2
9
0
0
2
3
3
0
-2
7
C
4
2
3
3
0
-2
6
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
7
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K