Skagablaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 7
Fegrunarnefnd Akranessbæjar valdi í síðustu viku þær
þrjár Ióðir einstaklinga og eina lóð fyrirtækis, sem hún
taldi skara fram úr hvað varðaði fegurð annars vegar og
snyrtileika hins vegar (fyrirtækin). Ekki er að efa að
valið hefur verið erfitt því mjög mikið er af fallegum
lóðum við einbýlishús víða hér í bænum og þarf reyndar
ekki einbýlishús til. Þá eru mörg fyrirtæki búin að snyrta
umhverfis sig og snurfusa svo að til fyrirmyndar getur
talist.
Eftir að Fegrunarnefndin hafði lagt höfuðið í bleyti
um stund komst hún að þeirri niðurstöðu að verðlauna
bæri eftirtaldar lóðir: Vesturgata 80, þar sem búa
Ingveldur Ásmundsdóttir og Ólafur Árnason, Heiðar-
gerði 10, þar sem búa Emma Reyndal og Guðni
Eyjólfsson, og Esjubraut 35, þar sem búa Sigrún
Ólafsdóttir og Sigvaldi Loftsson. Málningarþjónustan
fékk viðurkenningu fyrir snyrtilegt umhverfi við fyrir-
tækið.
Ekki var gert upp á milli einbýlishúsalóðanna þriggja,
sem hér að framan greinir, heldur voru þær allar
verðlaunaðar án þess að vera raðað niður í sæti.
Við höfum sagt. það áður og gerum það enn, að
Akranesbær hefur sjaldan ef nokkru sinni verið jafn
snyrtilegur og einmitt núna í ár. Val fegrunarnefndar er
því eins og punkturinn yfir i-ið í hinu mikla hreinsunar-
og fegrunarátaki sem gert hefur verið í sumar. Er nánast
sama hvert litið er (því miður finnast þó undantekning-
ar), alls staðar er umhverfið fágað og snyrtilegt.
Fyrirtæki bæjarins hafa ekki látið sitt eftir liggja
fremur en einstaklingarnir. Má t.d. nefna að einkar
snyrtilegt er umhverfis Fiskiðjuna Arctic, báða bank-
ana, olíufélögin, HB & Co., Hitaveitu Akraness og
Borgarfjarðar og mörg fleiri fyrirtæki.
Okkur hér á Skagablaðinu finnst eiginlega ekkert
vanta upp á nema ef til vill að velja fegurstu götu
bæjarins. Það verður kannski gert næsta sumar og þá
ríður á að íbúar gatnanna séu samtaka við fegrun
umhverfisins. Þar getur einn skussi eyðilagt vinnu allra
annarra í götunni.
Fegrunarnefnd Akraness er skipuð fulltrúum fimm
félaga og ráða með garðyrkjustjóra bæjarins í forsæti.
Við óskum verðlaunahöfunum innilega til hamingju
með viðurkenninguna og Fegrunarnefnd fyrir að standa
að þessu þarfa vali.
Kvenfélagið
gefur böm-
unum leiktæki
Kvenfélag Akraness afhenti ný-
lega leiktæki sem staðsett verða
uppi í skógrækt og eru þau ætluð
börnum á Akranesi. Kveikjan að
þessari gjöf Kvenfélagsins er sú
að á sumardaginn fyrsta fyrir
þremur árum var efnt til árlegrar
skemmtunar og þá ákveðið að
ágóðinn af þeirri skemmtun rynni
til kaupa á leiktækjum. Ekkert
hefur hins vegar orðið af kaupun-
Ómar Örn setti vallarmet.
Vallarmet
hjá Ómari
Ómar Örn Ragnarsson,
kylfingurinn snjalli úr Leyni,
gerði sér lítið fyrir á þriðjudag
í síðustu viku og setti stór-
glæsilegt vallarmet á velli
þeirra Leynismanna. Lék 18
holurnar á 67 höggum eða 3
undir pari.
Eins og nærri má geta var
spilamennska Ómars óað-
finnanleg og sögðu viðstaddir
að þeir hefðu aldrei séð aðra
eins tilburði. Frammistaða
hans hefði hreinlega minnt á
snillingana erlendu, sem
menn hefðu séð í sjónvarp-
inu.
