Fréttablaðið - 26.06.2019, Síða 16
Incrementum með um eitt prósent í Símanum
Fjárfestingafélagið Incrementum,
sem er stýrt af viðskiptafélögunum
Ívari Guðjónssyni, Baldvini Val-
týssyni og Smára Rúnari Þorvalds-
syni, hefur að undanförnu staðið
að fjárfestingum í Símanum og
nemur markaðsvirði hlutar félags-
ins nú um 350 milljónum króna.
Samkvæmt lista yfir alla hluthafa
fjarskiptafyrirtækisins í gær, sem
Markaðurinn hefur séð, átti fjár-
festingafélagið rúmlega 75,6 millj-
ónir hluta í Símanum að nafnvirði,
eða sem nemur 0,82 prósenta hlut.
Sá hlutur skilar Incrementum
hins vegar ekki á opinberan lista
yfir tuttugu stærstu hluthafa Sím-
ans – félagið er 24. stærsti hluthafi
félagsins – en fjárfestingafélagið
Stoðir, sem er með rúmlega átta
prósenta hlut, er eini einkafjár-
festirinn í þeim hópi.
Incrementum, sem var stofnað
fyrr á árinu og er með vel á annan
milljarð króna í hlutafé, hefur
einnig verið að fjárfesta í Kviku
en í lok síðasta mánaðar var félag-
ið skráð fyrir tæplega 1,1 prósents
hlut í bankanum. Þá er fjárfest-
ingafélagið í hópi stærstu hluthafa
Reita með 1,4 prósenta eignarhlut
í fasteignafélaginu. Hluthafahópur
Reita samanstendur af fjársterkum
einkafjárfestum og Kviku en eignar-
hlutur bankans í félaginu nemur um
sjö prósentum.
Samkvæmt nýjasta lista yfir alla
hluthafa Símans hefur Kvika banki
næstum tvöfaldað hlut sinn í fjar-
skiptafélaginu frá mánaðamótum
og er núna skráður fyrir 3,8 pró-
senta hlut. Til samanburðar var
eignarhlutur Kviku, en bankinn
heldur á þeim bréfum að stórum
hluta fyrir viðskiptavini sína, um
2,1 prósent í byrjun júní. Talsverð
viðskipti voru með bréf Símans
síðasta fimmtudag þegar heildar-
veltan nam um 770 milljónum. – hae
42
milljarðar króna er
markaðsvirði Símans.
Vogunarsjóður sem þekktur er fyrir að þja r ma að þjóð -ríkjum hefur veðjað á að bókabúðir muni ganga í endurnýjun
lífdaga. Hugmyndin er að höfða
til þeirra sem kjósa að versla í búð
fremur en á netinu.
Það er því áhugavert að rýna í
rekstur bókaverslana. Skipta má
viðskiptamódeli íslenskra bóka-
búða á tvo vegu. Annars vegar er
um að ræða hreinræktaða bókabúð
og hins vegar verslanir sem bjóða
auk bóka upp á ritföng, gjafavörur,
ferðamannavörur, veitingar og jafn-
vel f leira.
Elliott Management keypti á dög-
unum bandarísku bókabúðakeðj-
una Barnes & Nobles fyrir jafnvirði
85 milljarða króna með skuldum.
En segja má að sú bókabúð hafi
verið fyrsta fórnarlamb Amazon.
Fyrir rúmlega ári keypti sjóðurinn
bresku bókabúðakeðjuna Water-
stone sem er ein fárra sem enn
standa þar í landi.
Höfðu trú á bókabúðinni
Eg ill Ör n Jóhannsson, f ram-
kvæmdastjóri Forlagsins og fyrr-
verandi formaður Félags bókaút-
gefenda, segir að honum þyki það
vera lykilatriði að komið hafi inn
nýir eigendur að Waterstone sem
hafi haft trú á bókabúðinni. „Á
meðan fyrri eigendur virtust hægt
og rólega missa trúna á að hægt
væri að reka bókaverslanir með
sómasamlegum hætti samhliða til-
komu raf bóka. Þær tóku hins vegar
ekki yfir markaðinn eins og svart-
sýnustu menn höfðu spáð.
Nú koma inn fjárfestar sem hafa
trú á að hægt sé að reka bókabúð
með arðbærum hætti og leggja
metnað í úrval og framsetningu
bóka fremur en að stóla á annan
varning í búðunum.
Fyrir útgefendur skiptir það
sköpum því það er erfitt að koma
bókum á framfæri. Það skiptir því
miklu máli að bjóða þær til sölu í
bókabúðum en ekki einvörðungu
á útsölumörkuðum eða það sem
verra er, að þær séu yfirhöfuð ekki
á boðstólum,“ segir hann.
