Fréttablaðið - 22.06.2019, Síða 10
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Einar Þór Sverrisson FORSTJÓRI: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir ÚTGEFANDI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
RITSTJÓRAR: Davíð Stefánsson david@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is.
Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is
MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
kristin@frettabladid.is
Mín skoðun Sif Sigmarsdóttir
Í þessu
kristallast að
mörgu leyti
vandamál
stjórnmála
síðustu ára,
þar sem
stórkarla-
legar yfir-
lýsingar sem
eiga að slá
ódýrar
pólitískar
keilur virðast
helst líklegar
til árangurs.
Bretar hafa fylgst af óvenjumiklum áhuga með leið-togakjöri Íhaldsflokksins sem stendur nú yfir. Fyrir því eru tvær ástæður. Sú fyrri: Sá sem verður leiðtogi
flokksins verður einnig sjálfkrafa forsætisráðherra. Sú
síðari: Brexit – hvernig í ósköpunum hyggst nýr leiðtogi
leysa Brexit-pattstöðuna sem fráfarandi forsætisráðherra,
Theresu May, reyndist ómögulegt að ráða fram úr?
Fylgi Íhaldsflokksins er í sögulegum lægðum. Nýr
flokkur Nigel Farage, Brexit-flokkurinn, sem berst fyrir
hörðu Brexit, sópar til sín fylgi. Flestir þeirra tíu frambjóð-
enda sem gáfu kost á sér til leiðtogakjörs Íhaldsflokksins
kepptust við að sýnast jafnharðir og Farage. Með einni
undantekningu.
Rory Stewart er stjórnmálamaður sem fáir höfðu heyrt
um en er nú á allra vörum. Stewart gekk í Eton og Oxford
og starfaði í bresku utanríkisþjónustunni á Balkanskag-
anum og í Írak. Hann settist á þing 2010 og er ráðherra
alþjóðaþróunarmála. Stewart, sem talað hefur gegn því
að Bretar yfirgefi Evrópusambandið án samnings, þótti
ekki líklegur til stórræða í leiðtogakjörinu. Stewart er tals-
maður málamiðlana, fetar meðalveginn og kýs almenna
skynsemi umfram hugmyndafræði. En öllum að óvörum
vakti brennandi ástríða Stewart fyrir yfirvegun og meðal-
hófi eldmóð með almenningi. Samfélagsmiðlar loguðu.
Hundruð þúsunda fylgdust með honum á Twitter. Mynd-
bönd þar sem Stewart gekk um götur og spjallaði við fólk á
förnum vegi fóru sem eldur um sinu.
Óvæntri sigurgöngu Stewart lauk í vikunni. Tveir
frambjóðendur komust í lokaumferð leiðtogakjörsins
sem fram fer í næst mánuði, þeir Boris Johnson og Jeremy
Hunt. Telja flestir að Johnson beri öruggan sigur úr býtum.
Klukkan tifar
Hinn 31. október stendur til að Bretland gangi úr Evrópu-
sambandinu. Meirihluti þingsins er á móti því að það
verði gert án útgöngusamnings. Boris Johnson ætlar hins
vegar ekki að láta þingið stoppa sig. Hefur hann gefið í
skyn að hann sé reiðubúinn að læsa dyrum þingsins og
loka þingmenn úti. Takist þingi ekki að koma saman til
að stöðva útgöngu án samnings fyrir 31. október mun
Bretland sjálfkrafa falla samningslaust út úr Evrópusam-
bandinu.
Klukkan tifar og dómsdagur nálgast. Margir ótt-
ast afleiðingarnar sem hart Brexit mun hafa á efnahag
Bretlands, fyrirtæki og fólk. Íhaldsmenn eru þó hvergi
bangnir. Þeir virðast reiðubúnir að fórna hverju sem er
fyrir hugmyndafræðilega tilraun sína. Skoðanakönnun
sem gerð var í vikunni sýnir að meirihluti Íhaldsmanna
vill Brexit jafnvel þótt það stórskaðaði efnahagslífið, leiddi
af sér sjálfstæði Skotlands og endalok Íhaldsflokksins.
Slagorðið er: Brexit, sama hvað.
Dómsdagur nálgast
En hingað heim: Birgir Þórarinsson, þingmaður Mið-
flokksins, vill að málstaður þeirra sem halda því fram
að loftslagsbreytingar séu ekki af manna völdum verði
kynntur í skólum.
Neyðarástand ríkir í loftslagsmálum. Klukkan tifar,
dómsdagur nálgast og rétt eins og í tilfelli Brexit víla
óprúttnir stjórnmálamenn ekki fyrir sér að gera sér mat úr
yfirvofandi ógn.
Boris Johnson berst fyrir Brexit – óháð afleiðingum.
Hann íhugar að læsa þingið úti til að tryggja Íhalds-
flokknum atkvæði öfgamanna sem fylkja sér nú að baki
Nigel Farage. Birgir Þórarinsson vill hins vegar læsa okkur
öll inni – inni í brennandi húsi þar sem logar svíða hold og
reykur mettar lungu – til að tryggja Miðflokknum atkvæði
öfgamanna sem leita sér athvarfs.
