Skagablaðið - 16.08.1993, Blaðsíða 3
Skagablaðió
3
sumarleyfmu
Kristinn G. Bjarnason,
Golfkliibbnum Leyni,
gerði sér lítið fyrir og skaut
bæði Birgi Leifi Hafþórssyni
og Þórði Emil Olafssyni aftur
fyrir sig á Landsmótinu í golfi
fyrir stuttu. Kristinn, sem hef-
ur leikið mjög vel í suniar, var
á meðal tíu efstu manna en
þeir Birgir og Þórður skammt
á eftir honum.
Meistaraflokkur kvenna í
knattspyrnu tryggði sér
sæti í úrslitum bikarkeppninn-
ar sjöunda árið í röð með sæt-
um sigri, 2:1, gegn Breiða-
bliki eftir framlengdan leik.
Stelpurnar mæta Stjörnunni í
úrslitum á sunnudaginn.
Ragnheiður Runólfsdóttir
hætti störfum sem aðal-
þjálfari Sundfélags Akraness
og hefur verið ráðin sem aðal-
þjálfari sunddeildar Aftureld-
ingar í Mosfellsbæ.
Skagamenn tryggðu sér
sæti í úrslitum bikar-
keppni karla með 1 : 0 sigri á
KR í framlengdum leik á úti-
velli. Skagamenn mæta IBK í
úrslitum.
Þrír nýir leikmenn hafa
bæst í hóp meistaraflokks
Skagamanna í körfuknattleik.
Ivar Asgrímsson, sem jafn-
framt verður Jtjálfari, Einar
Einarsson frá IBK og Harald-
ur Leifsson frá Tindastóli.
Annar flokkur karla í knatt-
spyrnu féll út úr bikar-
keppninni eftir 2 : 3 tap hér
heima gegn Val í framlengd-
um leik. Strákarnir höfðu
fram að þessum leik unnið sjö
útileiki í röð í bikarnum án
þess að fá á sig mark, fimm í
fyrra er þeir urðu bikarmeist-
arar og tvo á þessu ári.
lirgir Leifur Hafþórsson
► varð klúbbmeistari Leyn-
is á meistaramóti klúbbsins
sem fram fór um miðjan júlí.
Hann lék á 289 höggum.
Kristinn G. Bjarnason varð
annar á 295 og Þórður Emil
Ólafsson varð þriðji á 298. Jó-
hannes Armannsson vann 1.
fl. karla á 307 höggum, Krist-
inn Hjartarson 2. fl. á 342
höggum og Birgir Jónsson 3.
fl. á 374 höggum. í 1. fl.
kvenna sigraði Arnheiður
Jónsdóttir á 380 höggum, í 2.
fl. kvenna (54 holur) Þóranna
Halldórsdóttir á 325 höggum,
í drengjafl. Eiríkur Jóhanns-
son á 310 höggum, í telpnafl.
(27 holur) Arna Magnúsdóttir
á 181 höggi, í öldungafl. Guð-
mundur Valdimarsson á 318
höggum og í unglingafl. Birg-
ir Leifur Hafþórsson á 289
höggum.
Nýr ÞmgvaMniigiir
Það fer ekki fram hja neinum, sem til þekk ja a Akranesi, að bærinn
hefur breyst á tiltölulega skömmum tíma úr því að vera dæmigerður
sjávarbær í það að vera bær sem býður upp á mjög fjölbreytta þjón-
ustu á nánast öllum sviðum í verslun, viðskiptum og hvers konar
ferðamannaþjónustu, auk þess sem íþrótta- og skólaaðstaða hefur tek-
ið miklum framförum og dregur
eða skemmri tíma.
