Skagablaðið


Skagablaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 6

Skagablaðið - 28.07.1988, Blaðsíða 6
• Glæsilegur árangur sundfólks á Akranesi á Aldursflokkameistara- mótinu í sundi um síðustu helgi sýnir svo ekki verður um villst hverju hægt er að áorka á tiltölulega skömmum tíma. Fyrir 9 mánuðum voru uppi efasemdir um að Skagamönnum tækist að halda sæti sínu í 1. deild- inni í sundi. Með eljusemi sund- mannanna og frábærum þjálfara náðist það takmark. Að sigur ynnist svo á Aldursflokkameistaramótinu um helgina var nokkuð sem enginn átti von á - ekki einu sinni bjartsýn- ustu forráðamenn Sundfélags Akr- aness. Aftur komu Skagamenn á óvart. Kröftug stjórn félagsins, öflugt foreldrafélag, áhugasamir krakkar og þjálfari, sem lætursérekki allt fyrir brjósti brenna. Hugi Harðarson hefur á skömmum tíma hér á Akranesi sýnt fram á að fáir þjálfarar innan sundíþróttarinnar taka honum fram. Það er gæfa Sundfélags Akraness að hafa fengið hann til starfa. Ekki aðeins hefur sundfólkið okkar stór- bætt árangur sinn heldur hefur eld- móður hans smitað út frá sér og Sundfélagið er nú virkara en um margra ára skeið. Haukur í horni óskar Sundfélagi Akraness og Skagamönnum öllum til hamingju með þennan glæislega árangur og vonar að sjálfsögðu að haldið verði áfram á sömu braut. • Viðtal Skagablaðsins við Björgvin Björgvinsson, sem Haukur í horni fékk leyfi til að lesa áður en blaðiðfór í prentun, vekur upp þá spurningu hvort ekki væri nú heilbrigðara ef allir brygðust við áföllum sínum á sama hátt og hann. Þrátt fyrir að hafa slas- ast alvarlega í námuslysi á Sval- barða í vor og hlotið örkuml af er engan bilbug að finna á þessum unga Skagamanni. Hann er staðráð- inn í að horfa fram á veginn í stað þess að barma sér og harma það sem gerst hefur. Viðhorf hans leiðir hugann að því hversu miklar smá- sálir við hin erum oft á tíðum. Ekki þarf nema minniháttar meiðsl eða áföll í lífinu til þess að hugur okkar fyllist svartnætti og við teljum allar bjargir bannaðar. Hugarró Björgvins Björginssonar ætti að verða okkur öllum til eftirbreytni. • Skatttekjur sveitarfélaga hafa ver- ið mjög til umfjöllunar í fjölmiðlum að undanförnu og þá einkum fyrir þá sök að mörg sveitarfélög telja sig bera skarðan hlut frá borði eftir skatt- kerfisbreytinguna. Þeim er sífellt skipað að sýna meira aðhald í rekstri og framkvæmdum á meðan bruðlið hjá ríkissjóði virðist aldrei ætla að taka enda. Það er ekki nóg með að ríkið auki tekjur sínar stöðugt heldur er farið að seilast í vasa sveitarfélag- anna. Og enn sér ekki högg á vatni. 6 Skaqablaðið_________Skaaablaðið Skagamaðurinn Björgvin Björgvinsson var búinn að ákveða að þetta sumar yrði það síðasta sem hann ynni við námagröft á Svalbarða. Hann hafði unnið þar frá því síðla árs 1980og fannst tími til kominn að söðla um og halda aftur niður til Noregs. Óvænt atburðarás síðla í maí varð þess hins vegar valdandi að heimför hans bar mun fyrr að en hann hafði átt von á og með allt öðrum hætti en hann hefði vafalítið kosið. Eldur brýst út Lífið gekk sinn vanagang í Longyearbyen á Svalbarða, þar sem