Það glittir í von. Vinsældir Rory Stewart sýna að
hljómgrunnur er fyrir málflutningi þeirra sem tala fyrir
skynsemi og hlusta á rök. En svo að meðalhófið megi hafa
sigur þurfum við að taka saman höndum og standa uppi
í hárinu á tækifærissinnum sem segja hvað sem er fyrir
atkvæði. Því það er ólíðandi að framtíð lífríkis jarðar sé
notuð sem beita í atkvæðaveiðum ábyrgðarlausra stjórn-
málamanna.
Athvarf öfgamanna
Fátt getur komið í veg fyrir að Boris Johnson verði kjörinn leiðtogi breska Íhaldsflokksins og setjist á stól forsætis-ráðherra um miðjan næsta mánuð. Johnson hefur haft yfirburðastöðu í valferli f lokksins, en eftir að hafa sigtað
frambjóðendur út einn af öðrum hafa þingmenn nú
komið sér saman um þá tvo sem almennir f lokks-
menn velja á milli: Boris Johnson og Jeremy Hunt
utanríkisráðherra. Frambjóðendurnir tveir halda nú
í fundaferð um landið, en um 160 þúsund flokks-
menn hafa kosningarétt í kjörinu.
Þið lásuð rétt, 160 þúsund manns velja nú for-
sætisráðherra fyrir 60 milljóna þjóð. Talandi um að
valdefla grasrótina.
Ljóst er að Hunt mun eiga á brattann að sækja því
Johnson nýtur vinsælda meðal f lokksmanna. Hunt
mun hamra á meintum óáreiðanleika og tækifæris-
mennsku keppinautarins. Ekki skortir dæmin til
að nefna. Sem borgarstjóri í London var Johnson
þekktur fyrir uppátæki sín og kæruleysislegt fas
frekar en stjórnvisku.
Í borgarstjóratíð sinni sagðist hann frekar
myndu hlekkja sig við f lugbraut en að heimila
byggingu þriðju f lugbrautarinnar á Heathrow-
f lugvelli. Þegar síðar kom að því að kjósa um málið,
er hann var orðinn þingmaður, skrópaði hann í
atkvæðagreiðslunni. Í Brexit-málinu er Johnson
legið á hálsi fyrir að láta eigin frama ráða ferð en
ekki almannahag.
Hunt þykir hins vegar traustur. Hann hefur
reynslu af viðskiptum og byggði upp eigið fyrirtæki
frá grunni. Hann þótti ágætur heilbrigðisráðherra,
og hefur farnast mun betur en Johnson eftir að hann
tók við af honum sem utanríkisráðherra. Málflutn-
ingur hans í Brexit-málinu er sömuleiðis jarðtengd-
ari en klisjukennt tal Johnsons.
Ljóst er að Johnson nýtur hylli hins almenna
flokksmanns og mun því að öllum líkindum standa
uppi sem sigurvegari. Staðan í Brexit-málinu er hins
vegar slík að nánast ómögulegt mun verða fyrir hann
að þóknast fylgismönnum sínum.
Gallinn við Johnson er nefnilega sá að þegar allt
kemur til alls reynir hann, eins og aðrir popúlistar,
að elta almenningsálitið í stað þess að móta það. Í
þessu kristallast að mörgu leyti vandamál stjórn-
mála síðustu ára, þar sem stórkarlalegar yfirlýsingar
sem eiga að slá ódýrar pólitískar keilur virðast helst
líklegar til árangurs.
Þetta þekkjum við hér á landi og okkar eigin
íhaldsflokkur virðist við það að liðast í sundur
af sömu ástæðu. En í því hljóta að felast tækifæri.
Alvöru leiðtogar lýsa stefnumálum og reyna að fá
kjósendur til fylgilags, en elta ekki tiktúrur háværrar
grasrótar sem ekkert merkilegra virðist hafa við tím-
ann að gera en lemja lyklaborðið móð og másandi.
Stefnumál hægri f lokka eru ekki úrelt. Skynsam-
legar markaðsáherslur, alþjóðahyggja og agi í fjár-
málum. Þau vantar sannfærandi málsvara sem þora
að koma til dyranna eins og þeir eru klæddir.
Leiða eða fylgja
EKKERT
BRUDL
Chick’n Hot Wings
Kjúklingavængir, frosnir, 2,5 kg
FORELDAÐ
Aðeins að hita
kr./2,5 kg1.498
56-60
bitar í poka
Nýtt í Bónus!
2 2 . J Ú N Í 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R10 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SKOÐUN
2
2
-0
6
-2
0
1
9
0
9
:3
7
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
3
-F
4
1
C
2
3
4
3
-F
2
E
0
2
3
4
3
-F
1
A
4
2
3
4
3
-F
0
6
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
2
2
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K