Rómarborg var ekki byggð á
einum degi og Akranesbær
verður ekki miðdepill ferðamanna
eins og hendi sé veifað en hér eru
menn á réttri leið. Athygli hefur
vakið Atakshópurinn, sem sam-
anstendur af óli'kum þjónustuaðil-
um í bænum, og hefur hann með
samstilltu átaki bryddað upp á
mögum nýjungum og gert Skaga-
menn meðvitaðri um að hvað hér er
á boðstólum. Þrjú ár eru liðin sfðan
ferðamálafulltrúi var ráðinn til bæj-
arins, það starf hefur skilað sér
margfalt. Undirstöðuatvinnuvegur-
Teygjuhopp var einn liðurinn í
Sumri & Sandi sem Atak '93 gekkst
fyrir umfyrri helgi. Greinarhöfund-
ur hœlir Atakshópnum fyrir nýjung-
ar.
hingað fjölda ungmenna til lengri
inn hefur þurft að sæta stöðugum
samdrætti og því þarf að nýta aðra
möguleika til hins ítrasta. í ferða-
mannaiðnaði eru engar aflatak-
markanir, þar fiska menn sem róa.
Akranes er ekki í alfaraleið, þar
af leiðandi þarf að vera hér enn og
sérhæfðara framboð á þjónustu við
ferðamenn til að draga að heldur en
hjá þeim sem búa við þjóðbraut
þvera.
Það er gömul saga og ný að
langmesta aðdráttarafl fyrir ferða-
menn er svokallaður Þingvalla-
hringur. Fjölmargir ferðamenn fara
þessa leið. Vestlendingar hafa löng-
um haft áhuga fyrir að tengjast
þessum tjölförnu stöðum á Suður-
landi betur og á síðustu árum hefur
áhuginn farið vaxandi.
A sl. þingi lagði ég fram þings
ályktunartillögu um gerð vegar á
milli Þingvalla og Hvalfjarðar og
Leggjabrjót. Um Leggjabrjót eru
aðeins 20 km frá Botnsskála í
Hvalfirði að Þingvöllum. Hér er um
Krístinn vann Helgusundið
Kristinn Einarsson frá Akranesi sigraði fyrir stuttu í svokölluðu
Helgusundi, sem fram fór í Hvalfirði. Um var að ræða sund út í Geirs-
hólma í firðinum.
Kristinn, sem æfi sig ekkert sérstalega fyrir sundið, var þegar til kom
eini keppandinn og sigraði því átakalítið. Hann sagði í samtali við
Skagablaðið að sundið hefi reynst sér furðu létt, ekki síst með tilliti til þess
að hann hefði ekkert æft sjósund undanfarin misseri og verið 15 kg léttari
en þegar hann reyndi sund þvert yfir Hvalfjörð.
Myndin hér að ofan var tekin er Kristni voru afhent sigurlaunin ( sund-
inu en á ntinni myndinni er hann á leið út í hólmann.
stutta leið að ræða, afar fagra og
söguríka.
Ekki er að efa að slfk vegarlagn-
ing hefði geysimikla þýðingu í
sambandi við ferðamannastraum
því með þessum vegi myndaðist
nýr Þingvallahringur, sem skapaði
aukin atvinnutækifæri, a.m.k. í
Hvalfirði og á Akranesi. Ekki spill-
ir að þá styttist leið að hæsta fossi
landsins, Glym í Botnsá, sem er
sérstakt náttúruundur. Þá myndi
einnig skapast framtíðarskíðasvæði
í Botnssúlum.
Með þessum vegi yrðu tengdar
saman hinar fögru byggðir Arnes-
sýslu og syðri hluti Borgarfjarðar,
sem svo sannarlega hefur margt
upp á að bjóða.
Þessi tillaga fékkst ekki afgreidd
og verður því endurflutt í von um
að hún komist inn á langtímaáætl-
un. Eg vænti þess að þessi mögu-
leiki verði skoðaður fyrir alvöru
því ef þessi vegarlanging verður að
veruleika myndi það opna marga
nýja möguleika hér um slóðir.
Höfundur er 1. þingmaður Fram-
sóknarflokksins á Vesturlandi.
Upplýsiiigaskrifstofan:
Eria Sigurðar
sýnip mjTidir
Erla Sigurðardóttir, sem
fædd er á Akranesi, hefur
opnaö sýningu á myndum sín-
um á Upplýsingaskrifstofu
ferðamanna að Skólabraut 31.
Sýningin stendur til 15. sep-
tember.
Erla hefur haldið fjórar
einkasýningar og á að baki
nám í Myndlista- og handíða-
skóla Islands og Europáische
Akademie fiir Bildende Kunst.
Hún starfar við myndskreytingu
barnabóka og kennir við Mynd-
listarskóla Kópavogs.