Skagablaðið - 09.06.1988, Blaðsíða 7
6
Skagablaðið
Skagablaðið
7
•Annað árið í röð hefur Sements-
verksmiðja ríkisins skilað umtals-
verðum hagnaði í sameiginlegan
sjóð landsmanna. Hagnaðurinn er
afrakstur betri skipulagningar innan
verksmiðjunnar, meira aðhalds í
rekstri og svo líka vegna hagstæðra
svokallaðra „ytri skilyrða". Stjórn-
endur verksmiðjunnar eiga að mati
Hauks í horni skilið lof fyrir frammi-
stöðuna á þessu sviði þótt auðvitað
sé enginn vinnustaður betri en
starfsfólkið sem þar vinnur. Með
þessari góðu afkomu síðustu tvö
árin hafa stjórnendur SR sýnt fram á
að ríkisfyrirtæki þurfa ekki endilega
að verarekin með tapi. Alltofalgengt
er þó, að stjórnendur ríkisfyrirtækja
láti sig afkomu þeirra engu skipta -
tapið lendi hvort eð er bara á lands-
mönnum öllum.
• Hugsanaganguráborðviðþenn-
an er því miður allt of algengur á
meðal landsmanna og ekki einvörð-
ungu innan raða stjórnenda ríkisfyr-
irtækja. Allir þekkja Hafskips- og
Útvegsbankahneykslið, þar sem
ríkissjóður varð að taka á sig hátt í
einn milljarð króna vegna vitlausra
fjárfestinga, blekkinga og stjórnleys-
is í fjármálum. Flugstöðvarbyggingin
er annað Ijóslifandi dæmi um hroða-
lega meðferð á almannafé, stjórn-
leysi, svik og pretti. Allar kostnaðar-
áætlanir brugðust og kostnaður hljóp
á mörg hundruð milljónum umfram
áætlun. Allt varð ríkið (almenningur)
að borga. Þetta stjórnleysi, sem
lengstum hefur verið bundið við fyrir-
tæki í ríkisforsjá, er nú því miður far-
ið að teygja sig inn í einkareksturinn.
Nýjasti „skandallinn" er bágborin
staða fisk-og laxeldisstöðva. Þar er
allt í kalda koli og nú á ríkissjóður að
hlaupa undir bagga. Þar er einnig
verið að tala um hundruð milljóna.
Svo undrast allir yfir því að ríkissjóð-
ur sé rekinn með milljarða tapi ár eftir
ár.
• Enhvererhineiginlegaskýringá
öllu stjórnleysinu? Jú, hún á allar
sínar rætur að rekja til vanmáttugra
stjórnmálamanna, sem flestir gera
lítið annað en að stunda eiginhags-
munapot án nokkurs tillits til heildar-
afkomu. Erlendis tíðkast það að
menn í ábyrgðarstöðum láti ef em-
bætti gerist þeir sekir um mistök af
einhverju tagi. Nýlegasta dæmið er
frá Svíþjóð, þar sem Anna-Greta
Leijon, dómsmálaráðherra, var látin
hætta í kjölfar afglapa. Hérlendis
sitja menn sem fastast hvað sem á
dynur og vísa frá sér allri ábyrgð. Er
nema von að 40% kjósenda geti ekki
gert upp hug sinn um hvaða flokk á
að kjósa eða taka yfirleitt enga
afstöðu. Við lifum í bananalýðveldi!
Goffift náði strax
taki á mér og hefur
ekki sleppt síöan
-segir Hannes Þorsteinsson, kyffingur, kennari, landsliðseinvaldur,
hönnuður og líffræðingur
Hannes Þorsteinsson stingur niður tíi á teig 6 og stillir kúlunni upp.
Hann tekur sér stöðu í hæfilegri fjarlægð frá kúlunni með gleiða fætur,
mundar trékylfu númer 1 og augnabliki síðar er kúlan komin á flug í átt
að flöt brautarinnar. Hún sneiðir framhjá karga og sandgryfjum og
lendir í nokkurra metra fjarlægð frá flötinni. Hannes fer holuna á pari.
Hannes Þorsteinsson er reynd-
ur og snjall kylfingur með fimm í
forgjöf. En hann er ekki bara kylf-
ingur.
Hann hefur einnig teiknað
verulegan hluta íslenskra golf-
valla og er nú nánast ekki leitað til
annarra með hönnun valla. Hann
er viðurkenndur sérfræðingur í
viðhaldi golfvalla og byggir þar
bæði á eigin reynslu og bóklegu
sjálfsnámi.
