Skagablaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat

Skagablaðið - 28.07.1988, Qupperneq 11

Skagablaðið - 28.07.1988, Qupperneq 11
Skaaablaðið 11 í brennidepli Fullt nafn? Einar Vignir Einarsson. Fæðingardagur? 13. des- ember 1958 Fæðingarstaður? Akranes Fjölskylduhagir? Kvæntur Sigríði Olafsdóttur og eigum við tvær dætur. Bifreið? Mitsubishi Galant árg. 1980. Starf? Stýrimaður. Fyrri störf? Sama. Helsti veikleiki þinn? Góð steik (Góður matur). Helsti kostur þinn? Læt aðra að dæma um það. Uppáhaldsmatur þinn? Piparsteik að hætti Sirrýar. Versti matur sem þú færð? Finnst enginn matur vondur. Uppáhaldsdrykkur þinn? Tólf ára viský. Uppáhaldstónlist? Dire, Straits og Phil Collins. Uppáhaldsblað/tímarit/ bók? Skagablaðið og Mogginn. Uppáhaldsíþróttamaður þinn? Jóhann Hjartarson. Uppáhaldsstjórnmálamað- ur? „No comment". Uppáhaldssjónvarpsefni þitt? Fræðsluefni (Dýralífs- myndir) Leiðinlegasta sjónvarps- efni? Svaraðu strax. Uppáhalds útvarps- og sjónvarpsmaður? Jón Ólafs- son og Páll Magnússon. Uppáhaldsleikari? Jack Nicholson. Besta kvikmynd sem þú hefur séð? Gaukshreiðrið. Hvernig eyðir þú frístund- um þínum? I faðmi fjölskyld- unnar. Fallegasti staður á íslandi sem þú hefur komið á? Skaftafell og upp í Lón. Hvað metur þú mest í fari annarra? Heiðarleika. Hvað angrar þig mest í fari annarra? Óheiðarleiki. Hvað líkar þér best við Akranes? Rólegheitin og fólkið. Hvað líkar þér verst við Akranes? Lyktir úr síldar- verksmiðjunni. Hvað myndir þú vilja fá í afmælisgjöf? Feitan happ- drættisvinning. Hvað veitir þér mesta afslöppun? Svefn. Hvaða mál vilt þú að bæjar- stjóm leggi höfuðáherslu á? Hún er ágæt en mætti laga eitt og annað. Veitingahúsaflóran blómgast enn: Stillholt opnað eftir langt hlé Veitingahúsið Stillholt hóf rekstur að nýju sl. föstudag eftir að starfsemin hafði legið niðri frá því á áramótum. Það er Gunnar Páll Ingólfsson sem hefur tekið staðinn á leigu til þriggja mánaða af skiptaráðanda en uppboð á eignum Stillholts er fyrirhugað í október. Hugmyndir eru uppi um að stærstu kröfuhafarnir í þrotabúið stofni hlutafélag og leigi reksturinn út áfram gangi allt að óskum. „Þetta hefur skiljanlega farið rólega af stað enda höfum við ekkert auglýst að við séum búnir að opna staðinn á ný,“ sagði Gunnar Páll er Skagablaðið ræddi við hann í vikunni. Gunnar Páll sagðist hafa fengið 25 - 30 gesti í mat en misst af öðrum eins fjölda sökum þess að vínveitingaleyfið erenn að velkjast í kerfinu. „Heil- brigðisfulltrúi er búinn að gefa grænt ljós á leyfið og þá er bara að bíða eftir því að ráðuneytið gefi vilyrði sitt fyrir vínveitingum." Matseðillinn hjá Stillholti þessa fyrstu helgi eftir endurreisnina var einfaldur; boðið var upp á nokkra kjöt- og fiskrétti sem féllu gestum vel í geð að sögn Gunnars Páls. Hann bætti því við, að ætlunin væri að leggja áherslu á góðan mat á góðu verði og fara rólega af stað. „Það má alltaf efna til nýjunga síðar en nú gildir að koma rek- strinum í gang á ný,“ sagði hann. Komið víða við Gunnar Páll hefur komið víða við á síðustu árum og sérhæft sig í endurskipulagningu eldhúsa. Þannig var hann t.d. ábyrgur fyrir breytingum sem gerðar voru á eldhúsi félagsheimilis Kópavogs, einnig á eldhúsi RALA, Rann- sóknarstofnunar landbúnaðarins, og hefur einnig verið á Hvann- eyri. Þá hafði hann umsjón með endurskipulagningu smárétta- gerðar