Fréttablaðið - 26.06.2019, Síða 20

Fréttablaðið - 26.06.2019, Síða 20
Við erum dálítið ofvirk, öll fjölskyldan! Hér er alltaf eitthvað um að vera og mikill gestagangur þannig að andrúmsloftið er fullt af gleði og samtali,“ segir leikkonan Þórunn Lárusdóttir þegar hún er beðin um að lýsa heimilislífi fjölskyldunnar sem samanstendur af Snorra eigin­ manni hennar, tveimur börnum þeirra hjóna, ketti og hundi. „Við Snorri höfum búið okkur til alveg dásamlegt heimili sem við höfum gert upp og lagað að okkar smekk og þægindastuðli. Þar líður okkur best, í faðmi fjölskyldunnar. Við búum miðsvæðis í borginni og því er mikið rennerí af gestum og það er akkúrat eins og við viljum hafa það,“ segir Þórunn kát. Heimili Þórunnar og Snorra er hlýlegt með gömlum, uppgerðum húsgögnum í bland við nútíma­ legri húsmuni. Til að kóróna heim­ ilislegt andrúmsloftið er mikið um fallegar plöntur. „Mig langar dálítið í fallega ljósakrónu í stofuna,“ segir Þórunn þegar hún er spurð hvað hana langi næst að kaupa fyrir heimilið en að hennar mati þarf ekki að bæta miklu við því það sé nú þegar besti staðurinn til að vera á. „Það er fjölskyldan, vel funk­ erandi eldhús, afdrep sem snýr í suður og góður kúrusófi,“ segir hún án hiks. Innblástur frá Vífilsfelli Þórunn fékk nýverið styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands til að skrifa handrit að kvikmynd í fullri lengd. Hún hefur verið að sinna því undanfarið og þar koma uppáhalds heimilismublur leik­ konunnar við sögu. „Við eigum tvo mjög kósí stóla sem í daglegu tali á heimilinu kall­ ast mömmu­ og pabbastólarnir. Ég skrifa mikið í stólunum og sit í þeim til skiptis til að breyta um stöðu á bakinu. Stólarnir standa í fallegri umgjörð með útsýni yfir garðinn og alla leið austur að Vífilsfelli. Það veitir mér mikinn innblástur,“ segir Þórunn sem í haust stefnir á að ljúka við skrif heimildaleikrits og handrits að Þórunn (fyrir miðju) fer nú með hlutverk eins tröllanna úr þjóðsögunni um Hlina kóngsson. Garðsettið keypti Þórunn notað en það var flutt inn frá Taílandi. Það er níð- þungt og hefur Þórunn því lofað hjálpfúsum vinum sínum að flytja ei meir. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir thordisg@frettabladid.is Við búum mið- svæðis í borginni og því er mikið rennerí af gestum og það er akkúrat eins og við viljum hafa það. Þetta fallega Búddalíkneski er í miklum metum hjá Þórunni en það var kær gjöf frá Ingibjörgu systur hennar. stuttri fræðslumynd sem hún fékk líka styrk til að gera. „Það verður því mikið að gerast í mömmu­ og pabbastólunum á næstunni,“ segir Þórunn og hlær sínum dillandi hlátri. Fjölskyldustund í garðinum Þórunn er með græna fingur og nýtur þess að nota blóm­ legan garðinn sinn á sumrin. „Það nýjasta sem ég keypti til heimilisins voru sumarblóm. Þau gleðja mig mikið og eru ómiss­ andi á sumrin. Heimilislegasta upplifunin finnst mér að vera heima á frídegi þegar vel viðrar og við fjölskyldan sitjum úti í garði að fá okkur hádegismat í róleg­ heitunum,“ segir Þórunn sem þykir skemmtilegast að elda þegar kemur að húsverkunum. „Ég er eflaust eins og hver önnur húsmóðir, alltaf að taka til, þvo þvott, ryksuga og skúra en ég elska að elda góðan mat og fá vini og fjölskyldu í mat. Við reynum að vera skapandi í eldamennskunni og breytum mikið til en ætli það sé ekki algengast að ég eldi mexí­ kóskan mat, taco eða burrító með heimagerðu Þórunnar­guacamoli. Þegar að bakstrinum kemur baka ég svo oftast sjónvarpsköku sem er algjört lostæti,“ segir Þórunn hin húslegasta. Brosleg framkvæmdagleði Hjónin Þórunn og Snorri eru samtaka þegar kemur að fram­ kvæmdagleði og sífellt að dytta að heimilinu. „Við Snorri erum alltaf í ein­ hverjum framkvæmdum og svo mikið að vinir okkar gera enda­ laust grín að því. Við höfum þó verið óvenju róleg síðan í fyrra­ sumar þegar við stækkuðum sólpallinn okkar örlítið,“ segir Þórunn sem tók með sér veganesti frá foreldrum sínum þegar hún fór að heiman og stofnaði sitt fyrsta heimili. „Hann pabbi minn lagði mikið upp úr því að vera gestrisinn og stressa sig ekki of mikið yfir hlut­ unum, og ég lærði heilmikið af því að dútla í garðinum með mömmu,“ segir Þórunn innan um litrík blóm í fögrum garði. Í sumar vinnur hún í annað skiptið með Leikhópnum Lottu og fer með hlutverk í nýjum fjöl­ skyldusöngleik eftir Önnu Berg­ ljótu Thorarensen. „Þetta er sambland af ævin­ týrinu um Litlu hafmeyjuna eftir H.C. Andersen og þjóðsögunni um Hlina kóngsson, útfært að hætti Lottu,“ útskýrir Þórunn en verkið er með frumsaminni tónlist, húmor og mikilvægum boðskap, eins og von er og vísa hjá leik­ hópnum. „Þetta er dásemdar sumarverk­ efni. Það er yndislegt að ferðast með útileikhúsi og góðum vinum um fallega landið okkar og vinna við það að koma leikhúsmenningu til allra landsmanna. Við sýnum alltaf í Elliðaárdalnum klukkan sex á miðvikudögum og fólk er mjög duglegt að mæta með krakk­ ana sína, klætt eftir veðri og situr á teppi, jafnvel með nesti og nýtur leiksýningar. Um daginn voru til dæmis 700 manns á einni sýningu í dalnum, sem er samt ekki áhorfendamet hjá leikhópnum,“ upplýsir Þórunn sem tekur þátt í um það bil 80 sýningum Lottu í sumar en sýningarplanið má sjá á leikhopurinnlotta.is. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 6 . J Ú N Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R 2 6 -0 6 -2 0 1 9 0 5 :1 6 F B 0 4 0 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 4 9 -6 8 3 0 2 3 4 9 -6 6 F 4 2 3 4 9 -6 5 B 8 2 3 4 9 -6 4 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 0 s _ 2 5 _ 6 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.