Hann er landsliðseinvaldur
unglinga í golfi. Hann á sæti í
stjórn Golfsambands íslands.
Hann er frumkvöðull að golf-
kennslu í skólum. Hann hefur
dómararéttindi í golfi. Hann er
líffræðingur og fjölbrautaskóla-
kennari.
Hannes fór reyndar allar þær
holur á pari sem blaðamaður
Skagablaðsins gekk með honum
og sonum hans, Þorsteini og
Bjarna Þór. Strákarnir slógu að
vfsu eitthvað fleiri högg, en það
spillti ekki fyrir ánægjunni.
Arangur blaðamannsins er hins
vegar tæpast prenthæfur.
Með frá upphafi
Golf á sér ekki svo ýkja langa
sögu á Akranesi, en er nú í geysi-
legum vexti.
Leynir var stofnaður árið 1965
og þá hófst einnig golfferill Hann-
esar. Hann er sonur Þorsteins
Þorvaldssonar og Elínar Hannes-
dóttur, en Þorsteinn er einn af
frumkvöðlum íþróttarinnar hér í
bæ og hefur verið gerður að heið-
ursfélaga Leynis fyrir frábær störf
í þágu íþróttarinnar.
„Ég byrjaði að fylgja karli föð-
ur mínum í þetta þegar ég var 12
ára. íþróttin náði strax tökum á
mér og hefur ekki sleppt takinu
síðan,“ segir Hannes þegar hann
rifjar þetta upp.
„Golfið er nefnilega þess eðlis
að um leið og maður hefur komist
á bragðið, verður maður sífellt að
fá skammtinn sinn. Þetta er algjör
bakteríuíþrótt.“
Golfið náði ekki bara tökum á
Hannesi. Hann náði strax tökum
á golfinu og varð fljótlega besti
kylfingur klúbbsins. Hann vann 1.
gullverðlaun sem veitt voru á móti
á Akranesi árið 1967. Faðir hans
varð í öðru sæti en Óðinn Geirdal
því þriðja. Þessi verðlaun urðu
upphafið að veglegu safni verð-
launagripa.
I hópi þeirra bestu
Hannes varð klúbbmeistari
Leynis fyrstu fjögur árin sem
keppt var um titilinn, 1970-1974.
Hann hefur unnið þennan titil oft-
ar en nokkur annar.
Hann komst í landsliðshópinn
um tvítugt og hann var í fyrsta
unglingalandsliði íslands, sem
keppti á Evrópumeistaramóti
unglinga í Danmörku árið 1973.
„Það vill svo skemmtilega til að
ég var liðsstjóri þegar íslendingar
tóku fyrst þátt í Evrópumeistara-
móti drengja í golfi í fyrra. Það
má því segja að ég hafi verið með
fyrstu landsliðum fslands á Evr-
ópumeistaramóti í þessum tveim-
ur aldursflokkum,“ segir Hannes
og sýnir blaðamanni þátttöku-
merki í mótunum, sem hann
geymir til minningar.
Hannes var í hópi fremstu kylf-
inga landins á áttunda áratugnum,
einkum á fyrri hluta áratugarins.
Helstu keppinautar hans voru þá
Björgvin Þorsteinsson, Loftur
Ólafsson, Júlíus R. Júlíusson og
fleiri.
„ A þessum árum var ég á fullu í
keppnisgolfinu, tók þátt í fjöl-
mörgum mótum og þá auðvitað til
þess að vinna. Hápunktur þessara
ára held ég hafi verið þegar ég
vann Pierre Robert mótið árið
1975.
Þar voru saman komnir allir
bestu kylfingar landsins á opnu
móti og það var mér auðvitað
mikils virði að vinna þetta mót.
Upp frá þessu fór ég mér hægar
og hætti að stunda þessi opnu mót
að mestu leyti."
Miklar framfarir
„Síðan hef ég verið að leika hér
heima í meiri rólegheitum, en
stunda íþróttina enn mikið og ég
er ekki frá því að ég leiki jafnvel
enn betur nú en þegar ég var í
keppnisgolfinu. Það hafa bara
orðið svo miklar framfarir í
íþróttinni almennt, að ég hef ekki
lengur roð við þeim bestu.