Vallarmetið var sett í
sveitakeppni á milli Leynis-
manna og starfsmanna Olíu-
verslunar Islands, Olís. Til
hamingju Ómar!
um fyrr en núna en upphæðin,
sem safnaðist, hefur hins vegar
ávaxtast á bankabók.
Það voru þær Þórdís Björns-
dóttir, formaður, Þorbjörg Krist-
insdóttir, gjaldkeri, og Ingveldur
Valdimarsdóttir, meðstjórnandi,
sem afhentu leiktækin, en Odd-
geir Þór Árnason, garðyrkju-
stjóri, tók við þeim fyrir hönd
bæjarins. Ætlunin var að bæta við
leiktækin en þau eru þannig að
alltaf er hægt að stækka þau og
kvaðst Oddgeir myndu sjá fyrir
þeirri stækkun.
Eins og endranær rennur allur
ágóði af skemmtunum Kvenfé-
lagsins í tilefni sumardagsins
fyrsta í kaup á leiktækjum eða
uppbyggingu einhvers ámóta fyrir
börnin hér á Akranesi. Ungviðið
í bænum á því góðan bakhjarl þar
sem Kvenfélag Akraness er.
Flestir forð-
uðu bílunum
Eins og við skýrðum frá fyrr í
sumar stóð til að fara herferð
gegn þeim eigendum bílhræja víðs
vegar um bæinn, sem ekki höfðu
skeytt um að forða þeim af götun-
um þrátt fyrir margar og ítrekaðar
viðvaranir.
Að sögn Guðna Halldórssonar,
heilbrigðisfulltrúa, voru viðvör-
unarmiðar festir á 35 bíla og það
var eins og við manninn mælt;
nær allir voru horfnir inn á einka-
lóðir innan skamms. Þar voru
þeir hultir.
Aðeins þurfti að hafa afskipti
af einum bíl þegar upp var staðið
en áður hafði verið samið við
Vöku í Reykjavík um að taka
bílana í sína vörslu en ekkert varð
úr því af skiljanlegum ástæðum.
Þá mun nú beðið eftir dómsúr-
skurði í máli, sem höfðað hefur
verið vegna þess að númerslaus
bíll var fjarlægður eftir að eigand-
inn hafði fengið viðvaranir um að
hirða hann sjálfur og koma í
örugga geymslu.
Garðyrkjustjóri ásamt Kvenfélagskonunumþremur við nýju leiktœkin,
sem greinilega hefur strax verið vel tekið af börnunum.
Krossgátan
Lárétt: l)Fum og fát, 6)Auma, 7)Félag, 9)Líffærinu 10)Ganir,
ll)Alþjóðlegur meistari, 12)Fangamark, 13)Peningaeiningu, 15)Tog-
aði, 17)Kaup.
Lóðrétt: l)Landi, 2)Vandræði, 3)Óski, 4)Fallega, 5)Ár, 8)Sárar,
14)Spruttu, 16)Belti.___________________________________________
Dagbókin
Slökkviliðið: Síminn á slökkvistöðinni er 2222.
Lögregla: Símar 1166, 2266.
Byggðasafnið: Sýningartími er frá kl. 11-12 og 14-17 alla virka daga
frá maí og fram í ágúst. Frá september og fram í apríl er safnið opið
gestum frá kl. 14-16 virka daga.
Sundlaugin: Opið alla virka daga frá kl. 7 til 9.45, 12 til 18.30 og 20
til 21.15.
Kvennatími fimmtudaga frá kl. 21.15 til 22. Laugardaga opið frá kl.
9 til 11.45 og 13.15 til 15.45. Sunnudaga opið frá kl. 9 til 11.45.
Bahá’ítrúin: Opið hús alla fimmtudaga. Upplýsingar í síma 2979.
Bókasafnið: Sumarmánuðina júlí og ágúst verður opið sem hér segir:
mánudaga, miðvikudaga og föstudaga frá kl. 15-19.
Aðstandendur alkóhólista: Fundir alla mánudaga að Kirkjubraut 11,
kl. 21.00.
Sjúkrahúsið: Heimsóknartími frá kl. 15.30 - 16.00 og svo aftur frá kl.
19.00-19.30. Síminn á sjúkrahúsinu er 2311.
Heilsugæslustöðin: Upplýsingar um stofuviðtöl og læknavakt í síma
2311 frá kl. 8-20. Uppl. um læknavakt í símsvara2358 áöðrum tímum.
6
7