Fréttablaðið - 26.06.2019, Qupperneq 18
aði að takast á við þau orkuskipti
sem eru við sjóndeildarhring. Hér
á landi sem annars staðar eru raf-
magnsbílar hlaðnir við heimili fólks
þannig að til lengri tíma litið er aug-
ljóst að minni þörf er hjá viðskipta-
vinum að fara inn á bensínstöðvar
en staðsetningar geta hins vegar
skipt máli hvað varðar möguleika
á sölu á öðrum vörum. Við höfum
hægt og bítandi verið að auka vöru-
framboð á öðru en eldsneyti og selj-
um til dæmis töluvert af skyndibita
fyrir fólk á ferðinni. Og ef þú horfir
til baka þá hefur landslagið breyst.
Það er ekki mikið af söluturnum
lengur vegna þess að bensínstöðvar
hafa tekið við hlutverkinu,“ segir
Jón Ólafur og bætir við að til lengri
tíma litið felist tækifæri í því að geta
nýtt staðsetningu verslana Haga til
að koma upp eldsneytisdælum.
„Nú erum við orðin hluti af sam-
stæðu Haga og þá verður að sjálf-
sögðu horft til þess hvernig við
getum nýtt þær staðsetningar sem
sameinað félag býr yfir. Til dæmis
gætum við ákveðið að loka á ein-
hverjum stað vegna þess að hann
er vænlegur til uppbyggingar á
annarri starfsemi og flutt dælurnar
á bílaplan fyrir utan stórmarkað.
Við höfum skoðað ýmis tækifæri
af þessu tagi í tengslum við þennan
samruna en myndin á eftir að skýr-
ast betur. Einstaka lóðir væri áhuga-
vert að þróa en aðrar eru litlar og
þar verða stöðvarnar líklega áfram.
Allir í þessari grein eru nú að skoða
möguleikana sem felast í lóðunum.“
Reykjavíkurborg greindi í vor
frá áformum sínum um að fækka
bensínstöðvum um allt að helming
fyrir árið 2025. Mögulegt verður
fyrir lóðarhafa að f lytja dælur
frá núverandi staðsetningu yfir á
nýja staðsetningu fjölorkustöðvar,
sem tekur minna rými, til dæmis á
bílastæðum við matvöruverslanir.
Skilyrði fyrir slíkum f lutningi er
að samningar náist um lokun eldri
bensínstöðvar og að heildarfjöldi
dæla fyrir jarðefnaeldsneyti lækki.
Þá verður lóðarhöfum þessara lóða
heimilt að láta vinna hugmyndir að
breyttu deiliskipulagi. Jón Ólafur
segir áform borgarinnar brött og
óraunhæf.
„Ég tel að jarðefnaeldsneyti muni
gegna veigamiklu hlutverki næstu
10-20 árin. Þó svo að rafmagns-
bílum fjölgi nokkuð næstu árin sem
og tengiltvinnbílum, þá eru um 400
þúsund ökutæki í landinu og stærsti
hluti þeirra er á suðvesturhorni
landsins. Þessi ökutæki verða hér
áfram og það á eftir að selja 150-
200 þúsund bíla sem verða knúnir
jarðefnaeldsneyti fram til 2030 sem
munu endast í 10-15 ár. Því skýtur
skökku við að það eigi að skera
þjónustuna niður með drama-
tískum hætti. Ég geri hins vegar ráð
fyrir að raf bílum og tengiltvinn-
bílum muni fjölga jafnt og þétt og
það muni mögulega draga úr magni
jarðefnaeldsneytis á þessum tíma,“
segir Jón Ólafur.
„Borgarbúar þurfa að hafa aðgang
að þessari þjónustu í borginni og
maður veltir fyrir sér hvort þeir
muni þurfa að leita til nágranna-
sveitarfélaga til þess að taka bens-
ín.“
Jón Ólafur segist ekki vera mót-
fallinn því að bensínstöðvum fækki
en bendir á að ef olíufélag hafi
áhyggjur af því að hafa of margar
stöðvar geti það ákveðið að loka
stöðvum að eigin frumkvæði.
„Ég sé ekki þörf fyrir inngrip af
hálfu hins opinbera vegna þess
að stöðvunum mun fækka í takt
Við stefnum að því
að selja valdar lóðir
eða jafnvel leggja lóðir inn í
spennandi fasteignaverkefni
sem við síðan
seljum frá
okkur.
