Skagablaðið - 28.08.1985, Blaðsíða 2
Skagablaðið
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson
Ljósmyndir: Árni S. Arnason
Auglýsingar: Steinunn Árnadóttir (heimasími 2955)
Setning, umbrot, fiimuvinna og prentun: Borgarprent
Útlit: Sigurður Sverrisson
Ritstjórnarskrifstofa Skagablaðsins er að Suðurgötu 16 og er
opin sem hér segir: mánudaga frá kl. 14.30-22, þriðjudaga frá kl.
10-17, alla aðra virka daga frá kl. 17-19. Móttaka auglýsinga og
áskrifta er á sömu tímum. Síminn er 2261 eða 1397. Sláið á
þráðinn, lítið inn eða sendið okkur línu í pósthólf 170.
Auglýsið
í Skagablaðinu
Einhver doði?
Þannig spurði Valgeir Guð-
jónsson áheyrendur á dansleik
Stuðmanna á Hótelinu á sunnu-
dagskvöld og kannski ekki nema
von. Hann sagðist hafa lesið í
Skagablaðinu á leiðinni uppeftir
að einhver doði væri í knatt-
spyrnumönnum bæjarins og
engu líkara væri en það hefði
smitað út frá sér. „Eruði ekki í
stuði?“, öskraði hann svo.
„Ha... jú, jú,“ kvað við úr
einum barka, máttlítið en vel
meint. Þannig var það nú, fá-
mennt hjá Stuðmönnum og vart
meira en 150 manns. Myndin
sýnir Röggu Gísla hefja hljóðm-
anninn á loft. Þetta atriði var
ekki hluti af tónleikunum.
Haukur Armannsson við háþrýstisteikarpottinn, kankvís á svip.
Chick-
King
íSkaga-
nesti
Þá geta Skagamenn fengið sér
kjúklingabita með lítilli fyrirhöfn
og það meira að segja einkar
Ijúffenga slíka bita. Það er at-
hafnamaðurinn Haukur Ár-
mannsson, eigandi Skaganestis,
sem hefur rutt brautina hér í bæ
og býður nú Skagamönnum upp á
Chick-King kjúklinga. Staðurinn
opnar formlega á morgun.
Er Skagablaðið leit til hans í
gær var allt á útopnu við að
ljúka undirbúningi en til steiking-
arinnar hefur Haukur fengið sér-
stakan háþrýstipott, sennilega
þann eina hér á Akranesi. Pottur-
inn er hinn rammlegasti, m.a.
með öryggislokum, en eftir að
kjúklingarnir hafa verið steiktir
þar er þeim haldið heitum í þar til
gerðum hitaskáp. Þetta sama
fyrirkomulag og matreiðsluað-
ferðin reyndar einnig tíðkast á
vinsælustu kjúklingabitastöðum
landsins.
Til þess að allt fyllist nú ekki af
steikarbrælu við matreiðsluna
hefur Haukur komið upp kröftug-
um viftum í Skaganesti og skiluðu
þær slíkum afköstum að stéikar-
lykt var ekki að finna er okkur bar
að garði. Þó hafði hann verið að
reyna pottinn. Fengum við m.a.
að smakka og það verður að
segjast hreint út að kjúklingarnir
voru forláta góðir. Með þeim er
hægt að fá franskar kartöflur,
hrásalat, sem sömuleiðis var af-
bragðsgott, og kokteilsósu.
Ekki er að efa að það verður
örtröð við Skaganesti í fyrramálið
kl. 11.30 þegar þessi nýja þjón-
usta fer af stað því kjúklingarnir
eru lostæti.
Verðlækkun á skólaritvélum.
Áður 8.940.- Nú 5.490.-
Áður 6.890.- Nú 3.990.-
BÓKAVBREJj VNIN
ídrcsj klsson kj 3
SÍMAR 1985 & 1293 — AKRANESI
Allt fyrir skólann
Skólatöskur og pennaveski á gömlu
veröi. Mikiö úrval af nýjum töskum.
Teiniáhöld frá Rotring og Faber-Castell.
Allar orðabækur.
Spuming
vikunnar
— Tekur þú mark á skoð-
anakönnunum?
Hákon Svavarsson: — Ég hef
ekki myndað mé rneina skoðun á
því. Hugsa lítið um það.
Skúli Garðarsson: — Nei, alls
ekki.
Ingi Rafn Bragason: — Nei. Ég
tek ekki mark á skoðanakönnun-
um.
Dóra Sveinbjörnsdóttir: — Nei,
ég tek ekkert mark á þeim.
2