námuvinnslan er stunduð, en þann 23. maí síðastliðinn dró til tíðinda. Mikill eldur braust út inni í kolanámunni og magnaðist stöðugt. Björgvin og félagar hans í námubjörgunarsveitinni voru kallaðir á vettvang til þess að berj- ast gegn eldinum, sem geisaði 4 - 5 kílómetra inni í fjallinu. Sveitinni var skipt í 6 manna hópa sem unnu við slökkvistarf tvo klukku- tíma í senn en komu síðan út til hvíldar. Vinnutilhögun var þann- ig að eftir hverja törn áttu menn átta stunda hvíld. Björgvin lauk sinni fyrstu vinnutörn um klukkan 11 að morgni þriðjudagsins 24. maí. Hann hugsaði því gott til hvíldarinnar framundan. Næsti hópur tók strax við slökkvistarf- inu og tíminn leið. Örlagarík ákvörðun Um klukkan 14 var hins vegar óskað eftir tveimur sjálfboðalið- um til viðbótar í baráttunni við eldinn. Björgvin, sem býr yfir mikilli reynslu eftir langan starf- sferil í námunum, og félagi hans buðu sig fram. Þetta reyndist örlagarík ákvörðun. Skömmu eft- ir að þeir félagar höfðu hafist handa við slökkvistarfið að nýju hrundi hluti þaksins í námu- göngunum yfir þá báða. Björgvin grófst allur, ef undan er skilinn hægri framhandleggur, undir gló- andi grjóthnullungum og náðist ekki út fyrr en að hálfri annarri stundu liðinni, þá stórslasaður og skaðbrenndur. Félagi hans slapp betur. Náðist út eftir hálftíma, m.a. hryggbrotinn en slapp að öðru leyti mun betur en Björgvin ef hægt er að lýsa því þannig. Björgvin var fluttur í ofboði í sjúkrahús í Tromsö og þaðan til Bergen tveimur dögum síðar. Hann kom hingað heim til íslands þann 22. júní síðastliðinn og hefur dvalið á lýtalækningadeild Land- spítalans síðan. Skagablaðið heimsótti hann undir helgina og ræddi við hann um slysið og til- drög þess að hann fór að vinna norður á hjara veraldar. Ævintýraþrá „Ætii það hafi ekki fyrst og fremst verið ævintýraþrá og löngunin til þess að reyna eitthvað nýtt að ég hélt til Noregs árið 1978, þá 21 árs gamall," sagði Björgvin. Hann dvaldi um skamma hríð í Osló en hélt þaðan til Kristiansand, þar sem hann fékk vinnu á rafmagnsverkstæði. „Mér líkaði ekki nógu vel í Krist- iansand. Þar var allt morandi í íslendingum, sem margir hverjir voru þar í starfsþjálfun vegna til- komu Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga. Þeir héldu mikið saman og af því leiddi að maður hafði miklu meira samneyti við þá en Norðmennina. Fyrir vikið lærðist manni norskan seint og mér líkaði það ekki. Ég sagði því upp vinnunni og hélt norður á bóginn." Vildi í herinn Björgvin ferðaðist norður eftir Noregi og leitaði að vinnu. Leitin bar ekki árangur fyrr en í Mosj- öen, þar sem hann fékk vinnu við álver. í Mosjöen dvaldi Björgvin í tvö ár. Honum líkaði vistin ekki nema þokkalega og langaði í meiri tilbreytingu. Hann fékk þá flugu í höfuðið að sækja um inn- göngu í norska herinn. Eftir hefð- bundinn formála; umsóknir og pappírsvinnu var honum sagt að mæta tiltekinn dag haustið 1980. Hann sagði því upp vinnunni sinni Þetta er vélin sem Björgvin vann við lengstum á Svalbarða. Eins og sjá má er hún engin smásmíði. Niðamyrkur og lekir braggar Aðkoman í Longyearbyen, en