Benedikt Ólafs-
son, framkvæmda-
stjóri fjármálasviðs
Skeljungs
Ol íu félög s t a nd a frammi fyrir rekstr-aráskorunum til lengri tíma litið. Útlit er fyrir að olíunotkun dragist
saman á næstu áratugum og ólík-
legt er að félögin fái mikinn skerf af
rafbílavæðingunni sem fram undan
er. Smásölurisarnir tveir sem urðu
til eftir samruna olíufélaga og dag-
vörukeðja á síðasta ári horfa til þess
að samþætta reksturinn þannig að
olían færist nær matvörukeðjunum.
Þá skapast tækifæri til fasteignaþró-
unar á þeim verðmætu lóðum sem
olíufélögin búa yfir.
Stjórnendur Olís og Skeljungs
segja í samtali við Markaðinn
að félögin skoði nú tækifæri til
uppbyggingar á lóðum sínum en
Atlantsolía er í allt annarri stöðu.
Þessi þróun mun velta á stefnu
borgarinnar sem vill snarfækka
bensínstöðvum.
N1 er það olíufélag sem rekur
fæstar stöðvar á höfuðborgar-
svæðinu. Eggert Þór Kristófersson,
forstjóri Festar, hefur áður gefið
út að félagið hafi óskað eftir því að
færa dælur af lóð félagsins á Ægisíðu
og yfir á lóðina á Fiskislóð þar sem
Krónan er. Sagði hann að þá væri
hægt að hefja uppbyggingu á Ægi-
síðulóðinni og nefndi íbúðabyggð
sem dæmi.
Með samruna N1 og Festar sáu
stjórnendur félaganna fyrir sér
að búa til samþætt kerfi þar sem
í þéttbýlinu eru saman matvöru-
verslanir og dælur en í dreif býlinu
veitingastaðir og dælur. Festi á og
rekur fasteignir sem eru samtals
112.000 fermetrar. Fasteignir félags-
ins eru bókfærðar á 28 milljarða
króna og fjárfestingafasteignir á
8,7 milljarða. Samtals nemur upp-
hæðin 36,7 milljörðum króna en
til samanburðar er markaðsvirði
fasteignafélagsins Eikar rúmlega
31 milljarður króna. Eggert Þór
hefur áður lýst því yfir að með því
að auka viðskipti við viðskiptavini
á færri fermetrum sé hægt að losa fé
til eigenda Festar.
Fimm bensínstöðvar N1 á
höfuðborgarsvæðinu, ásamt vöru-
merkinu „Dælan“, voru keyptar af
fjárfestahópi sem Einar Örn Ólafs-
son fór fyrir í vor en Samkeppnis-
eftirlitið setti skilyrði um sölu á
stöðvunum til að unnt væri að
heimila samrunann. Í samantekt
fyrirtækjaráðgjafar Landsbankans,
sem hafði umsjón með söluferlinu
fyrir hönd N1, kom fram að stöðv-
arnar væru vel staðsettar. Tækifæri
gætu falist í því að fá leyfi til þess að
færa eldsneytisstöð innan sveitar-
félags.
Hagar og Olís skoða nýtingu á
ýmsum lóðum samstæðunnar
Hagar bókfæra fasteignir sínar á
rúma 11 milljarða króna og fjár-
festingarfasteignir á 3,8 milljarða
króna, alls 14,8 milljarða. Hagar
hafa hafið viðræður við Reykja-
víkurborg um þróun á 20 þúsund
fermetra landsvæði við Stekkjar-
bakka. Félagið festi kaup á reitnum
fyrir fáeinum árum en Olís er með
starfsemi á næstu lóð. Eftir samein-
ingu fyrirtækjanna var ákveðið að
skipuleggja uppbyggingu á svæðinu
og hljóða áformin upp á 400 íbúðir
ásamt verslun og þjónustun. Haft
var eftir Finni Árnasyni í Markað-
inum í vor að hann sæi fyrir sér
Bónus-verslun og ÓB bensínstöð.
Auk þess væru umtalsverð verð-
mæti fólgin í byggingarverkefninu,
meðal annars vegna nálægðar við
fyrirhugaða Borgarlínu.
Hagar munu ekki byggja og selja
íbúðir heldur finna samstarfsaðila
fyrir verkið. Sagði Finnur að hægt
væri að selja reitinn að hluta eða í
heilu lagi til verktaka eftir að nýtt
skipulag hefur fengist samþykkt. Þá
horfa Hagar til þess að reisa Bónus-
verslun á Sæbraut ásamt ÓB stöð á
lóð í eigu Olís.
Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri
Olís, segir í samtali við Markaðinn
að eldsneytissala sé hefðbundinn
bransi sem er að taka breytingum.
„Það er mikil áskorun fyrir hefð-
bundið fyrirtæki á eldsneytismark-
Olíufélögin í
uppbyggingu
Þrjú stærstu olíufélögin sitja á verðmætum lóðum
og skoða tækifæri til uppbyggingar á fasteignum.
