Fjarðarpósturinn - 05.11.2015, Qupperneq 4
4 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015
Öryggismál og slysavarnir
Alvarlegt slys varð við bæjar
lækinn í Hafnarfirði um miðjan
apríl s.l. þar sem tveir ungir
drengir voru hætt komnir eftir að
hafa lent í fossi við stíflu sem er
við lækinn. Það slys
fékk sem betur fer
góðan endi, sem von
andi hefur orðið til þess
að öryggi við lækinn
hefur verðið bætt.
Mig langar vinsam
legast í framhaldi af
um ræðu sem þá varð
um slysavarnir í Hafn
arfirði að benda á eitt
öryggisatriði sem
nauðsynlega þarf að bæta við
höfnina, en fyrst nokkur orð um
slysavarnir í höfnum.
Með slysavörnum er átt við
öryggisbúnað sem miðar að því
að koma í veg fyrir slys og nota
má til bjargar þeim sem fyrir
óhöppum verða við hafnir.
Til öryggisbúnaðar og slysa
varna teljast bryggjustigar, bjarg
hringir, Björgvinsbelti, Markús
ar net, krókstjakar, lýsing á hafn
arsvæðum, hlið og girðingar,
gulmálaðir bryggju kantar og
ýmislegt fleira. Vinnu eftirlitið
skoðar löndunarkrana einu sinni
á ári. Á bryggjum Hafnarfjarðar
er björgunarbúnaður sem skylda
er að hafa í nokkuð góðu lagi, en
stigar eru ekki útbúnir samkvæmt
reglum.
Góðir bryggjustigar eru mikið
öryggisatriði fyrir sjómenn,
þess ir stigar eiga samkvæmt
reglum að vera með ljósi til að
lýsa upp stig ann í myrkri og
slæmu skyggni, svo hann sjáist
betur á hann að vera málaður
innan með áberandi
sérstök um lit.
Á Óseyrarbryggju
sem er vinsæll stang
veiði staður barna og
fullorðinna eru
bryggju stigar sumir
hverjir með ljósastæði
en engin ljós eru á
þeim, og stigarnir eru
ekki mál aðir eins og
reglur segja til um.
Þá má benda á að á Norður
bakkanum er einnig vinsælt að
veiða á stöng og þar er góður
vinsæll útsýnisstaður yfir höfn
ina, þar eru stigar ekki merktir og
ekki í þeim ljós, en vel hugsað
um öryggisbúnaðinn á sjálfri
bryggjunni.
Áberandi vel málaðir stigar
með ljósum hafa bjargað mönn
um sem hafa fallið í hafnir í
myrkri og slæmu skyggni, en
það er ekki síður mikilvægt að
hafa stiga áberandi málaða að
degi til, þannig að ef menn falla í
sjóinn þá sjái þeir strax hvar stigi
er við bryggjukantinn, hver
mínúta skiptir máli fyrir mann
sem lendir í ísköldum sjó.
Þó reglur gildi um öryggis bún
að hafna, þá er það lágmarks
kröfur, ekkert mælir á móti því
að hafnarstjórnir bæti við
öryggisbúnaði ef þær telja það
bæti öryggi við höfnina.
Eitt atriði sem nokkrar hafnir
hafa tekið upp og eykur öryggi
barna sem eru á bryggjunni.
Þessar hafnir eru með björg unar
vesti hjá hafnarvörðum eða í
sérstökum merktum kassa á
bryggjunni sem börn og ungling
ar geta gengið í þegar þeir eru
við veiðar eða annara erinda á
bryggjunni. Þetta er til fyrir
myndar og kennir börnum að
meta og nota þennan sjálfsagða
og einfalda öryggisbúnað.
Miklu máli skiptir að allir sem
erindi eiga niður að höfn kynni
sér hvar öryggisbúnað er að
finna og hvernig eigi að nota
hann ef óhöpp verða.
Höfundur er áhugamaður um
öryggismál.
Sigmar Þór
Sveinbjörnsson
Áberandi málaðir stigar.
Neyðaraðstoð
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
veitir efnalitlum barnafjölskyldum með lögheimili
í Hafnarfirði aðstoð fyrir komandi jól 2015
Tekið er á móti umsóknum í Hraunseli, Flatahrauni 3
eingöngu dagana 19. og 23. nóv. kl. 16-19
Krafist verður nýútprentaðrar staðgreiðsluskráar fyrir tekjur
til og með okt. 2015 og búsetuvottorðs frá Bæjarskrifstofu
Hafnarfjarðar, Strandgötu 6 (er ókeypis, þarf skilríki).
Uppl. kl. 17-19 virka daga í síma 843 0668.
Netfang maedrastyrksnefnd@simnet.is
Rauði krossinn tekur á móti umsóknum
á Strandgötu 24, 16. nóv. kl 11-13.
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar
Styrkja má störf nefndarinnar með því að leggja inn á:
Íslandsbanka 0544-04-760686, kt. 460577-0399 • Landsbankann 0140-15-381231, kt. 460577-0399
©
F
ja
rð
ar
pó
st
ur
in
n
20
15
Sólvangsdagurinn 2015
Hinn árlegi Sólvangsdagur verður haldinn
laugardaginn 7. nóvember kl. 14 – 16.
Dagskrá
o Sala á munum sem heimilisfólk og gestir
dagdvalar hafa unnið á vinnustofu
o Myndlistarsýning
o Vöfflukaffi með öllu tilheyrandi að hætti
Bandalags kvenna í Hafnarfirði
o Bókamarkaður
o Lifandi tónlist
o Kynning á Hollvinasamtökum Sólvangs
Allir eru hjartanlega velkomnir
og við vonumst til þess að sjá sem flesta.
Þeir voru draugalegir krakk
arnir hjá Brettafélagi Hafnar
fjarðar um helgina er félagið stóð
fyrir Halloweenhátíð með
hjólabrettakeppni, BMX keppni
og bíó. Þeir voru ekki allir háir í
loftinu krakkarnir sem renndu
sér á brettunum en Jóhann Borg
þórsson, formaður félagsins,
segir mikinn uppgang hafa verið
og lífleg starfsemi alla daga í
húsinu. Á döfinni sagði hann
vera að stofna deild fyrir snjó
brettaiðkendur og þegar væru
komnir einstaklingar á biðlista.
Væri þá farið í Bláfjöllin þegar
þar væri opið en þess á milli í
brekkur í nágrenni bæjarins og
æfingar í félagsheimilinu í
gömlu slökkvistöðinni við Flata
hraun.
Fleiri myndir má sjá á Face
book síðu Fjarðarpóstsins.
Uppgangur hjá
Brettafélagi Hafnarfjarðar
Stefna á stofnun snjóbrettadeildar
Jóhann Borgþórsson formaður,
Ágústa Dröfn Sigmarsdóttir og
Arnfríður Arnardóttir í stjórn
Brettafélags Hafnarfjarðar
ásamt Ástu Dísu.
Þeir voru ekki allir háir í
loftinu krakkarnir sem renndu
sér á hjólabrettunum.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n