Fjarðarpósturinn - 05.11.2015, Qupperneq 6
6 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 5. NÓVEMBER 2015
þjónusta
Tölvuaðstoð og viðgerðir
Viðgerðir og kennsla í tölvunotkun.
Apple* & Windows.
Kem í heimahús. Sími 824 9938 -
hjalp@gudnason.is
Bílaþrif. Kem og sæki.
Nú er rétti tíminn til að bóna bílinn.
Úrvals efni. Hagstætt verð.
Uppl. í s. 845 2100.
Tek að mér að færa þær yfir
á(vídeó, slide, ljósmyndir) DVD
diska eða flakkara. Sýnishorn á
siggileifa.123.is sími 8637265
siggil@simnet.is Vantar Betamax
video. Sigurður Þorleifsson.
Innréttingasmíði, viðgerðir, almenn
smíði og viðgerð á húsgögnum.
Trésmíðaverkstæði Gylfa ehf.
sími 897 7947.
Hrein húsgögn og bílasæti án ryks,
lyktar og bletta. Djúphreinsun á
borðstófustólum, hægindastólum,
sófasettum, rúmdýnum og teppum.
Djúphreinsun á bílasætum. Einnig
leðurhreinsun á áklæði. Kem á
staðinn og hreinsa, s. 780 8319.
Stutt námskeið í jóga. Fyrir
byrjendur og þá sem vilja upprifjun.
Hádegi mán - mið 26. okt - 11. nóv.
Bjarkarhúsið, Haukahrauni 1, Hfj.
Skráning f. 25. okt. 6 skipti kr 6000,-
astajoga@gmail.com eða 899 2239
smáauglýsingar
aug l y s i n gar@f jardarpos t u r i n n . i s
s ím i 5 6 5 3 0 6 6
A ð e i n s f y r i r e i n s t a k l i n g a . V e r ð
a ð e i n s 5 0 0 k r. m . v . h v e r 1 5 0 s l ö g .
M y n d b i r t i n g 7 5 0 k r.
Ta pað - f u n d i ð o g Ge f i n s : FR Í TT
R e k s t r a r a ð i l a r :
F á i ð t i l b o ð í r a m m a a u g l ý s i n g a r !
www.fjardarposturinn.is
Loftnet - netsjónvarp
Viðgerðir og uppsetning á loftnetum,
diskum, síma- og tölvulögnum,
ADSL/ljósleiðurum, flatskjám og
heimabíóum. Húsbílar - hjólhýsi!
Loftnetstaekni.is
sími 894 2460
Aðgangur 8 - 22 alla daga ársins
564-6500 - Steinhellu 15
Geymsla
frá 1 til 17 m²
www.geymslaeitt.is
geymsla eitt
Frjálsíþróttamál 10-14 ára
Frjálsíþróttadeild FH Gaflaranum,
frjálsþróttamót fyrir 10-14 ára krakka,
á laugardaginn kl. 10-16 í Frjáls-
íþróttahúsinu í Kaplakrika.
Myndlistasýning á Hrafnistu
Þórdís Kristinsdóttir sýnir myndir í
Menningarsalnum á Hrafnistu.
Sýningin stendur til 18. nóvember.
Eiríkur Smith í Hafnarborg
Fimmta og síðasta sýningin í röð
sýninga Hafnarborgar þar sem
margbreyttur ferill Eiríks Smith er
rannsakaður, verður opnuð á laugar
daginn kl. 15. Þar verða sýnd olíu-
málverk og vatnslitamyndir unnar á
árunum frá 1982 og til samtímans.
Sendið stuttar tilkynningar um
viðburði á ritstjorn@fjardarposturinn.is
menning & mannlíf
Fimleikafélagið Björk stóð á
laugardaginn fyrir fjáröflun fyrir
nýju keppnisgólfi með því að
klifra sem nemur hæð Ever est
fjalls í köðlunum í íþrótta mið
stöðinni.
Þátttakendur í verkefninu settu
sér það markmið að klára vega
lengdina á 5 klukkutímum eða
fyrir kl. 16 þan dag og má segja
að frammistaðan hafi farið fram
úr björtustu vonum og komst
félagið á toppinn klukkan 14.45
að staðartíma.
Ýmsir góðir gestir lögðu félag
inu lið í klifrinu og sköpuðu
skemmti lega stemmningu. Áheit
in hlóðust upp og safn aðist vel á
áhalda kaupa reikn inginn.
