Skagablaðið - 09.06.1988, Qupperneq 12
Itíftfl Skaaablaðið níftfl
KIRKJUBRAUT 4-6 KIRKJUBRAUT 4-6
Misjöfn viöbrögö viö bílaherferö bæjaryfirvalda:
Sumum þótti aö sér vegiö
- segir Gísli Gíslason bæjarstjóri
„Það er óhætt að segja að við höfum fengið mikil viðbrögð við bfla-
herferðinni okkar. Viðbrögð fólks voru bæði góð og slæm, sumum
þótti að sér vegið í bréfum okkar,“ sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri
þegar Skagablaðið innti hann eftir viðbrögðum bæjarbúa við bflabréf-
um bæjaryfirvalda.
Eins og Skagablaðið skýrði frá
fyrir skömmu fóru nokkrir starfs-
menn bæj arins um og tóku myndir
af númerslausum bílum nýverið.
Myndirnar urðu vel á annað
hundrað og voru eigendur bílanna
beðnir um að fjarlægja þá innan
20 daga, ella myndu bæjarstarfs-
menn fjarlægja þá á kostnað eig-
enda.
í bréfum til eigenda bílanna var
rætt um ónýta eða verðlitla bíla,
en það átti alls ekki við í öllum til-
vikum.
„Ég viðurkenni fúslega að
orðalag bréfanna var of harkalegt
í sumum tilvikum og eitthvað var
um mistök,“ sagði Gísli um þetta
atriði.
„Hins vegar er ég mjög ánægð-
ur með árangurinn af þessari her-
ferð okkar. Margir bílanna hafa
þegar verið fjarlægðir af eigend-
um sjálfum. Þeir sem ekki hafa
fjarlægt verðlitla eða ónýta,
númerslausa bíla munu fá aðstoð
okkar við verkið, hvort sem þeim
líkar betur eða verr,“ sagði Gísli
Gíslason bæjarstjóri.
Breytingar á rekstri Bíóhallarinnar;
Færra starfsfólk
og minni skuldir
Uppsagnir fjögurra starfsmanna Bíóhallarinnar tókn gildi um síð-
ustu mánaðamót og í framhaldi af því verða gerðar talsverðar breyting-
ar á rekstri fyrirtækisins. Starfsfólki hefur verið fækkað um helming.
Með því að fækka starfsfólki króna og er það forgangsverkefni
um helming náum við mikilli hag-
ræðingu í rekstrinum. Við sögð-
um upp starfsfólki í miðasölu,
dyravörslu og ræstingum, en starf
þeirra bætist nú á þá sem eftir
eru,“ sagði Leifur Eiríksson,
framkvæmdastjóri Bíóhallarinnar
við Skagablaðið.
Bíóhöllin bíður nú eftir vilyrði
fyrir láni frá Byggðastofnun. Fáist
lánið, verða gerðar ýmsar breyt-
ingar á húsnæðinu, en auk þess
yrði lánið notað til þess að greiða
niður skuldir.
Að sögn Leifs verður anddyri
Bíóhallarinnar breytt og gerðar
verða endurbætur á sýningark-
lefa. Ef lánið fæst, verður
Bíóhöllinni lokað um næstu mán-
aðamót.
Skuldir Bíóhallarinnar nema
nú tæplega tveimur milljónum
að sögn Leifs að greiða þær skuld-
ir niður.
„Skuldirnar hafa lækkað um
400 þúsund krónur á síðustu mán-
uðum, en það er ekki nóg. Skuld-
irnar eru alltof miklar," sagði
Leifur.
Meðal skulda fyrirtækisins má
nefna nær 600 þúsund króna skuld
við Samvinnubankann og rúm-
lega 200 þúsund króna skuld við
Hitaveitu Akraness og Borgar-
fjarðar. Auk þess skuldar
Bíóhöllin ýmsum kvikmyndahús-
um í Reykjavík um hálfa milljón.
Leifur Eiríksson, framkvœmda-
stjóri Bíóhallarinnar: Bíðum eftir
láni frá Byggðastofnun til þess að
breyta húsnœði og greiða niður
skuldir.
