Fjarðarpósturinn - 17.12.2015, Blaðsíða 2
2 www.fjardarposturinn.is FJARÐARPÓSTURINN | FIMMTUDAGUR 17. DESEMBER 2015
Sunnudaginn 20. desember
Sunnudagaskóli kl. 11
Jólaball og jólastemmning
Kvöldguðsþjónusta kl. 20
Kór Ástjarnarkirkju leiðir jólasöng.
Aðfangadagur, 24. desember
Fjölskylduguðsþjónusta
kl. 14
Aftansöngur kl. 18
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Annar í jólum, 26. desember
Hlaupamessa kl. 10.30
Síðan verður Kirkjuhlaupið. Kakó og kökur á eftir.
Allir velkomnir.
www.astjarnarkirkja.is www.vidistadakirkja.is
Víðistaðakirkja
Aðfangadagur, 24. desember
Aftansöngur kl. 17
Kór Víðistaðakirkju syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Einsöngur: Hanna Dóra Sturludóttir sópran.
Saxófónleikur: Vigdís Klara Aradóttir
og Guido Bäumer.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson
Miðnæturmessa kl. 23.30
Kór Flensborgarskólans syngur undir stjórn
Hrafnhildar Blomsterberg.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Jóladagur, 25. desember
Hátíðarguðsþjónusta kl. 14
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Einsöngur: Sigurður Skagfjörð Steingrímsson
barítón.
Prestur: Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir.
Gamlársdagur 31. desember
Helgistund kl. 17
Kór Víðistaðasóknar syngur
undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur.
Prestur: Sr. Bragi J. Ingibergsson.
Sóknarprestur og starfsfólk
Víðistaðakirkju
óska íbúum Víðistaðasóknar og
Hafnfirðingum öllum
gleðilegra jóla og farsældar
á nýju ári!
Sunnudagurinn 20. desember
Jólaball í Jólaþorpinu
kl. 11
Dansað í kringum jólatréð, hljómsveit
kirkjunnar leiðir sönginn.
Jólasveinninn kemur
að sjálfsögðu í heimsókn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðfangadagur, 24. desember
Aftansöngur kl. 18
Kirkjukórinn leiðir sönginn.
Jólasöngvar á jólanótt
kl. 23.30
Jólakvartett Fríkirkjunnar syngur.
Jóladagur, 25. desember
Fjölskyldu guðsþjónusta
kl. 13
Krílakórinn syngur ásamt kirkjukórnum.
Góð stund fyrir alla fjölskylduna.
Gamlársdagur, 31. desember
Aftansöngur kl. 18
Kór Fríkirkjunnar syngur.
Fylgist með okkur á www.frikirkja.is.
Með ósk um gleðileg jól og farsælt komandi ár.
Fríkirkjusöfnuðurinn í Hafnarfirði
Enn eitt árið er að renna sitt
skeið. „Tíminn líður, trúðu mér,“
sagði skáldið og það er orð að
sönnu. Þegar maður lítur til baka
sér maður hvað mikið hefur
breyst. Hafnarfjörður hefur vaxið
og dafnað og íbúarnir hafa sífellt
fjölbreyttari bakgrunn. Nú koma þeir ekki bara af
Ströndunum og Álftanesi, nú koma þeir frá fjölmörgum
löndum og færa okkur enn meiri fjölbreytni í menningu
og siðum. Við þurfum að aðlaga okkur að breytingum
og hugtakið Gaflari er að verða eins og hjáróma mont
í besta falli. Íbúar Hafnarfjarðar eru allir Hafnfirðingar
og Gaflarar telji þeir sjálfir sig vera það. Ég er fæddur
í Reykjavík, þar sem ég hef aldrei átt heima en ólst upp
fyrstu tæp fimm árin í Kópavogi. Ég er samt Gaflari!
Mótmæli því einhver, eru það hreinir fordómar.
Mikilvægi fjölbreytts atvinnulífs í bænum verður
seint ítrekað nægilega mikið. Nú, fyrir jólin, verðum
við var að hversu mikilvægt það er að hafa fjölbreyttar
verslanir í bænum. Á þeim 14 árum sem ég hef ritstýrt
Fjarðarpóstinum hafa ótrúlega margar verslanir lagt
upp laupana og oftast hafa aðrar komið í staðinn.
Margir muna þegar hverfisverslanirnar voru víða en
hurfu þegar íbúarnir snéru við þeim baki. Það sama
mun gerast í miðbæ Hafnarfjarðar ef íbúar Hafnarfjarð
ar leita alltaf langt yfir skammt. Við getum ekki búist
við því að hafa fjölbreyttar verslanir í bænum ef við
skiptum ekki við okkar kaupmenn. Á hinn bóginn geta
kaupmenn tekið höndum saman og staðið fyrir öflugri
fræðslu fyrir sölufólk og eigendur og gert hafnfirskar
verslanir eftirsóttar vegna góðrar þjónustu.
Gleðileg jól kæri lesandi og þökk fyrir árið 2015!
Guðni Gíslason ritstjóri.
leiðarinn
www.uth.is -uth@uth.is Stapahrauni 5, Hfj. - Sími 565-9775
Frímann
s: 897 2468
Hálfdán
s: 898-5765
Ólöf
s: 898 3075
ÚTFARARÞJÓNUSTA
HAFNAFJARÐAR
FRÍMANN & HÁLFDÁN
ÚTFARARÞJÓNUSTA
35 ár
Stolt að þjóna ykkur
Útfararskreytingar
kransar, altarisvendir,
kistuskreytingar,
hjörtu
Bæjarhrauni 26
Opið til kl. 21 öll kvöld
Símar 555 0202 og 555 3848
www.blomabudin.is
Útgefandi: Keilir ehf.
kt. 480307-0380
Ritstjóri: Guðni Gíslason
Vinnsla: Hönnunarhúsið ehf. Áb.maður: Steingrímur Guðjónsson.
Ritstjórn: 565 4513, 896 4613, ritstjorn@fjardarposturinn.is
Auglýsingar: 565 3066, auglysingar@fjardarposturinn.is
Prentun: Steinmark ehf. • Dreifing: Íslandspóstur
ISSN 1670-4169 Vefútgáfa: ISSN 1670-4193
Fjarðarpósturinn, Bæjarhrauni 2, 220 Hafnarfirði
Vertu með á Facebook
Næsta blað kemur út
7. janúar 2015