Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 11.07.2019, Blaðsíða 1
— M E S T L E S N A DAG B L A Ð Á Í S L A N D I * —1 5 9 . T Ö L U B L A Ð 1 9 . Á R G A N G U R F I M M T U D A G U R 1 1 . J Ú L Í 2 0 1 9 Fréttablaðið í dag SKOÐUN Þorvaldur Gylfason skrifar um flokka í nauðum. 17 SPORT Sara Björk Gunnarsdóttir er komin í stjórn Leikmanna- samtaka Íslands. 18 MENNING Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir sellóleikari sendir frá sér ljóðabók og geisladisk. 26 LÍFIÐ Eitt sinn borðaði listamað- urinn Tómas Freyr ekk- ert nema banana í heilan mánuð. 32 PLÚS SÉRBLAÐ l FÓLK *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Fæðingartíðni er í sögulegu lágmarki á Íslandi á sama tíma og lífslíkur hafa aldrei verið meiri. Fólksfjölgun er ekki enn orðin vandamál, en færri eru vinn- andi. Þarf að grípa til aðgerða til að við- halda lífsgæðum og framleiðni? ➛12 Eignumst við nógu mörg börn? D Ó M S M Á L Mannréttindadóm- stóll Evrópu mun kveða upp dóm í máli Styrmis Þórs Bragasonar gegn íslenska ríkinu á þriðjudag, 17. júlí. Styrmir, sem er fyrrverandi forstjóri MP banka, var árið 2013 dæmdur af Hæstarétti Íslands til eins árs fang- elsis í hinu svokallaða Exeter-máli. Styrmir kvartaði til Mannréttinda- dómstólsins sem tók málið til með- ferðar vorið 2016. Styrmir var fundinn sekur um hlutdeild í umboðssvikum tengdum lánveitingum sparisjóðsins Byrs til Tæknisetursins Arkea ehf. til kaupa á stofnfjárbréfum í sjóðnum. Sam- kvæmt dómnum hafi hann lagt á ráðin um það ásamt Jóni Þorsteins- syni, fyrrverandi stjórnarformanni Byrs, og Ragnari Z. Guðjónssyni, fyrrverandi sparisjóðsstjóra. Hlutu þeir hvor um sig fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm í málinu. Héraðsdómur sýknaði Styrmi í tví- gang í málinu en Hæstiréttur komst að annarri niðurstöðu. Kæra Styrmis fyrir Mannréttindadómstólnum lýtur að því að brotið hafi verið gegn reglu um milliliðalausa sönnunar- færslu. Hafi Hæstiréttur endurmetið sönnunargildi munnlegs framburðar án þess að vitnin hafi komið fyrir réttinn og gefið skýrslu. Þetta er sama atriði og var meðal annars notað í hinu svokallaða Vegas- máli frá 2003. Þá komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði ekki veitt sakborningi réttláta málsmeðferð í manndrápsmáli. – khg MDE dæmir Exeter-mál á þriðjudaginn ORKUMÁL Orka náttúrunnar réð Ólaf Davíð Guðmundsson, fram- kvæmdastjóra og eiganda Hlöðu sem selur hleðslustöðvar, sem ráðgjafa og tæknistjóra hleðslu- stöðva. ON, sem er dótturfyrir- tæki Orkuveitunnar, sér um að reka og þjónusta hleðslustöðvar við þjóðvegi landsins og veitir ráðgjöf fyrir fyrirtæki og fjöl- býlishús. „Ég kem ekki nálægt innkaup- um,“ segir Ólafur en vegir ON og Hlöðu hafa hins vegar legið saman á undanförnum vikum. Mikill kurr er í keppinautum Hlöðu á markaðinum. Gögn sem Fréttablaðið hefur undir höndum sýna að Orkuveitan vissi af hags- munaárekstrinum. – ab / sjá síðu 6 Eigandi Hlöðu í starfi hjá ON Styrmir er fyrrverandi forstjóri MP banka. Hann var dæmdur í eins árs fangelsi árið 2013. Hleðslustöð ON. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 1 1 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 8 -6 7 F C 2 3 6 8 -6 6 C 0 2 3 6 8 -6 5 8 4 2 3 6 8 -6 4 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 0 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.