í Borgarnesi, sem m.a. framleiðir pizzur. „Mér fannst kominn tími á að gera eitthvað fyrir sjálfan mig og fannst spenn- andi að takast á við þetta verk- efni,“ sagði Gunnar Páll. Auglýst var eftir starfsfólki fyrir helgina og hafa ráðningar gemgið vel. Gunnar Páll og starfsfólk hans stefnir að því að hafa Still- holt opið frá kl. 10 á morgnana fram eftir kvöldi og eflaust væri það forvitnilegt fyrir bæjarbúa að reka þar inn nefið einhvern næstu daga til að kynnast því af eigin raun hvernig til hefur tekist með endurreisnina. VatnsmótLeynismanna: Gunnar Páll Ingólfsson, rekstrarstjóri veitingahússins Stillholts, sem opnaði að nýju sl. föstudag ftir langt hlé. Akraprjónsmótið í gotfi: Þórdís sigraði Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili varð hlutskörpust í Akra- prjónsmótinu í golfi, sem fram fór á Garðavelli um helgina. Hún lék 18 holumar á 80 höggum, 10 höggum færri en sú er næst kom, Lóa Sigur- björnsdóttir. Hún er einnig í Keili. Þriðja sætið kom í hlut Jóhönnu Waagfjörd úr GR, sem lék á 91 höggi. Ragnar sigraði klúbbmeistarann Ragnar Þór Ragnarsson varð hlutskarpastur á Vatnsmóti Golf- klúbbsins Leynis sem fram fór sl. fimmtudag. leiknar voru 18 holur án forgjafar og kom Ragnar inn á 73 höggum. Skaut hann m.a. Omari Erni Ragnarssyni, nýbökuðum klúbbmeistara, ref fyrir rass. Ómar varð annar á 75 höggum og Hjalti Nielsen þriðji á 78 höggum. I keppni með forgjöf sigraði Aðalsteinn Huldarsson, lék á 65 höggum nettó. Jóhann Ágústsson varð annar á 66 nettó og Guðni Steinar Helgason þriðji á 67 högg- um nettó. Þrír aðrir léku einnig á Skagablaðið næstH.ágúst Skagablaðið vill vekja athygli lesenda sinna svo og auglýsenda á því að ekkert blað kemur út fimm- tudaginn 4. ágúst næstkomandi vegna sumarleyfis ritstjórnar. Næsta blað verður á ferðinni fimmtudaginn 11. ágúst, daginn eftir að blaðið fagnar fjögurra ára afmæli sínu. 67 höggum nettó. Þátttaka á Vatnsmótinu, sem hlaut það nafn á sínum tíma vegna úrhellisrigningar er gerði þegar mótið var fyrst haldið, var geysi- lega góð og tók 41 keppandi þátt í mótinu sl. fimmtudag. Sigríður Ingvadóttir úr Leyni var aðeins einu högi frá því að næla sér í verðlaun í keppni án forgjafar á þessu móti. Hún lék á 92 höggum. Alls tók 21 kona þátt í mótinu, þar af fimm héðan frá Akranesi. Sigríður bætti verðlaunaskort- inn í keppninni án forgjafar upp með því að næla í 3. sætið með forgjöf. Lék hún á 71 höggi nettó, einu lakar en Lóa sem varð í 2. sæti. Fyrsta sætið kom hins vegar í hlut Jóhönnu Waagfjörð úr GR. Hún lék vel undir sinni forgjöf og sigraði á 64 höggum nettó. Efnttilætt- fræðinámskeiðs Jón Valur Jensson, sá hinn sami og annast ættfræðisíð- una í DV, hygst efna til nám- skeiðs í ættfræði í Borgarnesi einhvern tíma á næstunni. Jón Valur hefur gengist fyr- ir fjölda námskeiða af þessu tagi í Reykjavík og víðar um land. Allar nánari upplýsing- ar veitir námskeiðshaldarinn í síma 91-27101. Vertu tipp-topp um Verslunarmannahelgina TIPP Vorum að taka uupp mikið úrval af galla- fatnaði, bolum og ýmsu fleiru. Tilvalið fyrir verslunarmannahelgina. Odýrar vörur en samt tipp-topp. 0PIÐ LAUGARDAG FRÁ KL. 10 TIL14. TIIPP T SKÓLABRAUT 25 S13010

x

Skagablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skagablaðið
https://timarit.is/publication/1351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.