Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 46

Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 46
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru Guðlaugar Hinriksdóttur Starfsfólki heimahjúkrunar, Sjúkrahúss Akraness og dvalarheimilisins Höfða sendum við hlýjar kveðjur og þakkir. Börn, tengdabörn og ömmubörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Harðar Sigurðssonar vélstjóra og svæðanuddara. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólkinu á 2. hæð - Norður á hjúkrunarheimilinu Mörkinni, Suðurlandsbraut 66 í Reykjavík, fyrir einstaka umönnun og hlýhug í hans garð og okkar þann tíma sem hann dvaldi þar. Ásta Harðardóttir Björn Helgason Ingólfur Harðarson Berglind Líney Hafsteinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Klettaskóli, Suðurhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Sigurbjörnsdóttir Árskógum 6, Reykjavík, (áður Melási 9, Garðabæ), verður jarðsungin miðvikudaginn 26. júní í Fríkirkjunni í Hafnarfirði, klukkan 13. Geir Magnússon Sigurbjörn Geirsson Gullí Berg Gunnþórunn Geirsdóttir Kristinn Kolbeinsson Hrafnhildur Geirsdóttir Magnús Geirsson Ragnhildur Sumarliðadóttir Þorvaldur Geirsson Auður Árnadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Einlægar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýju og vinarhug við andlát og útför Adams Þórs Þorgeirssonar Háholti 5, Akranesi, sem lést 5. júní sl. Sérstakar þakkir til heimaþjónustu Akraneskaupstaðar og starfsfólks deildar A3, Sjúkrahúsi Akraness. Ólöf Erna Adamsdóttir Hreinn Haraldsson Friðrik Adamsson Lise Dandanell Auður Adamsdóttir Gunnlaugur V. Snævarr Þorgeir Adamsson Hrönn Hilmarsdóttir barnabörn og langafabörn. Landsmenn kannast við Þór Tul-inius sem leikara, bæði á sviði og í kvikmyndum. Á síðasta leikári lék hann í Svartlyngi í Tjarnarbíói og árið 2015 í Enda- tafli sem hann hlaut Grímuverðlaunin fyrir sem besti karlleikari ársins. Hann kveðst hafa verið í bekk með sjö nem- endum í Leiklistarskóla Íslands í fjögur ár, 1981-85. „Það var æði. Nú er þetta orðið þriggja ára nám og ábyggilega fleiri nemendur í bekk, ætli unga fólkið sé ekki bara orðið greindara en við og f ljótara að læra,“ segir hann. „En þetta er krefjandi starf, ég hef unnið bæði sem leikari og leikstjóri, en minna verið í því síðustu ár og meira í ferðamennsku.“ Hann kveðst hafa byrjað í leiðsögn í lok menntaskólans. „Ég tala frönsku því ég ólst upp að hluta til í Frakklandi og franskur vinur minn bað mig að fara með franska ferðalanga um landið. Ég sagðist nú ekki vera fróður um það. „Ja, þú veist alltaf meira en þeir,“ svar- aði hann. Þannig fór ég af stað og var í þessu öll námsárin á sumrin. Fyrir tíu árum fór ég að taka eina og eina ferð sem ökuleiðsögumaður, það er svo notalegt. Svo var það árið 2012 sem bíll kom upp í hendurnar á mér. Ég var að leika ein- leik í Landnámssetrinu í Borgarnesi og á leiðinni heim stoppaði ég til að fá mér pylsu. Við sjoppuna stóð nákvæmlega eins bíll og mig langaði í. Ökumaðurinn sat undir stýri, ég bankaði á rúðuna og spurði hvort hann vissi hvað svona bíll kostaði. „Já, ég var að setja þennan á sölu,“ sagði hann. Þannig að ég skellti mér út í þetta, tók öll réttindi og stofnaði fyrirtæki. Yfirleitt eru það forseldar ferð- ir sem ég er ráðinn til að taka að mér.“ Þór segir reynslu leikarans koma sér vel í leiðsögninni. „Þetta er svolítið uppi- stand, eins og að vera með einleik,“ segir hann glaðlega og kannast ekki mikið við vandamál í starfinu. „Þetta er svo flott land að fólkið er dolfallið yfir því og verður ósjálfrátt svo þakklátt og glatt. Ísland er svo mikið í mótun, fólk finnur alls staðar kraftinn. Skógleysið gerir það líka sérstakt, maður sér svo langt. Við erum ofsalega heppin að eiga þetta land. Það hríslast um mig aðdáun þegar ég er að labba einhvers staðar um það með hópa.“ Nú berst talið að fjölskyldunni. Þór upplýsir að konan hans, Elísabet Katrín Friðriksdóttir, sé úr Eyjafjarðarsveit- inni. „Við kynntumst gegnum leiklistina þegar ég var að leikstýra Góða dátanum Svejk hjá Freyvangsleikhúsinu árið 2011. „Ég á tvær uppkomnar dætur og hún á tvo uppkomna syni. Svo á ég dóttur- dóttur sem heitir Anna Sóley Kristjáns- dóttir,“ bætir hann við stoltur. Spurður hvort hann ætli að halda upp á sextugsafmælið sem er í dag, svarar Þór: „Ja, fjölskyldan kemur í kaffi, svona nánasta fólkið, kannski geri ég eitthvað meira seinna.“ gun@frettabladid.is Leiðsögn líkist einleik Þór Tulinius er sextugur í dag og ætlar að kalla á sína nánustu í kaffi. Hann er leik- ari og líka ökuleiðsögumaður. Segir ferðafólk dolfallið yfir okkar einstaka landi. Þór segir Tuliniusarnafnið hafa komið til landsins með langalangafa hans, Carli Tulinius. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Við sjoppuna stóð nákvæm- lega eins bíll og mig langaði í. Ökumaðurinn sat undir stýri, ég bankaði á rúðuna og spurði hvort hann vissi hvað svona bíll kostaði. „Já, ég var að setja þennan á sölu,“ sagði hann. 2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R26 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 2 2 -0 6 -2 0 1 9 0 9 :3 7 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 4 3 -D 6 7 C 2 3 4 3 -D 5 4 0 2 3 4 3 -D 4 0 4 2 3 4 3 -D 2 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 2 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.