Eg hef ekki átt erfitt með að
halda mér við, þótt ég sé hættur að
taka þátt í keppni meðal þeirra
fremstu. Ég held að þetta stafi
fyrst og fremst af því að ég mótaði
mér upphaflega eigin stíl sem
hentaði mér vel. Ég las mér til,
prófaði mig áfram og fann stíl sem
var mér eðlilegur. Þessu hefur
mér tekist að halda.
Ég fékk aldrei beina kennslu í
golfi. Margir þeirra sem voru upp
á sitt besta um svipað leyti og ég,
Iærðu alla sína tækni af öðrum og
geta þeirra minnkaði verulega
strax eftir að þeir hættu að æfa og
keppa í fremsta flokki. Stíllinn
var lærður og það er oft auðvelt að
gleyma því sem maður hefur lært
af öðrum.
Mér hefur tekist að halda mér í
formi, en eigi ég að bæta mig nú,
kostar það geysilega mikla vinnu.
Margir gera sér nefnilega ekki
grein fyrir því að til þess að geta
verið á toppnum, verður maður
að geta stundað golf marga tíma á
dag og keppa á sterkum mótum
allar helgar. Okkar fremstu kylf-
ingar stunda þetta á þennan hátt.“
Hannar golfvelli
Frumkvöðlarnir í golfinu á
Akranesi höfðu aðeins tvær holur
til umráða þar sem nú er innsti
hluti vallarins. Þegar fyrsta mótið
var haldið voru holurnar orðnar
sex og um 1970 fjölgaði þeim í
níu.
Þróun og stækkun golfvallarins
á Akranesi er margra verk, en
ekki síst Hannesar. Hann hefur
unnið mikið starf við hönnun vall-
arins og má segja að hann hafi
hannað völlinn að flestu leyti.
Auk þess hefur hann unnið mikið
að viðhaldi vallarins.
Hannes náði hápunkti ferils
síns sem kylfingur árið 1975, þeg-
ar hann sigraði á Pierre Robert
mótinu. Sama ár má segja að hann
hafi hafið annan feril, þegar hann
hannaði sinn fyrsta golfvöll.
„í raun og veru er golfvöllur
Leynis fyrsti völlurinn sem ég
hannaði. En fyrsti völlurinn sem
ég hannaði formlega var níu holu
völlur á Eskifirði.
Hannes með golfvöll á teikniborðinu. Hann hefur nú teiknað um þriðjung allra golfvalla á landinu og er með marga aðra í takinu. Stœkkun golf-
vallarins á Akranesi geymir hann hins vegar í höfðinu enn sem komið er. „Effram fer sem horfir í fjölgun félaga í Leyni sprengjum við völlinn
fljótlega utan af okkur, “ segir Hannes.
Sá völlur þótti nokkuð
skemmtilegur og það varð upp-
hafið að því að menn fóru að biðja
mig að hanna velli. Síðan hefur
þetta undið geysilega upp á sig og
er orðið heilmikið starf," segir
Hannes.
Daginn eftir að Skagablaðið
fylgdist með Hannesi á golfvellin-
um, fór hann með teikningu að
átján holu golfvelli til Selfoss. Svo
notaði hann auðvitað tækifærið og
tók þátt í móti þar fyrir austan í
leiðinni.
Blundar í öllum
„Hönnun golfvalla blundar í
öllum kylfingum,“ segir Hannes.
„Allir eiga sína uppáhaldsholu og
sinn uppáhaldsvöll og allir hafa
skoðun á því, hvemig golfvellir
eiga að vera. Allir eru „sér-
fræðingar“ í faginu og allir telja
sig hafa þá einu réttu skoðun.
En það er meira en að segja það
að hanna 18 holu golfvöll sem nær
yfir um 50 hektara landssvæði.
Það þarf að huga að gífurlega
mörgu og skipuleggja svæðið frá
öllum hliðum.
Það verður auðvitað í fyrsta lagi
að taka tillit til þeirra sem leika
eiga golf á vellinum. En það þarf
líka að hanna völlinn þannig að
viðhald verði auðvelt, að aðstaða
fyrir áhorfendur verði viðunandi
og svo framvegis.
Það er t.d leikur einn að hanna
golfvöll sem krefst mikils manna-
halds í viðhaldi. Með svolítilli
útsjónarsemi er hægt að hanna
hann þannig að helmingi færri geti
haldið honum við.