Að öðrum ólöstuðum var
stjarna dagsins Óskar Ísak Guð
jóns son en hann klifraði 100
ferðir upp, eða 600 metra.
Aðrir sem lögðu málefninu lið
voru m.a. Ingvar E. Sigurðsson
leikari, Íþróttaálfurinn, karla
landsliðið í áhaldafimleikum,
Gerplustrákarnir, FH, Hrói hött
ur og glaðværa gengið, Haraldur
pólfari og margir fleiri.
Náðu á Everest
Nýtt fimleikagólf í augnsýn hjá Björk
www.facebook.com/
fjardarposturinn
Skoðaðu myndir
úr bæjarlífinu
Smelltu á
LÍKAR VIÐ
Ákvörðun um fjárhagsáætlun er
stærsta einstaka ákvörðun sem
hver bæjarstjórn tekur og markar
grundvöll að öllum fjárhagslegum
ráðstöfunum sveitarfélagsins. Ef
allt er með felldu liggur tillaga að
fjárhagsáætlun fyrir tímanlega
áður en afgreiðsla bæjarstjórnar
fer fram. Með því eru skapaðar
forsendur fyrir opna og lýðræðis
lega umræðu í samfélaginu og
beina þátttöku almennings og
hags munaaðila í mótun hinnar
endanlegu niðurstöðu. Þannig er
reynt að tryggja hið mikilvæga
aðhald sem opið og gagnsætt
ákvörðunartökuferli skapar al
menningi færi á að veita kjörn um
fulltrúum í þeirra störfum.
Í lögum er því kveðið á um að
um þessa stóru ákvörðun eigi að
fara fram tvær umræður í bæjar
stjórn. Hin fyrri fer öllu jöfnu fram
í byrjun nóvember en hin síðari í
byrjun desember. Við fyrri um
ræðu á ríkjandi meiri hluti að
kynna sína stefnu mörkun sem síð
an verður grundvöllur lýð ræð
islegrar umræðu í samfélaginu.
Með breyttum vinnu brögðum nýs
meirihluta í Hafnarfirði hefur hins
vegar verið í komið í veg fyrir að
sú umræða geti átt sér stað og
lýðræðinu í kringum þessa stóru
og mikilvægu ákvörðun í reynd
verið kippt úr sambandi.
Hvað eiga bæjarbúar að
geta séð í tillögu til
fjárhagsáætlunar?
Í tillögu að fjárhagsáætlun eiga
foreldrar barna á leikskólaaldri til
að mynda að geta séð hvernig
áætluð forgangsröðun í leikskóla
framkvæmdum lítur út næstu ár,
hvort ætlunin sé að reisa nýjan
leikskóla í hverfinu
þeirra eða jafn vel loka
þeim sem fyrir er í hag
ræðingarskyni. Bæjar
búar allir eiga sömuleiðis
að geta skoðað hvort til
standi að gera breytingar
á framboði eða verð
lagningu einhverrar
þeirr ar þjónustu sem
þau eru líkleg til að hafa
þörf fyrir á næstunni.
For svarsmenn íþrótta og tóm
stundafélaga og foreldrar barna og
unglinga í íþrótta og æskulýðs
starfi eiga einnig að geta lesið sig
til um það hvort ráðast eigi í
tilteknar fram kvæmdir sem tengj
ast þeirra starfsemi og foreldrar
grunnskólabarna eiga til dæmis að
geta greint hvernig standa eigi að
fjárveitingum vegna þjónustu við
börn með sérstakar þarfir. Auð
vitað eru fjölmargir aðrir þættir
sem almenningur á að geta
glöggv að sig á í drögum að fjár
hagsáætlun en ég nefni hér aðeins
fáein dæmi til skýringar. Aðal
atriðið er að tillagan á að vera gerð
opinber og vera grundvöllur
op inn ar og upplýstrar umræðu.
Ferl ið í kringum gerð fjárhags
áætlunar á þannig að vera lýð
ræðis legt ferli. Hin endanlega nið
urstaða varðar svo ríka og fjöl
þætta hagsmuni þeirra sem búa og
starfa í samfélaginu að það gengur
sömuleiðis ekki að líta á ferlið sem
einkamál tiltekinna stjórnmála
eða embættismanna.
Enginn ber ábyrgð
Ástæðan fyrir því að
ég rita þessa grein er sú
að síðastliðinn miðviku
dag voru bæjarfulltrúar í
bæjarstjórn Hafnar fjarð
ar boðaðir til fundar í
bæjarstjórn undir þeim
formerkjum að þar ætti
að fara fram fyrri um
ræða um fjárhags áætlun.
