Fréttablaðið - 22.06.2019, Blaðsíða 18
Sumarið
er tíminn
Jóhann, Rut, Stefán, Bríet Eva
og Helga hafa öll fundið sér
skemmtileg sumarstörf og ætla
þrátt fyrir vinnu að njóta sum-
arsins með vinum sínum, ferðast
og skapa minningar. Þau eiga sér
stóra drauma um framtíðina og
þann tíma sem fram undan er.
Jóhann er alinn upp í Kópavogi en býr nú í Hafnarfirði. Hann stundar nám við MS og byrjar í þriðja bekk í haust. Í sumar nýtur hann þess að vinna úti í veðurblíðunni sem leikið hefur við borgarbúa. „Ég er að vinna við garðslátt
með þremur vinum mínum og það er mjög gaman hjá okkur, en svo ætla ég að
reyna að fara til Indlands seinna í sumar og fara í sjálf boðaliðastarf,“ segir
Jóhann.
„Ég hef farið tvisvar áður, fyrst fyrir tveimur árum, þá fór ég bara í ferða-
lag, og svo í þetta sama prógramm í fyrra,“ segir Jóhann en í framtíðinni
dreymir hann um að stofna sitt eigið fyrirtæki þar sem hann getur hjálpað
krökkum að fá sömu tækifæri og hann hefur fengið.
„Draumastarfið mitt væri að reka mitt eigið fyrirtæki, svona ferðaþjón-
ustufyrirtæki þar sem ég myndi líka sjá um aktívistastörf fyrir krakka,
þannig að þau gætu fengið að upplifa eitthvað svipað og ég er að upplifa.“
Áhugamál Jóhanns eru afar fjölbreytt en hann hefur bæði gaman af
því að vera með vinum sínum og að kynnast nýju fólki. „Ég hef mikinn
áhuga á félagslífi og því að vera aktívur, ýmiss konar aktívisma. Svo
elska ég söngleiki, gjörsamlega elska þá.“
Á sumrin finnst Jóhanni skemmtilegast að skemmta sér með góðu
fólki og sinna aktívistastarfi. „Ég er að fara í MS-útilegu og svo er ég að
fara til Sviss með fjölskyldunni. Í haust ætla ég svo til Berlínar með
nokkrum vinum og svo vonandi til Indlands,“ segir Jóhann.
Í sumar er Rut að vinna á Grund við Hringbraut þar sem hún fetar í fótspor móður sinnar, en hún sinnti sama starfi á sínum yngri árum. „Ég er að vinna í borðstofunni og við gefum tveimur deildum
að borða. Þetta er bara mjög fín vinna, ekkert endilega það skemmti-
legasta sem ég hef gert en bara fínt.“
Helsta áhugamál Rutar er handbolti og spilar hún með Gróttu á Seltjarnar-
nesi. „Ég er búin að vera í handbolta síðan ég var sex ára, tók mér einu sinni eitt ár í
frí þegar ég var sjö ára en byrjaði aftur og núna er ég í meistaraflokki,“ segir Rut, en
sumarið hjá henni fer að mestu leyti í að vinna og sinna handboltanum.
„Ég ætla mest bara að vinna og æfa. Handboltinn fer í frí í júlí en þá æfum við bara
sjálfar, ég ætla að vera í CrossFit Granda þá. Annars er ég með mjög lítið planað, ég
ætla að fara á Þjóðhátíð um verslunarmannahelgina með vinkonum mínum og svo
ætla ég að fara í Kvennó-útileguna í júlí.“
Rut ætlar að mennta sig í verkfræði eftir að hún lýkur námi í Kvennaskólanum og
dreymir um að vinna á því sviði. „Ég hef mjög mikinn áhuga á heilbrigðisverkfræði, væri
til í að vinna hjá Össuri eða á spítala eða eitthvað svoleiðis, hjálpa einhvers staðar til.“
Aðspurð að því hvað henni finnist skemmtilegast að gera á sumrin segir Rut að sam-
vera með vinum geri sumarið skemmtilegt. „Mér finnst mjög gaman að fara í ferðalög,
svo bara að vera með vinum mínum, gera eitthvað skemmtilegt og hafa gaman.“
Jóhann
Ágúst
Ólafsson
Aldur: 18 ára.
Skóli: Menntaskólinn við Sund.
Uppáhaldsmatur: Burrito.
Uppáhaldsdrykkur: Frappuchino.
Uppáhaldsfag: Félagsfræði og saga.
Það sem ég er að hlusta á: Ég hlusta á
alla tónlist, frá öllum tímabilum og
allar tegundir, en ef ég ætti að
nefna eitt þá elska ég ljóða-
slamm.
Rut
Bernódusdóttir
Aldur: 17 ára að verða 18.
Skóli: Kvennó.
Uppáhaldsmatur: Grillaður hamborgari.
Uppáhaldsdrykkur: Vatn.
Uppáhaldsfag: Eðlisfræði og stærðfræði.
Það sem ég er að hlusta á: Beyoncé, Lemonade,
þetta er svo góð plata að ég get ekki hætt. Svo
hlusta ég mikið á hlaðvörp. Til dæmis svona
„inspirational“ hlaðvörp um æfingar og
að vera ekki latur heldur að gera bara
hlutina.
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R18 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-C
7
A
C
2
3
4
3
-C
6
7
0
2
3
4
3
-C
5
3
4
2
3
4
3
-C
3
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K