Horfur á minnkandi olíunotkun á næstu áratug-
um eru að breyta landslaginu á markaðinum. Sala
á olíu og dagvöru mun á endanum renna í eitt en
sú þróun mun taka á sig mynd á næstu misserum.
Olíufélögin eru þó í ólíkri stöðu.
Þorsteinn Friðrik
Halldórsson
tfh@frettabladid.is
við minnkandi eftirspurn eftir
jarðefnaeldsneyti. Það er auk þess
óeðlilegt að fyrirtæki vinni að því
að minnka þjónustuframboðið í
gegnum yfirvöld. Stjórnendur Skelj-
ungs tala ekki fyrir neina nema þá
sjálfa,“ segir hann og vísar til þess
að Skeljungur hafi átt fundi með
borgaryfirvöldum þar sem þau voru
hvött til þess að ráðast í þetta verk-
efni. „Ef eitthvert fyrirtæki hefur þá
skoðun að stöðvarnar séu of margar
þá er ekkert sem kemur í veg fyrir að
það geti fækkað stöðvum.“
Þá segir hann að áform borgar-
yfirvalda séu til þess fallin að hamla
samkeppni innan sveitarfélagsins
enn frekar.
„ Samkeppniseftirlitið hef ur
ítrekað bent á það að stefna borg-
arinnar hafi verið til þess fallin
að skaða samkeppni og ég geri ráð
fyrir að þessi áform verði tekin til
skoðunar hjá Samkeppniseftir-
litinu. Auk þess má velta fyrir sér
forsendum borgarinnar fyrir að
setja fram svona kröftuga nálgun í
að útrýma bensínstöðvum á vegum
einkaframtaksins og á sama tíma
fjárfesta í innviðum í kringum raf-
bíla á vegum ON fyrir almannafé.“
Ætla ekki að vera leigufélag
Skeljungur hefur ekki farið þá
leið að sameinast smásölufyrir-
tækjum heldur einbeitt sér að
orkumarkaðinum ásamt aukinni
áherslu á alþjóðasölu til skipa og
raforkumarkaðinum í Færeyjum.
Ólíkt helstu samkeppnisaðilunum
stundar Skeljungur ekki smásölu á
stöðvum sínum heldur leigir þann
rekstur út til Basko. Í lok árs 2017
festi Skeljungur kaup á þriðjungs-
hlut í Wedo, sem á og rekur vefversl-
anirnar Heimkaup.is, Hópkaup.is
og Bland.is. Skeljungur á kauprétt
að meirihluta í félaginu.
B ened i k t Óla f s s on , f r a m-
kvæmdastjóri fjármálasviðs Skelj-
ungs, segir í samtali við Markaðinn
að á sínum tíma hafi verið ákveðið
að útvista verslunarrekstri félagsins
þar sem reksturinn var ekki arðbær
í þeirri mynd sem hann var þá.
„Við höfum á hverjum tíma skoð-
að möguleikann á að koma að smá-
sölu með öðrum hætti og útilokum
það alls ekki. Við eigum sterkt fast-
eignasafn og mjög vel staðsettar
lóðir, sérstaklega á höfuðborgar-
svæðinu, sem nýtast vel í því sam-
hengi. Það er hins vegar mikilvægt
að horfa til þess að hefðbundin
verslun mun eiga undir högg að
sækja og við þurfum ekki að horfa
langt út fyrir landsteinanna til þess
að sjá þá þróun. Til að þessi þróun
vinni með okkur en ekki á móti
þá teljum við að framtíðin liggi í
skynsamlegri blöndu af netverslun
og hefðbundinni smásölu,“ segir
Benedikt.
Spurður hvernig gangi að sam-
þætta rekstur Skeljungs og Heim-
kaupa segir Benedikt að sú vinna sé
í fullum gangi.
„Við höfum sett upp nokkra
skápa við stöðvar okkar þar sem
viðskiptavinir Heimkaupa eiga völ
á að sækja vörur sem þeir panta á
netinu og hefur það farið vel af stað.
Við munum halda áfram á þessari
braut og auka samstarfið enn frekar
og horfa til samþættingarmögu-
leika,“ segir Benedikt.
Skeljungur hefur ákveðið að veðja
á það að vetnisbílar muni geta leyst
af hina hefðbundnu bensínbíla
og var þriðja vetnisstöð félagsins
nýlega opnuð á lóð fyrirtækisins
við Miklubraut.
„Einkabíllinn mun verða til
2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R6 MARKAÐURINN
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
9
-7
B
F
0
2
3
4
9
-7
A
B
4
2
3
4
9
-7
9
7
8
2
3
4
9
-7
8
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K