Ég hef lengi haft áhuga á hönn-
un golfvalla. Eins og ég sagði held
ég að þetta blundi í öllum. Áhug-
inn kviknaði fyrir alvöru þegar ég
fór að leika á völlum erlendis og
athuga uppbyggingu þeirra.
Síðan hef ég lesið mér mikið til
um þetta fag og auk þess hefur
menntun mín nýst mér geysilega
vel í þessu. Líffræði og landafræði
em mjög góð undirstaða fyrir
hönnuð golfvalla.“
Hugsjónastarf
Nú telst Hannesi til að hann
hafi hannað um jrað bil þriðjung
allra golfvalla á Islandi. Og þetta
hlutfall á eftir að stækka, því hann
er stöðugt að og er nánast ein-
göngu leitað til hans með þetta
starf.
Golfvellir í Stykkishólmi, Mos-
fellsbæ, Eskifirði og víðar eru
hans hugverk. Alls er um að ræða
10-11 velli um allt land.
„Fram til þessa hefur þetta ver-
ið nær eingöngu hugsjónastarf.
Ég hef verið að gera þetta fyrir
lítið, hef varla tekið meira en fyrir
útlögðum kostnaði. Nú er að
skapast grundvöllur fyrir því að
þetta verði að launuðu hluta-
starfi.“
Fyrir Hannesi er golfið
hugsjón, íþrótt, tómstundaiðja og
starf. Framgangur íþróttarinnar
er hans hugsjón og hann vinnur
víða að hugsjón sinni.
Fyrir tveimur árum kom hann á
golfkennslu á íþróttabraut fjöl-
brautaskólans og varð skólinn þá
fyrstur skóla til þess að taka slíka
kennslu upp.
„Mér fannst sjálfsagt að boðið
yrði upp á kennslu í þessari íþrótt
eins og flestum öðrum. Ég vona
bara að fleiri skólar taki þetta
upp,“ segir hann.
Landsliðseinvaldur
Fyrir þremur ámm var Hannes
kosinn í stjórn Golfsambands
íslands. Um leið var hann ráðinn
til þess að sjá um unglingastarf
sambandsins. Hann er landsliðs-
einvaldur unglinga í golfi.
Svona á aðfara að þessu. Kröftugt upphafshöggfrá upphafi til enda og kúlan klýfur loftið á geysilegum hraða. Holan var auðvitað farin á pari.
Ráðning hans var afleiðing
stefnubreytingar hjá sambandinu.
Ákveðið var að leggja mun meiri
áherslu á unglingastarf en áður.
Hannes er ekki þjálfari, en sér
um skipulagsmál og liðsstjórn á
mótum og telur kjark í unga kylf-
inga þegar taugamar bila. Hann
hefur sjálfur reynslu af því að
keppa sem unglingur fyrir hönd
fslands í golfi og veit hvemig þess-
um krökkum líður.
„Það varð ákveðin stefnubreyt-
ing hjá sambandinu fyrir þremur
ámm og síðan hafa verkefni ungl-
ingaliðanna verið tvöfölduð. Við
stefnum að því að byggja upp
frambærileg landslið á nokkram
áram og höfum m.a. ráðið til okk-
ar heimsfrægan kylfing og þjálf-
ara, John Garner.
Hann hefur verið ráðinn þjálf-
ari allra landsliða okkar til þriggja
ára og við væntum okkur mikils af
starfi hans.
Fram til þessa hefur unglinga-
starfið verið algerlega vanrækt og
óskipulagt. Nú má segja að skipu-
legt starf sé að hefjast og það er
auðvitað mjög spennandi að taka
þátt í því á þennan hátt. Þarna er
mikil vinna framundan.“
Hannes verður á ferð og flugi í
þessu nú í sumar og fer með
landslið á mörg mót í Evrópu,
m.a. Evrópumeistaramót og
Norðurlandamót.
Golf bannaö vegna
vinsælda
Hannes hefur komið sér upp
safni bóka og tímarita um golf.
Ekki bara um hina tæknilegu hlið
íþróttarinnar, en einnig um hönn-
un og viðhald golfvalla og sögu
íþróttarinnar.
Golfíþróttin mun eiga upprana
sinn á Skotlandi og eins og til að
undirstrika orð sín um eðli íþrótt-
arinnar, segir Hannes frá því þeg-
ar golf var bannað á Skotlandi á 15
öld.
