Skagablaðið - 12.10.1989, Qupperneq 7
Skaaablaðið
7
Hvað er að þessum bíl?
Fátt er skemmtilegra en að sýna útlendingum landið á góðum
sumardegi. Þeir voru því miður teljandi á fingrum annarrar handar
góðu dagarnir á nýliðnu sumri en fögnuðurinn ótrúlegur þá sjaldan
sólin braust fram úr skýjum.
„Ég veit ekki hvað er að bíl-
stjóranum," sagði ég tiltölulega
áhugalaus um afdrif hans.
„Eg veit heldur ekki hvað er
að þér,“ sagði vinkona mín enn
þyngri á brún.
„Nei hættu nú . . . „ byrjaði ég
en hún greip fram í:
„Af hverju drepurðu ekki á
bílnum? Hann á ekkert með að
standa hér í gangi og menga and-
rúmsloftið í kring.“
Nú skildi ég loksins hvað hún
var að fara og afsakaði Mözdu-
eigandann eins og það væri ég
sjálf:
„Hvað . . . hann er að flýta sér,
kemur strax aftur . . . „ Það
reyndust orð að sönnu því út úr
bakaríinu sveif vörpulegur
maður, settist inn í bílinn og
þeysti í loftköstum burtu án þess
að spenna beltið.
„Hann var heppinn að ég tala
ekki íslensku," sagði vinkonan,
„og næst þegar ég sé hann leika
þennan leik slekk ég á bílnum."
„Slekkurðu hvað?“ spurði ég
gapandi.
„Ég slekk á bílnum. Það hefur
engin leyfi til að spilla náttúrunni
fyrir öðrum á þennan hátt. Að
þú skulir vera svona andvara-
laus!“ Hún var örg og mér vafðist
tunga um tönn.
Einn slíkan júnídag var ég að
sýna erlendri vinkonu minni
bæinn okkar og dró nú ekkert
undan í fjálglegri útlistun á feg-
urð staðarins og mannlífi því sem
hér þrífst. Og víst var vinkonan
hrifin, hvergi hafði hún skokkað
á betri sandi en Langasandi,
aldrei dregið að sér hreinna sjá-
varloft, borðað betri fisk né farið
í aðra eins heitu potta og í Jað-
arsbakkalaug.
Henni sýndust börnin vera
frjálsmannlegri í fasi en gerist
meðal erlendra þjóða (án þess þó
að vera frek!), kaffið bragðaðist
óvenju vel, sérstaklega annar til
tíundi bolli (ábótin óeypis!) og
svo allt þetta ferska vatn með
matnum fyrir ekki neitt. . . Já ég
var ekki lítið stolt af því að til-
heyra þessari þjóð.
Sem við gengum gegnum bæ-
inn og vorum að bræða það með
okkur hvort þetta væri ekki ein-
mitt dagurinn til að ganga á
Akrafjall nam vinkona mín
skyndilega staðar fyrir framan
Harðarbakarí.
„Hvað er að þessum bíl?“
spurði hún snögg upp á lagið og
benti á bláa Mözdu.
„Að honum!“ svaraði ég
klumsa. „Svo sem ekki neitt.“
„Jæja . . .“ sagði hún ákveðin.
„Það er að minnsta kosti eitthvað
að bílstjóranum."
„Nú . . . „ hváði ég og kíkti inn
í bílinn. Þar var enginn. Kannski
hafði sjúkdómurinn gert svo
skyndilega vart við sig að bíl-
stjóranum gafst ekki færi á að
drepa á bílnum en hljóp út í
dauðans angist til þess að vera
ekki einn síðustu stundirnar.
Svo gengum við á Akrafjall.
Fegurðin sem blasti við okkur
þar uppi var í hróplegri mótsögn
við sögurnar sem hún sagði mér
um forpestun náttúrunnar í
Evrópu. Þar væri bannað að við-
lögðum sektum að skilja bíla eft-
ir í gangi og víða búið að innleiða
lög sem byðu mönnum að
Akraneskaupstaður
— Bæjarstjóri
SPURÐU
INGVAR
Ingvar Ingvarsson, bæjarfulltrúi, veröur til viðtals
fyrir bæjarbúa á milli kl. 17 og 19 miðvikudaginn
18. október næstkomandi í fundarherbergi bæjar-
stjórnar að Heiðarbraut 40, 2. hæð, sími 12980.
BÆJARSTJÓRINN
Á AKRANESI
slökkva á bílum sínum meðan
beðið væri á rauðu ljósi.
