Skagablaðið - 15.05.1985, Síða 3
Skagamenn töpuðu 0:2 fyrir Þór á Akureyri í gærkvöldi:
Tap ífyrsta leik, en
fall er fararheill...
Frá Guðmundi Svanssyni,
fréttamanni Skagabiaðsins á Ak-
ureyri í morgun:
íslandsmeistarar Skagamanna
sóttu ekki gull í greipar Þórsara
hér á Akureyri í gærkvöidi í fyrsta
leik Uðanna í 1. deUdinni í sumar.
Þórsarar unnu verðskuldaðan
sigur, 2:0, eftir að hafa leitt 1:0 í
leikhléi. Skagamenn voru sprækir
framan af leiknum en eftir að Þór
náði forystunni virtust gestimir
sannast sagna aidrei líklegir til
þess að jafna metin, hvað þá
heldur að bæta um betur og sigra.
Það voru þó Akurnesingar sem
áttu fyrsta hættulega færi leiksins
og stórhættulegt var það. Svein-
björn Hákonarson komst í gegn á
3. mínútu en gott skot hans fór
framhjá. Sigurður Lárusson
bjargaði vafalítið marki nokkrum
mínútum síðar er þrumuskot
Bjarna Sveinbjörnssonar skall í
honum eftir fyrirgjöf Kristjáns
Kristjánssonar við hinn enda vall-
arins. Sveinbjörn var svo aftur á
ferðinni um miðjan hálfleikinn en
skalli hans fór rétt yfir markið
eftir langt innkast Áma Sveins-
sonar. Birkir Kristinsson varð síð-
an að taka á honum stóra sínum
rétt á eftir er hann varði vel skot
frá Halldóri Áskelssyni eftir að
hann hafði leikið Heimi Guð-
mundsson, bakvörð Skaga-
manna, grátt.
Einhæft
Þórsarar komu um þetta leyti
smám saman meira inn í leikinn
en Skagamenn höfðu haft undir-
tökin framan af. Það vom þó
íslandsmeistararnir sem fengu
næsta hættulegt færi en Baldvin
Guðmundsson varði stórvel frá
Herði Jóhannessyni. Eftir þetta
kom nokkur deyfð í leikinn og
svo virtist sem Þórsarar hefðu náð
að læra á fremur einhæfar sóknar-
aðgerðir Skagamanna.
Deyfðin tók hins vegar enda á
40. mínútu leiksins þegar Þórsar-
ar komust yfir í leiknum. Sigurði
Lárussyni, fyrirliða Skagamanna,
urðu þá á mistök er hann missti
knöttinn yfir sig og hinn eldfljóti
Bjarni Sveinbjörnsson var fljótur
að eygja færið. Hann komst einn
inn fyrir en Birkir varði skot hans.
Boltinn barst aftur til Bjarna en í
þetta skiptið hafði Birkir engin
önnur ráð tila ð stöðva hann en
fella hann. Vítaspyrna var um-
svifalaust dæmd og úr henni skor-
aði Jónas Róbertsson af miklu
öryggi.
Hafi Skagamenn gert sér vonir
um að bæta stöðu sína í síðari
hálfleiknum voru slíkar vanga-
veltur brotnar á bak aftur þegar
við upphaf hálfleiksins. Þórsarar
hófu síðari hálfleikinn eins og
þeir luku þeim fyrri, þ.e. með því
að ráða ferðinni. Þeir gerðu svo
nánast út um leikinn á 53. mínútu
og svo aftur var Bjarni Svein-
björnsson þar á ferð. Hann komst
einn innfyrir og vippaði knettin-
um yfir Birki. Knötturinn hafnaði
í þverslánni en Bjarni var fljótur
að átta sig sem fyrr, fylgdi vel á
eftir og skallaði í netið, 2:0.
Engin ógnun
Eftir þetta virtist hreinlega sem
Skagamenn væru búnir að sætta
sig við tap. Þeir komu reyndar
meira inn í leikinn en ógnuðu
aldrei sigri Þórsara. Brugðu á það
ráð að reyna að dreifa spilinu út
á kantana undir lokin en allt kom
fyrir ekki. Hörður Jóhannesson
uppskar þó mark síðla leiksins en
það var dæmt af vegna rangstöðu.
