Skagablaðið - 16.08.1993, Síða 4
4
Skagablaöiö
Markameíið í
1. deild er í lixettu
Markamet 1. deildarinnar í
knattspyrnu er í hættu því Akur-
nesinga skortir aðeins 5 mörk í 6
síðustu leikjum sínum til að slá
eigið met frá 1978.
Skagamenn skoruðu þá 47 mörk
og fengu aðeins 13 á sig. Eftir
sigurinn á Þór á fimmtudag hafa
Akurnesingar skorað 43 mörk t'
deildinni og ekki fengið á sig nema
9.
Valsmenn eiga metið hvað varð-
ar mesta markamun. Þeir unnu Is-
landsmótið 1978 með fáheyrðum
yfirburðum; unnu 17 leiki og gerðu
eitt jafntefli. Markatalan var 45 : 8
eða hagstæð um 37 mörk. Þetta met
er einnig í hættu.
Serbinn knái Miliajlo Bibercic í viðtali við Skagablaðið:
„Ég var fenginn hingað til þess
að skora mörk fyrir Akranesliðið
og ég held að ég hafi staðið
þokkalega undir þeim vænting-
um. Ég er nú búinn að skora 13
mörk í 15 leikjum í Isiandsmót-
inu og í bikarkepninni og hef
reyndar verið klaufi eða óhepp-
inn að hafa ekki skorað enn fleiri
mörk og í ein fjögur skipti hafa
marksúlurnar komið í veg fyrir
mörk," sagði serbneski marka-
hrókurinn Mihajlo Bibercic eða
„Mikki“ eins og félagar hans í
Akranesliðinu kalla hann í spjalli
við Skagablaðið.
að hefur að sjálfsögðu hjálpað
mér hversu sterkt Akranesliðið
er og félagar mínir í liðinu hafa Iagt
upp mörg mörk fyrir tnig. En ég
verð að viðurkenna það að ég átti
ekki von á því að ég væri að ganga
til liðs við jafn öflugt lið á Islandi
og Akranesliðið er. Eg er nú þegar
búinn að leika gegn öllum 1. deild-
ar liðunum á Islandi og mér er það
algerlega óskiljanlegt hvers vegna
5-6 leikmenn liðsins eru ekki
fastamenn í íslenska landsliðinu því
liðið er í allt öðrum gæðaflokki en
önnur lið hér á landi."
Bibercic kom hingað frá 1. deild-
arliðinu Pristina frá fyrrum
Júgóslavíu. Hann sagði að vegna
styrjaldarinnar í landinu þá væri
mikil ólga og uppstokkun f knatt-
spyrnunni og hann færi því ekki
aftur til Pristina f haust. En það
kæmi vel til greina að ganga til liðs
við félag í Serbíu en þar væri búið
að stofna sér deildarkeppni þar. En
það væri samt allt óráðið með
framhaldið hjá sér.
Hann varðist allra fregna þegar
hann var spurður hvort hann gæti
hugsað sér að leika með Skaga-
mönnum aftur næsta sumar. Sagði
hann að þau mál hefðu ekkert verið
rædd við sig ennþá af þjálfaranum
eða knattspyrnuforystunni á Akra-
nesi.
En finnst Bibercic mikill munur
á knattspyrnunni hér á landi og í
fyrrum Júgóslavíu?
„Knattspyrnan úti er mun hraðari
og það er meiri harka í henni enda
eru þetta allt atvinnumenn í íþrótt-
inni. En eins og ég sagði áðan þá er
Skagaliðið að mínu mati í sérflokki
hér á landi og ég get fullyrt að liðið
eins og það er í dag gæti alveg
haldið sínu í l.deildinni eins og
hún var í fyrrum Júgóslavíu."
Bibercic var óspar á lofið á Guð-
jón Þórðarson þjálfara liðsins.
Hann sagði að hæfileikar hans sem
þjálfara væru ótvíræðir og það væri
mjög gott að starfa með honum.
„Eg kann vel við mig hérna á
Akranesi og knattspymuáhuginn er
greinilega mjög mikill. Að sjálf-
sögðu er mikill munur á veðurfari
hér á landi og í fyrrum Júgóslavíu
og það finnast mér mestu viðbrigð-
in,“ sagði Mihajlo „Mikki“
Bibercic að lokum.
-SE
HíkkímgegnÍBK
Skagamenn fá svo sannarlega
eldskím í Úrvalsdeildinni í
körfuknattleik í haust því þeir
mæta íslands- og bikarmeisturum
Ketlavfkur í fyrsta leik sínum í
Keflavík þann 14. október. Fyrsti
heimaleikurinn verður hins vegar
þann 17. októbergegn Valsmönn-
um.
Annar flokkur karla í baráttu við Frain í titilvöra sinni á íslandsmótinu:
femaðgetoldáraðþeto44
9
• segir Sigurður Halldórsson, þjálfaii strákanna, þrátt fyrir t\ö töp í röd
„Okkur hefur gengið mjög vel í sumar og erum nú í efsta sæti. Fram-
arar eru reyndar á hælum okkur með aðeins einu stigi minna en við,“
sagði Sigurður Halldórsson þjálfari 2. flokks í knattspyrnu í samtali við
Skagablaðið.
Þessi tvö lið eru í algjörum sér-
flokki og má segja að öll önnur
lið séu í fallbaráttu. Tveir síðustu
leikir okkar hafa því miður ekki far-
ið samkvæmt bókinni og töpuðust
þeir báðir.
Það var sérlega sán að tapa gegn
Stjörnunni, sem er í neðsta sæti. Við
óðum í marktækifærum allan leikinn
en fengum svo á okkur mark í lokin.
Til að bæta gráu ofan á svart þá
misstum við þrjá leikmenn útaf
meidda í þeim leik, þar á meðal okk-
ar aðalmarkaskorara, Stefán Þórðar-
son, sem sleit liðbönd í hné og leik-
ur ekki knattspyrnu meira á þessu
ári.
Sömu sögu er að segja af leiknum
og margt gerst enn hvemig sem leik-
urinn á morgun fer,“ sagði Sigurður.
Úrslit í leikjum 2.flokks í sumar.:
gegn KR í síðustu viku og gegn
Stjörnunni. Við vorum mun sterkari
aðilinn í þeim leik en tókst ekki að
nýta það í mörk. Þeir skoruðu eina
mark leiksins með ævintýralegu
þrumuskoti af 40 metra færi. En á
sama tíma töpuðu Framarar gegn
Breiðabliki og staðan breyttist því
ekki.
Þrátt fyrir þetta bakslag í síðustu
leikjum þá erum við staðráðnir að
berjast alveg til loka og höfum við
sýnt það í sumar að við eigum að
geta klárað þetta. Næsti leikur okkar
er gegn Fram í Reykjavík annað
kvöld og eru margir á því að þar
gætu úrsltin á mótinu hreinlega ráð-
ist en það eru samt margir leikir eftir
IBV - IA
IA - Stjarnan
KR-ÍA
ÍA - Fram
UBK - ÍA
KA-ÍA
IA - Vfkingur
ÍA-ÍBV
Stjarnan - ÍA
ÍA-KR
Staðan:
ÍA 10 7-1-2 23-8 22 stig
Fram 10 6-3-1 26-11 21 -
KR 10 5-1-4 19-11 16 -
KA 9 3-3-3 15-15 12 -
ÍBV 9 3-3-3 17-19 12 -
UBK 10 4-0-6 16-21 12 -
Víkingur 9 2-1-6 14-24 7 -
Stjarnan 9 2-0-7 10-32 6 -