Skagablaðið - 21.08.1985, Page 12
Hvað er aö gerast hjá ÍA í 1. deild?!
„DODI“
-segja leikmenn en ætla að bíta á jaxlinn
Knattspyrnuunnendur hér á Akranesi sem og við á Skagablaðinu
velta nú ákaft vöngum yfir því hvað hefur gripið 1. deildarlið
Akurnesinga í knattspyrnu. Eftir sögulegt tap fyrir KR um fyrri helgi,
fylgdi sigur í afspyrnuslökum leik gegn Þrótti en síðan annað tap á
heimavelli sl. laugardag, nú fyrir FH, 2:3. Hvað er að gerast spyrja
menn, nenna strákarnir ekki lengur að standa í þessu?
Já, það er e.t.v. von að fólk
spyrji en fátt er um svör. Af
samtölum við leikmenn má helst
ráða að allsherjar doði hafi gripið
um sig á meðal þeirra. „Okkur
vantar einhvern neista,“ sagði
einn. Annar sagði: „Þetta getur
ekki gengið svona lengur, þrír
hræðilegir leikir á einni og sömu
vikunni. Þetta hlýtur að koma.“
Sá þriðji sagði. „Leikurinn gegn
Val eftir viku sker úr um það
hvort okkur tekst að halda titlin-
um eða ekki. Ef við gerum bara
jafntefli eða töpum kannski, sem
við skulum nú vona að gerist
ekki, getum við kvatt íslandsbik-
arinn.“ „Við eigum enn ágæta
möguleika en ef þeir eiga að
nýtast verðum við að vinna leikina
sem eftir eru.“
Allt saman orð að sönnu.
Það er dálítið merkilegt, en
það er eins og leikmenn liðsins
geri sér ekki fulla grein fyrir því
hversu nærri því þeir eru að setja
enn eitt metið í íslenskri knatt-
spyrnu. Ekkert lið hefur nefnilega
unnið íslandsbikarinn 3 ár í röð
frá því deildaskipting var tekin
upp 1955. Þrjú lið; Valur 1966 og
1967, Víkingur 1981 og 1982 og
Akranes 1983 og 1984, hafa unnið
deildina tvö ár í röð. Skagamenn
náðu einstæðum árangri í fyrra er
þeir unnu tvöfalt annað árið í röð
og með sigri í mótinu í ár gætu
þeir brotið blað í íslenskri knatt-
spyrnusögu. Afrek sem verður
lengi í minnum haft og seint
jafnað.
Leikurinn gegn Val næsta mið-
vikudag kemur til með að skipta
sköpum um möguleika Skaga-
manna. Valsmenn hafa ekki tap-
að í 9 síðustu leikjum sínum í 1.
deildinni og hafa sýnt langsamleg-
asta jafnastan árangur í sumar
eftir skrykkjótta byrjun. KR-ing-
ar mæta Fram í þessari sömu
umferð og með sigri Vesturbæjar-
liðsins væru Skagamenn aftur
komnir á toppinn. Þar eiga þeir
heima. Leikmenn vita það best
sjálfir en það er ekki nóg. Það
þarf að hafa fyrir hlutunum!
Sigur meistaraflokkskvenn-
anna í knattspyrnu á alþjóðlega
mótinu í Hollandi í síðustu viku
var rækilega tíundaður í Skaga-
blaðinu eins og fyllsta ástæða
var reyndar til í síðasta blaði.
Sigur stelpnanna var glæstur og
nú hafa okkur borist myndir frá
þessu merka móti. A stóru
myndinni eru stelpurnar
kampakátar með bikarinn eftir
sigurinn í mótinu en á minni
myndunum má annars vegar sjá
hvar Laufey Sigurðardóttir,
fyrirliði liðsins, hampar hinum
glæsilega bikar og hins vegar
hvar Völu Ulfljótsdóttur eru
afhent verðlaun sem besta
markverði mótsins.
ri
rað
nni á Langa-
I. miðvikudag
Það vakti athygli margra sl.
miðvikudag hversu margir lögðu
leið sína niður á Langasand. I
sjálfu sér var miðvikudagurinn
vel til þess fallinn að sóla sig því
veðrið var þá einstaklega gott
eins og margir eflaust muna.
Ef mið er tekið af lauslegri
talningu okkar Skagablaðsmanna
lætur nærri að hálft annað hundr-
að manna hafi verið á sandinum
yfir hádaginn. Eflaust kunna fleiri
að hafa lagt leið sína á þessa
náttúrulegu baðströnd þennan
sama dag.
Ekki var annað að sjá en fólki
líkaði vel að dvelja á sandinum en
nokkrir höfðu á orði að mikið
ljómandi yrði það nú „huggulegt"
ef Hitaveitan gæti séð sér fært að
færa frá rennsli sitt yfir á Langa-
sandinn. Þá gætu margir nýtt sér
heitavatnið samfara útiverunni.
Hægt væri að koma upp sturtum
og hreinlætisaðstöðu þarna fyrir
ofan og væri þá ekki að efa að
jafnt Skagamenn sem ferðamenn
legðu leið sína á sandinn í stór-
auknum mæli... þ.e. ef blessuð
sólin létu sjá sig.
Áður hefur verið rætt við Ingólf
Hrólfsson, hitaveitustjóra, varð-
andi möguleika á að færa frá-
rennslið en hann taldi það ekki
gerlegt að svo stöddu, m.a. vegna
mikils tilkostnaðar.
Rólegt
Mjög rólegt var hjá lögregl-
unni um helgina, rólegra en
um langt skeið að sögn Svans
Geirdals, yfirlögregluþjóns.
Sem dæmi má nefna að eng-
inn gisti fangageymslurnar.
Batnandi fólki er best að lifa.