Knúinn til að opna eigin verslun
Forlagið rekur bókabúð á Fiskislóð.
„Við gátum ekki boðið til sölu nema
lítið brot af úrvali Forlagsins í versl-
unum. Við sáum okkur því knúin
til að opna eigin verslun þar sem
lögð er áhersla á úrval bóka. Reynt
er að bjóða í bókabúðinni allar
bækur allra útgefenda sem til eru á
hverjum tíma.
Við höfum alla tíð lagt áherslu á
bækur en ekki tekið inn aðrar vörur
svo sem ritföng nema í afar litlum
mæli. Það er einblínt á vöruúrval og
við höldum að það sé það sem fólk
sækist eftir í bókabúð. Á meðan
bókasala hefur almennt dregist
saman hafa tekjur verslunarinnar
vaxið um 15-30 prósent á hverju ári
í sjö ár,“ segir Egill Örn og nefnir að
afkoman hafi verið fín.
Forsvarsmönnum Forlagsins
þótti ekki nóg að reka bókabúð á
netinu. „Við fundum strax að það
var áhugi og þörf fyrir eiginlega
verslun. Fólk vill koma í bókabúðir
þar sem er úrval og gefa sér góðan
tíma til að skoða. Auk þess skiptir
þekking og þjónusta starfsfólks
verulegu máli. Við höfum aldrei
viljað keppa á verðum og tökum
ekki þátt í verðstríði fyrir jólin með
bækur,“ segir hann.
Það er tiltölulega algengt að
bókaútgefendur reki bókabúðir.
Í Noregi eiga til dæmis forlög
stærstu bókabúðirnar, segir Egill
Örn, og rifjar upp að forlagið Mál
og menning hafi í áratugi rekið
verslun undir sama nafni og Edda
útgáfa hafi tekið við kef linu og
rekið nokkrar bókaverslanir.
Penninn í víðfeðmum rekstri
Ingimar Jónsson, forstjóri Penn-
ans Eymundssonar, segir að lykill-
inn að því að rekstur fyrirtækisins
gangi vel sé að hann byggi á nokkr-
um stoðum en treysti ekki einvörð-
ungu á bóksölu. Jafnvel þótt sú sala
hafi gengið vel.
Penninn Eymundsson selur
einnig gjafavörur, ferðamanna-
vörur, rekstrarvörur og húsgögn.
„Þetta fyrirkomulag tíðkast ekki
erlendis. Erlendis væri Penninn
Eymundsson alla jafna rekinn
sem tvær ólíkar verslanir,“ segir
Ingimar. Árið 2017 hagnaðist fyrir-
tækið um 234 milljónir króna og
arðsemi eiginfjár var 29 prósent.
Eiginfjárhlutfallið var 44 prósent.
Ingimar segir að ársreikningur
ársins 2018 liggi ekki fyrir en
af koman hafi verið í jafnvægi en
þó heldur lakari en árið áður. Það
megi einkum rekja til kostnaðar-
hækkana.
„Okkur hefur gengið býsna vel
að selja íslenskar bækur á undan-
förnum árum. Við bjóðum sam-
keppnishæf verð og tökum allar
íslenskar bækur inn til sölu. Það
höfum við alltaf gert en ef þær
seljast illa er sölunni ekki haldið
áfram.“
Ingimar segir að erlend netversl-
un hafi verið mikil ógn við bækur
og tekið mikið til sín. „Það segir sig
sjálft. En þessir tveir heimar geta
vel lifað saman. Það sjáum á því að
salan á raf bókum er hætt að vaxa í
Bretlandi og Bandaríkjunum. Það
er enda skynsamlegra að fara upp
í rúm að með bók en raftæki.“
Líka ritföng og gjafavörur
Arndís Björg Sigurgeirsdóttir,
framkvæmdastjóri Máls og menn-
ingar, segir að fyrir 20 árum hafi
erlendar bókabúðir einblínt á sölu
bóka. Þegar sú sala hafi gefið eftir
hafi þær ekki brugðist nógu hratt
við breyttu landslagi.
„Mál og menning hefur alltaf
boðið líka upp á ritföng og gjafa-
vörur,“ segir hún. „Í kringum alda-
mótin var anddyrið uppfullt af alls
kyns gjafavöru eins og ilmkertum
auk tímarita. Bókunum var ekki
stillt upp þar. Nú hefur sala tíma-
rita dottið niður og við höfum fært
fjölda bóka á jarðhæð enda erum
við bókabúð. Ég held það sé nú
meira pláss fyrir bækur í búðinni
en áður.“
Arndís Björg vekur athygli á að
Mál og menning hafi verið í rekstri
við Laugaveg í hátt í 60 ár. Önnur
hæðin hafi ávallt verið undir-
lögð íslenskum bókum, fyrir utan
eitt borð með erlendum bókum.
