Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 2
Jafnaðarmenn voru
lengi með það á
sinni stefnuskrá að hafna
þessu.
Örnólfur Thors-
son, forsetaritari
VERÐ FRÁ 72.900 KR.
FLUG OG GISTING
M.V. 2 FULLORÐNA OG 2 BÖRN
NÁNAR Á UU.IS EÐA Í SÍMA 585 4000
Veður
Hæg norðlæg eða breytileg átt.
Skúrir í flestum landshlutum, en
úrkomulítið vestan til. Bjart að
mestu sunnan- og vestanlands
og þurrt að kalla. Hiti 7 til 17 stig,
hlýjast á Suðurlandi. SJÁ SÍÐU 32
SAMFÉLAG „Oft gera menn það af
stjórnmálaástæðum, sem þekkt
er,“ segir Örnólfur Thorsson for-
setaritari. Síðastliðin þrjátíu ár
hefur forseti Íslands sæmt um
900 íslenska ríkisborgara heiðurs-
merki hinnar íslensku fálkaorðu.
Tuttugu og fjórir einstaklingar
hafa hafnað orðunni á því tíma-
bili.
Sext án einst ak lingar vor u
sæmdir fálkaorðunni síðastliðinn
mánudag, þjóðarhátíðardaginn
17. júní, en sem kunnugt er má
sæma innlenda og erlenda ein-
staklinga orðunni fyrir vel unnin
störf í þágu þjóðarinnar, einstakra
þjóðfélagshópa eða landshluta,
eða í þágu mikilvægra og góðra
málefna á Íslandi eða á alþjóða-
vettvangi. Um er að ræða æðsta
heiðursmerki sem íslenska ríkið
veitir mönnum.
Athygli vekur því að á þriðja
tug einstaklinga hafi neitað að
taka við orðunni. Örnólfur segir
aðspurður að það sé virkilega
s j a l d g æ f t e n
sögulega oft gert
af stjór nmála-
ástæðum.
„ J a f n a ð a r -
menn voru lengi
með það á sinni
s t e f n u s k r á a ð
hafna þessu. Þess vegna
þiggja jafnaðarmenn í Sví-
þjóð til dæmis ekki orður.“
Aðspu rðu r k veðst
Örnólfur, sem einn-
ig er orðuritari orðu-
nefndar, ekki geta veitt
Fréttablaðinu upplýsingar
um hverjir það séu sem síð-
astliðna áratugi hafi hafnað
að veita orðunni viðtöku.
„Slíkar upplýsingar liggja
ekki fyrir og ég er ekki reiðu-
búinn að veita þær. Þetta er
einkamál hvers og eins og
þett a varðar persónuver nd
fólks.“
Aðspurður hvort dæmi séu
um að fólk hafi hafnað fálkaorðu
nýverið segir Örnólfur, sem hefur
verið viðloðandi orðunefndina frá
2005, mjög lítið um það og raunar
afar sjaldgæft. Aðspurður hvenær
mest hafi verið um að menn höfn-
uðu fálkaorðu kveðst hann ekki
hafa þær upplýsingar.
„Allavega ekki á síðustu 10-15
árum.“
Stofnað var til fálkaorðunnar
árið 1921 þegar Kristján konungur
X. og Alexandrine drottning heim-
sóttu Ísland. Sumarið 1921 var
gefið út konungsbréf um stofnun
hinnar íslensku fálkaorðu, undir-
ritað í Reykjavík 3. júlí það ár.
Fálkinn vísar til þess að fálkar
voru taldir glæsileg gjöf til tignar-
manna á fyrri öldum og voru lengi
útf lutningsvara frá Íslandi, auk
þess sem fálki var uppistaðan í
skjaldarmerki Íslands á árunum
1903-1919, samkvæmt upplýsing-
um af vef forsetaembættisins.
mikael@frettabladid.is
24 Íslendingar neitað
að þiggja fálkaorðuna
Síðastliðna þrjá áratugi hefur forseti Íslands sæmt um níu hundruð Íslendinga
heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Tuttugu og fjórir hafa hins vegar
hafnað því að þiggja þetta æðsta heiðursmerki íslenska ríkisins.
Sextán einstaklingar voru heiðraðir með fálkaorðu 17. júní síðastliðinn.
Femíníska pönkrokkhljómsveitin Pussy Riot frá Rússlandi kom fram á
Secret Solstice-hátíðinni í gær. Fjöldi gesta lagði leið sína í Laugardalinn á
fyrsta tónleikakvöldinu. Hátíðin er nú haldin í sjötta sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Pussy Riot á Secret Solstice
SAMFÉLAG Þær verða væntanlega
nokkrar útskriftarveislurnar í
dag þegar háskólar borgarinnar
brautskrá 2.637 nemendur.
Alls verða 2.010 kandídatar
brautskráðir frá Háskóla Íslands
í tveimur athöfnum í Laugardals-
höll. Klukkan tíu verða brautskráð-
ir kandídatar í grunnnámi, það er
BA-, B.Ed.- og BS-námi. Klukkan
tvö verða svo brautskráðir þeir sem
lokið hafa framhaldsnámi til próf-
gráðu, það er meistara- og kandí-
datsnámi.
Brautskráningarathöfn Háskól-
ans í Reykjavík hefst í dag klukkan
eitt og fer hún fram í Eldborgarsal
Hörpu. Þá verða alls 627 kandídat-
ar brautskráðir, 400 úr grunnnámi,
225 úr meistaranámi og tveir með
doktorsgráðu.
Spáð er blíðskaparveðri í borg-
inni í dag svo viðra ætti vel til
veisluhalda. – ds
Útskrift 2.637
háskólanema
LÖGREGLUMÁL Karlmaður hefur
verið ákærður fyrir að hafa fyrir tæpu
ári kastað brúsa með bensíni að íbúð-
arhúsi í Reykjavík til að valda konu,
starfsmanni Tryggingastofnunar rík-
isins, ótta og með því reyna að neyða
hana til að leiðrétta og endurgreiða
bótagreiðslur til hans.
Í ákærunni kemur fram að fyrr
þann sama dag hafði maðurinn
hótað ótilgreindum starfsmönnum
stofnunarinnar líkamsmeiðingum.
Maðurinn er einnig ákærður fyrir
valdstjórnarbrot vegna tveggja
tölvupósta sem hann sendi á vinnu-
netfang sama nafngreinda
starfsmanns
Trygginga-
stofnunar
í febrúar
s í ð a s t -
liðnum. Í
fyrri póst-
inum var
orðsending
til star fs-
m a n n s i n s
um að hann
þyrfti að heimsækja fjölskyldu henn-
ar aftur auk óljósrar hótunar um að
siga nafngreindum alþingismanni á
hana í því skyni að nauðga henni.
Í síðari póstinum sem sendur var
degi síðar segir maðurinn að konan
og dætur hennar eigi skilið að vera
stungnar með skítugri sprautunál.
Hann hati þær og viti hvar þær búi.
Þá er maðurinn einnig ákærður
fyrir brot á fíkniefnalöggjöfinni og
vopnalögum en við húsleit fundust
10 haglaskot í náttborði mannsins,
sem hefur ekki skotvopnaleyfi.
Ákæran er gefin út af héraðssak-
sóknara. – aá
Ákæra fyrir
grófa hótun
Bensínbrúsa
var kastað
að húsi.
Fleiri myndir frá Secret Solstice er að finna á +Plússíðu
Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er í Fréttablaðs-
appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-B
D
C
C
2
3
4
3
-B
C
9
0
2
3
4
3
-B
B
5
4
2
3
4
3
-B
A
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K