Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 82

Fréttablaðið - 08.06.2019, Page 82
TÓNLIST Kammertónleikar Maríubænir frá Montserrat á Kirkjulistahátíð Flytjendur: Umbra Ensemble, Cantores Islandiae, Þórdís Gerður Jónsdóttir, Kristofer Rodriguez Svönuson, Eggert Pálsson og Marina Albero. Hallgrímskirkja þriðjudagur 4. júní Gárungar hafa sagt að það sé allt í lagi að koma of seint á tónleika í Hallgrímskirkju. Bergmálið sé svo mikið að maður heyrir samt fyrstu tónana. Fyrir þetta stóra kirkju er bergmálið auðvitað fullkomlega eðlilegt, en þá er grundvallaratriði að velja vel hvernig tónlist er þar flutt. Ég er aðdáandi kammerhópsins Umbra Ensemble eftir tónleika hans í Hannesarholti í fyrrasumar. Hópurinn flutti óvanalega fallegar útsetningar á lögum úr gömlum handritum; andrúmsloftið sem myndaðist var einstakt. Því miður voru tónleikar hópsins á Kirkju- listahátíð talsvert síðri og má kenna staðsetningunni um. Þetta er tón- list sem einfaldlega krefst meiri nálægðar. Hana er ekki að finna í risastórri kirkjunni. Rólegu lögin komu best út Á efnisskránni voru Maríubænir úr Montserrat-klaustrinu. Lögin eru í handriti frá 14. öld, einu fárra sem björguðust þegar her Napóleons rústaði klaustrinu árið 1811. Söngv- arnir voru hugsaðir pílagrímum til dægrastyttingar, og þótt trúarand- inn svífi yfir vötnum er tónlistin fjölbreytt; dansinn er aldrei mjög langt undan. Rólegu lögin komu langbest út í ríkulegri endurómuninni. Lilja Dögg Gunnarsdóttir var aðal- söngkonan og hún söng fallega. Rödd hennar hæfir gamalli tónlist einkar vel, raddblærinn er þýður og sjarmerandi, með notalegri fyllingu. Keltnesk harpa, sem Arn- gerður María Árnadóttir spilaði á, skapaði einnig draumkennt and- rúmsloft. Sömu sögu er að segja um kontrabassa Alexöndru Kjeld og fiðluleik Guðbjargar Hlínar Guð- björnsdóttur. Óskýr dynur Hröðu lögin voru miklu síðri. Umbra var með nokkra gesti á sviðinu, þar var m.a. Marina Albero, en hún lék á psalterium, strengja- hljóðfæri sem liggur á borði og er slegið með kjuðum. Albero spilaði hratt, en nóturnar runnu saman í bergmálinu, svo úr varð óskýr dynur. Svipaða sögu er að segja um slagverksleik Eggerts Pálssonar og Kristofers Rodriguez Svönu- sonar. Hann hljómaði býsna óskýr og skorti því nauðsynlega snerpu. Fyrir bragðið varð tónlistin litlaus. Orgelleikur, sem Arnbjörg María sá um þegar hún var ekki að spila á hörpuna, vakti líka upp spurningar. Ekkert var að leiknum sem slíkum, hann var skýr og nákvæmur. En Umbra Ensemble er fíngerð, brot- hætt kammersveit. Að spila á risa- vaxið orgel Hallgrímskirkju með slíkri sveit passaði engan veginn, þótt leikurinn hafi verið veikur og lágstemmdur. Útkoman var eins og hjónaband dúfu og krókódíls. Hér skal áréttað að ekkert var upp á sjálfan flutninginn að klaga, né heldur útsetningarnar, sem voru margbrotnar og hugvitsam- legar. Umgjörðin var bara ekki rétt og því náði tónlistin aldrei f lugi. Vonandi mun dagskráin verða endurtekin, og þá undir betri kringumstæðum. Hún verðskuld- ar það svo sannarlega. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Flottar útsetningar skiluðu sér ekki í ríkulegri endurómun Hallgrímskirkju. Eins og hjónaband dúfu og krókódíls „Hópurinn flutti óvanalega fallegar útsetningar á lögum úr gömlum handritum,“ segir Jónas Sen. Dásamleg deild samfélagsins 2 0 1 9 OPIÐ VERÐUR Í KOLAPORTINU Í DAG OG ANNAN Í HVÍTASUNNU FRÁ KL. 11-17 LOKAÐ HVÍTASUNNUDAG 8 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R42 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 6 -2 0 1 9 0 7 :2 6 F B 0 9 6 s _ P 0 9 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 2 F -D 6 4 C 2 3 2 F -D 5 1 0 2 3 2 F -D 3 D 4 2 3 2 F -D 2 9 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 9 6 s _ 7 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.