Fréttablaðið


Fréttablaðið - 26.06.2019, Qupperneq 28

Fréttablaðið - 26.06.2019, Qupperneq 28
Ég leyfi mér að fullyrða að þessi staða hafi aldrei komið upp í lífeyris- sjóðakerfinu áður. Stjórnar- maðurinn 22.06.2019 MARKAÐURINN Instagram fréttablaðsins@frettabladidfrettabladid.is Miðvikudagur 26. júní 2019FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS UM VIÐSKIPTI OG FJÁRMÁL | Bílaleiga Akureyrar/Höldur hefur fjárfest í bílasölunni Bílalíf. Þetta staðfestir Steingrímur Birgisson, forstjóri Hölds, í sam- tali við Markaðinn en gengið var frá kaupunum í síðustu viku. Bíla- líf, sem er á Kletthálsi, er ein af elstu bílasölum landsins og hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá 1984. Aðspurður segir Steingrímur að kaupin feli ekki í sér neinar breytingar á bílaleigurekstrinum. „Við erum í sam- starfi við nokkrar bílasölur á höfuð- borgarsvæðinu og ætlum að halda því áfram. Þarna sáum við einfald- lega viðskiptatækifæri sem okkur leist vel á,“ segir Steingrímur. Í umfjöllun Markaðarins frá því í mars kom fram að stórar bílaleigur myndu bregðast við erfiðara rekstr- arumhverfi með því að kaupa 20-30 prósent færri nýja bíla í ár. – tfh Höldur kaupir bílasölu á Höfða PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Jafnlaunavottun Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar PwC býður upp á heildstæða þjónustu í launamálum og jafnlaunavottun. Við búum yfir áralangri reynslu og lausnum sem virka. Sanngjörn laun fyrir jafnverðmæt störf 2019 Nú er mikið látið með tillögur Svandísar Svavarsdóttur heil- brigðisráðherra um að leggja hærri skatt á sykraðar vörur en þær sem hollari eru. Á móti stendur til að lækka skattlagningu á grænmeti og ávexti. Heyrst hefur að Sjálfstæðis- menn þurfi heldur betur að kyngja stoltinu til að samþykkja tillögur sem þessar, enda sé þarna um að ræða neyslustýringu sem eigi að vera eitur í beinum hægrimanna. En er það virkilega svo? Auðvitað er það rétt að hægrimenn vilja flestir halda sköttum í lágmarki, og það er göfugt í sjálfu sér. Í þessu tilviki snýst málið hins vegar um að skattleggja aukalega neysluvörur sem óumdeilt valda þjóðfélagslegu tjóni. Afsláttur er gefinn á öðrum æskilegri neysluvörum á móti. Nákvæmlega eins og gert er til að mynda með áfengi og tóbak. Ef menn vilja afnema söluskatt í heild sinni, þá er það allt önnur umræða. Enginn hefur stungið upp á því. Staðreyndin er sú að Íslendingar eru meðal allra feitustu þjóða í Evr- ópu. Neysla á sykruðum drykkjum og matvælum er landlægt vanda- mál. Ekki þarf annað en að virða fyrir sér skammtastærðir í ísbúðum til að sjá birtingarmynd þess. Hreyfingarleysi er annað landlægt vandamál. Hér þeysa unglingar í yfirvigt um göngu- og hjólastíga á rafknúnum skellinöðrum. Fólk á öllum aldri ekur allra sinna ferða. Skattgreiðendur greiða fyrir ofneyslu á sykri í gegnum heil- brigðiskerfið. Rétt eins og þeir gera vegna reykinga, fíkniefnaneyslu eða ofneyslu áfengis. Því er ekkert nema eðlilegt að þeir sem neyta þessa varnings í óhófi greiði fyrir það. Í raun má segja að skattur á óæskilegar vörur sé hægristefna í sinni hreinustu mynd. Þeir sem ekki kjósa að neyta sykraðra vara í óhófi eiga ekki að niðurgreiða heilbrigðisþjónustu fyrir þá sem það gera. Flestir eru sammála um að á Íslandi eigi að vera til öryggis- net fyrir þá sem þess þurfa. Á því getur hins vegar verið meginmunur hvort um er að ræða hendingu sem ræður því að fólk þurfi að leita sér aðstoðar, eða hvort þar er um að ræða sjálfskaparvíti eins og í tilviki margs konar lífsstílssjúkdóma. Þeir borga sem nota er gamalgróið slagorð hægrimanna. Í því samhengi er sykurskatturinn hreint hægri- mál, og þeir sem þar standa í litrófi stjórnmálanna ættu að taka honum fagnandi. Gæta þarf þess að hann nái til allra sykurvara jafnt. Jafnvel þótt kræfir kappar kalli þær öðrum og heilsusamlegri nöfnum, eins og skyr, jógúrt eða jafnvel brauð. Sykurskattur til hægri  Steingrímur Birgisson. Guðrún Hafsteins- dóttir, varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna 2 6 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 4 9 -6 8 3 0 2 3 4 9 -6 6 F 4 2 3 4 9 -6 5 B 8 2 3 4 9 -6 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 5 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.