svo heitir norski námuvinnslubær- inn á Svalbarða, var ekki glæsileg. Vistarverur námaverkamann- anna voru lélegir braggar, „sem varla héldu vatni eða vindi,“ eins og Björgvin lýsti sjálfur. Til að bæta gráu ofan á svart var algjör vetur skollinn á og niðamyrkur. Sökum legu Svalbarða dimmir þar mun fyrr en t.d. hér á íslandi og heita má að myrkur ríki allt fram til vors. Sumarið er stutt en afar bjart að sama skapi. Stór hluti þeirra verkamanna sem komu til Svalbarða hélt ekki út nema í nokkrar vikur. Tilhugs- unin um einangrunina, myrkrið og svo viðmót hinna eldri og reyndari sem þraukað höfðu lengi varð mörgum um megn. „Þessir eldri gerðu í því að brjóta okkur niður og hvekkja á allan hátt,“ sagði Björgvin. Sjálfum gekk honum vel að laga sig að aðstæð- um. „Maður varð svo alveg eins og karlarnir með tímanum og skemmti sér við að taka nýliðana á taugum." Þegar Björgvin kom til Sval- barða árið 1980 var þar kominn flugvöllur. Fram að þeim tíma var ekki um neinar ferðir að ræða frá hausti til vors, þar sem ís er land- fastur meginhluta vetrar. Tilhugs- unin um að vera algerlega einang- raður frá umheiminum fór illa með fjölmarga, sem ýmist biluðu á taugum eða frömdu jafnvel sjálfsmorð. Uppbygging En á síðustu átta árum hefur orðið ótrúleg breyting á Longye- arbyen. Norsk yfirvöld hafa lagt áherslu á að fá fjölskyldumenn til Svalbarða og fyrir vikið hefur bærinn fengið á sig allt annan blæ. Þar er nú ýmis þjónusta, m.a. skóli, og vistarverur eru allar aðr- ar og betri. Hver starfsmaður hef- ur sína eigin íbúð. Unnið er á vöktum í námavinnslunni og þeg- ar Björgvin hóf þar störf var ekki gefið frí nema annan hvorn sunn- udag. Nú er hins vegar frí allar helgar, bæði laugardag og sunnu- dag. Svalbarði er ekki aðeins mjög sérstakt landsvæði frá jarðfræði- legu sjónarhorni heldur einnig mannfræðilegu. Þar eru nefnilega auk Longyearbyen tveir rússnesk- ir bæir, sem lúta þó lögsögu Norðmanna. Nokkurt samneyti er á milli rússnesku bæjanna og Longyearbyen og er t.d. keppt í íþróttum reglulega auk þess sem Rússarnir eru sólgnir í allan vest- rænan og japanskan varning. Eru vöruskipti því tíð en fara alltaf fram fyrir luktum tjöldum. 50 árum á eftir „Það er eins og að detta 50 ár aftur í tímann að koma í þessa bæi,“ sagði Björgvin. „Þeir eru ákaflega langt á eftir á öllum svið- um og hús jafnt sem allur tækja- kostur ákaflega gamaldags. Hjá okkur eiga allir t.d. vélsleða en hjá þeim eru aðeins fáir slíkir. Sama máli gegnir um byssur, sem eru þó nauðsynlegar vegna hætt- unnar sem getur stafað af ísbjörn- um þegar vetur skellur á. En þetta er allt saman besta fólk og vin- gjarnlegt þótt við höfum oft hent gaman að vinnsluaðferðum þeirra í námunum og jafnvel efast um að þeir stundi nokkra kolavinnslu þarna, svo gljáfægðar eru nám- urnar þeirra!