Vafalítið hefur tapið í gær-
kvöldi komið eins og köld vatns-
gusa framan í Skagamenn eftir
ágætt gengi í vorleikjunum og
velgengnisspár en liðið getur
áreiðanlega leikið betur en það
gerði hér í kvöld. Þótt staðan hafi
verið orðin vonlítil snemma í
síðari hálfleiknum hættu Skaga-
mennimir aldrei að leika knatt-
spyrnu og þegar öllu er á botninn
hvolft var leikurinn harla góður
knattspyrnulega séð og hinum
700 áhorfendum góð skemmtun
þrátt fyrir að leikið væri á möl.
Hörður Helgason, þjálfari IA, eftir leikim:
„Vantaii einhvem neista“
,,Við vorum bara ekki með 1
þessum leik, mínir menn voru
allan tímann á rassinum,“ sagði
Hörður Helgason, þjálfari
Skagamanna, í gærkvöldi og var
greinilega ekki allt of ánægður
með sína menn.
„Það vantaði einhvern neista
hjá mínum mönnum í kvöld. Nei,
Þórsararnir voru ekkert sterkari
en ég bjóst við þeim, þeir eru
alltaf erfiðir heim að sækja.“
Jafntefli
Stelpunum í meistaraflokki ÍA
í knattspymu tókst ekki að
tryggja sér sigur í Litlu-bikar-
keppninni um helgina er þær
mættu Blikastelpunum. Jafntefli
varð 2:2. Mörk' ÍA skorðuðu
Vanda Sigurgeirsdóttir og Ragn-
heiður Jónasdóttir (víti).
Bifreiðaeigendur
athugið!
Vegna fyrirhugaðra flutninga um
Hvítasunnuna getum við aðeins sinnt
nauðsynlegustu viðgerðum
dagana 20 til 24. maí.
SÝNIÐ ÞOLINMÆÐI
BIFREIÐARVERKSTÆÐI
GUÐJÓNS OG ÓLAFS
Blíðviðrið hafði sitt að segja.
Liðin. Þór: Baldvin Guð-
mundsson, Siguróli Kristjánsson,
Óskar Gunnarsson, Árni Stefáns-
son, Sigurbjörn Viðarsson, Jónas
Róbertsson, Nói Björnsson,
Kristján Kristjánsson, Halldór
Áskelsson, Bjami Sveinbjöms-
son og Júlíus Tryggvason. ÍA:
Birkir Kristinsson, Heimir
Guðmundsson, Jón Áskelsson,
Sigurður Lámsson, Guðjón Þórð-
arson, Ámi Sveinsson, Ólafur
Þórðarson, Júlíus P. Ingólfsson,
Karl Þórðarson, Sveinbjörn Há-
konarson og Hörður Jóhannes-
son.
Gul spjöld: 31. mín. Árni
Sveinsson, 35. mín. Ámi Stefáns-
son, 38. mín. Guðjón Þórðarson,
39. mín. Nói Björnsson.
—GSv.lSSv.
"O :P 'C: S
^ ^ Q) J
tti
||!
K
Auglýsið
í Skagablaðinu
Sumarbíóm
og jjöfœrar pföntur. Rósir,
tré og nmnar að vorí fiomanda.
Reynið Skagamoídina.
Skaqamoíd/GróðurvaC
W^ QmiAj. n/alli im 1Q-16
REIÐHJÓL
Mikið úrval reiðhjóla svo sem:
Winther þríhjól ■ BMX torfæruhjól.
Og einnig 26“ og 28"
karla og kvenhjól.
Höfum einnig fengið hin vinsælu
útileiktækjasett á góðu verði.
^.(QiiniuinKQ'i^irpnéniiwi^Din) g{f0
Ægisbraut 27 - Sími 2321
m [Lú @ (&© M 0 DíD s
Magnús Eiríksson • Sigurður Karlsson •
Guðmundur Ingólfsson •
Pálmi Gunnarsson
blúsar á Bárunni annað kvöld
(fímmtudag).
3