Fréttablaðið - 08.07.2019, Side 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 6 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R M Á N U D A G U R 8 . J Ú L Í 2 0 1 9
499 KR.
SÓMA SAMLOKA
OG GOS FRÁ ÖLGERÐINNI
599KR.
SÓMA LANGLOKA
OG GOS FRÁ ÖLGERÐINNI
A
ct
av
is
9
1
1
0
1
3
Omeprazol
Actavis
20 mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
NEYTENDUR „Innleiðing þessarar
reglugerðar verður náttúrulega mjög
mikil réttarbót fyrir okkur Íslend-
inga. Þetta þýðir það að hver sem er,
sem sendir vörur á milli landa innan
evrópska efnahagssvæðisins, verður
nú að senda til Íslands,“ segir Breki
Karlsson, formaður Neytendasam-
takanna. Reglugerðin tók gildi innan
Evrópusambandsins í desember. Í
svari atvinnuvegaráðuneytisins við
fyrirspurn Fréttablaðsins er stefnt
að því að leggja málið fram á Alþingi
næsta vor.
Ef reglugerðin verður samþykkt
verður seljendum vöru og þjónustu
á netinu skylt að veita öllum neyt-
endum rétt til viðskipta innan EES.
Áður en þessar reglur taka gildi
hér á landi þarf að innleiða þær í
EES-samninginn. Samkvæmt upp-
lýsingum frá EFTA er búið að gera
drög að ákvörðun sameiginlegu
EES-nefndarinnar en nú er boltinn
hjá ríkjunum sjálfum.
„Þetta er bara frábært fyrir
íslenska neytendur því að þá hafa
allir á efnahagssvæðinu aðgengi að
vörum á sama verði. Þá er ekki hægt
að hafa mismunandi verð á mis-
munandi landsvæðum,“ segir Breki.
„Eins og er þá senda ýmsar verslanir
í Evrópu ekki vörur til Íslands, eða
neita að taka við greiðslum með
íslenskum kortum. Sumar af þessum
vörum eru seldar hér á landi á hærra
verði en eftir þetta þá geta Íslending-
ar keypt vörur á netinu á sama verði
og gengur og gerist í Evrópu.“
Breki segir að ekki þurfi að hafa
neinar áhyggjur af tollum. „Þetta
er tollabandalag, það er svo einfalt.
Póstinum hér heima er nú heimilt
að leggja sérstakt gjald á alla pakka
sem koma frá útlöndum, það mun þá
leggjast ofan á sendingarkostnaðinn.
Það eru nokkur hundruð krónur,“
segir Breki.
Benedikt S. Benediktsson, lög-
fræðingur hjá Samtökum verslunar
og þjónustu, segir rétt að hafa í huga
að það sé kostnaðarsamt að flytja
vörur til landsins frá útlöndum og
neytendur sem f lytja vörur inn í
litlu magni muni ekki njóta mikils
kostnaðarhagræðis í samanburði
við stærri innflytjendur. Sama gildi
um innlenda netverslun sem selur
vörur til erlendra neytenda.
„Það er afstaða SVÞ að aukið versl-
unarfrelsi sé af hinu góða og að EES-
samningurinn hafi reynst Íslandi
afar vel, meðal annars í efnahagslegu
tilliti,“ segir Benedikt. „Hins vegar
munu samtökin gæta þess sérstak-
lega og krefjast þess af stjórnvöldum
að þau gæti þess sérstaklega við
innleiðinguna að innlendri verslun
verði tryggð sambærileg staða og
erlendri verslun enda er það for-
senda virkrar samkeppni að þeir
sem taka þátt í innri markaðnum
búi við sambærilegt umhverfi.“
Breki á ekki von á öðru en að þetta
verði samþykkt á Alþingi. „Þetta
hlýtur að fara í gegn fljótt og örugg-
lega. Ég sé engan fyrir mér hreyfa
mótmælum við þessu, það yrði
mjög skrýtið,“ segir Breki. „Þetta er
eitt af þessu jákvæða sem fylgir því
að vera innan EES, jafn aðgangur að
markaðnum. Þetta þýðir það að nú
munum við ekki aðeins bera saman
verð á vörum í innlendum versl-
unum, heldur verð um alla Evrópu.“
– ab
Íslendingar
geti fengið
fullan aðgang
að netverslun
Stefnt er að því að Alþingi innleiði reglugerð um
bann við mismunun í netviðskiptum innan EES
næsta vor. Formaður Neytendasamtakanna segir
þetta gleðifréttir. Samtök verslunar og þjónustu
munu krefjast jafnræðis fyrir innlenda verslun.
Þetta þýðir það að
nú munum við ekki
aðeins bera saman verð á
vörum í innlendum versl-
unum, heldur verð um alla
Evrópu.
Breki Karlsson,
formaður
Neytenda
samtakanna
Megan Rapinoe, leikmaður Bandaríkjanna, er hér með
heimsmeistarabikarinn á lofti en hún varð markahæsti
leikmaður heimsmeistaramótsins. NORDICPHOTOS/GETTY
Fleiri myndir frá úrslitaleiknum er hægt að
finna á +Plússíðu Fréttablaðsins. Í Fréttablaðs-
appinu og PDF-útgáfu á Fréttablaðið.is.+PLÚS
DÓMSTÓLAR Prófessor sem starfar
fyrir lögmenn Warner Music og
Universal Music í dómsmálinu
sem Jóhann Helgason rekur
gegn tónlistarfyrirtækjunum í
Los Angeles segir engin marktæk
líkindi með laginu Söknuði
og laginu You Raise Me Up.
„Það eru engin slík
líkindi milli laganna
sem gefa til kynna að
You Raise Me Up sé
stæling á Söknuði,“ segir í greinar-
gerð tónlistarprófessorsins
Lawrence Ferrara.
Jóhann segir þetta ekki
koma á óvart. Lögmaður
hans, Michael Machat, hefur
nú frest fram yfir miðjan
ágúst hið minnsta til
að afla álits tónlistar-
sér f r æðing s f y r ir
Jóhanns hönd.
– gar / sjá síðu 4
Segir lagið ekki stælingu
0
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
6
0
-F
C
4
8
2
3
6
0
-F
B
0
C
2
3
6
0
-F
9
D
0
2
3
6
0
-F
8
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
0
s
_
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K