“ Hratt flýgur stund Þrátt fyrir einangrunina á Sval- barða og hinn ógnarlanga og dimma vetur þar leið tíminn hratt hjá Björgvin. Vinnan sá til þess. Lítið um frí en sumarleyfin eru hins vegar löng, 2 mánuðir minnst og allt upp í 3 mánuði. Fríin not- aði Björgvin til þess að ferðast um heiminn og hefur farið víða. Ef- laust hefði hann þó hugsað sér til hreyfings fyrr ef hann hefði ekki orðið ástfanginn af norskri stúlku. Þau giftu sig 1982 og eignuðust son, Torkel að nafni. Þau slitu hins vegar samvistum fyrir hálfu öðru ári en eiginkonan tók að ger- ast þreytt á dvölinni á Svalbarða og vildi heim til Norður-Noregs. Björgvin hefur reglulegt samband við eiginkonuna fyrrverandi og soninn ogt.d. voru þeir feðgar hér á Skaganum í 2 mánuði í vetur. Líkaði þeim stutta dvölin svo vel að hann vildi helst ekki fara aftur. Hvort það var íslandsdvölin eða eitthvað annað fór Björgvin að hugsa sér til hreyfings og ætlaði að hætta í námunni í haust. Brottför- in varð hins vegar skyndilegri en hann átti von á. Skagablaðið bað og húsnæðinu og tók sér langt sumarfrí. Það notaði hann til þess að ferðast fram og til baka um Evrópu á „Inter-rail“ sem svo mörg íslensk ungmenni hafa reynslu af. Þegar ferðalaginu lauk sneri Björgvin aftur til Noregs til þess eins að komast að því að umsókn hans um inngöngu hafði verið synjað. Atvinnu- og hús- næðislaus sá Björgvin að ekki mátti við svo búið standa og hélt enn norður á bóginn. Fyrir rælni sótti hann um vinnu í kolanámu á Svalbarða og fékk starfið. Launin voru góð á norska vísu og að auki njóta menn mikilla skattafríðinda þarna í norðrinu. Borga ekki nema 4% af tekjunum í skatta. Til Svalbarða hélt Björgvin síðla árs 1980. Longyearbyen á Svalbarða erfremur lítil og óhrjáleg byggð eins og sjá má á þessari vetrarlegu mynd. Björgvin að lýsa atburðarásinni þennan örlagaríka þriðjudag í maí. í fyrsta sinn hræddur „Við buðum okkur fram tveir þegar vantaði menn í baráttuna við eldinn og héldum rakleitt inn eftir að hafa fengið nokkurra tíma hvíld. Ég var ekki búinn að vera lengi inni í námunni þegar ég fann til skyndilegs ótta, ótta sem ég hafði aldrei fundið fyrir áður. Manni lærist að „hlusta fjallið“ eins og sagt er með tímanum og þannig gat maður oft skynjað hvað var að gerast, brak hér eða smellur þar gat gefið til kynna hvað var í vændum. Einir sex sam- verkamenn mínir höfðu látist af völdum hruns á liðnum árum og einn til viðbótar í eldsvoða en það fældi mig ekki frá námunni. En þarna inni fann ég til ónotatilfinn- ingar þar sem ég var að berjast við eldinn. Ég varð bókstaflega hræddur í fyrsta sinn í námunni. Ég tók þá ákvörðun að hraða mér sem mest ég mátti frá eldtungun- um en náði ekki í tíma áður en þakið hrundi. Hefði ég verið kom- inn 2-3 metrum lengra hefði ég sloppið." Hulinn glóandi grjóti Björgvin grófst í einni svipan undir haug af glóandi grjóti sem hafði fallið úr göngunum. Aðeins hægri framhandleggur hans stóð upp úr grjótinu en það bjargaði lífi hans að hann var með sérstaka súrefnisgrímu og álkút á bakinu til þess að endurvinna súrefni. Þyngslin í grjótinu voru slík að brjóstkassi Björgvins lagðist sam- an undan honum og mölbrotnaði. „Það var ónotaleg tilfinning að upplifa það hvernig rifbeinin brustu og brjóstkassinn lagðist saman undan þunganum. Annað lungað lagðist saman og það tók að vætla blóð út um munninn á mér. Ég fann ekki til sársaukans því ég dofnaði allur upp strax. Ég gerði mér enga grein fyrir því hvort ég ætti björgunar von og var alveg búinn að sætta mig við að deyja þarna. Það var í raun miklu auðveldara en ég hafði áður gert mér í hugarlund. Nei, ég fór ekki með neinar bænir en hugsaði til fjölskyldunnar, einkum þó drengsins míns litla.