Rekstur verulega fram úr áætlun
Rekstur Akraneskaupstaðar
fyrra fór 25,7 mflljónir fram úr
fjarhagsáætlun. Mest munar þar
um að laun og launatengd gjöld
fóru 12,3 milljónir umfram það
sem gert var ráð fyrir í fjárhags-
áætlun. Reikningar bæjarsjóðs
voru samþykktir á bæjarstjórnar-
fundi í fyrradag.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðu fram bókun vegna
ársreikninganna, þar sem þeir
gagnrýndu meirihlutann fyrir að
hafa ekki brugðist við þegar sýnt
var að reksturinn myndi ekki
standast áætlun.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins gagnrýndu einnig það
sem þeir telja óhagstæðar lántök-
ur bæjarins.
Bæjarfulltrúar meirihlutans
bentu hins vegar á að „gatið" í
rekstri bæjarins hefur oft verið
stærra og lýstu eftir tillögum Sjálf-
stæðismanna um ódýrari lán, en
engar slíkar tillögur hafa fengist.
Bæjarfulltrúar lýstu almennt
yfir ánægju sinni með hve
snemma reikningarnir eru á ferð-
inni, en þeir hafa aldrei verið
lagðir jafn snemma fram. Þá ríkti
almenn ánægja með frágang árs-
reikninganna og endurskoðun.
Ársskýrsla bæjarins er nú í
vinnslu á auglýsingastofu í Reykja-
vík og er gert ráð fyrir að henni
verði dreift áður en langt um
líður.
f Skagablaðinu í dag skrifar
Gísli Gíslason grein um ársreikn-
inga bæjarins og rekur helstu
niðurstöður ársins 1987.
Sjá nánar á blaðsíðu 2
Guðbjörn Tryggvason átti góðan
leik í gær og skoraði glæsilegt
mark.
Glæsimark
Guöbjöms
-en Þór jafnaði á síðustu
mínútunni
Þórsarar stálu sigrinum af
Skagamönnum á síðustu mínútu í
leik liðanna í gærkvöldi. Norðan-
menn skoruðu úr vítaspyrnu á 89.
mínútu leiksins og nældu sér þar
með í eitt stig. IA sótti nær lát-
laust allan leikinn, en náði ekki að
skora fyrr en á 85. mínútu.
Guðbjörn Tryggvason skoraði
þá glæsilegt mark af 20-25 metra
færi. Skot Guðbjörns var firnafast
og hafnaði efst í horninu fjær.
Akureyringarnir fengu víta-
spyrnuna eftir að Mark Duffield
hafði varið með hendi á línu.
Skagamenn sóttu sem fyrr segir
nær allan leikinn, en Þórsarar áttu
ágætar skyndisóknir. Haraldur
Ingólfsson komst í gott færi
snemma í leiknum, en norðan-
menn björguðu á línu. Haraldur
Hinriksson átti gott skot nokkru
síðar, en það fór ekki rétta leið.
Karl Þórðarson skallaði yfir í
dauðafæri á 54. mínútu.
Guðbjörn Tryggvason átti
mjög góðan leik í gær, einkum í
fyrri hálfleik. Karl Þórðarson og
Heimir Guðmundsson léku einnig
mjög vel.
í A er nú í öðru sæti 1. deildar-
innar með átta stig.
Sóðamir beittir hörðu
Bæjaryfírvöld munu á næstu dögum hefjast handa við að fjarlægja þar sem þeir eru beðnir um að
rusl af nokkrum lóðum á kostnað eigenda. Þetta á við um þá sem feng- fjarlægja ruslið sjálfir fyrir ákveð-
ið hafa skriflega beiðni bæjaryfirvalda um að fjarlægja bflhræ og annaí inn tíma, að öðrum kosti muni
sem yfirvöld telja til óþrifnaðar. bærinn sjá um hreinsunina á
Þessar aðgerðir eru liður í enda. kostnað eigenda.
hreinsunarherferð sem nú stendur Að sögn Guðna Halldórssonar Hreinsunarvikan nær auðvitað
yfir og nýta bæjaryfirvöld sér heilbrigðisfulltrúa er þarna bæði til fleiri þátta en þessa. Starfs-
þarna heimild í 42. grein heil- um að ræða bílhræ, sem ekki eru menn áhaldahúss og vinnuskólans
brigðisreglugerðar. Þar segir að talin til verðmæta, svo og annað hafa verið á ferð og flugi með tól
bæjarstjórn sé heimilt að láta fjar- rusl af ýmsu tagi. Eigendur hafa sín og tæki nú í vikunni og aðstoð-
lægja rusl af lóðum á kostnað eig- fengið bréf frá bæjaryfirvöldum, aðfólkviðaðgerabæinnhreinni.