„Íslendingar kunna að meta að við
höfum haldið í hefðina.“
Hún segir að kiljur á íslensku
og ensku hafi haldið velli frá því
að hún hafi tekið við stjórnar-
taumunum árið 2011. „Íslendingar
eru vel lesnir og vilja oft frekar
kaupa bók á ensku í stað þess að
fá hana þýdda á íslensku.“ Sala á
matreiðslubókum og kaffiborðs-
bókum hafi dregist saman.
„Íslendingar eru okkar bakland
en við bjóðum alla velkomna,“
segir Arndís Björg, lítur yfir salinn
og telur að á þeirri stundu sé skipt-
ingin milli ferðamanna og Íslend-
inga um helmingur. „Ég held að
ferðamönnum þyki skemmtilegt
að koma inn í bókabúðir. Það er
mikið um lundabúðir í miðbænum
án þess að ég meini neitt neikvætt
með því. Við þurfum á öllum skal-
anum að halda.“
Arndís Björg segir að af koman
fari eftir sölu og salan hafi verið
ágæt. Besta árið hafi verið 2015,
það hafi engin aukning verið árið
2016. Það hafi hins vegar verið
um tíu prósent samdráttur í sölu
í fyrra.
Samkvæmt ársreikningi hagn-
aðist Mál og menning um 21 millj-
ón árið 2015, arðsemi eiginfjár var
44 prósent og eiginfjárhlutfallið 31
prósent. Árið 2017 nam hagnaður-
inn 14 milljónum króna.
Vogunarsjóður veðjar á bókabúðir
Ég held að ferða-
mönnum þyki
skemmtilegt að koma inn í
bókabúðir.
Arndís Björg
Sigurgeirsdóttir,
framkvæmda -
stjóri Máls og
menningar
Elliott Management
keypti hið bandaríska
Barnes & Nobles og
hið breska Waterstone.
Eigandi Forlagsins segir
fólk vilja koma í bóka-
búðir þar sem er úrval.
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Mál og menning hagnaðist um 21 milljón króna árið 2015. Það var besta árið í rekstrinum eftir að nýir hluthafar tóku við keflinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN KARL
Stoðir högnuðust um 1.100 millj-
ónir króna á sínu fyrsta ári sem
virkt fjárfestingafélag. Samkvæmt
ársreikningi Stoða, sem var lagður
fyrir aðalfund síðastliðinn fimmtu-
dag, námu fjárfestingar á árinu
2018 samtals 5,3 milljörðum og
var eigið fé félagsins um 17,5 millj-
arðar í lok ársins. Eignir í skráðum
félögum námu 900 milljónum en
virði óskráðra hlutabréfa var um
1.378 milljónir. Þá áttu Stoðir skráð
skuldabréf að fjárhæð 440 milljónir
auk þess sem útlán félagsins námu
rúmlega 2,5 milljörðum.
Greint var frá því í Markaðinum
í síðustu viku að Stoðir hefðu veitt
f jármálaf y rirtæk inu GA MM A
milljarðs króna lán í október á
síðasta ári. Samtals nam heildar-
þóknun Stoða vegna lánsins um 150
milljónum króna.
Í skýrslu stjórnar Stoða kemur
fram að félagið hafi keypt eigin
bréf á síðasta ári að fjárhæð 1.437
milljónir að nafnverði á genginu
1,31 króna á hlut. Í árslok áttu Stoðir
um 12,1 prósent af útistandandi
hlutafé félagsins. Stærsti hluthafi
Stoða er eignarhaldsfélagið S121
sem er meðal annars í eigu félaga á
vegum Jóns Sigurðssonar, stjórnar-
formanns Stoða, Einars Arnar
Ólafssonar, fyrrverandi forstjóra
Skeljungs, og Örvars Kjærnested,
fjárfestis og stjórnarformanns TM.
Aðrir helstu hluthafar Stoða eru
Arion banki og Landsbankinn. – hae
Stoðir hagnast um 1.100 milljónir
2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R4 MARKAÐURINN
2
6
-0
6
-2
0
1
9
0
5
:1
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
4
9
-8
0
E
0
2
3
4
9
-7
F
A
4
2
3
4
9
-7
E
6
8
2
3
4
9
-7
D
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
5
_
6
_
2
0
1
9
C
M
Y
K