„Þið eigið yndislegt land en
þið farið illa með það,“ sagði
hún. Ég var dálítið hnípin en
hugsaði með mér að þetta væri
ekki svona slæmt, hún hefði bara
séð einn af þeim ÖRFÁU á
Skaga sem skildu bíla sína eftir í
gangi. Og í versta falli hefðum
við rokið, elsku, blessað rokið
sem feykti í burtu allri mengun.
Næsta dag var ég á verði. Við
fórum ofan í bæ og ég gaf bílun-
um auga svo lítið bar á. Þá sá ég
mér til hryggðar að Mözdueig-
andinn var ekki einn af ÖRFA-
UM heldur einn af FJÖL-
MÖRGUM sem skildu bílana
eftir í gangi: Þrír fyrir framan
Bakaríið, fjórir á Torginu og
tveir við Pósthúsið. Verst þótti
mér með pósthúsbílana því þar
voru barnavagn og kerra í nokk-
urra metra fjarlægð frá pús-
trörunum.
„Ætli þessir bíleigendur eigi
engin börn?“ spurði vinkonan
hvöss — ég vissi það ekki. Hún
vildi drepa á bílunum, ég aftraði
henni frá því.
Á miðri Kirkjubrautinni and-
spænis Lögreglustöðinni voru
tveir kyrrstæðir bílar í gangi.
Bílstjórarnir sem voru á leiðinni
sinn í hvora áttina hölluðu sér út
um gluggana og voru í hróka-
samræðum. Kirkjubrautin er
eins og allir vita engin breiðgata
þannig að bílaruna safnaðist upp
báðum megin við kjaftaskana
tvo. Að sjálfsögðu voru allir
þessir bílar í gangi nema
hvað . . . ? Ég leit ekki á vinkon-
una og lét sem ég heyrði ekki í
henni en smám saman óx gremj-
an í garð landa minna.
Sumarið leið, vinkonan fór og
regnið hélt áfram að streyma. Ég
fór norður og austur og allsstaðar
gaf ég bílum gætur. Kannski var
þessi ósiður bara einkennandi
fyrir Akranes. Betur að satt væri.
Én því miður! Utan í þjónustu-
miðstöðinni á Þingvöllum og í
Skaftafelli voru mannlausir, eld-
spúandi drekar í kippum og
norður á Akureyri taldi ég sjö
lúxuskerrur í mengunarleik á
stæðinu fyrir framan hótel KEA.
Svo var það eitt haustkvöld að
ég kom gangandi innan úr
Hverfi. Það var stillt og farið að
húma þessu indæla september-
húmi sem er eins og flauel, loftið
tært, ég naut þess að vera úti og
vera til. Þangað til ég kom að
Skaganesti. Þar hikstuðu tveir
drekar mannlausir í leiðindum
sínum á meðan eigendur þeirra
Þessi bíll var skilinn eftir fyrir skömmu . . . „að sjálfsögðu“ í gangi.
voru inni að sinna erindum. Ekki
veit ég hvort það var húmið sem
jók mér kjark eða hvort ég var
einfaldlega búin að fá nóg - en ég
teygði mig inn í báða bílana og
drap á þeim.
Ég var léttari á fæti þegar ég
skokkaði áfram. Hver hefur rétt
til að spilla náttúrunni fyrir öðr-
um með hugsunarleysi eða slóða-
skap? Ekki ég - ekki þú.
Óg ef þetta dugir ekki - hver
veit nema lyklarnir hverfi þá
næst úr mannlausum bílnum?
TEPPA- OG HREINGERNINGAÞJÓNUSTA
Tökum að okkur teppa- og húsgagnahreinsun. Einnig allar
almennar hreíngemingar. Reynið viðskiptin.
HREINGERNINGAÞJÓNUSTAN
Síml 12219
EKKERT HUS AN ELDVARNA
ENGIM FYRIRHÖFN — ÞÚ HRINGIR — VIÐ KOMCJM
ELDVARNAPJQNGSTAN
ÞJÓNUSTA Í ÞJÓÐARÞÁGU
ÞJÓÐBRAUT 1 — AKRANESI — SÍMI 93 - 1 32 44
Öll almenn renni-
smíði. Erum með
fræsivél.
HAFSTEINN BALDURSSON RENNISMIDAU
JADARSBRAUT 13 - 300 AKRANES
VELAVINNA
Leigjum út flestar gerdir vinnu-
SKÍIFI AN' v®*a‘ ®nnumst jarðvegsskipti
,»U| \Jv ogútvegummöl sandog mold.
Fljót og örugg þjónusta.
Faxabraut 9
S 13000