“ Björgun berst Það tók félaga Björgvins hálfa aðra klukkustund að bjarga hon- um úr hrúgunni. Mestum erfið- leikum var bundið að ná burtu stóreflis bjargi, sem hafði fallið á vinstri handlegg hans og lá yfir hluta af vinstra fæti. TJm var að ræða þriggja tonna grjót og þurfti að beita vökvatjakki til að losa Björgvin. Hann hélt ró sinni þrátt fyrir alla ringulreiðina sem ríkti eftir slysið. „Það var skrýtið að sjá hvernig reyndir vinnufélagar mín- ir brugðust við er þeim tókst að grafa mig úr rústunum. Sumir brustu hreinlega í grát og einstaka 7 Björgvin hefur dvalið á lýtalœkningadeild Landspítalans eftir að hann kom heim en fer um helgina á Reykjalun í endurhœfingu. gerði sér upp erindi til þess að geta komist í burtu. En félagar mínir sýndu þrek við björgunina og unnu mikið afrek.“ Björgvin er skaðbrenndur eftir hildarleikinn og ber merki hans alla ævi. Taka þurfti vinstri fótinn af við ökkla og fjórir fingur vinstri handar, allir nema þumallinn, eru þegar af. Hvort vinstri hendin nýt- ist Björgvin, sem er örvhentur, eitthvað er fram líða stundir er óvíst. Þegar hann kom á sjúkra- hús í Tromsö var allt hold brunnið af vinstri hendinni frá olnboga og niður úr. Læknar þar höfðu ákveðið að taka handlegginn af við olnboga er Björgvin var send- ur til Bergen. Þar var þess freistað að bjarga handleggnum með því að græða bakvöðva á handlegg- inn. Sú aðgerð tók heilar tólf klukkustundir en alls hefur Björgvin orðið að gangast undir sex stóraðgerðir vegna slyssins. Skagablaðið hefur það eftir starfs- manni Landsspítalans að það hafi verið lán Björgvins að komast undir hendur læknanna í Bergen því þeir séu snillingar í meðferð alvarlegra brunasára. Björgvin tekur undir þau orð. „Umönnunin í Bergen var stór- kostleg og hvort sem ég fæ mátt í handlegginn aftur eða ekki er víst að þessir menn framkvæmdu kraftaverk á skurðarborðinu því handleggurinn var brunarústir einar," sagði Björgvin með stóí- skri ró sem hann hélt allan tímann á meðan Skagablaðið ræddi við hann. Aftur til Noregs Þrátt fyrir þessa hræðilegu reynslu er Björgvin síður en svo á því að leggja árar í bát. Sagðist meira að segja geta hugsað sér að hefja störf í námu á ný ef ekki kæmi til sú fötlun sem hann býr nú við. „Ég ætla bara að jafna mig á þessum ósköpum og stefni svo að því að fara aftur út til Noregs og hefja þar nám. Ég lauk aldrei nema skyldunáminu hér heima en hef nú hug á að læra eitthvað. Auðvitað verður maður að haga náminu í samræmi við þær aðstæður sem nú hafa komið upp en það hefur enga þýðingu að vera að gráta það sem þegar hefur gerst. Ég horfi bjartsýnn fram á veginn og reyni að láta þetta slys hafa eins lítil áhrif á mig og mögu- legt er,“ sagði Björgvin Björg- vinsson í lokin. -SSv.

x

Skagablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.