„Golfið var þá orðið svo vinsælt
Horft á eftir kúlu í sveiflulok.
að menn voru nánast hættir að
stunda bardagalist eins og skylm-
ingar. Það þótti því nauðsynlegt
að banna mönnum að leika golf
vegna landvamasjónarmiða.
Iþróttin barst hingað til lands
árið 1934, en tók ekki að breiðast
út fyrr en um sama Ieyti og Leynir
var stofnaður, árið 1965.“
Hér á Akranesi nýtur golfið nú
stöðugt aukinna vinsælda. Félög-
um í Leyni hefurfjölgað um meira
en 100% ás.l. tveimur árum. Bara
nú í maí fjölgaði félögum um
fimmtung.
„Það era ekki mörg ár síðan við
vorum að pukrast þetta uppi á
velli nokkrir sérvitringar. Nú er
golf orðið almenningseign og
áhuginn verður sífellt meiri. Við
sjáum hreint ekki fyrir endann á
vextinum hér á Skaga.
Enda er golfið tilvalin íþrótt
fyrir bæði kynin og alla aldurs-
hópa.“
Golfekkjur
Golf er án efa íþrótt fyrir alla
fjölskylduna og þarf ekki annað
en að benda á fjölskyldu Hannes-
ar því til staðfestingar.
Faðir hans og móðir eru óþreyt-
andi kylfingar. Sjálfur hefur hann
helgað stóran hluta lífs síns golf-
inu. Kona hans, Þórdís Arthurs-
dóttir, leikur nú jafnvel meira en
hann. Synirnir, Þorsteinn og
Bjarni Þór hafa einnig fengið
bakteríuna.
Fjölskyldan fer aldrei í frí án
þess að leika golf um leið og hafa
þau nú gengið all marga velli víða
um Evrópu.
Golfekkja er heiti á konu kylf-
ings og það segir sína sögu um
hvernig golf getur fangað menn.
En hvers vegna hefur golfið verið
karlaíþrótt í þeim mæli sem raun
ber vitni?
„Ég hef aldrei getað skilið hvers
vegna golfið hefur ekki náð til
fleiri kvenna,“ segir Hannes.
„Þetta er að mínu mati alveg til-
valin íþrótt fyrir konur, en auðvit-
að getur verið erfitt fyrir mæður
og húsmæður að finna tíma til
þess að stunda þetta.
Konum fer mjög fjölgandi í
golfklúbbum, bæði hér og annars
staðar, en þeim fjölgar þó ekki í
stærra hlutfalli en körlum.
Konur í Leyni hafa tekið upp þá
nýbreytni, einmitt að verulegu
leyti fyrir frumkvæði Þórdísar, að
hittast á hverjum miðvikudegi og
leika saman golf. Það má vera að
það verði til þess að efla stöðu
þeirra í klúbbnum."
Golf, golf, golf
Golf, golf, golf og aftur golf.
Þannig mætti koma orðum að því
hvernig Hannes ver tíma sínum.
Hann veit fátt betra en vaxandi
viðgang þessarar íþróttar og segir
gjama frá því.
„Golfið er í gífurlegum vexti
hér á Skaga, ekki bara hvað snert-
ir fjölda iðkenda heldur einnig
hvað varðar getu. Til marks um
það má t.d. nefna, að við eram
með fjóra Akurnesinga í meðferð
hjá Golfsambandinu og nokkrir
aðrir era á mörkum þess að kom-
ast þar að.
Haldi þetta svona áfram, eigum
við möguleika á að koma upp tal-
svert sterku liði. Við ættum að
geta verið í hópi 4-5 bestu klúbba
á landinu, en við eigum talsvert
langt í land með það nú.
Völlurinn okkar er talinn mjög
góður. Hann er fjölbreytilegur og
elur af sér góða kylfinga. Þú
sleppur ekki svo létt frá þessum
velli.
Ef fram fer sem horfir í fjölgun
félaga hjá okkur, er ekki langt
þangað til við sprengjum utan af
okkur völlinn. Við eram þegar
farnir að huga að því að stækka í
átján holur og sú stækkun er
reyndar þegar til í kollinum á mér.
Ég get ekki séð annað en að
framtíð golfsins sé björt hér á
Akranesi,“ segir Hannes Þor-
steinsson.
Og það er eins og við manninn
mælt, um leið og Skagablaðið
sleppir af honum hendinni er
hann rokinn upp á golfvöll á ný til
þess að etja kappi við aðra kylf-
inga.