Þrátt fyrir skýr ákvæði
sveitarstjórnarlaga lágu
engar stefnumarkandi tillögur
fyrir fundinum og engar upp
lýsingar voru veittar, hvorki kjörn
um fulltrúum né almenningi í
aðdraganda fundarins. Ítrekuðum
óskum kjörinna fulltrúa um
aðgang að forsendum tillögunnar
var ekki svarað. Við upphaf fundar
lýsti forystufólk meirihluta Bjartr
ar framtíðar og Sjálfstæðisflokks
því svo yfir að í raun bæri enginn
pólitíska ábyrgð á tillögugerðinni,
nema þá ef vera skyldi helst það
starfsfólk bæjarins sem hefði
að stoðað við gerð hennar síðustu
vikur og mánuði. Og þar með lauk
fyrri umræðu um stærstu ákvörðun
bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á
þessu ári.
Þar sem enginn bæjarfulltrúa
meiri hlutans var tilbúinn að gang
ast við ábyrgð á tillögugerðinni og
aðrir bæjarfulltrúar höfðu litlar sem
engar upplýsingar um for sendur
hennar var í raun ekki til staðar
grundvöllur til að eiga um málið
upplýsta og málefnalega umræðu.
Það sem er þó verra er að bæjarbúar
eru með þessu fyrir komulagi
sviptir möguleikum sín um til að
koma að umræðunni og mynda sér
skoðanir á því hvert eigi að stefna
með bæinn okkar. Þegar þeim eru
skammtaðar upplýsingar og aðeins
sagt það sem hentar pólitískum
hags mun um þeirra sem stjórna er í
reynd ekki lengur hægt að tala um
virkt lýðræði.
Þessum vinnubrögðum mót
mælt um við fulltrúar minnihlutans
á fundi bæjarstjórnar sl. mið viku
dag og lögðum það til að
málsmeðferðin yrði einfaldlega
bætt, fyrri umræðu yrði frestað um
eina viku og allir myndu þannig
leggja sig fram um að tryggja
lýðræðislega meðferð málsins. Sú
tillaga var felld án nokkurra skýr
inga eða rökstuðnings með at
kvæðum bæjarfulltrúa meiri hluta
Bjartrar framtíðar og Sjálf stæð
isflokks.
Höfundur er bæjarfulltrúi
Gunnar Axel
Axelsson
Hægara að styðja en reisa
Allir vita það að það var í tíð
vinstri manna að St Jósefsspítali
var lagður niður í fullu starfi.
Röntgentækjunum
var svipt upp af fest
ingum sínum. Öll verk
færi voru tekin líka,
ófrjálsri hendi.
Öll rúm og dýnur og
allt var flutt niður á
Landsspítala. Það var
lengi lægð í Hafnarfirði
eftir vinstri stjórnina.
Það var ekki fyrr en
Lúðvík Geirsson tók
við bænum og gerði mikið fyrir
lítinn pening, svo mikið að því
trúir enginn. Nú fyrst höfum við
fengið bæjar stjóra sem heitir
Haraldur Líndal. Ekki skaðar
Lín dals nafnið bæjar stjórann.
Nú bið ég bæjarstjóra að höfða
mál á hendur ríkinu
fyrir Hafnar fjarð ar bæ,
með kröfu sem nemur
100 millj ón um. Svo
legg ég til að spítalinn
verði gefin Hrafnistu,
gjöf frá Hafn firðingum.
Við eig um öll eftir að
eldast.
Við verðum að sjá til
þess að þessi spítali fái
göfugt hlutverk, en
hann var tekinn í notkun 1926.
Stöndum saman um þetta
verkefni.
Höfundur er fv. skipasmiður.
Garðar H.
Björgvinsson
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Kristín
Ingólfsdóttir
Hilmar
Erlendsson
Sverrir
Einarsson
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5a, Hafnarfirði
Vaktsímar: 565 5892 & 896 8242 • www.utfararstofa.is • Allan sólarhringinn
Lýðræðinu kippt úr sambandi
Óskar Ísak Guðjónsson (11)
klifraði 100 ferðir upp 6 m
kaðalinn og hafði lítið fyrir því.
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Lj
ós
m
.:
G
uð
ni
G
ís
la
so
n
Fleiri myndir má sjá á Facebook síðu Fjarðarpóstsins.