Skagablaðið - 12.10.1989, Qupperneq 10
íl»ia Skagablaðið
ÞjáKarí ?ð
uian til ÍA?
Heimildir Skagablaðsins
herma, að stjórn Knattspyrnufé-
lags ÍA sé þeirrar skoðunar að
rétt sé að leita eftir erlendum
þjálfara fyrir næsta keppnistíma-
bil.
Ekki hefur fengist staðfest að
George Kirby sé í sigtinu
þrátt fyri sterkan orðróm þar
um. Traustar heimilidir blaðsins
herma hins vegar að 99% líkur
séu á ráðningi Kirbys fyrir næsta
sumar.
Eyjólfur Sv.
í sigtinu?
Eyjólfur Sverrisson, miðherji
2. deildarliðs Tindastóls í knatt-
spyrnunni og íslenska U-21
landsliðsins, er í sigtinu hjá
stjórn Knattspyrnufélags ÍA fyrir
næsta sumar.
Hætt er þó við að Skaga-
menn verði ekki einir um
hituna því Teitur Pórðarson hjá
Brann var á leik Hollendinga og
Islendinga í Evrópukeppni
leikmanna undir 21 árs í fyrra-
kvöld. Hann var sérstaklega að
fylgjast með Eyjólfi.
Gunnargódur
Gunnar Viðarsson, ungur
Skagamaður sem getið hef-
ur sér gott orð sem handknatt-
leiksdómari, var einn 10 dómara
sem slapp í gegnum hæfnispróf 1.
deildar dómara fyrir skömmu.
Alls þreyttu um 30 dómarar
þetta próf og mátti stærstur hluti
þeirra sætta sig við að falla á því.
Um þessar mundir er Vátryggingafélag íslands að dreifa endurskinsmerkjum til allra barna í grunn-
skólum og dagvistarstofnunum bæjarins. Jafnframt hefur bæklingi verið dreift, þar sem kynnt er
slysatrygging allra skólabarna. Pær tryggingar eru hluti af svokölluðum „Samsettum sveitarstjórnar-
tryggingum", sem Brunabót var með á sínum snærum en VÍS tekur nú yfir. Myndin hér að ofan var
tekin af nokkrum börnum á leikskólanum að Skarðsbraut með kynningarbæklingana og endurskins-
merkin.
Drykkja og skrílslæti á
sýningum í Bíóhöllinni
- Talsverð brögð að þvi að unglingar svindli sér inn í hléi
Talsvert er um að unglingar
noti kvöldsýningar Bíóhallar-
innar á föstudögum til þess að
stunda drykkju sína í húsaskjóli.
Hefur ítrekað hlotist af þessu
mikið ónæði og jafnvel komið til
skrílsláta þannig að aðrir bíó-
gestir hafa ekki getað notið sýn-
inga.
Leifur Eiríksson, fram-
kvæmdastjóri Bíóhallarinn-
ar, sagði í samtali við Skaga-
blaðið í gær. að ákveðið hefði
verið að ráðast gegn þessum
ósið með því að víkja þeim
unglingum, sem hafa vín um
hönd á sýningum, tafarlaust úr
húsinu.
Þá sagði Leifur talsverð brögð
að því að unglingar svindluðu
sér inn í hléi, þótt hann segðist
ekki átta sig á því hvaða gagn
væri að hálfri mynd.
Ákveðið hefur verið að taka
fyrir þessa iðju með þvt' að dag-
stimpla alla aðgöngumiða.
Verða gestir að framvísa réttum
miða hafi þeir á annað borð
skroppið út fyrir í hléi.
Blóðsöfnun
Blóðbankinn verður á ferð hér
á Akranesi, næstkomandi þriðju-
dag, 17. október, og hefur aðset-
ur í safnaðarheimilinu Vina-
minni.
Söfnunin hefst kl. 10 og stend-
ur til 12. Síðan aftur frá
12.30 til kl. 18. Er þess vænst að
Skagamenn bregðist vel við, líti
inn í safnaðarheimilið og leggi
blóð af mörkum. Dropinn er allt-
af jafn vel þeginn.
Batmaní
Bíóhöllinni
Stórstirnið Batman, ásamt
fylgifiskunum Robin, grínaran-
um, gátumanninum og öllum
hinum, verður á skjánum í Bí-
óhöllinni um helgina.
Ekki er að efa að Akurnesing-
ar jafnt sem aðrir heimsbúar
flykkist á þessa mynd, sem hefur
slegið öll aðsóknarmet hvarvetna
sem hún hefur verið sýnd.
Vinnuslys
Það slys varð í Síldar- og
fiskimjölsverksmiðju Akra-
ness á miðvikudag í síðustu viku,
að maður féll úr stiga, þar sem
hann var við vinnu í þró fyrir-
tækisins.
Maðurinn var fluttur á sjúkra-
hús en meiðsli hans reyndist ekki
alvarleg.
Rúða brotin
Rúða var brotin í Versluninni
Ósk aðfaranótt laugardags.
Einhverjum fatnaði var að sögn
lögreglu stolið úr glugganum.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
rúða er brotin í Ósk því slíkt hef-
ur gerst ítrekað.
Fjáröflunar- og framkvæmdanefnd Höfðæ
Fyriihugðu söfnunarátaki
frestað um hálfan mánuð
Fyrirhugaðri söfnun Fjáröflun-
ar- og framkvæmdanefndar
Höfða sem standa átti dagana 21.
- 28. þessa mánaðar hefur verið
frestað um tvær vikur og stendur
þess í stað dagana 4. - 11. nó-
vember.
ð sögn Gunnlaugs Haralds-
sonar, formanns nefndarinn-
ar, kom í ljós að Kiwanismenn
eru með landssöfnun sömu viku
og söfnun Höfða var fyrirhuguð
og því ákveðið að fresta henni
um tvær vikur.
„Þessi söfnun okkar hefur
hvarvetna fengið mjög góðar
undirtektir og sem dæmi má
nefna að Félag eldri borgara hér
á Akranesi ætlar að taka að sér
að ganga í öll hús á Akranesi og
safna framlögum einstaklinga,“
sagði Gunnlaugur.
Gunnlaugur nefndi ennfremur
sem dæmi um velvilja fólks í garð
Höfða, að Kiwanismenn hefðu
nú nýverið samþykkt að leggja
fram vinnu við einangrun á þakr-
ými nýbyggingarinnar og meta
mætti það vinnuframlag á um 300
þús. krónur.
Frá því framkvæmdir hófust
við nýbygginguna hefur hálf tí-
unda milljón króna borist í frjáls-
um framlögum frá einstaklingum
og fyrirtækjum, þar af rúmlega
milljón það sem af er þessu ári.
Nánar verður verður greint frá
tilhögun söfununarinnar í Skag-
ablaðinu á næstu vikum.
Gunnlaugur með nýbyggingu Dvalarheimilisins Höfða í baksýn.