Skagablaðið - 16.08.1993, Qupperneq 2
2
Skagablaöió
Fréttir þess efnis að frystitog-
ari nokkurra Hornfirðinga, sem
allt stefndi í að yrði gerður út
héðan frá Akranesi, kæmi eftir
allt ekki til Akraness hafa vak-
ið undrun undirritaðs. Mitt í
öllu atvinnuleysinu og sam-
drættinum rann bæjarstjórn úr
greipum kjörið tækifæri til
þess að skapa störf fyrir 25 -
35 manns.
Bæjarstjórn Akraness veit að
hún þarf ekki að gera sér vonir
um að glæða megi hér atvinnu
án þess að til komi áhætta af
einhverju tagi. Hér var verið
að ræða um 25 milljóna króna
ábyrgð, ekki beinan útlagðan
kostnað.
Þrátt fyrir að meirihluti væri í
sjálfri bæjarstjórninni fyrir
þessari aðgerð tókst ekki að
koma málinu í gegn, aðallega
að því er virðist vegna þess
hversu því var lengi þvælt í
kerfinu. Á meðan menn hér
voru enn að velta vöngum
komu Fáskrúðsfirðingar til
skjalanna og tryggðu sér
togarann.
Öllum er Ijóst að útgerð um-
rædds togara er áhættuspil,
sem ekki er tryggt að gangi
upp. En með 1. veðrétti í skip-
inu hefði bærinn átt að hafa
næga tryggingu fyrir því að
fara ekki illa út úr þátttöku
sinni.
Þrátt fyrir yfirlýsta stefnu um
að draga bæinn út úr atvinnu-
rekstri hefur stórkostlegt fjár-
magn verið lagt tvö fyrirtæki í
bænum, sem ekki hafa reynst
minna áhættuspil en umrædd
frystitogaraútgerð.
Vafalítið telja það einhverjir
gæfu að bæjarstjórn skyldi
ekki leggja út í 25 milljóna
króna ábyrgðarveitingu til
bess að tryggja útgerð togar-
ans héðan frá Akranesi. Und-
irritaður telur það hins vegar í
hæsta máta klaufalegt. Vissu-
lega má líkja útgerð umrædds
togara við lottó en þar gildir
líka sú regla að menn vinna
ekki nema þeir spili með.
Sigurður Sverrisson
Arnar Már við litljósritunarvélina að Skagabraut 44.
Nýtt fyrirtæki, Hugfang, hóf
starfsemi sína hér á Akranesi
fyrir nokkrum vikum. Forstöðu-
maður þess er hinn 22 ára gamli
Arnar Már Guðmundsson.
Iugfang býður upp á fjölþætta
þjónustu á sviði litljósritunar
og ýmiss konar útgáfu. Má t.d.
nefna gerð auglýsinga, bæklinga og
annars ritefnis. Uppistaðan í starf-
seminni felst hins vegar í ljósritun-
arþjónustu af ýmsum toga.
Arnar Már sagði viðtökurnar
hafa verið frábærar. „Júlímánuður
var hreinlega geggjaður. Eg var hér
fram til klukkan fjögur á nóttunni
og hafði vart undan. Nú er þetta að
komast í fastmótaðra form en það
er nóg að gera.“
Hugfang hefur aðsetur að Skaga-
braut 44 (gegnt Skaganesti) en að
sögn Arnars Már þarf fyrirtækið að
flytja sig um set þann 1. nóvember.
Skagablaðið óskar þessum unga at-
hafnamanni til hamingju með fram-
takið og árnar honum heilla í fram-
tíðinni.
Kristrún Halla og Daníel Rúnar á skrifstofunni daginn sem hún var opnuð.
Hákot ■ m
SumarferðHöfða
lin árlega sumarferð þeirra
Isem búa á Höfðasvæðinu
var farin þann 23. júlí sl. um
Borgarfjarðarhérað. Um 55
manns snæddu hádegisverð í
Munaðarnesi og fengu sér síð-
degiskaffi í Þyrli í Hvalfirði.
Hákot, ný fasteignasala á Akranesi, tók til startai
júlí. Þetta er þriðja fasteignasalan sem nú er starf-
rækt í bænum. Eigendur hinnar nýju fasteignasölu
eru hjónin Daníel Rúnar Elíasson og Kristrún
Halla Ingólfsdóttir. Þau starfa jafnframt bæði á
fasteignasölunni.
Hvað nafnið á fasteignasölunni áhrærir langaði mig
til þess að hafa á henni eitthvert ekta Skaganafn,"
sagði Daníel Rúnar er Skagablaðið ræddi við hann.
„Hákotsnafnið lá vel við því hús með þessu nafni stóð
lengi vel handan götunnar en er nú horfið."
Er Daníel Rúnar var inntur eftir því hvernig hefði
gengið og hvort hann teldi grundvöll fyrir þremur fast-
eignasölum í ekki stærri bæ sagði hann sagðist hann
aldrei hafa farið út í þennan rekstur ef hann hefði ekki
trú á að hann gæti gengið.
„Mér fannst ágætt að byrja að sumarlagi þegar ró-
legra er yfir markaðnum. Þannig gefst manni betri tími
til þess að setja sig inn í hlutina," sagði Daníel. Fast-
eignasalan Hákot er til húsa að Kirkjubraut 17, efri
hæð. Skagablaðið óskar þeim hjónum til hamingju með
fyrirtækið og árnar þeim heilla í viðskiptum.
llmferðarfræðsla 5 og 6 ára bama
T¥* '„1__J» __ C 1 --* X II .j:..l.„..
Hin árlega umferðarfræðsla 5
og 6 ára barna fer fram hér á
Akranesi á fimmtudag og föstu-
dag, 19. og 20. ágúst. Mörg und-
anfarin ár hefur þátttaka verið
með eindæmum góð í þessari
fræðslu hér í bæ og engin ástæða
er til þess að ætia að einhver
breyting verði þar á.
Fræðslan í ár fer fram í Brekku-
bæjarskóla eins og verið hefur
um langt skeið. Hvert barnTsem
fætt er 1987 eða 1988, mætir
tvisvar, einu sinni hvorn dag. Fimm
ára börnin mæta báða dagana kl.
13.30 en sex ára börnin mæta kl.
11.
Til þess að ná sem best til barn-
anna eru notaðar margar leiðir.
Spjallað er við þau, sögð „leik-
brúðusaga" af Snuðru og Tuðru eft-
ir Iðunni Steinsdóttur, sungið.
sýndar kvikmyndir og glærur og að
sjálfsögðu er mikið lagt upp úr því
að börnin fái sjálf tækifæri til að tjá
sig.
Það eru lögreglan á Akranesi og
í Borgarnesi, Akranesbær, Borgar-
nesbær og Umferðarráð sem standa
að fræðslunni. Astæða er til þess að
hvetja foreldra til þess að senda
börn sín í umferðarfræðsluna og
helst að fara með þeim.
Ritstjóri og ábm.: Sigurður Sverrisson ■ Auglýsingar: Fjóla Asgeirsdóttir
■ Dreifing: Sigurður Sigurðsson ■ Áskrift og bókhald: Steinunn Olafsdóttir
■ Umbrot og prentun: Prentverk Akraness hf. ■ Útlit: Skagablaðið ■
Ritstjórn: Skólabraut 21,2. hæð. Opin alla virka daga frá kl. 10-17. ■ Símar
14222 og 12261 ■ Bréfasími (Fax): 14122 ■ Póstfang: Pósthólf 170, 300
Akranes ■ Skagablaðið er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða