Skagablaðið - 09.06.1988, Qupperneq 8
8
Skagablaðið
Brœðrabylta í uppsiglingu. Brœð-
urnir Róbert og Björn Þór Reynis-
synirfóru báðir í sjóinn eftir þessa
viðureign. Björn Þór hafnaði þó
sjónarmun á undan í faðmi Ægis
og Róbert fór því með sigur af
hólmi í koddaslagnum.
Aaaaah, taka á þessu strákar,
djöf. . . er þetta. Ahöfnin á Har-
aldi Böðvarssyni malaði alla and-
stæðinga sína í reiptogi skipshafna
og það er ekki að sjá að þessi
áhafnarmeðlimir láti sitt eftir
liggja. Karlarnir á eyrinni hjá HB
& co unnu reiptog landsveita.
Skipstjórarnir Marteinn Einarsson og Guðjón Bergþórsson, Matti og
Jonni, gerahlé áhrókasamrœðumfyrir myndavélina. Guðjón og áhöfn
hans á Höfrungi hlaut bikarinn fyrir mesta aflaverðmœti báta. Þeir
fœrðu rúmlega 89 milljónir króna á land ífyrra. Sturlaugur H. Böðvars-
sonfékk aflabikar togara, en Skírnir aflabikar vertíðarbáta.
„Þetta tókst vel þrátt fyrir leið-
indaveður á sunnudaginn. Ég vil
bara þakka öllum sem hjálpuðu
okkur við þetta,“ sagði Rúnar
Davíðsson, formaður sjómanna-
dagsráðs, við Skagablaðið.
Hinn árlegi hátíðisdagur sjó-
manna fór vel fram og samkvæmt
áætlun, nema að því að leyti að
þyrla landhelgisgæslunnar komst
ekki vegna bilunar.
Bæði ungir og aldnir fengu
eitthvað við sitt hæfi. Ekki er að
efa að skemmtisigling út á flóa var
hápunktur helgarinnar fyrir yngri
kynslóðina. Svo ekki sé minnst á
kók og prins sem fylgdi með í
kaupunum.
Árni tók myndirnar hér á síð-
unum af helstu viðburðum helgar-
innar.
Fjölmennt var á sjómannaballinu á sunnudagskvöldið og mikið fjör að vanda. Hér má sjá mörg kunnugleg
sjómannaandlit með góða matarlyst bíða eftir kvöldverði. Einar Brandsson og bræðurnir Gísli og Sigurjón
Runólfssynir fremst á myndinni.
Stelpurnar í Heimaskaga fóru ekki erindisleysu á sunnudaginn. Þœr
unnu bœði róður og reiptog kvenna. Hér virðaþrjár Heimaskagastelpur
verðlaun sínfyrirsér með augljósri aðdáun. Þœr hafa reyndar verið ansi
iðnar við að hirða sjómannadagsverðlaun undanfarin ár.
r